Morgunblaðið - 10.06.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 10.06.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 Kjartan Gunnarsson fyrrv. form. Heimdallar Þjóðhollasta Forsetakosningarnar sem eru framundan eru blessunarlega lausar við flokkapólitík. Allir frambjóðendur njóta stuðnings manna úr öllum flokkum. Þetta er eðlilegt vegna þess að embætti forsetans er í eðli sínu ekki flokkspólitískt heldur þjóðpóli- tískt. Forsetanum ber að starfa með heill allra íslendinga fyrir augum en ekki aðeins hluta þeirra. Forsetinn þarf að vera búinn þeim kostum, sem auðvelda honum að ná þessu markmiði starfsins. Eflaust er unnt að leggja fram langan lista yfir æskilega kosti forsetans og jafn auðveldlega er hægt að benda á að enginn einn forsetaframbjóðandi, hvorki nú né fyrr, hafi eða hafi haft alla kostina. Sá, er flesta kostina hefur, hlýtur því að verða fyrir valinu. Sá maður, sem t.d. hefur góða þekkingu á þjóðmálum, gott sam- band við og tiltrú stjórnmála- manna og er þekktur af réttsýni og góðri dómgreind, hefur mikil- valið væga kosti þjóðhöfðingja. Sé mað- urinn jafnframt laus við tildur og hégómaskap en sé í þess stað fremstur meðal jafningja og skilji að það er eðli embættis forseta íslands, bætast kjöri hans þung rök. Forsetaefni, sem treysta má, að á erfiðleikastundum við stjórn- armyndanir, láti hvorki undan hugsanlegum þrýstingi fyrri stuðningsmanna né þeim mann- lega veikleika að velja auðveldustu lausnina fyrir sjálfan sig, heldur leiti þeirrar lausnar, sem farsæl- hjartan Gunnarsson ust er fyrir þjóðina til lengdar, er einn verðugur húsbóndi að Bessa- stöðum. Af þeim frambjóðendum, sem valið stendur um 29. júní tel ég að Guðlaugur Þorvaldsson hafi til að bera fleiri þeirra kosta, sem for- seti þarf að hafa en hinir fram- bjóðendurnir, án þess þó að neinni rýrð sé kastað á marga góða eiginleika þeirra. Val mitt þann 29. júní verður því Guðlaugur Þorvaldsson. Ég drap á það í upphafi að þessar kosningar væru ekki flokkspólitískar. Ég, sem flokks- bundinn sjálfstæðismaður, kýs Guðlaug, hvorki vegna þess að ég sé sjálfstæðismaður né þrátt fyrir að ég sé sjálfstæðismaður, heldur einfaldlega vegna þess að ég treysti einstaklingnum Guðlaugi Þorvaldssyni best til þess að fara með embætti forseta Islands. Gunnar Stefánsson: Hlegið í Finnlandi Þeir sem móta hinn opinbera málflutning vegna forsetakosn- inganna hafa yfirleitt látið sér nægja að halda fram ágæti síns manns en gætt fyllstu kurteisi í garð keppinauta. Enda munu flestir telja að annað sé ekki sæmandi við forsetakjör eins og þjóðhöfðingjaembættinu er hagað hér. Þó er frá þessu ein undan- tekning. Ritnefndarmaður stuðn- ingsmannablaðs Péturs Thor- steinssonar, Guðrún Egilson, hef- ur nú í tvígang gert sér það til erindis út á ritvöll dagblaða að lýsa yfir vanhæfni Vigdísar Finn- bogadóttur til forsetaembættis og vara konur sérstasklega við að kjósa hana. íslenskar konur svara þessum leiðbeiningum á kjördegi og þá mun sannast hversu dugir sú baráttuaðferð sem Guðrún Egilson hefur valið sér. í Morgunblaðsgrein sinni 7. júní, „Konur og kómík í heims- pressunni", seilist Guðrún út fyrir landsteina eftir vopni í stríðinu við Vigdísi. Kveðst hún nýlega hafa setið að snæðingi með nor- rænum blaða- og embættis- mönnum úti í Finnlandi. Kom þar að Finni nokkur hló ofan í súpu- diskinn er Guðrún sagði honum að íslendingar hygðust kjósa leikhús- stjóra og kennara til forsetaemb- ættis. Söguna af skopskyni þessa ónafngreinda manns í Finnlandi ætlaði Guðrún raunar aðeins fé- lögum sínum í kosningabarátt- unni til skemmtunar, en nú hefur hún góðu heilli leyft okkur hinum að njóta hennar líka. — En það sem Finnanum þótti svona fyndið var að Guðrún sagði honum að þessi frambjóðandi hefði enga „stjórnfarslega reynslu". Ékki er nema gott að íslend- ingar skuli létta lund manna í Finnlandi. Það gerðu þeir raunar líka fyrir tólf árum. Þá létu þeir sig hafa það að kjósa þjóðminja- vörð í forsetaembætti