Morgunblaðið - 05.02.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
Fréttaskýring
Samkvæmt heimildum okkar úr
þingflokkum Framsóknarflokks-
ins og Alþýöuflokksins bárust
þessum flokkum upp úr jólum
skilaboð frá Gunnari Thoroddsen
varaformanni Sjálfstæðisflokks-
ins þess efnis, að hann væri
reiðubúinn til að mynda stjórn
þessara tveggja flokka undir
forsæti sínu með tilstyrk nokk-
urra þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins. Á þessum tíma var
innan Framsóknarflokksins ver-
uleg andstaða gegn samstarfi við
Alþýðuflokkinn vegna ágreinings
um landbúnaðarmál, auk þess
sem Steingrímur Hermannsson,
formaður flokksins taldi, að hans
vegna yrði að koma betur í Ijós,
að ekki gæti oröið af nýrri vinstri
stjórn. í Alþýðuflokknum var á
þessum tíma enginn áhugi á því
að kanna þetta mál og datt það
þar með upp fyrir.
stjórn þessara tveggja flokka
væri ekki tímabært umræðuefni,
en hins vegar væri rétt, að hafa
þessa orðsendingu Gunnars bak
við eyrað, ef þær aðstæður
kæmu upp, að slík minnihluta-
stjórn yrði raunhæfur möguleiki.
Að loknum vinstri viðræðunum,
sem fram fóru undir stjórn Svav-
ars Gestssonar, þar sem könnuð
var myndun vinstri stjórnar mun
þeim framsóknarmönnum, sem
vildu samstarf við Alþýðuflokkinn
og töldu tillögur flokkanna sýna
verulega samstöðu málefnalega,
hafa þótt tími til kominn, að hefja
viðræöur um samstarf þessara
tveggja flokka og Sjálfstæöis-
flokksins. Enn var veruleg and-
staða innan Framsóknarflokks-
ins vegna landbúnaöarmálanna,
en aðrir töldu Alþýðuflokkinn
mjög hafa nálgazt sjónarmið
Framsóknarflokksins í þeim
VILDI
KRATA
Um 10. janúar, en þá fór Geir
Hallgrimsson með stjórnarmynd-
unarumboð frá forseta íslands
og reyndi myndun þjóðstjórnar,
berast alþýðuflokksmönnum
skilaboð frá Gunnari Thoroddsen
um það, að hann sé reiðubúinn
til að veita minnihlutastjórn Al-
þýöuflokks og Framsóknarflokks
hlutleysi eða verja hana van-
trausti og að hann telji að hann
geti haft með sér 6 til 8 þing-
menn Sjálfstæðisflokksins. Þessi
skilaboö vöktu áhuga alþýöu-
flokksmanna, sem ákváöu að
kanna undirtektir framsóknarm-
anna. Enn sem fyrr vakti sam-
starf við Alþýðuflokkinn litla
hrifningu þingmanna Framsókn-
arflokksins, en þó gengu menn til
viðræðna um þessa stjórnarm-
yndun. Rekur lesendur Morgun-
blaðsins vafalaust minni til
fréttaskrifa biaösins hinn 13.
janúar um þessar stjórnarmynd-
unarviðræður, sem bæöi fram-
sóknarmenn og alþýðuflokks-
menn tóku mjög óstinnt upp og
viökomandi sóru af sér. Það mun
þó hafa verið skoðun þeirra
framsóknarmanna, sem á þess-
um tíma aðhylltust samstarf við
Alþýðuflokkinn, að minnihluta-
ENFEKK
KOMMA
málaflokki. Um þetta leyti fær
Benedikt Gröndal umboð frá
forseta til stjórnarmyndunar og
munu fulltrúar Framsóknar-
flokksins hafa gengið til viö-
ræöna undir hans forystu í vissu
þess, að málefnagrundvöllur
samstjórnar þeirra og Sjálfstæö-
isflokksins næöist.
Benedikt Gröndal hóf stjórnar-
myndunartilraunir sínar á því aö
setja saman viðræðugrundvöll,
sem hann bauö öllum flokkum til
viðræðna um. Lúövík Jósepsson,
formaður Alþýðubandalagsins
hafnaði honum þegar í staö á
þeim forsendum að hann væri
grundvöllur að „Stefaníu“-stjórn,
þ.e. samstjórn Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæö-
isflokks. Hins vegar gerðist það,
að grundvöllurinn hlaut óblíðar
viðtökur í Framsóknarflokknum,
einkum vegna landbúnaöarkafl-
ans, sem andstööumenn stjórn-
arsamstarfs viö Alþýðuflokkinn
hentu á lofti og nefndu „grálús-
ugan“ í blaðaviðtali. Kom allt fyrir
ekki, þótt Benedikt Gröndal
segöi strax, aö Alþýðuflokkurinn
væri til viötals um verulegan
afslátt á landbúnaðarkaflanum
og varð þaö stefna Framsóknar-
flokksins að hafna þessum um-
ræðugrundvelli í heild. Aðeins
Sjálfstæöisflokkurinn galt jáyröi
við frekari viðræðum.
Föstudaginn 25. janúar gerist það
svo, aö Benedikt Bogason verk-
fræöingur flutti Guðmundi G.
