Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ1980
Vlf0 '■
KAFP/NU 1 f w tgSjf
<a>
Þetta er sko þjónusta í iagi!
Fátt er svo með öllu illt. — Nú
sparar þú heil ósköp af benzíni?
SS-herdeild þjálf-
uð^til árásar
á ísland 1941
í fróðlegri Morgunblaðsgrein 10.
maí sl. undir fyrirsögninni „For-
sendur hernámsins" eftir Þór
Whitehead, lektor, er sagt, að
mánuði eftir að Bretar hernámu
Island, hafi Þjóðverjar lagt drög
að innrásaráætlun í landið, en hún
hafi verið andvana fædd og þýska
flotastjórnin talið hana ófram-
kvæmanlega.
deild og tekið þátt í innrásinni í
Pólland og síðar inn í Noreg. í
ársbyrjun 1941 var herdeild hans
haldið til leynilegra æfinga á stað
einum í Noregi, sem ég man ekki
nú hver var. Tilgangurinn var að
æfa víkingaárás á Reykjavík. Eins
og hann sagði mér frá, var þessi
árásaráætlun þannig í stórum
dráttum:
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
UM síðustu helgi bættist enn ein
skrautfjöður i hatta þeirra Guð-
laugs R. Jóhannssonar og Arnar
Arnþórssonar með íslandsmeist-
aratitli í tvimenningi. Líkja má
þessum sigri þeirra við punktin-
um yfir i-ið á sérstaklega góðum
keppnisvetri hjá þeim félögum
eins og þeir vita, sem með bridge-
fréttum fylgjast.
í síðustu umferð mótsins mættu
Guðlaugur og Örn þeim Guðmundi
Páli Arnarsyni og Sverri Ár-
mannssyni en segja má, að þessi
tvö pör hafi þá ein barist um
titilinn. Fyrir umferðina höfðu
þeir fyrrnefndu 17 stiga forskot,
sem minnkaði strax í fyrsta spil-
inu. Vestur gaf, n-s á hættu en hér
er spilinu snúið.
Norður
S. ÁKD86
H. G5
T. D10
L. ÁD65
Vestur Austur
S. G943 S. 1052
H. 832 H. KD1094
T. 92 T. Á74
L.G1082 L. K7
Suður
S. 7
H. Á76
T. KG8653
L. 943
Sagnirnar heppnuðust ekki sér-
lega vel í þetta sinn en Guðlaugur,
hér með spil suðurs, varð sagnhafi
í þrem gröndum. Sverrir hafði
sagt hjarta og Guðmundur spilaði
út hjartaáttu. Austur fékk að eiga
tvo fyrstu slagina á hjarta en
sagnhafi tók þriðja og lét lauf frá
blindum. Hann spilaði þá tígli á
drottninguna, austur gaf og þar
með gat tígullinn ekki gefið marga
slagi.
Mínus 200 virtust öruggir og
örugglega slæm skor svo hætta
mátti nokkru til að reyna að
sleppa betur. Áhugasamir lesend-
ur geta kannski fundið leið til að
sleppa einn niður en sagnhafi
ákvað að taka þrjá hæstu spaðana
og spila fjórða spaðanum. Inni á
gosann vissi Guðmundur vel um
tígulás makkers en hann spilaði
samt laufi og mínus 300 urðu
staðreynd.
Þetta spil gerði baráttu paranna
mjög spennandi og verður reynt
að lýsa spilunum hér í blaðinu.
COSPER
Nei, frú mín, — Peningarnir fara ekki allir í brenni-
vínskaup, það fer nokkuð af þeim til greiðslu brenni-
vínssekta!
