Morgunblaðið - 05.02.1980, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
ÞAO er oröiö langt síðan handknatt-
leiksliö hefur fengiö jafninnilega hyllingu
og fagnaðarlæti og liö Vals fékk frá
troðfullu húsi áhorfenda er þeir höfðu
unnið það glæsilega afrek að sigra
Svíþjóðarmeistaran Drott 18—16 í síðari
leik liðanna í Evrópumeistarakeppninni í
handknattleik, og tryggja sig um leið
fyrstir íslenskra liða í fjögurra liða úrslit
keppninnar. Leikur Vals og Drcit er
tvímælalaust einn sá mest spennandi
sem fram hefur farið á fjölum Laugar-
dalshallarinnar og áhorfendur voru risnir
úr sætum sínum af spenningi lokamínút-
urnar sem reyndu vægast sagt á taug-
arnar. Valsmenn höfðu tapað fyrri leik
sínum 18—17, og þurftu því að sigra í
þessum leik með einu marki ef færri
mörk voru skoruð en í leiknum úti eða þá
með tveimur, ef fleiri yrðu skoruð. Það
tókst þeim þótt um tíma hafi útlitiö verið
svart. En með gífurlegri baráttu og
viljastyrk tókst þeim að sigra. Þá var
þáttur áhorfenda stór í leiknum því að
þeir hvöttu Valsliðið gífurlega vel þegar
mest á reið. Sigur Valsmanna er stór, og
ekki aðeíns fyrir þá heldur líka mikill
sigur fyrir íslenskan handknattleik. Það
er ekki lítið afrek að slá besta lið
Svíþjóðar út úr keppninni. Þá er þetta
líka nokkur sárabót eftir að Svíar hafa í
tvígang slegið Víkinga út úr Evrópu-
keppninni.
Útlitið var
orðið svart.
Það var greinilegt í byrjun
leiksins að mikið var í húfi bæði
liðin fóru rólega af stað og léku
yfirvegað. Þó sérstaklega hið
leikreynda lið Svía.
Bæði liöin
misnotuðu fyrstu sóknirnar, Þor-
björn Guðmundsson átti skot í
þverslá en Svíar skutu framhjá.
Drott skoraði fyrstu tvö mörkin
en Stefán fyrirliði Gunnarsson
jafnaði metin fyrir Val með
tveimur góðum mörkum. Þegar 17.
mínútur eru liðnar af leiknum er
staðan 4—4, en þá var eins og
taugaspenna sem greinilega hrjáði
Valsmennina brytist út og sóknar-
leikur þeirra riðaðist og lítil
barátta var í vörninni. Leikmenn
Drott gengu á lagið og skoruðu nú
hvert markið af öðru án þess að
Valsmenn fengju rönd við reist og
á 25. mínútu fyrri hálfleiksins
höfðu þeir náð yfirburðastöðu, sex
marka forskoti 10—4, og með
ólíkindum að Valsmönnum tækist
að vinna það forskot upp. En þá
skyndilega small liðið í liðinn og
allt fór að ganga upp og áður en
flautað var til hálfleiks höfðu
Valsmenn skorað fjögur mörk á
móti engu og því aðeins tveggja
marka munur 10—8 í hálfleik.
Ohætt er að fullyrða að þessar
fimm mínútur voru þungar á
vogarskálunum í leiknum. Valslið-
ið náði þá að keyra nokkuð upp
hraðann og nýttu færi sín til
fullnustu. Skutu líka á réttan stað
á markvörðinn, reyndu gólfskot og
við þau réð hann ekki.
Valur 4A Hf*
— Drott lö“ ID
Æsispennandi
siðari hálfleikur
Allur síðari hálfleikurinn ein-
kenndist af gífurlegri baráttu hjá
báðum liðum. Leikmenn gáfu
aldrei þumlung eftir hvorki í vörn
eða sókn. Valsmenn komu mjög
ákveðnir til Itiks, og ætluðu
greinilega að selja sig dýrt. Þeir
hófu leikinn af miklum krafti og
voru greinilega í miklum ham.
Steindór Gvmnarsson sem átti
stórleik á línunni skoraði þrjú
fyrstu mörk Vals í hálfleiknum, og
eitt þeirra var sérlega glæsilegt
eftir samvinnu við Bjarna Guð-
mundsson í horninu.
