Morgunblaðið - 05.02.1980, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.02.1980, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980 Víkingar ráóa, fyrrum þjálfara sovéska landsliósins VÍKINGAR hafa ráðið þjálfara fyrir 1. dcildarlið sitt í sumar, Youri Sodov. Hann er sovéskur ok kunnur í hcimalandi sínu. bæði scm cinn af kunnustu knattspyrnumonnum á sínum tíma ok cins þjálfari. A árunum 1947 til 1959 lck hann mcð stórliðinu Spartak frá Moskvu ok var cinn af bcztu knattspyrnu- mónnum Sovctríkjanna. Mcð Spartak varð Youri tvívc>?is sov- cskur mcistari ok tvívcKÍs bik- armeistari. Eftir að knattspyrnu- fcrli hans lauk hóf hann nám við íþróttaháskólann í Moskvu ok lauk æðstu prófum þaðan auk þcss scm hann lauk kcnnaraprófi í uppeldisfræðum. Leiðin lá síðan að þjálfun. Hann var aðalþjálfari 1. deildarliðanna Volnu ok Vympel á árunum 1964 til 1972. Síðan þjálfaði hann um skeið erlendis en sneri aftur til Sovétríkjanna og varð einn af þjálfurum sovéska landsliðsins. Sovétmenn stokkuðu landsliðsmál sín upp, sem og uppbyípíinpu knattspyrnunnar þar eð árangur landsliðsins þótti ekki nógu góður. Sedov var gerður að yfirmanni þeirrar deildar vísindaakademí- Í stað Youra Ilitschev fá Víkingar nú Youra Sedov. unnar sovésku, sem fæst við rann- sóknir á leikaðferðum og leikkerf- um og eins líkamsþjálfun. Stofn- unin markaði síðan stefnuna i þjálfun knattspyrnunnar í Sovét- ríkjunum og eins í íþróttaskólum. Það er engum vafa undirorpið að Sovétmann hafa fengið mjög hæf- an mann til að taka við af Youri Uitschev og eru þeir af sama skólanum, — útskrifaðir frá íþróttaháskólanum í Moskvu. Víkingar höfðu leitað um skeið fyrir sér um þjálfara og auk Sedov voru þeir í sambandi við þrjá þjálfara, sem lýstu sig reiðubúna að koma. Það var Hollendingurinn Theo Cremer, hann hefur þjálfað áhugamannalið í Hollandi um árabil. Belginn Baert Egune, fyrr- um leikmaður Lokeren og þjálfari 2. deildarliðsins Aalt og Skotinn Alex Willoughby, fyrrum leik- maður Rangers. Aður þjálfaði hann unglingalið Aberdeen og eins þjálfaði hann í Ilong Kong og S-Afríku. Þá hafa Víkingar ráðið fram- kvæmdastjóra yfir allt árið og hefur Sigurjón Einarsson verið ráðinn í fullt starf. Víkingar munu halda til Englands í byrjun apríl og stunda æfingar í æfingabúðum í Maidenhead. Tveir leikmenn hafa gengið í raðir félagsins, Oskar Magnússon frá Reyni, Sandgerði og Þröstur Gunnarsson, Hofsósi. Þá hafa þeir Gunnlaugur Kristfinnsson og Þorgils Arason báðir fyrrverandi unglingalands- liðsmenn, hafið æfingar á ný með Víking eftir að hafa leikið fyrir austan. H Halls Enn sigrar Hjálmur HJÁLMUR Sigurðsson Víkverja sigraði í 68. Skjaldarglímu Ár- manns, sem glímd var í íþróttasal Melaskólans á sunnudaginn. Iljálmur varð nú skjaldarhafi í þriðja sinn og var hann vel að sigrinum kominn. Má hiklaust telja hann bezta glímumann Reykvíkinga nú og í hópi beztu glímumanna landins. Og víst cr að enginn glímir jafn fallega og Hjálmur þcgar honum tckst vcl upp. Átta glímumcnn voru mættir til leiks á sunnudaginn, allir beztu glímumcnn höfuðborgar- innar. Einn þcirra, Guðmundur Freyr Halldórsson. varð að ganga úr glímunni vcgna meiðsla. Úrslit 68. Skjaldarglímunnar urðu þessi: vinn. 1. Hjálmur Sigurðsson Víkverja 5 Guðmundur Ólafsson Ármanni 4 Ólafur H. Ólafsson KR 4 Sigurjón Leifsson Ármanni 2'h 6. -6. Árni Unnsteinsson Víkv. 2 5.