Morgunblaðið - 19.06.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
Banaslys við
Hvammstanga
TUTTUGU og fimm ára gamall
maður, Gunnar Valgeirsson, til
heimilis að Ásbrekku á Hvamms-
tanga, beið hana, er bifreið fór út
af veginum rétt fyrir utan
Hvammstantca um klukkan fjotcur
i fyrrinótt.
Gunnar var ásamt fjórum öðrum
á ferð í amerískri fólksbifreið og
var bifreiðin á leið út úr þorpinu á
Hvammstanga. Rétt utan við þorpið
valt bifreiðin út af veginum en
nánar var ekki vitað um tildrög
slyssins í gær. Gunnar var farþegi í
bifreiðinni og er talið að hann hafi
látist samstundis. Meiðsli hinna,
sem í bifreiðinni voru, reyndust
ekki alvarleg en öll voru þau flutt á
sjúkrahúsið á Hvammstanga. I gær
vár búið að útskrifa einn og voru
líkur á að tveir yrðu útskrifaðir af
sjúkrahúsinu í gærkvöldi.
nrí
INNLENT
Engin gjaldeyr-
isleyfi vegna
kaupa á skipum
STEINGRÍMUR Hermannsson.
sjávarútvegsráðherra, hefur gert
það að tillögu sinni í ríkisstjórn-
inni, að skip verði tekin af frílista.
Mál þetta hefur ekki verið af-
greitt ennþá, en hins vegar hefur
gjaldeyrisnefnd fengið fyrirmæli
um að afgreiða engin slík gjaldeyr-
isleyfi og því má segja, að skip hafi
þegar verið tekin óbeint af frílista,
eins og Steingrímur Hermannsson
sagði í samtali við Morgunblaðið.
Hækka
kjötvörur,
fiskur og
leigubílar?
VERÐLAGSRÁí) hefur
heimilað hækkun á unnum
kjötvörum og er hækkunin
á bilinu frá 12 til 14%. Þá
hefur verið ákveðin hækk-
un á fi.ski til neytenda um
11,7% og hækkun á taxta
leigubifreiða. sem nemur
12%. Var þetta samþykkt
á fundi ráðsins síðastlið-
inn mánudag.
Ríkisstjórnin hefur enn
ekki staðfest þessar hækk-
anir og koma þær ekki til
framkvæmda, fyrr en hún
hefur gert það. Frá fyrri
fundum Verðlagsráðs
liggja enn hækkunarsam-
þykktir, sem ríkisstjórnin
hefur enn ekki staðfest. Má
þar m.a. nefna hækkun á
brauðum um allt að 14% og
útseldri vinnu, sem nam
11,7%, ennfremur verð-
hækkun á kaffi, sem var
7%.
Litil telpa með blóm á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Ljósm. Kmilía.
Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins:
Boðskapur ráð-
herra óviðeigandi
Pavarotti kemur í dag:
Einkaþota frá London
kostar 5 milljónir kr.
ÍTALSKI tenórsöngvarinn Pav-
arotti kemur til Reykjavíkur um
hádegisbilið i dag með einkaþotu
frá London. I»otuna leigir Lista-
hátið af fyrirtækinu Falcon Jet
Center og var upphaflega talað
um kostnað að upphæð 6,5 millj
ónir króna, en Örnólfur Árnason,
framkvæmdastjóri Listahátíðar.
sagði Mbl. i gærkvöldi að kostn-
aðurinn við þotuna næmi um 5
milljónum króna.
Pavarotti æfir með Sinfóníu-
hljómsveit Islands í Laugardals-
höll síðdegis í dag, en tónleikar
hans eru á dagskrá Listahátíðar
annað kvöld.
Héðan fer svo Pavarotti með
Þingflokkur
Framsóknar:
Biður þingfar-
arkaupsnefnd
um að breyta
ákvörðuninni
ÞINGFLOKKUR Framsóknar
flokksins samþykkti samhljóða
eftirfarandi á fundi i gær, en
tveir þingmenn sátu hjá.
