Morgunblaðið - 05.02.1980, Page 44

Morgunblaðið - 05.02.1980, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980 KArriNU m *■ GRANI GÖSLARI Vcður fcr nú hlýnandi og það cru í dag 6 mánuðir þangað ti) .sumarleyfin hefjast! Er þetta rétt að lögum? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Jafnvcl í hcimsmeistarakcppn- um er spilamcnnskan ckki t;alla- laus svu að við, sem ekki keppum þar þurfum ckki að skammast ukkar þú villur kumi fyrir við ukkar burð. I leik gegn Formósu í síðustu heimsmeistarakeppni, sem fram fór í Rio de Janeiro í haust, gerðu Italir slæma skyssu. Vestur gaf, báðir áttu game. Norður S. D108652 H. K96 T. K84 L. 4 Vestur S. Á43 H. DG1087 T. D9 L. D102 Austur S. K97 H. 32 T. G10763 L. KG7 Suður S. G H. Á54 T. Á52 L. Á98653 í keppnum þessum eru sagn- kerfin næstum jafnmörg og pörin. Eðlilega verða sagnirnar því oft ólíkar á borðunum. Formósu- maðurinn með spil vesturs opnaði á einu hjarta. Norður sagði einn spaða, austur eitt grand, sem suður doblaði og eftir pass vesturs stökk norður í þrjá spaða, sem varð lokasögnin. Austur spilaði út hjarta og þegar fram liðu stundir varð trompnían að stórveldi, sem hnekkti spilinu. 100 til Formósu. Á hinu borðinu opnaði Form- ósumaðurinn með spil suðurs á tveim laufum eftir þrjú pöss. Norður sagði tvo spaða og suður þrjú lauf, sem varð lokasögnin. Eftir hjartadrottningu út virt- ust 5 tapslagir óumflýjanlegir. En suður tók fyrsta slaginn og spilaði spaðagosanum. Austur fékk á kónginn, spilaði aftur hjarta, tek- ið í borði og þá var spaðadrottn- ingunni spilað og af hendinni lét sagnhafi tapsláginn í hjartanu. Vestur fékk slaginn, spilaði enn hjarta, sem suður fékk að trompa með lágu og eftir það gat suður rekið út trompin og látið seinna tígul í fríspilaðan spaða blinds. Slétt unnið og 110 í viðbót til Formósu. Vörnin gat gert betur og ein- faldast var fyrir austur að trompa þriðja hjartaspilið með háu trompi. í raun hefði það fjölgað trompslögum varnarinnar og suð- ur þurft að passa sig sérstaklega til að fara ekki illa út úr spilinu. COSPER COSPER „í þriðju grein áfengislaga segir: „Þó skal óheimilt að flytja til landsins öl, sem hefur inni að halda meira en 2 af vínanda að rúmmáli." I lögum um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf segir: „Ráð- herra er heimilt að setja sérreglur um innflutning ferðamanna og áhafna skipa og flugvéla um áfengi og tóbak.“ Þetta skil ég svo að það eigi við um þær áfengistegundir sem leyft er að flytja til landsins og selja en ekki þær sem skýlaust er bann; ð að koma með til landsins. Þá eru enn þessi ákvæði í lögum um tollskrá í sambandi við þær undanþágur sem fjármálaráðu- neytið má veita farmönnum og ferðamönnum: „Að öðru leyti gilda ekki innflutningshömlur um slíkan varning aðrar en þær sem settar eru vegna sóttvarna eða annarra öryggisráðstafana." • Getur fjármála ráðherra leyft hass- og heróín Sjálfsagt má lengi deila um það hvað séu öryggisráðstafanir en auðvitað eru allar áfengisvarn- ir öryggisráðstafanir. Felist það í þessu ákvæði að ráðherra sé heimilt að leyf^ far- mönnum og ferðafólki að flytja inn með sér hvað sem er enda þótt það sé beinlínis bannað í öðrum lögum þá gæti næsti fjármálaráð- herra leyft hass og LSD og heróín. Ef áfengisvarnir eru ekki öryggis- ráðstafanir gildir sama um aðrar eiturlyfjavarnir. Það er líka barist fyrir því víða um lönd að gefa frjáls þau efni sem hér voru nefnd. • Á að draga af kaupi bind- indismanna? Það er talað um hlunnindi og kjarabætur fyrir farmenn. Vill einhver mæla því bót að bindind- ismenn hafi lægri laun en aðrir? Slík eru