þótt hann skorti „stjórnfarsreynslu". Vafa- laust hafa Finnar hlegið þegar þeir fréttu að slíks mætti vænta. En íslendingar kærðu sig kollótta og hafa ekki þurft að iðrast þess. Finnum hentar að hafa forseta sem gegnir verulegu pólitísku hlutverki, einkum í utanríkismál- um. Virðist svo sem þeir telji þann mann nánast ómissandi því að hann situr í forsetastóli hartnær áttræður. En það er mál Finna, á sama hátt og hitt er okkar mál Jón Ásgeirsson: Senn líður nú að forsetakjöri. Kosningabaráttan eykst og harðn- ar. Það er álit undirritaðs, að það varði afar miklu fyrir farsæld þjóðarinnar að kjör forseta Is- lands eigi sér stað að vel yfirveg- uðu máli, grundvallað á góðri þekkingu á mönnum og málefninu sjálfu. Við teljum hlutverk ríkis- fjölmiðla afar mikilvægt í því sambandi og raunar skyldu þeirra að stuðla að því að svo megi verða. En við teljum jafnframt að þeir hafi hingað til brugðist þessari skyldu sinni með því að sýna forsetakjörinu allt of mikið tóm- læti. hvernig við högum vali manna í embætti forseta íslands. Hvort einhverjum Finnum þykir það hlægilegt kemur okkur ekki við. Vafalaust eru menn sem starfað hafa áratugum saman í utanríkis- þjónustunni að ýmsu leyti vel undir það búnir að gegna forseta- embætti. Slíkur maður var fyrsti forseti lýðveldisins sem Alþingi kaus. En það vill svo til að forseti Islands hefur síðan verið þjóð- kjörinn og ekkert um það sagt í stjórnarskrá að menn skuli eiga ákveðinn starfsferil að baki til að vera hlutgengir í embættið. For- setaembættið er reyndar ekki starf sem menn búa sig undir með sérnámi og sérhæfingu, líkt og prestskapur eða fiðluleikur. Þetta Með slíku framtaksleysi er kynning á frambjóðendum látin eftir áróðri og skrumi „kosninga- vélanna" sem ræðst frekar af fjármagni, auglýsingatækni og ýmis konar háþróuðum áróðurs- brellum en festufullri og yfirveg- aðri umfjöllun um hæfni ein- stakra frambjóðenda. Við álítum það beinlínis lýðræð- islega skyldu hinna opinberu fjöl- miðla landsins að láta mun meira til sín taka á þessu sviði en hingað til svo að tryggt sé að öllum frambjóðendum hafi verið gert kleift að kynna sig og mál sín án tilstillis áróðursmeistara þegar Gunnar Stefánsson hlýtur Guðrún Egilson að gera sér ljóst þótt hún láti annað í veðri vaka. Reynsla forseta í starfi að menningarmálum, menntun hans og kunnátta í húmanískum grein- um, þarf ekki að vera lakari þjóðin gerir endanlega upp hug sinn á kjördegi. Því skorum við hérmeð á ríkis- fjölmiðla að bæta strax frétta- þjónustuna um forsetaframbjóð- endur t.d. með stuttum heimsókn- um á heimili þeirra, á vinnu- staðafundi eða aðra kynninga- fundi eða með „beinni línu“ sem oft heyrist af mun minna tilefni en forsetakjöri, svo eitthvað sé nefnt. Aðeins þannig munu hinir opin- beru fréttamiðlar þjóna lýðræðis- legri skyldu sinni, lifandi og frjóir miðla þeir upplýsingum um þá atburði er nú varða þjóðina svo Opið bréf til útvarpsráðs undirbúningur en sendiherrastarf eða önnur embættisverk innan valdakerfisins. Fordæmi Krist- jáns Eldjárns sem allir sann- gjarnir menn viðurkenna að rækt hafi forsetaembættið af mikilli prýði afsannar slíka sérhæfingar- kenningu sem Guðrún Egilson heldur á loft. Nú hagar svo til að kjör forseta íslands getur haft óvenjulega táknræna þýðingu. Við eigum kost á að gera tvennt í senn: Velja glæsilegan frambjóðanda sem treysta má til að gegna embættinu með miklum menningarbrag, og um leið sýna vilja okkar til þess að karlar og konur hafi á borði sama rétt til trúnaðarstarfa í samfélag- inu. Það gerum við með því að kjósa Vigdísi Finnbogadóttur. Sigri hún í forsetakjöri 29. júní verður það stórviðburður, ómetan- legur siðferðisstyrkur í sókninni til raunverulegs jafnréttis kynj- anna í þessu landi, — og öðrum þjóðum eftirdæmi. Slíku tækifæri skulum við ekki sieppa. Jón Ásgeirsson miklu og svo sannarlega eru „fréttnæmir". Virðingarfyllst, Jón Ásgeirsson Ægisíðu 68. Halldór Jónsson, Leysingjastöðum: Eftirmáli vegna Kastljóss Þrátt fyrir vafasama dagskrá er einn sá þáttur í íslensku sjón- varpi, sem dreifbýlisfólk vill ógjarnan missa af, „Kastljós". Þar leiða menn saman hesta sína og skiftast á skoðunum um marg- vísleg málefni, og þótt oft reynist örðugt fyrir hinn almenna hlust- anda/horfanda að ná öruggum niðurstöðum, má þó sjá og heyra hvernig málin eru túlkuð. Ég ætla að það hafi verið föstud. 