Morgunblaðið - 05.02.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
21
Islandsmeisturum Vals í handknattleik, tókst með miklum baráttu og hvatningar
hrópum rúmlega 3000 áhorfenda að sigra Svíþjóðarmeistarana Drott 18—16 í
Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld. Á myndinni hér að ofan má sjá hvar liðinu er
fagnað í lok leiksins er sigurinn var í höfn. Sjá bls. 24 og 25.
Jóhannes til
Grófhálsanna!
JÓHANNES Eðvaldsson. íyrir-
liði islenska landsliðsins i
knattspyrnu og leikmaður með
Glasgow Celtic í Skotlandi
síðustu árin. heíur gert samn-
ing við bandaríska félagið
Tulsa Roughnecks frá Okla-
homa.
Jóhannes hefur sem fyrr segir
leikið síðustu keppnistímabilin
með Celtic, allan tímann við
góðan orðstír. Það sem af er
þessu keppnistímabili hefur
honum þó ekki tekist að vinna
sér fast sæti í aðalliði félagsins
AIH sutsur istdndsht
Vdrvar lundslugsmun
- vHII*t f«r mil «fWr*)m ]HI
h»r «tt Jobb inom d.Ubrui.ch.n
och gbm. vtU foru.iu nud driu
•'fur m vlu Khlim.Uurlnuap.-
nod d.rrond ot-h frtnul mia-
!in,ar m#d Hnrduri iilandik
khjbb V.lor HryViav’k M«n .11
Ugt HOrdur ij.lv a.MI dat i.lr
Sstts:
flytu Ull Svorif* och m K
doek maddcl.l Kl d* gir
• Mikið var skrifað um komu Harðar til AIK og birtar af honum
stórar myndir. Úrklippan hér að ofan er úr Dagens Nyheter.
Hörður er kominn í jakka með merki félagsins og forráðamenn
félagsins eru í baksýn.
Fer Hörður til AIK?
ákveðinn í að skipta um félag.
Var Jóhannes orðaður við ýmis
félög, en til þessa hefur ekkert
orðið úr félagaskiptum. í samn-
ingi Jóhannesar, sem sagður er
vera til tveggja ára, eru m.a.
ákvæði um að sleppa honum til
landsleikja hafi KSÍ áhuga á að
fá hann.
Tulsa er meðal þekktari
knattspyrnuliða Bandaríkjanna.
Leika nokkrir kunnir leikmenn
með því, einkum nokkrir hálfút-
brunnir Engilsaxar eins og Dav-
id Nish og Roger Davis, sem
báðir eru þekktir knattspyrnu-
menn og gerðu garðinn frægan
hjá Derby.
Það eru talsverðar líkur á að
ég skrifi undir samning við
sænska liðið AIK. Ég mun gefa
félaginu ákveðið svar á föstu-
dagskvöld, sagði Hörður Ililm-
arsson knattspyrnumaður í Val
er Mbl. ræddi við hann um ferð
hans til Svíþjóðar en hann kom
heim á sunnudagskvöldið eftir
að hafa dvalið í vikutíma við
æfingar hjá AIK í Stokkhólmi.
Mér leist ljómandi vel á allar
aðstæður hjá félaginu svo og á
tilboð það sem mér var boðið. Ég
æfði með liðinu daglega og lék
einn æfingaleik. Liðið er sterkt á
íslenskan mælikvarða og ætti að
geta sigrað í 2. deildínni á næsta
keppnistímabili. AIK hefur ný-
verið keypt tvo finnska lands-
liðsmenn til liðs við sig. Æfingar
hefjast kl. 3 á daginn og eftir
æfingar snæða leikmenn saman
og eru lausir upp úr kl. 5. Af
þessu má sjá hversu mikill
aðstöðumunur er á miðað við
það sem við eigum að venjast hér
heima. Sumir leikmanna liðsins
gera ekkert annað en að æfa
knattspyrnu ...
— Ef af því verður að ég fari
út þá mun ég fara í marz. AIK
fer í æfingaferð til Portúgals og
leikur þar tvo leiki. Þeir leggja
áherslu á tveggja ára samning,
en það ákvæði verður í samning-
um að ég get farið heim eftir 1 ár
hafi ég áhuga á því. Þá mun ég
eiga kost á að leika landsleiki
verði þess farið á leit við mig.
Félagið hefur íslenskan lækni,
Friðfinn Sigurðsson og var hann
mér mjög innan handar við
samningagjörðina, sagði Hörður
að lokum. -þr.
Fundahöld hjá KSÍ:
Dregið um töfluröð í dag
FYRSTU deildar félögin í
knattspyrnu eiga með sér
merkilcgan fund i dag, ásamt
KSÍ. Verður þá væntanlega
dregið um töfluröð fyrir kom-
andi keppnistímabil. Fær þá
hvert lið sitt númer og verður
síðan leikið eftir formúlu.
Töluverð óánægja mun vera
ríkjandi hjá nokkrum félögum
varðandi reglurnar um hina
nýju tekjuskiptingu. Hún felst
m.a. í því að heimaliðið hirðir
allt sanjan. Það eru ekki síst
utanbæjarliðin sem eru sögð
vera allt annað en ánægð með
nýja fyrirkomulagið. En þetta
gæti komið illa við Reykja-
víkurfélögin líka. Lítum t.d. á að
ef Valur og Fram ættu að leika
fyrri leik sinn í mótinu strax í
maí. Kalt vor og leikið á möl.
Útkoman sárafáár hræður.
Síðan ætti Fram kannski heima-
leik sinn á mikilvægri stund
undir lok keppnistímabilsins á
Laugardalsvellinum. Þetta er
möguleiki sem gæti hæglega
orðið að veruleika og augljóst er
að vorleikurinn myndi gefa af
sér litilræði miðað við síðsum-
arsleikinn. Þetta atriði og önnur
sem óvíst er hvernig verða í
reynd, verða rædd á fundinum.
Á fundi hjá KSÍ fyrir skömmu
var ákveðið að fela formannin-
um, Ellerti B. Schram, að ganga
frá samningum við Guðna
Kjartansson sem landsliðsþjálf-
ara og Ellerti var einnig falið að
ræða við Lárus Loftsson um
framhald á þjálfun unglinga-
landsliða íslands. Tjáði Kjartan
Trausti framkvæmdastjóri KSÍ
Mbl. að einhugur hefði ríkt um
landsliðsþjálfaramálið.
Skipað var í nefndir KSÍ á
umræddum fundi. Engar for-
mannabreytingar voru gerðar.
Helgi Dan. er eftir sem áður
formaður landsliðsnefndar. Árni
Þorgrímsson hjá mótanefnd,
Gylfi Þórðarson hjá unglinga-
nefnd, Friðjón B. Friðjónsson
hjá aganefnd, Jens Sumarliða-
son hjá tækninefnd og Hilmar
Svavarsson hjá dómaranefnd.
Loks má geta j)ess, að á fundi
þessum hjá KSI voru ákveðnir
leikdagar fyrir íslandsmótið í
innanhúsknattspyrnu. Mótið fer
fram dagana 14,—16. mars
næstkomandi í Laugardalshöll-
inni. gg.