þó ráðningarkjörin þegar hluti af vinnulaunum er greiddur með ódýru áfengi. Þess má geta og gæta að enginn má selja þetta áfengi. Svona ráðningarkjör eru svívirðing við bindindismenn og smánarblettur á þeim sem bjóða þau. Sá smánarblettur nær eins til allra sem að þessu standa. Vill Alþingi bera ábyrgð á svívirðingunni? • Hvaða f járhæðir er um að ræða? Fjármálaráðuneytið taldi, að árið 1973 hefðu tollfríðindi í áfengisinnflutningi áhafna skipa numið samtals 12,48 milljónum króna en flugáhafna tæpum 5 milljónum. Þá voru þessi hlunn- indi einskis metin til fjár hjá stéttarfélögunum. Maigret og vínkaupmaðurinn 37 hafa fjársterka aðila sem geta hlaupið undir bagga. Maigret spurði sakleysislega. — Og Chabut var einn slikur? — Hann var ríkur. Hann mokaði inn peningum. Ég hugs- aði með mér að hann hlyti að vilja hjálpa mér og... — Og skrifuðuð honum? - Já. — Þó að hann væri elskhugi konu yðar? — Þetta cru tvö óskyld mál. — Var það eftir að þér höfðuð komið að þeim? — Ég man nú ekki dagsetn- ingar, en ég hygg að svo hafi verið. Maigret hallaði sér makinda- lega aftur í stólnum og tróð í pipu sína. — Voruð þér farnir að halda við frú Chahut þegar þetta var? — Ég vissi að þér mynduð ekki skilja þetta. Þér eruð náttúrlega með þcnnan gamla borgaralega móral sem hneykslast — og á ckki heima í okkar umhverfi. Fyrir okkur skipta svona kynferðissambönd engu máli. — Ég skil það sannarlega ijómandi vel. Þér sneruð yður með öðrum orðum einvörðungu til Ocars Chabuts vegna þess að hann var ríkur. — Öldungis rétt. — Þér hefðuð svo sem alveg eins getað snúið yður eitthvað annað. — Já, ef aðsta'ður hefðu verið slikar að ég hefði fundið mig knúinn til þess. — En svo varð ekki? — Ég var með áætlanir um útgáfu á mjög mcrkilcgu verki. — Stcndur eitthvað í bréfun- um sem þér sjáið eftir að hafa skrifað? Hann varð æ vandræðalegri en samt tókst honum að haida virðingu sinni að mestu. — Eigum við ckki að orða það svo, að það kynni að vera hægt að mistúlka sumt. — Þér eigið við að svona hneykslunargjarnt fólk, sem skilur ekki yfirstéttarmóralinn ykkar, gæti kannski látið sér dctta i hug hugtakið f járkúgun. Er það þetta sem þér eigið við? — Það er ekki fjarri lagi. — Reynduð þér að heita hann þvingunum? — Ég skrifaði sem sagt nokkur bréf. — Og öll um sama efnið? Á stuttum tíma? — Mig langaði til að fara að undirhúa þessa útgáfu sem ég nefndi. Það var langt komið með að vinna textann. — Borgaði hann? Caucasson hristi höfuðuð. - Nei. — Urðuð þér fyrir mikium vonbrigðum? — Já, mér datt ckki í hug að hann myndi neita. Kannski vegna þess ég þekkti hann ekki na-gilega vel. — Ilann var harðsviraður, ekki satt? — Meira en það. Hrokafullur og kaldlyndur. Eftir Georges Simenon Jóh8nna Kristjónsdóttir snen a íslensku — Svaraði hann yður bréf- lega? — Nei, hann gcrði sér ekki einu sinni það ómak. Kvöld nokkurt þegar hann hélt um þrjátiu manna samkvæmi fór ég til hans í þeirri von að hann myndi nú loks gefa mér svar... — Og hann hefur gert það? — Á eins ruddalegan hátt og hægt er að hugsa sér. Hann snerist á hæli á miðju gólfi í dagstofunni og sagði svo hátt að fleiri en ég máttu heyra: „Nú skal ég segja þér dálítið: ég kæri mig koilóttan um Meg, og ég gef skit í hvað þú og konan min gerið. Svo að þú skalt hætta að sníkja peninga." Andlit Caucassons sem hafði ferið fölleitt og litiaust þegar hann kom var orðið eldrautt og Maigret sá að hendur hans skuifu. — Eins og þér heyrið er ég hreinskiiinn við yður og segi yður allt af létta. Ég hefði getað þagað og beðið cftir framvindu mála.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.