25. s.l. mánaðar, sem þeir Þor- steinn Þorsteinsson form. Lands- sambands Veiðifélaga og Árni Gunnarsson alþm. tóku tal saman, um veiðimál. Þætti þessum var ljóskastað um landsbyggðina. Nokkuð voru skoðanir þessara heiðursmanna skiftar um veiði- málin svo sem vænta mátti. Verð- ur lítilsháttar vikið að því hér ásamt nokkrum viðbótarpunktum. Aðalahugamál alþm. virtist vera að hindra för erlendra stang- veiðimanna í íslenzkar laxár, svo innlendir „collegar" þeirra hefðu þar léttari aðgang gegn lægra gjaldi. Taldi hann vænlegast til árangurs í þeim efnum að skatt- leggja veiðileyfi útlendinga. Þá gat hann þess að ríkissjóður legði fram mikið fé til veiðimála. Þ.Þ. svaraði því til að meðan óselt væri árlega nokkurt magn veiðileyfa væri örðugt að sjá ástæður til að amast við veiðum útlendinga. Rétt væri hins vegar að þeir héldu uppi verði veiðileyfa en þrátt fyrir það hefðu þau ekki hækkað til jafns við íslenzka verðbólgu. Þá upplýsti hann að ríkið hefði meiri tekjur en útgjöld af veiðum göngufiska, auk þess að þjónusta og viðskifti öll við er- lenda veiðimenn færðu þjóðinni umtalsverðar upphæðir í erlend- um gjaldeyri, sem vart myndi af veita. Nokkuð fataðist alþm. flugið við slíkar orðræður en hóf þá hliðar- sókn. Hann kvað innlendum mein- aðan besta tímann í ánum yfirieitt og með öllu lokaðar sumar. Nefndi hann þar til Laxá í Dölum o.fl. Þ.Þ. taldi að hærri greiðsla erlendra veiðimanna væri orsök þess að þeir sætu að hásumar- tímanum, enda endurleigðu sum stangveiðifélög sem laxár hefðu á leigu, útlendingum þær einmitt þann tíma. Enn reyndi alþm. bakkaklór, taldi hann litlar líkur að gjaldeyri fyrir viðskifti þessi væri ráðvand- lega skilað. Urðu úr því getgátur einar, ekkert unnt að sanna. Að endingu klykkti alþm. út með því, en hann hafði síðasta orðið, að hann féllist aldrei á annað en að íslenzkir veiðimenn ættu að hafa meiri réttindi en útlendingar og ítrekaði kröfur sínar um skattlagningu hinna síðarnefndu. Nú er það svo að í afmörkuðum sjónvarpsþætti verður erfitt að fullræða svo viðamikið mál, sem hér var á ferð. Verður því hér á eftir leitast við að draga fram fleiri atriði. Koma þá fyrst til greina afskifti ríkisins af veiði- málum. Fyrstu afskifti ísl. nútímaríkis af veiðimálum munu vera lög um lax- og silungsveiði frá 1932. Þótt þau gengju háskalega nærri eign- ar- og sjálfsákvörðunarrétti ein- staklinga, voru þau nauðvörn gegn dvínandi veiði og minnkandi stofnum. Þessum lögum hefir tvisvar verið breytt til bóta, eru nú í endurskoðun og batna von- andi enn. í samræmi við lög þessi kemur svo skipan veiðimálastjóra og veiðimálanefndar. Upp úr því rís svo klakstöðin í Kollafirði, borin uppi af áhuga og dug veiðimála- stjóra, Þórs Guðjónssonar. Hafa nú gjörbreyst viðhorf öll, sökum stöðugrar upplýsingaöflunar og aukins seiðaeldis. Þetta ber að þakka, þótt knöpp væru framlögin stundum. En fleira er á að minnast. Laxveiðilögin gera ráð fyrir lög- gæslu við veiðiár og vötn og ákveða að ríkið greiði að hálfu kaup veiðivarða. Til skamms tíma var þetta framkvæmt þannig að jafnt skiftist milli veiðifélaga og Halldór Jónsson ríkis allur kostnaður við veiði- vörzlu og var um það gott sam- komulag. En höggormurinn leyn- ist jafnan í paradís. Fyrir nokkr- um árum var sá háttur upp tekinn að ríkið tæki í sínar hendur og greiddi alla almenna löggæzlu. Engin breyting var þó gerð um veiðivörsluna og létu veiðiréttar- eigendur kyrrt liggja. Nú bar svo við að aðgætnir ríkisþjónar fengu hugljómun. Orðalag laganna var þannig að hugsanlegt var að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.