Morgunblaðið - 20.05.1980, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
112. tbl. 67. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Óeirðirnar
á Miami
Lögreglumaður i Miami þrifur i mann sem var sakaður um rán og gripdeildir í verzlun í borginni í gær þegar þar geisuðu óeirðir
sem kostuðu 19 menn lífið. Sjá bls. 47. „Allir eru sammála"
Giscard ver fund
sinn með Brezhnev
Fundur forsetanna Leonid Brezhnev og Valéry Giscard d'Estaing og
pólska kommúnistaleiðtogans Edvard Gierek í Wilanovhöll i Varsjá í
gær.
Sovézkar fjölskyldur
sendar til Afganistans
París, 19. maí. AP.
VALERY Giscard d'Estaing forseti
kom aftur til Parísar frá Varsjá i
dag og varði fund sinn með Leonid
Brezhnev, forseta Sovétrikjanna, á
þeirri forsendu að hann hefði verið
nauðsynlcgur til að eyða misskiln-
ingi milli austurs og vesturs.
Hann sagði fréttamönnum að
hann hefði gert Brezhnev ná-
kvæma grein fyrir viðhorfum Vest-
urveldanna og kvaðst telja að
Rússar mundu taka þau til athug-
unar. Blöð hafa gagnrýnt heim-
sóknina og undirtektir franskra
stjórnmálamanna eru mismunandi.
Aðcins kommúnistar og flokkur
Giscards, UDF, hrósa forsetanum.
„Viðræður leysa ekki endilega
vandamál, en sambandsleysi eykur
misskilning," sagði Giscard. Hann
sagði að ítarlegar viðræður hans við
Brezhnev hefðu verið nauðsynlegar.
Hann kvaðst hafa sagt frá upphafi
að hann ætlaði ekki að reyna að ná
Washington, 19. maí. AP.
BANDARÍSKIR embættismenn
segja að ekki fari á milli mála að
sovézki herinn í Afganistan sé að
koma sér fyrir í landinu til
frambúðar. Stöðugt er verið að
flytja til landsins tölvubúnað og
að undanförnu hefur eiginkonum
og fjölskyldum sovézku her-
mannanna farið ört fjölgandi.
Sovézki heraflinn í Afganistan
er um þessar mundir talinn um 85
þúsund menn, og búizt er við
liðsauka á næstunni, nema bar-
átta Rússa og stjórnarhersins
gegn uppreisnarmönnum fari að
ganga betur.
Strangur hervörður er um
gjörvalla höfuðborg landsins,
Kabúl, og spá ýmsir því að enda
þótt stjórn Karmals standi höllum
fæti þá muni hún sitja áfram
nema Sovétstjórnin telji sér betur
henta að fá einhvern annan í
starfið.
Spurzt hefur að sovézkir herfor-
ingjar, sem um þessar mundir eru
að koma til Afganistans, séu
skipaðir til tveggja ára. Rússar
hafa veg og vanda af öryggisgæzlu
Karmals forseta, auk þess sem
lífvörður hans, matreiðslumaður,
bílstjóri og sex helztu ráðgjafar
eru Rússar.
árangri, en hann hefði viljað að
viðræðurnar yrðu gagnlegar og þær
hefðu verið það.
Talsmaður forsetans, Jacques
Blot, sagði fyrr í dag að bæði Rússar
og Frakkar væru fylgjandi pólitískri
lausn í Afganistan, en bilið milli
sjónarmiða þeirra væri enn breitt
Pólski kommúnistaleiðtoginn
Edvard Gierek átti frumkvæðið að
fundinum og Frakklandsforseti not-
aði tækifærið til að leggja áherzlu á
nauðsyn þess að allar þjóðir ynnu að
frelsun bandarísku gíslanna í. Te-
heran. Þetta er fyrsti fundur Brez-
hnevs og vestræns þjóðarleiðtoga
síðan Rússar réðust á Afganistan.
