Morgunblaðið - 10.06.1980, Page 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980
18 mörk skoruð
í fjórum leikjum
Um helgina fóru fram fyrstu
leikirnir i norðurlandsriðium 3.
deildar i knattspyrnu. 4 leikir
voru leiknir, og ekki er hægt að
segja annað en leikmenn flestra
liðanna hafi verið á skotskónum
þvi 18 mörk voru skoruð i þessum
4 leikjum.
D riðill: Magni-Árroðinn 2:3
Mörk Magna skoruðu Jón Lárus-
son og Hringur Hreinsson en Örn
Tryggvason skoraði öll 3 mörk
Árroðans, þar af 1 úr víti.
í sama riðli léku einnig Leiftur
og HSÞ og sigraði síðarnefnda
liðið með 4 mörkum gegn 1. Mark
Leifturs var sjálfsmark eins af
leikmönnum HSÞ en Jónas Hall-
grímsson skoraði eitt mark fyrir
HSÞ, og Jónas, áður leikmaður
með Stjörnunni í Garðabæ (föð-
urnafn fékkst ekki gefið upp)
skoraði þrjú mörk.
í E riðli léku Reynir og Efling
og sigraði Reynir með 6 mörkum
gegn 1. Fyrir Reyni skoruðu Óðinn
Valdimarsson 3„ Bjarni Freysson
2 og Elvar 1 mark. Guðmundur
Jónsson skoraði mark Eflingar.
Efling misnotaði vítaspyrnu í
leiknum. í E riðli léku einnig
Dagsbrún og Tindastóll. Tindastó-
oll sigraði í leiknum með einu
marki gegn engu og það var
Þórhallur Ásmundsson sem skor-
aði markið. —sor
Stenmark fær
aftur möguleika
ALÞJÓÐLEGA skíðasambandið
gerði stórtækar breytingar á
reglum sinum varðandi heims-
bikarkeppnia á aðalfundi sinum i
Feneyjum um helgina. Þegar
grannt er skoðað má ætla, að
Tvær konur
sigla yfir
Atlantshafið
EINHVER mesta siglingakeppni
sem um getur hófst um helgina i
Plymouth i Englandi. 89 segl-
skútur lögðu þá af stað og verður
kappsiglt yfir Atlantshafið. Að-
eins einn er i hverri skútu og er
talið að fyrstu bátarnir muni
skila sér til Newport á Rhode
Island eftir 18 daga.
Skúturnar eru frá 17 þjóðum
og flestar frá Bandarikjunum,
eða 22 stykki. 20 eru breskar og
14 franskar. Á tveimur bátum
eru kvenmenn i áhöfn. Naomi
James frá Nýja Sjálandi, sem
einu sinni sigldi ein i kringum
hnöttinn, og Judy Lawson frá
Bandarikjunum. Sú þriðja, Flor-
ence Arthaud frá Frakklandi,
ætlaði að keppa, en braut mastrið
rétt áður en lagt var af stað og
varð þvi að draga sig í hlé.
sænski skípakappinn Ingimar
Stenmark eigi nú aftur mögu-
leika á þvi að vinna heimsbikar-
inn, en þar sem hann hefur ekki
gefið sig að bruni, hefur hann
aldrei siðustu árin átt möguleika
á þvi að safna nógu mörgum
stigum til þess að verða efstur.
Undir hinum nýju reglum á
Stenmark möguleika á því að
hrúga saman 250 stigum fyrir svig
og stórsvig. í fyrra gat hann mest
hreppt 200 stig. Þá má geta þess,
að sambandið fjölgaði til muna
heimsbikarkeppnum fyrir kom-
andi keppnistímabil. Áð undan-
förnu hefur verið keppt í 23 skipti
á vetri hverjum, en sú tala hækkar
nú í 31. Hjá kvenfólkinu var látið
vera að breyta reglunum.
Hafþór aftur
í Fram!
