Morgunblaðið - 10.06.1980, Page 1

Morgunblaðið - 10.06.1980, Page 1
48 SÍÐUR 128. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. I>úsundir uppreisnar- Huang Hua ásamt Ola Ullsten í Haga-höllinni í Stokkhólmi. manna sækja að Kabúl Nýju Delhl. 9. júni. AP. AFGANSKIR uppreisnarmenn flykkjast nú þúsundum saman að Kabúl og sjást þess greinileg merki að Sovétmenn eru teknir að undirbúa meiriháttar varnar- aðgerðir. Búast má við því að barizt verði af hörku um höfuðborgina áður en langt um líður, en undanfarna daga hefur komið til gífurlegra bardaga í þorpum í námunda við Kabúl. Þá hefur verið barizt af heift í Herat-héraði í vesturhluta landsins og hefur þar orðið mikið mannfall, eftir því sem næst verður komizt. Þessar fregnir eru hafðar eftir ónafngreindum útlend- ingi, sem var að koma frá Kabúl og á þar trausta heim- ildarmenn. Koma fregnir þessar að mestu heim og saman við það sem frétzt hefur af ástandinu í Afganist- an síðustu daga. Sögumaður kveðst ekki hafa áreiðanlegar heimildir um fjölda þeirra uppreisnarmanna, sem nú sækja í átt til borgarinnar, en fullyrðir að þeir séu einhvers staðar á bilinu 5—20 þúsund. Á fimmtudag og laugardag í síðustu viku urðu Kabúl-búar, einkum þeir, sem búa í norð- urhverfunum, þess varir að loftárásir voru gerðar á þorp í Nektin hulin í Kína Pekinnc 9. júní AP. KÍNVERSK stjórnvöld hafa skipað svo fyrir, að tveir naktir konukroppar á vegg- mynd i nýlegri flugstöðvar- byggingu þar i landi skuli færðir í föt, með pensli og málningu, svo að alls vel- sæmis sé gætt. Listamaður- inn, sem myndina gerði, vill sjálfur ekki breyta verkinu og svo virðist sem kinversk- ir kollegar hans séu ekkert óðfúsir til þess heldur. Myndir af nöktu fólki hafa lengi verið mikið feimnismál í Kína og sagt er, að vegg- myndin umdeilda hafi valdið mikilli hneykslan íhaldssamra embættismanna og fólks af Dai-kynþættinum í Yunnan-fylki í Kína en myndin sýnir einmitt sér- stakt hátíðahald hjá því fólki, svokallaða „vatns- skvettuhátíð". Þegar myndin var afhjúpuð í janúar sl. sagði Xinhua-fréttastofan kínverska, að myndin sýni „fagnandi frelsi og hamingju, meir en hundrað menn og konur sjást skvetta vatni hvert á annað, leika sér, dansa og baða sig í vatninu". Skömmu síðar hafði verið tjaldað fyrir nöktu konurnar og nú hefur þess verið kraf- ist, að þær klæði sig sóma- samlega. nokkurri fjarlægð frá borg- inni, en jafnt og þétt berst þangað ómurinn af skothríð. Fyrir helgi voru sovézkar orrustuþotur mikið á ferli yfir borginni og flugu lágt. Þá hefur það ekki farið fram hjá þeim, sem fylgjast náið með þróun mála í Kabúl og ná- grenni, að miklir hergagna- flutningar Sovétmanna eiga sér stað um þessar mundir. Sovétmenn hafa stóreflt ör- yggisvörzlu í borginni á síð- ustu dögum, auk þess sem aukin áherzla er lögð á hvers konar áróður, ekki sízt gegn Bandaríkjunum, Pakistan og Kína. í hópi þeirra tíu andstæð- inga leppstjórnar Sovét- manna, sem líflátnir voru í Afganistan fyrir nokkrum dögum, voru tveir bræður Amins fyrrum forseta lands- ins, en hinir voru flestir nánir samstarfsmenn hans. Þá hef- ur þekktur skæruliðaforingi, Kalakhani verið tekinn af lífi, að því er Kabúl-útvarpið hef- ur skýrt frá. Þá skýrði