„Þingflokkur Framsóknar-
flokksins telur ekki rétt að láta
ákvörðun þingfararkaupsnefndar
um yfirvinnugreiðslur koma til
framkvæmda og beinir því til
nefndarinnar að breyta ákvörðun
sinni. Jafnframt telur þingflokk-
urinn rétt að breyta lögum um
þingfararkaup þannig að kjara-
dómur ákvarði laun þingmanna."
áætlunarflugi til London að
morgni 21. júní, en hann er nú á
leið frá Bandaríkjunum í tveggja
mánaða frí í Boiogna á Ítalíu.
„SAMKVÆMT lögum er þingfarar-
kaupsnefnd það stjórnvald, sem á
að taka ákvarðanir um kjör alþing-
ismanna. Og boðskapur einstakra
ráðherra um, að þeir séu i færum til
að hindra sem slikir, að ákvarðanir
nái fram að ganga, er óviðeigandi.
Við setjum fram beiðni, mjög
ákveðna beiðni, til nefndarinnar
um að breyta ákvörðun sinni,“
sagði Páll Pétursson, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
er hann kynnti Mbl. i gær sam-
þykkt þingflokksins vegna launa-
hækkunar þingmanna.
„Ég er persónulega ekki á því, að
laun þingmanna eigi að vera mjög
há,“ sagði Páll. „Ég vil að þeir fái
eðlilegan útlagðan kostnað endur-
greiddan og þokkalegt kaup. Ég tel
hins vegar mjög æskilegt að þing-
menn starfi að fleiru en þing-
mennsku og hafi þannig tengsl við
þjóðfélagið. Alþingi á ekki að vera
fílabeinsturn fyrir atvinnupólitík-
usa. í hópi þingmanna eiga að vera
menn kunnugir hinum ýmsu þáttum
þjóðfélagsins, ekki bara af afspurn
heldur af eigin reynslu. Þeir verða
að þekkja til, bæði á sjó og landi, og
hvarvetna í atvinnulífinu.
Það er heldur ekki heppilegt uppá
sjálfstæði þingmanna, að þeir þurfi
að eiga fjárhagsafkomu sína alfarið
Elías I. Elíasson
bæjarfógeti Akureyri
FORSETI íslands veitti í gær
Elíasi I. Eliassyni, bæjarfógeta i
Siglufirði, bæjarfógetaembættið
á Akureyri og Dalvik og sýslu-
mannsembættið í Eyjafjarðar-
sýslu frá og með 15. ágúst n.k. að
telja.
Elías I. Elíasson er 54 ára. Hann
varð stúdent frá Verzlunarskóla
íslands 1948 og cand. juris frá
Háskóla íslands 1954. Hann starf-
aði á skrifstofu tollstjórans í
Reykjavík að mestu frá miðju ári
Elias I. Eliasson
1951 til 1. október 1955, að hann
var settur fulltrúi í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1. júní
1956. Sex árum síðar var hann
skipaður deildarstjóri í ráðuneyt-
inu, og 22. desember 1966 var hann
skipaður bæjarfógeti í Siglufirði.
1976 var Elías settur bæjarfógeti í
Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnar-
nesi og sýslumaður Kjósarsýslu í
veikindaforföllum, og gegndi hann
þeim störfum í hálft ár. Elías
stundaði framhaldsnám í lögfræði
í Bandaríkjunum og Danmörku
1959—60. Hann hefur setið í
yfirkjörstjórn Norðurlandskjör-
dæmis vestra og setið í nefndum,
sem hafa endurskoðað lög og
reglugerðir, m.a. var hann skipað-
ur í nefnd til að endurskoða
sjúkrahúslögin.
Kona Elíasar er Sigríður Jó-
hanna Lúðvíksdóttir, og eiga þau
tvö börn.
Auk Elíasar sóttu sex um emb-
ættið á Akureyri; Andrés Valdi-
marsson sýslumaður, Stykkis-
hólmi, h'reyr Ófeigsson héraðs-
dómari, Akureyri, Gunnar Sólnes
hæstaréttarlögmaður, Akureyri,
Jóhannes Árnason sýslumaður,
Patreksfirði, Sigurberg Guðjóns-
son bæjarfógetafulltrúi, Kópavogi
og Sigurður Gizurarson sýslumað-
ur Húsavík.