HAFÞÓR Sveinjónsson, varnar-
maðurinn efnilegi hjá Vikingi,
gekk i gær frá félagaskiptum
yfir í Fram. Hafþór vakti athygli
fyrir góða leiki á siðasta keppn-
istimabili með Fram og kom
nokkuð á óvart er hann gekk til
liðs við Víking. Hann lék aðeins
þrjá leiki með meistaraflokki
Víkings i 1. deild.
Jafntefli í
rykskýinu
Haukar
- KA
Haukar og KA skildu jöfn,
1—1, í 2. deild íslandsmótsins i
knattspyrnu um helgina. Verða
úrslitin að teljast nokkuð sann-
gjörn miðað við gang leiksins. en
hann skiptist algerlega i tvo
hluta. Norðanmennirnir voru
mun sterkari aðilinn í fyrri,
hálfleik og skoruðu þá mark sitt.
Siðan voru það heimamenn sem
náðu öllum völdum á vellinum i
siðari hálfleik og jöfnuðu þá
mjög verðskuldað.
Annars verður að segjast eins
og er, að oft á tíðum var ekki gott
að sjá hvað var um að vera inni á
vellinum. Leikið var á þurrum
malarvellinum á Kaplakrika, og í
norðanáttinni lagðist slíkt rykský
yfir völlinn, að hlutskipti leik-
manna var ekki öfundsvert. En
leikmenn sáu þó nóg til þess að
skora tvívegis. Fyrst var Jóhann
Jakobsson að verki fyrir KA og
skoraði hann markið rétt fyrir
leikhlé. Elmar Geirsson tók þá
mikla rispu niður vinstri kantinn
og sendi vel fyrir markið. Myndað-
ist mikið kraðak inni í markteig
Hauka í kjölfarið og endaði með
því að knötturinn barst til J6-
hanns sem skoraði örugglega,
enda færið innan við meter.
Ólafur Jóhannesson jafnaði
fyrir Hauka í síðari hálfleik, skot
hans af um 20 metra færi breytti
um stefnu af varnarmanni og
trítlaði í netið. Nöturlegt mark og
klaufalegt hjá markverði KA að
stöðva ekki knöttinn.
Bæði liðin sýndu tilþrif á köfl-
um og var leikurinn ekki sem
verstur af malarleik að vera. En
mikið skelfing eru þeir alltaf
leiðinlegir þessir malarleikir.
-gg.
Fyrir leik Þórs og Ármanns afhenti fyrirliði Ármanns Árna
Stefánssyni blómvönd i tilefni 65 ára afmælis Þórs, sem var sama dag.
Elmar Geirsson fyrirliði KA mætti einnig á staðinn og afhenti Árna
blóm af sama tilefni fyrir hönd KA. Ljósm. sor.
Bombardella
fer hvergi
ROLAND Bombardella, kunnur
spretthlaupari frá Luxemborg,
lýst þvi yfir á sunnudaginn, að
hann myndi sitja heima, þrátt
fyrir að land hans sendi lið á
ólympiuleikana i Moskvu.
Sagði Bombardella, að ákvörð-
un sin væri af pólitiskum ástæð-
um og vildi hann með þessu sýna
hug sinn gagnvart úþenslustefnu
Rússa i Afganistan. Sagði Bomb-
ardella skammarlegt að Luxem-
borg væri meðal þátttökuþjóða á
ÓL og taldi snjallara að fylkja
sér um sterkasta bandamann
sinn, Bandarikin.
í fyrstu hugðist Luxemborg
senda sex manna lið til Moskvu og
var Bombardella nánast sjálfsagð-
ur í þann hóp. Fjarvera hans
minnkar hópinn því niður í 5. Hins
vegar kann svo að fara að Luxem-
borgarar sendi aðeins þriggja
manna lið, því að árangur íþrótta-
manna í Iandinu hefur ekki verð-
skuldað til þessa að fleiri fari til
Moskvu.