-6. Helgi Bjarnason KR 2 7. Árni Bjarnason KR \'h Snemma í glímunni tapaði Guð- mundur Ólafsson fyrir hinum geysiefnilega Ólafi H. Ólafssyni og blasti þá beina brautin við Hjálmi, sem vann sínar fyrstu glímur. En í næstsíðustu umferð- inni gerði Guðmundur sér lítið fyrir og lagði Hjálm og bjuggust þá allir við því að til aukaglímu þyrfti að koma milli Guðmundar og Hjálms. En svo varð ekki því að í síðustu umferðinni urðu aftur óvænt tíðindi, Guðmundur tapaði fyrir neðsta manninum, Árna Bjarnasyni, og þar með var Hjálmur orðinn sigurvegari. Þeir Guðmundur og Ólafur H. Ólafsson urðu síðan að glíma aukaglímu um 2. sætið og vann Guðmundur. Sem fyrr segir var Hjálmur vel að þessum sigri kominn og hann og Sigurjón Leifsson glímdu fal- legustu glímurnar í þessu móti. Guðmundur Ólafsson er sterkur glímumaður en hann vantar að- eins herslumuninn til þess að komast í allra fremstu röð. Ólafur H. Ólafsson er okkar efnilegasti glímumaður, sem vafalaust á eftir að vinna skjöldinn ef hann heldur áfram að stunda íþrótt sína. Sigurjón er glímumaður, sem læt- ur fegurðina sitja í fyrirrúmi og er það vel. Árnarnir tveir og Helgi eru ungir og efnilegir glímumenn, sem vafalaust eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Glímustjóri var Ólafur Guð- laugsson en dómarar voru Garðar Erlendsson, aðaldómari, Gunnar R. Ingvarsson og Þorvaldur Þor- steinsson. Áhorfendur voru aðeins 32 og er leitt til þess að vita að Reykvíkingar skuli sinna þessari ágætu íþrótt svo lítið sem raun ber vitni. Ættu glímuáhugamenn að íhuga þetta og spyrja sjálfa sig, hvers vegna þeir láta ekki sjá sig á glímumótum. - S.S. KA áfram í bikarnum Afturclding var KA cngin hindr- un þcgar liðin madtust í bikar- keppni HSÍ fyrir norðan um helgina. KA sigraði 31:29 cftir að hafa leitt í hálfleik, 15:11. Það var augljóst í upphafi að KA-mcnn ætluðu ckki að láta þau mistök koma fyrir aftur scm leiddu til þess að þeir töpuðu fyrir Aftureldingu í deildinni fyrr í vetur fyrir sunnan. Það var aldrei neinn vafi hvort liðið var betra í þessum leik, og var sigurinn sanngjarn. 63 mörk á 60 mínútum benda ekki til þess að varnarleikur og markvarsla liðanna hafi verið upp á marga fiska. KA-menn voru ákveðnir í vörninni og spiluðu hana vel á köflum en þess á milli datt botninn algjörlega úr varn- arleik þeirra. Mörg göt og stór mynduðust hvað eftir annað í vörn gestanna og áttu KA-menn yfir- leitt ekki í neinum vandræðum með að komast þar í gegn. Sér- staklega gekk leikmönnum Aftur- eldingar illa að stöðva Alfreð Gíslason, sem var í miklu st.uði, og gat hann skorað nánast þegar hann vildi. Mörk hans urðu 15 áður en yfir lauk, mörg með gullfallegum þrumuskotum. Lítil ógnun var í sóknarleik Aftureldingar þrátt fyrir að þeim tækist að skora 29 mörk. KA- menn spiluðu mun skemmtilegri handbolta, og var sigur þeirra aldrei í hættu. KA tók forystuna strax í upp- hafi og hélt henni afveg til leiks- loka. Mestur varð munurinn 10 mörk um miðjan síðari hálfleik- inn. Um miðjan fyrir hálfleik gripu gestirnir til þess ráðs að taka Álfreð úr umferð en ekki riðlaðist leikur KA neitt við það. Gunnar Gíslason var einnig góður hjá KA og þá átti Jóhann Einars- son ágætan leik. I liði Aftureldingar var Steinar Tómasson langbestur og þeir Lár- us Halldórsson og Gústaf Bald- vinsson léku einnig vel. Góðir dómarar leiksins voru Stefán Arn- aldsson og Gunnar Jóhannsson. Eins »K artur sa«Ai skuraAi AKrcft Gísla- son 15 mork fyrir KA (3 viti) og var markaha'stur. Gunnar bróftir hans skorafti 8 mörk (2 v). Þurleifur Ananiasson 1 (1 v). -ióhann Einarsson 3. Jóhannes Bjarnason 2 ok þeir Guftmundur Lárusson ok Guftmund- ur Guömundsson 1 mark hvor. Lárus Halldórsson skorafti 8 mörk fyrir AftureldinKu. þar aí i úr vítum. Steinar Tómasson ok Gústaf Baldvinsson skoruftu 7 mörk hvor. Bjorn Björnsson. InKvar Árna- son OK Þórftur Iljaltason skoruðu allir 2 mörk ok MaKnús Guftmundsson skoraði 1 mark. • Einn Týrara búinn að snúa á vörn Víkings og uppskeran varð mark að þeSSU SÍnnÍ. Ljósm. SÍKurxeir. Vikingur varð að hafa fyrir Vikingur 21l28 Bikarmeistarar Víkings brugðu undir