Morgunblaðið - 10.06.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI 1980
8. !*■! IM>. ÞJOPVILJINN - 81DA »3
Ekkert fjas
snobbhátíö!
um
Menningar-
hroki eöa...?
Ungur maður að því er
virðist, Valþór Hlöðvers-
son, ritar um útvarp og
sjónvarp í Þjóðviljann,
sem dagsettur er 8. júní
og kallaður Sunnudags-
blað en kom í raun út 7.
júní og var laugardags-
blað. Grein sína, sem
Valþór ritar að beiðni
ritstjórnar Þjóðviljans,
nefnir hann Menningar-
stefna? — en lesandinn
hlýtur aö velta því fyrir
sór hvort hún hefði ekki
frekar átt að heita Menn-
ingarhroki? Greinin hefst
með þessum hætti:
„Það er lífsreynsla út af
fyrir sig að renna augum
yfir útvarpsdagskrá síð-
ustu viku — að ég nú
ekki tali að hlusta á hana
alla. En það gerði ég
ekki, enda óvíst aö ég
væri til frásagnar nú í
dómarasæti.
Skemmtilegasta uppá-
koman í útvarpinu byrj-
aði klukkan 2 s.l. sunnu-
dag. Upphófst þá útvarp
frá útisamkomu sjó-
mannadagsins í Naut-
hólsvík. Því miður auðn-
aðist mér ekki aö hlusta á
allar dýrðarræöurnar til
heiöurs hetjum hafsins,
en nældi þó í gullkorn
vikunnar, þegar fulltrúi
sjómanna agnúaðist útí
menningarvitana fyrir aö
dirfast aö stela sjálfum
sjómannadeginum undir
snobbhátíö listamannal
Ég var nefnilega á leið
niður á Lækjartorg ...
Ég er handviss um að
langtum fleiri hefðu látið
sér setningu Listahátíöar
duga sem afþreyingar-
gaman sunnudagsins, ef
Omar hefði verið búinn
að leiða menn í sannleika
um salomonellusýklana á
fjörum höfuöborgarinnar.
Nauthólsvíkin hefði verið
tóm og sjómenn útí hafs-
auga. Einmitt svona eiga
sjónvarpsfréttir að veral
Athyglí manns vakin á
fréttinni á myndrænan
hátt en grámyglulegu
andliti hins köflótta
fréttamanns haldið utan
við skjáinn."
„Sjómenn útí
hafsauga
Sjónvarps- og útvarps-
gagnrýnandi Þjóðviljans
getur sem sé ekki annað
en óskað sér þess, að á
Sjómannadegi hefðu sjó-
menn haldið sig „útí
hafsauga" væntanlega til
þess, að hann fengi betur
notið Listahátíöarinnar.
Er það dæmigert um
hugsunarhátt hinnar nýju
stéttar, sem gerist æ
uppivöðslusamari í þjóð-
félaginu, eftir að Alþýðu-
bandalagið komst til nú-
verandi valda, aö henni
virðist vera það kærast
að traðka á þeim, sem
notaöir voru, þegar það
hentaði í metorðaklifrinu.
Sjómenn eiga að halda
sig „útí hafsauga" og
verkalýðurinn á aö vera
án kjarasamninga eins
lengi og yfirstéttinni
þóknast. En hún heldur
sig viö leiksýningar og
trúða eða leggur á ráðin
um það, hvernig unnt sé
að beita sér í skólunum
eða ríkisfjölmiðlunum á
þann veg, að boðskapur
marxismans nái með
sem lævíslegustum hætti
eyrum flestra. Og þegar
að þeirri iðju er fundið er
rokið upp með sama
þjósti og sjómönnum
hefur verið sýndur vegna
ábendinga þeirra um
sinn eigin hátíðisdag.
Og á öðrum stað í
þessu sama „sunnudags11
— laugardagsblaði Þjóð-
viljans er menningarrit-
stjóri blaðsins Árni Berg-
mann að leitast við aö
færa rök að því, að Lista-
hátíðin nú sé alls engin
snobbhátíð, þótt sjómaö-
ur hafi hringt í hann
reiður á sjómannadaginn
og talið, að verið væri að
móðga sjómenn.
Furðulegt er aö sjá,
hvernig Þjóðviljinn
bregst við athugasemd-
um sjómanna, sem eiga
fullan rétt á sér, en koma
því á engan hátt við hvort
Listahátíð sé snobbhátíð
eða ekki. Galdurinn í
þessu máli var einfald-
lega sá, að forráðamenn
Listahátíöar áttu auövitað
að muna eftir sjómanna-
deginum við skipulagn-
ingu sína. Umræðurnar í
Þjóöviljanum sýna þaö
eitt, að sjómenn eru
miklu hæfari til að meta
gildi Listahátíðar en þeir
Þjóöviljamenn, því sjó-
menn vilja leyfa listinni
að dafna og halda þó
sínum hlut.
BUXUR
>
A
ALLAR
ALLTAF.
ÁTT ÞÚ
EINAR
FRÁ
nvn o
PERMA - DRI
utanhússlímmálning —14 ára ending og reynsla.
Málning hinna vandlátu
Sig. Pálsson, byggm., Kambsv. 32, S-34472.
Hagbeit
Tökum á móti hestum í hagbeit í Geldinganesi,
miövikudagskvöld kl. 20—21.
Hafið samband viö skrifstofuna, vegna greiðslu
hagbeitagjalda og númera.
Happdrætti Fáks
Dregiö var í happdrætti Fáks, og upp komu þessi
númer: 3875 Hesturinn, 393 utanlandsferð, 214
beizli.
Vinningar skulu sóttir á skrifstofuna.
Hestamannafélagid Fákur
íslandsmót í hestaíþróttum
veröur haldiö á Melavellinum í Reykjavík, dagana 21.
og 22. júní n.k. Keppt veröur í eftirfarandi greinum:
Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæöingaskeiö, hindr-
unarstökk og hlýöniæfingar.
Flokkar unglinga 12—13 ára og 13 og 15 ára. Tölt,
fjórgangur og hlýðniæfingar.
Til aö öölast rétt til þátttöku í fulloröinsflokki þurfa
keppendur aö hafa hlotið 65 punkta í tölti, 45 punkta
í fimmgangi og 40 punkta í fjórgangi.
Nefndin
Toppurinn
frá Finnlandi
Greiöslukjör frá 35% út og rest J:y
á allt að 5 mánuöum.
SWphaW19 Sími 29800
Málning og málningarvörur
Veggstrigi
Veggdúkur
Veggfóöur
Fúavarnarefni
Bondex, Solignum, Pinotex, Architectural.
Afsláttur
Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram
30—50 Þús.>#»q/ veitumviö IU /0 50 bús 4 c o/ veitum við ID/0
afslátt. afslátt.
Sannkallað LITAVERS kjörverö
Ertu að byggja, viltu breyta, þarftu að bæta?
Líttu viö í Litaveri,
því þaö hefur ávallt
borgaö sig.
Gransáavegi, Hrayfitshúsinu. Simi 82444.