Á 40. mínútu leiksins tekst Val
að jafna leikinn 12—12. Fram að
því höfðu Svíar ávallt haft frum-
kvæðið í leiknum. Var greinilegt
að nú var farið að reyna á þolrif
leikmanna Drott og leikur þeirra
var ekki eins öruggur og hann
hafði verið. Þá var stemmningin í
Laugardalshöllinni slík að það er
ekkert grín fyrir aðkomulið að
lenda í slíku. Enda létu Valsmenn
þau orð falla eftir leikinn að svona
ætti heimavöllur að vera.
Svíum voru nú mislagðar hend-
ur í sókninni enda tóku Valsmenn
hressilega á móti þeim í vörninni
sem var vel leikin og markvarsla
Brynjars ágæt. Valur fær tvö
tækifæri til að ná forystu en bæði
mistakast. Fyrst lætur Þorbjörn
Guðmundsson verja hjá sér víta-
kast, og síðan fer Gunnar Lúðvíks-
son inn úr horninu í þröngu færi
og skýtur beint í markvörðinn.
Besti maður Drott Bengt Böna
Hansson, sem reyndist vörn Vals
erfiður, kemur Drott yfir 13—12,
en Stefán Halldórsson jafnar fyrir
Val úr vítakasti. Drott nær síðan
tvívegis forystu 14—13 og 15—14,
en Valsmenn jafna og var Stefán
Halldórsson þar að verki en hann
lék lokakafla leiksins mjög vel.
Þegar staðan er 15—15, og 10
mínútur eftir af leiknum bregður
Hilmar Björnsson þjálfari Vals á
það ráð að láta taka tvo leikmenn
Drott úr umferð. Snjallt bragð
sem heppnaðist fullkomlega. Allur
sóknarleikur þeirra varð fálm-
kenndur, þannig að bragð Hilmars
heppnaðist fullkomlega. Á 55.
mínútu leiksins tekst svo Bjarna
Guðmundssyni að skora 16 mark
Vals og koma Val yfir í fyrsta
skipti í leiknum. Nú þurfti að
stöðva leikinn þar sem bréfadrasl
hafði borist inn á völlinn og var
gert um 4 mínútna hlé á leiknum
meðan gólfið var sópað.
Drott jafnar í næstu sókn 16—
16 og aðeins þrjár og hálf mínúta
er eftir af leiknum þegar Vals-
menn hefja sókn. Gunnar Lúð-
víksson fer inn úr hægra horninu í
mjög þröngu færi og skýtur beint
á markvörðinn. Þetta hefði getað
orðið örlagaríkt. Gunnar reyndi
þarna markskot allt of fljótt og
var ekki í góðu marktækifæri.
Nú var allt á suðupunkti í
höllinni. Drott nægði jafntefli í
leiknum, og léku leikmenn greini-
lega upp á það að halda boltanum.
Það tókst ekki betur en svo að
Bjarni nær boltanum og brunar
upp og var kominn í dauðafæri
18 MÖRK ÚR
NÝTING einstakra leikmanna
var misjöfn eins og vera ber og er
jafnan, en samtals skoruðu Vals-
menn 18 mörk úr 39 sóknar-
lotum. Liðið átti 21 sóknarlotu í
fyrri hálfleik og var nýtingin þá
frekar léleg. enda var þetta
leikur sterkra varna, 8 mörk
voru skoruð. í síðari háifleik
gekk betur, enda tryggðu Vals-
menn sér þá sigurinn, sem þeir
hefðu ekki gert ef nýtingin frá
fyrri hálfleik hefði ekki batnað. í
síðari hálfleik áttu Valsmenn 18
sóknarlotur og nú urðu mörkin
10 talsins.
Nýting einstakra leikmanna fer
hér á eftir. Fyrsta talan sem gefin
er upp eftir hvert nafn táknar
skotafjölda viðkomandi leik-
manns, næsta tala hve mörg
mörkin urðu úr skotunum öllum
og loks kemur hve oft leikmaður
hefur glatað knettinum með öðr-
um hætti heldur en með því að
láta markskot geiga.
Þorbjörn Guðmundsson 112 1
Þorbjörn Jensson 2 0 0
ammmmmmmmmi