sig bctri fætinum á sunnudaginn. skruppu út til Vestmannacyja. þar scm þcir léku við Tý í bikarkeppni HSÍ. Víkingarnir unnu 2. deildar lið Týs örugglega 28 — 21 í einum besta og skemmtilcgasta leik sem boðið hefur vcrið upp á í íþrótta- húsinu í Vestmannacyjum. Þó að sigur stórliðs Víkings hafi verið öruggur í lokin. þurftu meistar- arnir lcngst af að hafa sig alla við gcgn sprækum og baráttu- glöðum Týrurum. Víkingarnir léku þcnnan lcik allan timann á fullu, enda lcyfðu mótherjar þeirra þeim aldrci að slappa af. Týrarar gcta vel við unað, þeir slepptu Víkingunum aldrei meira en 2—3 mörk fram úr, þangað til um miðjan scinni hálfleikinn, en þá kom mjög slæmur kafli hjá þcim, þegar þeir sköruðu ekki mark í 15 mínútur. Á þessum kafla skoruðu Víkingar grimmt með vel útfærðum hraðaupp- hlaupum og náðu því forskoti sem úrslitum réð í leiknum. Víkingar skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins, en Týrar jöfnuðu, 2—2. Síðan leiddi Víkingur lengst sigri af með 2—3 mörkum. í hálfleik var staðan 15—12 fyrir Víking. I hinum slæma kafla Týs í síðari hálfleik náði Víkingur upp 9 marka forskoti, en Týrurum tókst að laga stöðuna örlítið í lokin, 28—21 og Sigurlás Þorleifsson misnotaði víti á síðustu mínútu leiksins. Eins og áður sagði var leikur þessi mjög skemmtilegur og hinir fjölmörgu áhorfendur sem fylltu íþróttahúsið héldu ánægðir heim þrátt fyrir tap sinna mannai Þeim hafði nú sjálfum vitnast hvers vegna Víkingur trónar nú svo afgerandi á toppi 1. deildar. Eftir leikinn buðu Týrarar gestum sínum í heilmikla veislu og leystu hinn pólska þjálfara Víkings, Bog- dan, út með gjöf. Bestu menn Víkings voru Páll Björgvinsson og Þorbergur Aðal- steinsson, auk þess stóð Árni vel fyrir sínu. Hjá Tý bar mest á Sigurlás Þorleifssyni, éinnig áttu Þorvarður Þorvaldsson og Óskar Ásmundsson góðan leik. Markahæstir hjá VíkinKÍ: ÞorhorKur 8. Páll fi. SÍKurftur Gunnarsson fi/4. Markha'stir hjá Tý: SÍKurlás 8/fi. Óskar 4. Bonodikt 3. Markvörftur Týs. EkíII Stoinþórsson. skor- afti oitt mark hjá landsliftsmarkvorftinum Kristjáni SÍKmundssyni. kasti ylir ondi- lanKan völlinn. Dómarar voru Jón llormannsson ok Gunn- ar Kjartansson og da mdu þoir vol. hkj Skagamenn skelltu Þór Þór Ak 24:19 ÍA, úr 3. deild, gerði sér lítið fyrir og sló Þór úr 2. deild út úr bikarkeppni IISÍ á Akranesi um hclgina. Eftir að hafa verið þrcm- ur mörkum undir í leikhléi, 8—11, sncru Skagamenn taflinu við í síðari hálflcik og skoruðu hvcrt markið af öðru. Þegar upp var staðið, blasti við fimm marka sigur ÍA, 24 — 19. Er það afbragðsárangur hjá 3. deildar liði gegn liði úr 2. deild. Það var ekki síst gamla lands- liðskempan Jón Hjaltalín Magn- ússon sem lagði grunninn að sigri IA, en stórgóður leikur hans dreif Skagamenn áfram. Troðfullt hús áhorfenda fylgdist með viðureign- inni og hafði gaman af. Mörk ÍA skoruðu: Jón Hjaltalín 6, Haukur 6/3, Kristján og Þórður 3 hvor, Ólafur Páll, Guðjón og Daði 2 hver, Hlynur 1 mark. Mörk Þórs skoruðu: Sigtryggur 5/2, Árni og Pálmi 4 hvor, Bene- dikt 3, Hrafnkell 2 og Valur eitt mark. Leikinn dæmdu þeir Grétar Vilmundarson og Stefán Hjalta- son og gerðu það vel. Vestur-Þjóð- verji til KA KNATTSPYRNULIÐ KA á Ak- ureyri, sem féll niður í 2. deild á síðasta keppnistimabili, fær vestur-þýskan þjálfara um miðj- an mánuðinn. Mun sá þýski fyrst og fremst ætla að ræða málin og skoða mannskap og aðstæður hjá KA. Klaus Hilpert, þjálfari Skaga- manna, hefur að undanförnu verið að leita að þjálfara fyrir KA og er þessi kappi væntanlega runninn undan rifjum Hilperts. Mun sá þýski dvelja hérlendis í nokkra daga og væntanlega mun síðan skýrast fljótlega hvort úr samn- ingum verður. sor

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.