Morgunblaðið - 05.02.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
29
Aldursforsetinn
lætur til skarar skríða
ÞEGAR Geir Hallgrímsson lauk
tilraunum sínum til stjórnar-
myndunar, gaf hann rækilega til
kynna, að þær hefðu ekki síst
strandað á því, að viðmælendur
sínir hefðu verið með hugann við
aðra möguleika. I sjónvarpi á
laugardagskvöldið skýrði Geir
síðan frá því, að á þeim tíma,
sem hann fór með umboð for-
seta, hafi Gunnar Thoroddsen
verið að ámálga það við fram-
sókn og krata að hann kynni að
veita minnihlutastjórn þeirra
brautargengi. En einmitt um
þær sömu mundir gekk Tómas
Arnason fram fyrir skjöldu og
harðneitaði öllum fréttum Morg-
unblaðsins um að viðræður um
slíka minnihlutastjórn færu
fram.
Síðasta vika hefur leitt í ljós,
að ýmislegt hefur verið að gerast
á bak við tjöldin, á meðan
stjórnmálaforingjarnir hafa til
skiptis farið með stjórnarmynd-
unarumboðið. Baktjaldamakk-
inu lauk um leið og forseti fól
stjórnmálaforingjunum fjórum
að ræðast við um myndun meiri-
hlutastjórnar og veitti þeim til
þess frest, þar til upp úr þeirri
helgi, sem nú er liðin. Það var á
miðvikudag og strax á fimmtu-
daginn fór það að kvisast, að
Gunnar Thoroddsen hefði tekið
forystu í tilraunum til að koma
saman stjórn með framsókn og
kommum. Á þingflokksfundi
sjálfstæðismanna á föstudag,
sem haldinn var að ósk Gunnars,
var ítrekað af 18 þingmönnum
flokksins, en tveir sátu hjá
Gunnar og Friðjón Þórðarson og
einn var fjarverandi, Pétur Sig-
urðsson, að Geir Hallgrímsson
færi með stjórnarmyndunar-
umboð fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins og hefði frjálsar hend-
ur um tilraunir til myndunar
meirihlutastjórnar. Tillaga
Gunnars Thoroddsens kom
aldrei til atkvæða. Eftir fundinn
var ljóst, að hann hafði ekkert
umboð frá sjálfstæðisþing-
mönnum til að reyna stjórnar-
myndun.
Gunnar var þó ekki af baki
dottinn, því að í sjónvarpi þetta
sama kvöld skýrði hann frá því,
að hann teldi einsýnt, að hann
héldi áfram tilraunum sínum,
enda væri það skylda þingmanna
að gera allt, sem í þeirra valdi
stæði til að tryggja þjóðinni
þingræðisstjórn. Minna má á, að
þegar Gunnar hélt svipuðum
sjónarmiðum fram í sjónvarps-
þætti þriðjudaginn 22. janúar,
bætti hann því við, að þingmenn
ættu að minnast stjórnarskrár-
ákvæðisins, um að þeir skyldu
fara að eigin sannfæringu og
samvisku og ef til vill væri
nauðsynlegt að kasta af sér
flokksböndunum. Einmitt það
hefur varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins nú gert. Gunnar
Thoroddsen hefur rift flokks-
böndin. Og í Morgunblaðinu 2.
febrúar sagði Gunnar: „Það er
kannski ekki síst vegna þess,
hversu lengi ég hef setið á þingi
og að ég er aldursforseti þess,
sem ég finn ekki síður en aðrir
alþingismenn til þeirrar ábyrgð-
ar og tel það skyldu mína að
stuðla að því, ef maður eygir
einhvern möguleika á því að
koma saman meirihlutastjórn."
í viðtali við Morgunblaðið
sagði Friðjón Þórðarson: „Gunn-
ar Thoroddsen er aldursforseti
þingsins og það er út af fyrir sig
ekkert óeðlilegt, þótt mönnum
hafi þótt það kostur að athuga,
hvort hann fengi einhverju áork-
að.“
Fyrr á árum, þegar í mikið
óefni var komið, leitaði forseti
Islands á stundum til forseta
sameinaðs Alþingis og bað hann
að reyna stjórnarmyndun. Svo
var til dæmis, þegar Emil Jóns-
son myndaði minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins 1958, þá var
hann forseti sameinaðs þings og
Steingrímur Steinþórsson
gegndi því embætti, er hann
varð forsætisráðherra í sam-
stjórn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks 1950. Aldrei
fyrr hefúr verið lögð á það sú
áhersla sem nú, að aldursforseti
þingsins hafi einhverju sérstöku
hlutverki að gegna við stjórnar-
myndanir. Hljóta flokkar að
taka þessar ábendingar til íhug-
unar við skipan framboðslista
sinna í næstu kosningum.
Frumkvæði Gunnars Thorodd-
sens leiðir til klofnings, sem
reynt er að breiða yfir með
ýmsum rökum. Vitnað er til
þess, að þegar Ólafur Thors
myndaði nýsköpunarstjórnina
1944 hafi fimm þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins neitað að styðja
þá stjórn en setið þingflokks-
fundi engu síður. Mótmæli þess-
ara þingmanna eru allt annars
eðlis en sú iðja að h'afa sam-
þykktir þingflokksins um stjórn-
armyndanir og umboð flokks-
formannsins til þeirra að engu.
Á þann veg er beinlínis verið að
kljúfa sig úr flokkunum, á með-
an meirihluti þingflokksins
breytir ekki um skoðun.
