Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 2

Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 Fjallvegir opn- aðir innan tíðar Stjórn Sölumiðstöðvarinnar á fundinum i gærdag. (Ljósm. Kristján) Stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna: Framleiðendur undirbúi upp- sagnir og rekstrarstöðvun SAMKVÆMT þoim upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá vega- Nafn piltsins sem lést PILTURINN, sem beið bana í umferðarslysinu á Suðurlandsvegi skammt fyrir neðan Lögbergs- brekku síðast liðinn föstudag hét Bergsteinn Bogason. Hann var fæddur 14. febrúar 1959 og var til heimilis að írabakka 18 í Reykja- vík. Bergsteinn lætur eftir sig unnustu. Baldvin K. Sveinbjörns- son látinn BALDVIN K. Sveinsson, apótek- ari, er látinn í Reykjavík, 71 árs að aldri. Hann var fæddur 8. febrúar 1909 og hefur rekið Holtsapótek undanfarin ár. eftirliti Vegagerðar rikisins eru allir fjallvegir ennþá lokaðir, kannanir standa hins vegar yfir á flestum þeirra. Vegurinn yfir Uxahryggi var skoðaður í gær og kom hann nokkuð vel út. Að sögn vegaeftir- litsmanna munu tæki verða send þangað upp eftir á næstunni til að gera veginn færann. Má búast við því að hann verði opnaður fyrir almenna umferð eftir viku til tíu daga. Sömu sögu er að segja um aðra fjallvegi sem skoðaðir hafa verið, þeir hafa komið nokkuð þokka- legir undan vetri að þessu sinni og má búast við því, að þeir verði opnaðir fyrir almenna umferð innan tíðar. Eldur í gróðri á Þingvöllum LÖGREGLAN á Selfossi og slökkviliðið á Ljósafossi var sið- degis á sunnudag hvatt út vegna elds, sem var laus i gróðri á bingvöllum. Eldurinn kom upp í hvammi skammt frá Gjábakkavegi austan við tjaldmiðstöðina, en að sögn lögreglunnar á Selfossi er líklegt að eldurinn hafi kviknað út frá sígarettu eða öðrum eldi, sem vegfarendur hafa skilið eftir sig. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkrar skemmdir urðu á gróðri. ÁFENGI og tóbak hækkar frá og með deginum i dag um 12%. Að sögn Höskuldar Jónssonar, ráðu- neytisstjóra í fjármálaráðu- neytinu, er þessi hækkun í sam- ræmi við forsendur fjárlaga, þ.e. a.8., að áfengi og tóbak verði látið hækka nokkurn veginn samstiga almennum kauphækkunum. Eftir hækkunina kostar sígar- ettupakki 1135 krónur en kostaði áður 1015 krónur. „ÞVÍ ER nauðsynlegt að hver og einn framleiðandi undirbúi nú þegar uppsagnir starfs- fólks og rekstrarstöðvun,“ seg- ir m.a. i ályktun, sem sam- þykkt var á stjórnarfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- Flaska af íslenzku brennivíni kostar eftir hækkunina 10.100 krónur, en kostaði fyrir hækkun 9.000 krónur. Verð á algengu Vodka verður eftir hækkun 13.500 krónur, en var fyrir hækkun 12.000 krónur. Algengt viskí kost- ar eftir hækkun 14.000 krónur, en kostaði fyrir hana 12.500 krónur. Þá má nefna að algengt hvítvín og rauðvín, sem fyrir hækkun kost- uðu 3.000 krónur kosta nú 3.400 krónur. anna i gærkvöldi. Ályktunin fer hér á eftir: „Að undanförnu hefur verið mjög ískyggileg þróun á helstu freðfiskmörkuðum íslendinga. Þetta kemur meðal annars fram í sölutregðu og beinum Þá má geta þess að verð á sígarettum hefur á einu ári hækk- að um því sem næst 100%, en í júní á sl. ári kostaði pakki af sígarettun 565 krónur. Aðspurður um hvort sala á áfengi og tóbaki hefði dregist saman á fyrstu mánuðum ársins með hækkandi verði, sagði Hösk- uldur Jónsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, það ekki vera, sala hefði verið mjög svipuð því sem hún var á síðasta ári. verðlækkunum. Af þessum sök- um og vegna hins stórfellda tapreksturs hraðfrystiiðnaðar- ins, varar stjórn S.H. félags- menn sína við að halda áfram rekstri. Stjórn S.H. vill vekja athygli félagsmanna á því, að ekki er að vænta frekari afskipana um ófyrirsjáanlegan tíma en í þau skip, sem nú eru að lesta. Því er nauðsynlegt að hver og einn framleiðandi undirbúi nú þegar uppsagnir starfsfólks og rekstrarstöðvun með tilliti til þessa ástands." Oliumöl hf.; Rannsókn Seðla- bankans lýkur á næstunni „ÉG skal