Ali hældi öðrum
en sjálfum sér!
sagöi Larry Holmes bestan
„HOLMES er sá besti, hann
rotaði Weaver um daginn og ætla
ég því ekkert að vera að eyða
tíma i Weaver. Holmes er bestur,
þess vegna keppi ég við hann“
sagði Mohammed Ali, hnefaleika-
kappinn óborganlegi á fundi með
fréttamönnum i Cambridge
Masachusetts um helgina. Er
óhætt að segja fátitt að Ali hæli
einhverjum öðrum en sjálfum sér
og er um það eitt að segja, að
batnandi fólki er best að lifa.
Hins vegar kom einnig fram, að
Ali taidi sjálfan sig ekki með,
þegar hann sagði Holmes bestan.
Síðar á fundinum lýsti Ali þvi
yfir, að Holmes yrði svo auðveld
bráð, aö hann myndi fyrir leikinn
tilkynna i hvaða lotu hann ætlaði
sér að rota hann.
Ali flutti einnig um helgina
fyrirlestur í háskólanum í Cam-
bridge. Messaði hann yfir æskunni
og féllst síðan á að svara fyrir-
spurnum. Meðal þess sem hann
var spurður um var hvað hann
hefði erfiðast gert á ævinni. Ali
svaraði að bragði og sagði það
undirbúninginn fyrir síðari viður-
eign sína gegn Leon Spinks. Síðan
hugsaði hann sig betur um og
sagði rólega, „nei, undirbúningur
minn nú er mun erfiðari". Það
kom fram, að Ali hefur slegið af
sér 21 pund á síðustu vikunum og
er nú „aðeins" 208 pund.
• Siðari viðureign Ali og Spinks. AIi sagði undirbúning sinn fyrir þá
viðureign hafa verið ákaflega erfiðan.
Kist
skoraöi
HOLLENSKA knattspyrnu-
landsliðið, sem þátt tekur i
lokakeppni Evrópukeppni
landsliða á Ítalíu, mætti til
leiks um helgina. Lék liðið
fljótlega æfingarleik við 1.
deildar félagið Udinese og
sigraði örugglega 4—0.
Kees Kist var markagráðug-
ur i leiknum, skoraði tviveg-
is. Annað hinna markanna
skoraði gamla kempan Ari
Haan.
Tulsa
tapaði
JÓHANNES Eðvaldsson og
félagar hans hjá Tulsa
Roughnecks töpuðu illa á
heimavelli sinum fyrir
Detroit Express. Pato Mar-
getic skoraði eina mark
leiksins, eftir að Vic More-
land hafði bjargað skoti
hans af linu, fékk Margetic
knöttinn á nýjan leik og
skoraði af öryggi.
Tulsa átti 22 skot að
marki i leiknum gegn 7 hjá
Detroit, en 4 sinnum fór
knötturinn í þverslá Detroit-
marksins.
/ •
♦ i
Köge er efst
KÖGE er efst i dönsku
knattspyrnunni eftir 12 um-
ferðir. Hefur félagið hlotið
18 stig. í öðru sæti er KB
með 16 stig. Þrjú lið hafa
hlotið 15 stig, AGF, B-93 og
Vejle. tjrslit leikja um helg-
ina urðu sem hér segir:
Vejle - B-93 2-2
Ob Odense — Frem 2—1
Lyngby — Nestved 1—2
Kðge - AGF 2-2
KB — Esbjerg 0—3
Hvidövre — AAB 3—1
Kastrup — B-1903 0 —0
Langneðst i deildinni er
AAB, sem hefur aðeins hlot-
ið 2 stig. Frem er næst neðst
með 7 stig og Kastrup hefur
8 stig.
Gunnar
þjálfar
STJARNAN í Garðabæ hef-
ur ráðið handknattleiks-
þjálfara fyrir komandi
keppnistimabil, en Stjarnan
leikur i 3. deild. Það er
Gunnar Einarsson, FH-ing-
urinn, sem leikið hefur í
Þýskalandi siðustu árin,
sem fallist hefur á að þjálfa
liðið.
Litlu munaöi að Stjarnan
kæmist f 2. deild á siðasta
keppnistimabili og er efni-
viðurinn sem Gunnar fær að
vinna úr mjög góður. Mun
Stjarnan vænta mikils af
Gunnari á næsta keppnis-
timabili.
r