Líkamsárás
í Hafnarfirði:
Ungur maður
fannst rænu-
laus á götu
MILLI klukkan 2 og 3 í
fyrrinótt var ráðist á tuttugu
og þriggja ára gamlan mann
á götu i Ilafnarfirði og honum
veittir áverkar. Var komið að
manninum þar sem hann lá
rænulaus á götunni.
Maðurinn kærði í gær
líkamsárás og samkvæmt frá-
sögn hans var hann á leið heim
til sín frá Bifreiðastöð Hafnar-
fjarðar, þegar bifreið stöðvaði
hjá honum. Út úr bifreiðinni
komu þrír piltar og réðust þeir
að manninum og börðu hann.
Hlaut hann töluverða áverka í
andliti og á hálsi. Árásar-
mennirnir hurfu á braut og
skildu manninn sem fyrr sagði
eftir rænulausan. I gær stóð
yfir leit að árásarmönnunum.
undir vild kjósenda. Að hinu leytinu
er auðvitað líka hættulegt að þing-
mennska sé eitthvert auðmanna-
sport. Ég held að heppilegt sé, að
kjaradómur ákvarði laun þing-
manna, fremur en þeir ákveði sjálfir
að elta einhvern launaflokk. Starfið
er sérstaks eðlis og engu öðru starfi
líkt.
Ég treysti kjaradómi prýðilega
til að skammta okkur og meta störf
okkar. Ég er ekki að ætlast til að
þingmenn fái laun í líkingu við
stórgripi í forystu opinberra starfs-
ihanna, eða vinnusama lögreglu-
þjóna, eða á borð við stjórnendur
stöndugra fyrirtækja, hvað þá að ég
ætlist til að vera launaður eins og
ritstjóri hjá Morgunblaðinu, sem
þarf að vera önnum kafinn daginn út
og inn við að stugga fólki frá flokki
sínum og finnst hann þurfa að fá
flog af réttlætiskennd og mann-
gæzku á öðru hverju tungli og er
neyddur til að lifa stöðugt við þá
skelfingu, að Rússarnir séu að koma
og muni senda hann til Síberíu.“
Ók á brúarstólpa
UNGUR maður úr Garðabæ slas-
aðist, er hann ók á brúarstólpa
við bæinn Fjörð á Múlanesi,
A-Barðastrandasýslu í gærmorg-
un.
Læknir frá Patreksfirði kom á
slysstað og hafði hann samband
við Slysavarnafélag íslands, sem
óskaði eftir aðstoð Varnarliðsins
og sótti þyrla manninn vestur.
Kom hún til Reykjavíkur laust
fyrir klukkan 13 í gær og var hinn
slasaði fluttur í Borgarspítalann,
en meiðsli hans voru mest inn-
vortis.
Hafþór loks í störf
eftir 4 ár við bryggju
ÁÆTLAÐ er að hafrannsókna-
skipið Hafþór komist í störf fyrir
Hafrannsóknastofnun um næst-
komandi mánaðamót. Fyrirhug-
að er, að skipið fari til kolmunna-
rannsókna austur af landinu. í
fleiri mánuði hefur verið unnið
að lagfæringum á spilum skips-
ins og vonast menn til að búnað-
urinn sé nú loks að komast í lag.
Skipið var síðast í notkun fyrir
réttum fjórum árum og þá sem
varðskipið Baldur. Eftir að gert
hafði verið við það tjón, sem varð
á skipinu í þorskastríðinu, var það
afhent Hafrannsóknastofnun 23.
maí 1977. Síðan hefur verið unnið
að viðgerðum á skipinu og þá
einkum spilum, en með litlum
árangri þar til nú. Kostnaður við
þessar viðgerðir er gífurlegur.
Hafþór er byggður í Póllandi árið
1974.