Ég tel aftur á móti, að Hitler og
herstjórn hans hafi ekki hætt við
„Ikarus“-áætlun sína fyrr en all-
nokkru seinna. Þegar flotastjórn-
in hafi talið áætlunina ófram-
kvæmanlega hafi öðrum aðila
verið falið að breyta áætluninni og
að framkvæma hana svo. En í
upphafi árs 1941 mun hafa verið
hafinn undirbúningur árásar á
ísland með þjálfun SS-herdeildar
í Noregi. Þessa fullvissu mína
byggi ég á eftirfarandi frásögn:
Sumarið 1957 vann ég sem
múrari í Þýskalandi. Þá bar svo
við dag einn, að ekill hjá fyrirtæk-
inu, sem ég vann hjá, sagði
eitthvað á þá leið við mig, að á
stríðsárunum hefði átt að senda
sig til Islands. Ég varð auðvitað
forvitinn og spurði hann nánar út
í þetta. Sagði hann mér þá undan
og ofan hvað fyrir sig hefði komið
í stríðinu. T.a.m. það, að hann
hefði verið í Waffen — SS-her-
Herdeildina átti að flytja með
flugvélum frá Noregi og varpa
henni niður í fallhlífum yfir
Reykjavík. Við lendingu átti hún
að skipta sér í tvo hópa. Annar
hópurinn átti að ráðast á flugvöll-
inn og eyðileggja hann. Hinn
hópurinn, sá sem hann var í, átti
að sækja að höfninni, sprengja
upp bryggjur og hafnargarða, svo
og að sökkva skipum í hana
þannig að hún yrði ónothæf eftir.
Þegar hóparnir höfðu lokið
áætlunum sínum, áttu þeir, sem
uppi stóðu, að sameinast og halda
austur úr bænum til sportflugvall-
ar, sem var um 20 km austur frá
Reykjavík. Þangað áttu að koma
flugvélar til að flytja þá aftur til
Noregs.
Til að gera þessar æfingar
raunverulegar, voru gerð líkön af
árásarmörkunum í Reykjavík og
skoðaðar myndir af bænum, bæði
loftmyndir og myndir af húsum og
L.A. í leikför
með „Fyrsta öng-
stræti til hægri44
Leikfélag Akureyrar er
um þessar mundir að leggja
af stað í leikför um Norð-
Austurland, Austfirði og
Suðurland með leikritið
„Fyrsta öngstræti til hægri“
eftir Örn Bjarnason. Leikrit-
ið var frumsýnt hjá L.A. á sl.
vetri en var einnig sýnt á
móti norrænna atvinnuleik-
húsa í Orebro í Svíþjóð í
desember sl.
„Fyrsta öngstræti til
hægri“ segir frá tveimur
stúlkum sem lenda í „stræt-
inu“ og frá lífi þeirra og
örlögum. Nokkrar breytingar
hafa verið gerðar á hlutverka-
skipan frá því leikritið var
sýnt fyrr á árinu. Með hlut-
Svanhildur og Viðar í hlutverkum sfnum f uppfærslu L.A. á
„Fyrsta öngstræti til hægri“.
Ferming á Bíldudal
Á SUNNUDAGINN var, 18.
maí, fór fram ferming í kirkj-
unni á Bíldudal. Fermd voru
þá:
Dagbjört Eyjólfsdóttir,
Dalbraut 11.
Hrönn Halldórsdóttir,
Lönguhlíð 22.
Ingveldur Lilja Hjálmarsdóttir,
Dalbraut 26.
Kristín Sigríður Hannesdóttir,
Dalbraut 7.
Unnur Högnadóttir,
Dalbraut 34.
Árni Lindberg Snæbjörnsson,
Dalbraut 24.
Friðrik Reynir Ágústsson,
Gilsbakka 4.
Unnsteinn Víkingur Gunnars-
son, Dalbraut 42.
verk stúlknanna fara Svan-
hildur Jóhannesdóttir og
Sunna Borg. Aðrir leikendur
eru: Guðbjörg Guðmundsdótt-
ir, Gestur E. Jónasson, Sigur-
veig Jónsdóttir, Bjarni
Steingrímsson, Theodór Júlí-
usson, Viðar Eggertsson og
Kristjana Jónsdóttir. Fara
flestir leikendur með fleiri en
eitt hlutverk. Leikstjóri er
Þórunn Sigurðardóttir, leik-
mynd gerði Sigurjón Jó-
hannsson og lýsingu annaðist
Ingvar B. Björnsson. Fyrstu
sýningarnar verða á Húsavík
fimmtudaginn 22. maí og
föstudaginn 23. maí. Síðan
verður haldið til Vopnafjarð-
ar, Raufarhafnar, Egilsstaða,
Neskaupsstaðar, Reyðarfjarð-
ar, Breiðdalsvíkur, Horna-
fjarðar, Mýrdals, Hvolsvallar,
Flúða, Aratungu og loks verð-
ur verkið sýnt á Borg í
Grímsnesi miðvikudaginn 4.
júní.