Kabúl-útvarpið frá því í kvöld, að 150 náms- menn hefðu verið fluttir í sjúkrahús í borginni, eftir að eiturgasi hefði verið beint að Soraya-kvennaskólanum í borginni. Skólinn kom mjög við sögu þegar unglingar efndu til mótmælaaðgerða í apríl og maí, en 156 unglingar létu lífið í því blóðbaði. Er óttazt að þessar nýjustu fregnir boði að á ný hafi komið til námsmannamót- mæla. Sjá ennfremur frásögn á bls. 46. (AP-símamynd) Huang Hua var- ar við Sovéthættu Stokkhnlmi — 9. junl — AP. HUANG Hua utanríkis- ráðherra Kína lýsti því yfir i Stokkhólmi i dag, að heimsfriðnum stafaði af engu meiri hætta en Sovét- rikjunum. Væri einsýnt að Sovétmenn mundu leggja undir sig hvert ríkið á fætur öðru þar sem stjórnarfar stæði höllum fæti, og njóta við það verk stuðnings Víet- nama. Hua varaði við þvi að litið væri á innrás Sovét- rikjanna i Afganistan sem einangrað fyrirbæri — ekki væri um að villast að Sovét- stjórnin hefði einsett sér að leggja undir sig Vestur- Evrópu, annað hvort með beinni hernaðaríhlutun eða með þvi að ná álfunni á sitt vald með því að hafa úrslita- áhrif á innflutning á hrá- efnum frá Suðaustur-Asíu og Miðausturlöndum. Huang Hua hefur lengi verið í röð helztu leiðtoga Kínaveldis og var hann náinn vinur MaÓ9 heitins formanns. Hua er í opinberri heimsókn í Svíþjóð og átti hann þar fund með starfs- Ítalía: Kommúnistar tapa Róm — 9. júnl — AP. ÍTALSKIR kommúnistar biðu ósigur í byggðakosn- ingunum um helgina. Kristilegir demókratar unnu á, en sósíalistar virð- ast hafa haldið hlut sinum þegar miðað er við siðustu kosningar. Kjörsókn var með lakara móti, en ógild atkvæði hafa aldrei verið fleiri frá stríðslokum, en um 6% kjósenda létu stjórnmálaskoðanir sínar í ljós með því að skila auð- um seðlum eða ógildum. Þótt enn séu ekki öll kurl komin til grafar þykir sýnt að kommúnistar hafi hlotið um 32% atkvæða, og hafi því tapað um 1.5%. Þetta fylgi virðist hafa færzt yfir á kristi- lega demókrata, sem fá 36.6% í stað 35.3% áður. Sósíalistar hafa sem fyrr 12.5%. Yfirleitt eru þessi úrslit túlkuð sem stuðningsyfirlýsing við sam- steypustjórn kristilegra demó- krata og sósíalista undir for- sæti Francesco Cossiga. bróður sínum, Ola Ullsten, í dag. í heimsókninni hittir hann m.a. Fálldin forsætisráðherra og Karl Gústaf konung. Greinilega fer heimsókn hans til Svíþjóðar mjög í taugarnar á Moskvu- stjórninni, og var því lýst yfir í Prövdu í gær, að markmiðið með ferðalagi hins kínverska forystu- manns væri að spilla milli Norð- urlandanna og „sósíalista- ríkjanna". Dalur niður — gull upp Lundúnum — 9. júnl. AP. ÁGREININGUR um olíuverð, ófriðurinn í Afganistan og aukin spenna í Miðausturlöndum munu vera ástæður þess að gullverð er nú hærra á Evrópumarkaði en verið hefur síðustu þrjá mánuði, jafnframt því sem gengi Banda- ríkjadals hefur rýrnað. Gullúnsan stóð í 625 dölum við lokun í dag, en á föstudag kostaði hún 600 dali. Gengi bandaríkjadals hefur ekki verið lægra í Tókíó undanfarna níu mánuði, eða 217.775 jen, en á föstudaginn var stóð dalur í 220.1. Búast japanskir fjármálasérfræð- ingar við því að hinn bandaríski gjaldmiðill eigi eftir að falla enn í verði þegar líður á vikuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.