ekki segja, hvort það verður i vikunni, en þessari rannsókn lýkur alveg á næst- unni,“ sagði Guðmundur Hjartar- son, seðlabankastjóri, er Mbl. spurði hann í gær, hvað liði rannsókn Seðlabankans á Olíu- möl hf., sem gerð er að beiðni fjármálaráðherra. * Vinnuveitendasamband Islands: Áfengi og tóbak hækkar um 12%: Sígarettubakki úr 565 krón- um í 1135 krónur á einu ári Telur tillögur sínar gefa 36,3% verðbólgu í stað 49,3% VINNUVEITENDASAMBAND íslands hefur gert samanburð á rauntekjum miðað við óbreytt ástand kjaramála og eins miðað við þær breytingar, sem VSÍ hefur lagt til, þ.e.a.s. óbreytt grunnkaup, nýtt visitölukerfi og skattalækkanir. Niðurstaðan er. að miðað við þessar gefnu for- sendur yrði verðbólgan 45%, ef farið væri leið VSÍ i stað 54% á árinu 1980 og á árinu 1981 yrði verðbólgan 32% i stað 44%. Til þess að halda sömu rauntekjum verkamannafjölskyldu þyrfti rikisvaldið að lækka skatta á árinu 1980 um 2 milljarða króna og 7,2 milljarða króna á árinu 1981 og er sú tala umreiknuð til verðlags þá. í hvorugu þessara dæma er gert ráð fyrir grunnkaupshækkunum. Tekið er dæmi um verkamanna- fjölskyldu í júní 1980 með 846 þúsund króna mánaðartekjur, brúttó, þar af hefur fjölskyldan, þegar beinir og óbeinir skattar hafa verið dregnir frá til skatt- frjálsrar ráðstöfunar 545 þúsund krónur. Verðbólgan er þá 62,6% síðustu 12 mánuði. Miðað við óbreytt ástand verða mánaðar- laun í desember 1980 1.029 þúsund krónur og verða þá eftir til skattfrjálsrar ráðstöfunar 663 þúsund krónur. Af þeirri upphæð tekur verðbólgan 125 þúsund krónur, þannig að raunverulegar ráðstöfunartekjur verða 538 þús- und krónur. Verðbólga verður þá 54,2% síðustu 12 mánuðina. Sé hins vegar farin leið VSÍ verða mánaðarlaunin í desember 964 þúsund krónur og til skattfrjálsr- ar ráðstöfunar verða 640 þúsund krónur. Þar af tekur verðbólgan 88 þúsund krónur, þannig að raun- verulegar ráðstöfunartekjur fjöl- skyldunnar verða 552 þúsund krónur, en verðbólgan síðustu 12 mánuðina 45,2%. Á árinu 1981 verða meðalmán- aðarlaun þessarar fjölskyldu mið- að við óbreytt ástand 1.207 þúsund krónur og þegar beinir og óbeinir skattar hafa verið dregnir frá eru til skattfrjálsrar ráðstöfunar 778 þúsund krónur. Af þeirri upphæð tekur verðbólgan 265 þúsund krónur, þannig að raunverulegar ráðstöfunartekjur verða 513 þús- und krónur. Verðbólga ársins 1981 verður samkvæmt þessu 49,3%. Sé hins vegar farin leið VSI verða meðalmánaðarlaun fjölskyldunn- ar á árinu 1981 1.045 þúsund krónur og tekjur til skattfrjálsrar ráðstöfunar 699 þúsund krónur. Þar af tekur verðbólgan 186 þús- und krónur, þannig að raunveru- legar ráðstöfunartekjur verða hin- ar sömu og í fyrra dæminu eða 513 þúsund krónur. Mismunurinn er að verðbólgan verður mun lægri eða 36,7%. Niðurstaðan af þessu reiknings- dæmi Vinnuveitendasambandsins er sem sagt sú, að til þess að halda sömu ráðstöfunartekjum, þrátt fyrir skerta vísitölu komi ríkis- valdið til móts við launafólkið með því að rétta kaupmáttinn við með skattalækkunum. Samkvæmt dæminu kostar þetta ríkissjóð sem af er þessu ári aðeins 2 milljarða króna, en 7,2 milljarða á öllu næsta ári. VSÍ segir, að á árinu 1980 verði verðbólgan 45% samkvæmt tillög- um sínum í stað 54% og á árinu 1981 32% í stað 44%. Meðaltal 1979-1980 samkvæmt tillögum VSÍ verður 45% í stað 58% og 1980- 1981 37% í stað 49%. Guðmundur sagði, að rannsókn- in beindist að því að kanna eftir því sem hægt væri fjárhagsstöðu fyrirtækisins við núverandi að- stæður. Mbl. spurði þá hvort orðlagið „eftir því sem hægt væri“ þýddi að Seðlabankinn hefði ekki aðgang að öllum gögnum. „Við höfum aðgang að allri vitneskju um öll meginatriðin," sagði Guð- mundur, en kvaðst ekki vilja segja neitt frekar um málið meðan það væri í rannsókn. Lést af völdum meiðsla Á sunnudag lést átján ára piltur af völdum meiðsla, sem hann hlaut í mjög hörðum árekstri á Sætúni í Reykjavík síðast liðinn fimmtudagsmorgun. Ekki er unnt að skýra frá nafni hins látna að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.