Blot sagði að þeim tilgangi hefði
verið náð á fundinum að gera
leiðtogunum kleift að skiptast
hreinskilnislega á skoðunum. Hann
kvað Frakklandsforseta hafa gert
eins skýra grein og hann gat fyrir
afstöðu Frakka til Afganistan-
málsins og annarra mála eins og
öryggis Evrópu.
Hann sagði að áfram gæti ekki
miðað í Afganistan-málinu nema
með viðræðum eins og þessum.
Samkomulag var um viðræður milli
þjóðarleiðtoga um ástand á viðsjár-
verðum stöðum í heiminum, en
Giscard vill ekki fjölmenna ráð-
stefnu, aðeins fund helztu ríkja, ef
til vill á næsta ári.
Bonn-stjórnin lét óvænt í ljós
ánægju með fundinn og talsmaður
hennar, Klaus Bölling, sagði að
greinilega væri lokið „tímabili mál-
leysis" sem hefði fylgt í kjölfar
innrásarinnar. Þó höfðu blöð sagt
að Bonn-stjórnin efaðist um gagn-
semi fundarins og væri gröm því að
hafa ekki verið höfð með í ráðum.
Brezka stjórnin kvaðst ekki hafa
verið höfð með í ráðum. Bandaríska
utanríkisráðuneytið lét einnig í ljós
óánægju af þessum sökum.
Aðeins
40 ríki
áOLí
Moskvu
í júlí?
London. 19. maí. AP.
AÐ MINNSTA kosti 40 ríki
búa sig undir að hundsa Ól-
ympíuleikana í Moskvu í sumar
og forseti Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, Killanin lávarð-
ur, býr sig undir að láta af
störfum í sumar þótt fast sé
lagt að honum að halda áfram
þegar átta ára kjörtímabili
hans lýkur i sumar.
„Ég hef hugsað málið, en
cftir atburði síðustu mánaða
hef ég komizt að þeirri niður-
stöðu að nú sé rétti tíminn til
að víkja fyrir nýjum forseta,“
sagði Killanin lávarður í dag.
Hann sagði að í Moskvuferð
sinni nýlega hefði hann varað
Leonid Brezhnev forseta við því
að verið gæti að aðeins 40 ríki
sendu lið til leikanna, en hann
kvað Brezhnev ekki hafa sýnt
nokkur svipbrigði. Hann sagðist
ekki hafa minnzt á Afganistan
en Brezhnev hefði sagt að rússn-
eskt herlið hefði verið sent
þangað að beiðni ríkisstjórnar
landsins. Killanin sagði að
Rússar hefðu síðan reynt að
friðmælast, en skýrði það ekki
nánar.
Ólympíunefndir írlands, Sví-
þjóðar, Hollands og Belgíu
ákváðu í dag að senda lið til
Moskvu.
ítalska stjórnin lýsti í dag
yfir stuðningi við þá ákvörðun
Bandaríkjastjórnar að hundsa
leikana, en sagði að ítalska
ólympíunefndin réði því sjálf
hvaða ákvörðun hún tæki í
málinu. Nefndin vill senda
keppendur til Moskvu og tekur
ákvörðun á morgun.
Francesco Cossiga forsætis-
ráðherra tilkynnti ákvörðunina
Franco Carraro, formanni ít-
ölsku ólympíunefndarinnar og
hvatti hann til að fylgja for-
dæmi ríkisstjórnarinnar og
hundsa leikana. Emilo Colombo
utanríkisráðherra sagði að
ákvörðunin yrði endurskoðuð ef
ástandið breyttist.
Giorgio La Malfa fjárlagaráð-
herra kvað ákvörðun stjórnar-
innar „réttláta" og „óhjákvæmi-
lega“. ítalir hefðu ekki átt
annarra kosta völ. Spurningin
væri ekki sú hvort ítalir tækju
þátt eða ekki, heldur hvort þeir
samþykktu árás eða ekki.
Killanin lávarður.