Þegar augljóst var að kosning-
um loknum, að það var markmið
Steingríms Hermannssonar að
útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá
þátttöku í stjórn landsins, var
því hreyft á þessum vettvangi,
hvort ekki mætti íhuga þann
möguleika, að sjálfstæðismenn
tækju upp stjórnarsamstarf við
kommúnista. Jafnframt var lögð
á það áhersla, að slíkt samstarf
gæti ekki tekist nema af hálfu
Sjálfstæðisflokksins væri samið
af styrk og í því efni var vitnað
til ummæla Birgis Isl. Gunn-
arssonar um stöðu Sjálfstæðis-
flokksins að kosningum loknum.
En Birgir taldi, að flokkurinn
hefði styrkt innviði sína. Gunnar
Thoroddsen hefur nú bæði geng-
ið til samstarfs við Steingrím
Hermannsson og kommúnista.
Málefnagrundvöllur þess sam-
starfs getur ekki verið í anda
Sjálfstæðisflokksins. Styrkur
Gunnars hefur verið persónu-
legur metnaður hans. Ekki síst
kommúnistar eru leiknir í að
færa sér slíkan veikleika í nyt. I
stjórnarmyndun Gunnars Thor-
oddsens felast alls ekki sögu-
legar sæftir heldur mun hún
auka viðsjár í stjórnmálunum og
þar með öllu þjóðlífinu.
Óneitanlega vakti það þó
nokkra athygli á sunnudags-
kvöldið þegar fréttastofa sjón-
varps tók sér fyrir hendur að
tíunda skoðanir Gunnars Thor-
oddsens og láta í það skína, að
hann hefði í ýmsu verið annarr-
ar skoðunar en Sjálfstæðisflokk-
urinn og voru þar nefndir nokkr-
ir málaflokkar. Fyrir sjálfstæð-
ismenn hlýtur þessi frétt að hafa
verið nokkuð nýnæmi, því að
fram til þessa hefur sérstaða
Gunnars innan flokksins verið
rakin til ágreinings vegna
manna, en ekki málefna. En nú
þykist fréttastofa sjónvarps
hafa leitt annað í ljós.
Tímamót eru að gerast í ís-
lenskum stjórnmálum. Fram-
sóknarmenn og kommúnistar
hafa lagt Gunnari Thoroddsen
lið við að kljúfa Sjálfstæðis-
flokkinn. Tiltækið hefur ekki alls
staðar mælst illa fyrir vegna
almennrar þreytu yfir stjórn-
leysinu. Harkan í stjórnmála-
baráttunni mun aukast og menn
munu skipa sér í nýjar fylk-
ingar. Aldursforsetinn hefur
leikið sinn síðasta leik og skilur
sviðið eftir í óreiðu.
Björn Bjarnason
Forseti Islands:
Tíðinda að
vænta í dag
— ÉG mun fylgjast með
framvindu mála og vænt-
anlega verður tíðinda að
8 millj. kr.
húsnæðislán
staðfest
Félagsmálaráðhcrra hefur fallist
á tillögu húsnæðismálastjórnar frá
15. janúar s.l. um að hámarkslán úr
Byggingasjóði ríkisins til þeirra
umsækjenda, sem gera ibúðir sínar
fokheldar á árinu 1980 skuli vera
kr. 8.000.000.- á íbúð.
Jafnframt hefur ráðherra sam-
þykkt að hámarkslán úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins til þeirra, sem
kaupa eldri íbúðir og sækja um lán
til þeirra kaupa á þessu ári, skUii
hæst nema kr. 4.000.000.-
Skilyrði fyrir hámarksláni er að
umsækjandi sé að kaupa sína fyrstu
íbúð.
vænta á morgun, þriðju-
dag, sagði dr. Kristján
Eldjárn forseti íslands í
stuttu samtali við Morgun-
blaðið í gær, skömmu eftir
að fundum hans með for-
mönnum stjórnmálaflokk-
anna fjögurra lauk.
— Hverjar urðu niðurstöður
fundanna með formönnum
stjórnmálaflokkanna í dag?
— Það er ekkert af þeim að
segja annað heldur en það að ég
bað þá hvern í sínu lagi að gera
mér grein fyrir hvernig þeir litu á
stöðuna eins og hún er núna.
Þetta var aðalerindi mitt við þá,
að hlusta á hvað þeir hefðu um
stöðuna að segja.
— Ilvað kom fram hjá þeim.
Bentu þeir á eitthvert stjórn-
armynstur sérstaklega?
— Nei, ekkert sem ég get sagt
frá. Ég hef notað þennan dag til
þess að yfirvega það, sem hér
hefur komið fram og gera mér
Formaður Framsóknarflokksins á fundi hjá Forseta tslands i
grein fyrir því hvernig málin
standa. Ég mun svo mjög líklega
stíga næsta skref á morgun.
— Það er ekki ákveðið hvað
það verður?
— Nei, það er ekki ákveðið
hvað það verður.
— Bar stjórnarmyndunar-
viðræður Gunnars Thoroddsens
á góma?
— Jú, jú, en ég er ekki reiðu-
búinn til þess að segja eitt eða
neitt um það. Það verður að koma
fram þegar þar að kemur.
— Þú hefur ekki kallað
Gunnar Thoroddsen á þinn
fund?
— Ég hef ekki gert það, enda
stutt síðan viðræðum mínum við
formenn stjórnmálaflokkanna
lauk.