Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 40

Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 40
Siminn á ritstjórn og skrifstofu: 10100 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 Siminn 1 á afgreidsfunni er 83033 3ffl«r0un(tlabib Tilboð til BSRB lagt fram í dag' SAMNINGANEFND ríkisins mun á sáttafundi klukkan 09 í da« legKja fram tilboð til Bandalags starfsmanna ríkis ok bæja um grunnkaups- hækkun, aukinn samninKs- rétt ok breytingu að því er varðar lífeyrissjóð opinberra starfsmanna — samkvæmt þeim heimildum. sem Morg- unblaðið aflaði i gær. Ráð- herrar vörðust í gær allra frétta um þetta tilboð, en þess var vænzt að eftir sátta- fundinn í dag, myndi fjármálaráðuneytið gefa út fréttatilkynningu. er skýrði frá tilboðinu. Það eru nú aðeins þrjár vikur þar til ár er liðið frá því er kjarasamningur BSRB gekk úr gildi og 8 mánuðir eru nú síðan BSRB lagði fram kröfu- gerð sína, en samkvæmt henni eru kröfur um allt að 39% grunnkaupshækkanir. Sam- kvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær mun tilboð ríkisins um grunn- kaupshækkun vera mjög óveruleg í samanburði við kröfuna. Tilboðið um samn- ingsrétt mun ekki ná eins langt og samkomulagið, sem gert var við BSRB af Tómasi Arnasyni í fyrra. Þá mun einnig um það rætt að réttindi úr lífeyrissjóði opinberra starfsmanna nái til fleiri að- ila, en hingað til. Ályktanir stjórnarfunda SH og SAFF: Vara frystihúsin við að halda áf ram rekstri Málið rætt á ríkisstjórnarfundi í dag, segir forsætisráðherra REKSTRARSTÖÐVUN virðist nú yfirvofandi i hraðfrystihúsum um allt land. Stjórnir Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna og frystihúsa innan Sambandsins komu saman til funda i gær þar sem fjallað var um ástandið. í ályktun fundar SH segir að nauðsynlegt sé að hver og einn framleiðandi undirbúi nú þegar uppsagnir starfsfólks og rekstr- arstöðvun. í ályktun SAFF eru frystihúsamenn hvattir til að skoða fjárhagsstöðuna vel og vandlega og gera allar nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að hætta rekstri áður en greiðslufall verður orðið svo alvarlegt að ekki sé hægt að greiða fyrir nauðsynlegustu aðföng og þjón- ustu. Morgunblaðið spurði Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra álits á þessum tíðindum í gærkvöldi og sömuleiðis hvort stjórnvöld myndu grípa til einhverra aðgerða og þá hverra til að bæta hag frystiiðnaðarins. Forsætisráð- herra vildi ekki tjá sig um þessi mál að svo stöddu, en sagði að þau yrðu rædd á ríkisstjórnarfundi í dag. í ályktun stjórnar SAFF segir að ljóst sé, að halli fjölda frysti- húsa sé 15—20% og slíkur rekstur geti ekki gengið. Því verði greiðslufall innan örskamms tíma, því alvarlegri, sem lengra líður. Stjórn SH varar hins vegar fé- lagsmenn sína við að halda áfram rekstri. Segir í ályktun SH, að ekki sé að vænta frekari afskipana um ófyrirsjáanlegan tíma en í þau skip, sem nú eru að lesta. Sjá nánar blaðsiður 2 og 31. * „Eg er eins og stolt- ur faðir“ .ÉG er eins og stoltur faðir" sagði Stefán Tryggvason á Skrauthólum á Kjalarnesi, þegar Mbl. innti hann eftir líðan unganna þriggja, sem litu dagsins Ijós i fyrsta skipti undir vélarhlif Ursusdráttarvélar i fyrrakvöld. _Það er eitt egg eftir og nú biðum við bara spennt eftir að sjá hvað gerist“, sagði Stefán ennfremur. Eins og fram kom i Morgunblaðinu s.l. fostudag. fann Stefán hreiðrið þegar hann var i miðju kafi að hera á túnið, en þurfti að skipta á oliu á dráttar- vélinni. hafði þá hreiðrið ekki haggast, svo vel var það fest. Ef einhver nálgast dráttarvél- ina eru foreldrarnir á sveimi uns viðkomandi hverfur á braut og þá eru þeir um leið komnir með æti og móðirin lögst á ungana. Að lokum sagði Stefán að nú yrði dráttarvélin ekkert hreyfð næsta hálfa mánuðinn. eða þang- að til að ungarnir færu aðeins að stækka. f flr W.. ■ ^—- Á Ungarnir dafna vel, og hér sést fósturfaðir þeirra Stefán athuga líðan þeirra. 31 hvalur á land HVALVERTÍÐIN hefur gengið með afbrigðum vel það sem af er. Um helgina veiddust 10 dýr, allt langreyð- ar. Hafa þá borist á land 31 hvalur, 30 langreyðar og 1 búrhveli. Fjórir hvalbátar stunda veiðarnar nú eins og undanfarin ár og hafa þeir verið að veiðum út af Reykja- nesi. Ekið á þriggja ára stúlku ÞRIGGJA ára stúlka slasað- ist nokkuð er ekið var á hana við Rauðalæk í gærkvöldi. Tildrög slyssins voru þau að litla stúlkan var að hljóla á þríhjóli í innkeyrslu milli húsa við Rauðalæk en bílstjóri, sem fór þar um varð hennar ekki var og ók á hana. Er Mbl. leitaði frétta af líðan stúlkunnar í gærkvöldi var hún enn í rannsókn á slysadeild Borgarspítalans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.