Þórarinssyni starfsbróður sínum
og alþingismanni ítrekun á skila-
boöum Gunnars Thoroddsen
þess efnis, að hann væri reiðu-
búinn til aö mynda og vera í
forsæti fyrir samstjórn Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks
með stuðningi 4ra til 5 þing-
manna Sjálfstæöisflokksins og
Eggerts Haukdal. Þegar hér er
komiö sögu eru framsóknarmenn
hins vegar með öllu orðnir af-
huga samstarfi viö Alþýöuflokk-
inn, en vilja hins vegar freista
þess að ná samkomuiagi viö
Alþýöubandalagiö og Sjálfstæð-
isflokkinn. Framsóknarmenn
hefja nú viðræður við alþýðu-
bandalagsmenn um þetta stjórn-
armynstur og jafnframt er Guð-
mundi G. Þórarinssyni faliö að
ganga á fund Gunnars Thorodd
sens, fá hjá honum ótvírætt
vilja hans til stjórnarmyndunar
og tilkynna honum, að framsókn-
armenn vilji fá Alþýöubandalagiö
með en ekki Alþýðuflokkinn.
Þetta var þriðjudaginn 29. janúar
og mun það hafa komið Gunnari
Thoroddsen nokkuð á óvart að
framsóknarmenn krefðust þess
aö Alþýðubandalagið væri þriðji
aöilinn, en hins vegar ekki gert
hann afhuga stjórnarmyndun,
þótt hann segöist þurfa frest til
aö kanna
þennan möguleika. Guðmundur
G. Þórarinsson tilkynnir sam-
flokksmönnum sínum þetta og
einnig þeim Alþýðubandalags-
mönnum, sem framsóknarmenn
höföu rætt við, en þar voru
Svavar Gestsson og Hjörleifur
Guttormsson helztir.
Þeir Svavar og Hjörleifur hafa snör
handtök, klippt er á nýsköpun-
arviöræöur, sem Guömundur J.
Guðmundsson og Þröstur Ólafs-
son, hagfræðingur höföu staðið í
með Karli Steinari Guðnasyni og
Magnúsi H. Magnússyni ásamt
Ólafi G. Einarssyni og Lárusi
Jónssyni. Steingrímur Her-
mannsson fór svo á fund Gunn-
ars síðar þennan þriðjudag og
Steingrímur Hermannsson:
Markmiðið að koma verðbólgunni niður í 30%
„VIÐ ERUM með þessi sömu markmið og áður, að koma verðbólgunni
vel niður þetta ár ok enn betur næsta ár og niður í það stig sem er í
okkar næstu viðskiptalöndum á árinu 1982. Þetta er í grundvallar-
atriðum það sem við vinnum að í efnahagsmálum í þeim viðræðum sem
nú standa yfir um stjórnarmyndun undir forystu Gunnars Thor-
oddsens. Markmiðið var að ná verðbólgunni niður í 30% á þessu ári en
við erum búnir að tapa dýrmætum tíma,“ sagði Steingrímur
Hermannsson formaður Framsóknarflokksins við Mbl. i gærkvöldi.
„Þetta hefur gengið á spretti. Það hefur verið mikið að gera.
miðstjórnarfundur hjá okkur framsóknarmönnum og svo fundir með
Gunnari Thoroddsen og Alþýðubandalaginu."
— Hverjir hafa tekið þátt í
viðræðunum við Gunnar Thor-
oddsen og Alþýðubandalagið af
hálfu Framsóknarflokksins?
„Auk mín hafa Tómas Árnason
og Jón Helgason tekið þátt í
þessum viðræðum og Guðmundur
G. Þórarinsson til vara og hann
hefur tekið þátt í einum fundi."
— Hver er staðan að þínu
mati?
„Staðan er sú að það miðar vel í
gerð málefnasamninga og virðist
óðum stefna að því að hann geti
orðið tilbúinn fljótlega."
— Það stefnir því allt í það að
þessi stjórnarmyndun takist?
„Eg geri mér fastlega vonir um
það.“
— Nú var miðstjórnarfundur
um helgina. Voru framsóknar-
menn cinhuga um að taka þátt i
ríkisstjórn undir forystu Gunn-
ars Thoroddsens?
„Já, það var einróma samþykkt
að ganga til svona stjórnarsam-
starfs enda verði samstaða um
málefnagrundvöll, og fram-
kvæmdastjórn og þingflokki var
heimilað að ganga frá því.“
— Menn hafa verið famálir
um þann málefnasamning sem
unnið er að. Getur þú upplýst
hvað í honum felst?
„Eg get ekki skýrt frá því
nákvæmlega og þetta er nú í
vinnslu hjá öllum flokkunum. En
það felast auðvitað í honum eins
og í tillögum allra aðgerðir til þess
að reyna að koma verðbólgunni
niður og svo fastir þættir eins og
verðlagsmál, peningamál, lána-
mál, ríkisfjármál og kjaramál.
Það er unnið að því að koma þessu
á sameiginlegan grundvöll."
— Hvað með önnur mál svo
sem varnarmálin?
„Það verður auðvitað talað um
utanríkismálin en það er ekki
frágengið."
— Eru viðræðurnar komnar
svo langt að það sé farið að ræða
skiptingu ráðuneyta?
„Nei, við erum ekki komnir svo
langt ennþá.“
— Nú gckkst þú á fund for-
scta ísiands í dag. Getur þú skýrt
frá því hvað ykkur fór á milli?
„Ég skýrði frá þvi sem gerst
hafði frá því að hann gaf engum
umboðið en bað okkur að vinna
alla að stjórnarmyndun. Ég gerði
honum grein fyrir þeim sam-
þykktum, sem Framsóknarflokk-
urinn hefur gert og lagði til fyrir
mitt leyti að Gunnari Thoroddsen
yrði falin stjórnarmyndun."