Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980
5
Kexverksmiðjan Frón
með kynningarviku
KEXVERKSMIÐJAN Frón hóf
kynnintrarviku á framleiðsluvör-
um sínum þann 13. júní. Auk Frón
stendur Félaí? matvörukaup-
manna að þessari kynningu. Mbl.
hafði samband við Magnús Ingi-
mundarson forstjóra Frón hf. og
innti hann eftir upplýsingum um
kynningarvikuna.
Magnús sagði að ástæðan fyrir
þessari kynningarviku væri sam-
dráttur í sölu vegna aukins inn-
flutnings á kexi. Frá áramótum til
aprílloka voru 532 tonn af kexi
flutt inn, en á sama tíma á síðasta
ári hefðu aðeins 264 tonn verið
flutt inn. Þetta hefur leitt af sér
sölutregðu, en samt hefur aðeins
birt til síðustu tvo mánuðina, og
með þessari kynningarviku viljum
við stuðla að áframhaldandi aukn-
ingu. Framleiðslunýjungar eru í
bígerð, en eru ekki væntaniegar á
markaðinn fyrr en í haust. Þá viku
sem kynningin stendur yfir, hafa
þeir lækkað verðið um 10% hjá
Frón, auk þess sem verzlunar-
mennirnir lækka álagninguna um
10%. Mbl. innti einnig Magnús
eftir því hvort þurft hefði að segja
starfsfólki upp, og sagði hann að í
janúar hefðu þeir dregið fram-
leiðsluna saman og þar af leiðandi
sagt upp helmingnum af starfs-
fólkinu.
Eins og áður var getið stendur
einnig Félag matvörukaupmanna
fyrir þessari kynningu, og tjáði
Ingi Björn Hafsteinsson kaupmað-
ur Mbl. að félagið væri hlynnt
íslenskri framleiðslu, þrátt fyrir að
þeir væru hlynntir frelsinu, og með
þessu vildu þeir sporna við því að
íslenskir kexframleiðendur (færu á
hausinn) færu halloka fyrir er-
lendri framleiðslu.
Stafsetningarorðabók
Halldórs í 3. útgáfu
BÓKAVERSLUN Sigfúsar Eym
undssonar hefur gefið út 3. útgáfu
af Stafsetningarorðabók Ilalldórs
Halldórssonar. Ilún er gefin út i
samræmi við stjórnskipaða stafs-
etningu og því ekki skrifuð z.
Höfundur segir í eftirmála þessar-
ar útgáfu. „Bók þessi hefir verið
ófáanleg í bókaverslunum um 5—6
Halldór Halldórsson
ára skeið. Hefir ýmislegt valdið, en
þó einkum ófrjár deilur um stafsetn-
ingarmál. Vitaskuld hefi ég reynt að
fyígja út í ystu æsar þeim reglum,
sem stjórnskipaðar eru. Hefir mér
yfirleitt reynst það létt verk. Þó hafa
reglurnar um stóran og lítinn staf
reynst mér þungar í skauti. Eg á
eftitt með að draga mörkin milli
þjóðheita og nafna á íbúum lands-
hluta annars vegar og þjóðflokka-
heita hins vegar, eins og gera á
samkvæmt auglýsingu nr. 261/1977.,
Tyrki, sem býr í Tyrklandi, er
tyrkneskur ríkisborgari. — Því skal
rita stóran staf. En tyrki, sem er
íranskur ríkisborgari, er Irani, en
tyrkneskur að ætt. — ÞVí skal rita
lítinn staf. Gyðingar eru dreifðir um
allan heim. Ríkisborgari í ísrael
nefnist ísraelsmaður, enda ekki end-
ilega gyðingur að ætt. Þessar reglur
hefi ég túlkað að eigin geðþótta, rita
t.d. Tyrki, en gyðingur ....
Stafsetningarorðabókin hefurgl-
öggar skýringar um uppruna orða-
nna, sem skýra hers vegna orðin eru
rituð svo og svo. Bókin er 211 bls. og
prentuð í prentsmiðjunni Odda.
Ráðinn aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Arnarflugs
FRÁ OG með 15. júní 1980 var Gunnar
Þorvaldsson ráðinn aðstoðarframkvæmda-
stjóri Arnarflugs hf.
Verksvið Gunnars verður almennt eftir-
lit með daglegum rekstri allra deiida
Arnarflugs og mun hann starfa sem
fulltrúi framkvæmdastjóra i fjarveru hans.
Gunnar mun samhliða þessu gegna áfram
starfi flugrekstrarstjóra Arnarflugs.
Gunnar Þorvaldsson varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1968 og hefur
starfað að flugmálum síðan. Hann réðst til
Arnarflugs sem flugmaður við stofnun
félagsins, varð flugstjóri árið 1977 og tók við
flugrekstrarstjórastarfi félagsins í fébrúar
1978.
Gunnar Þorvaldsson
Rekstur skilaði hagn
aði í
ÞANN 14. júní sl. var aðalfund-
ur Þörungavinnslunnar hf.
haldinn á Reykhólum og sátu
fundinn um 70 manns. í skýrslu
stjórnar kom fram að 1979 hafi
öllum markmiðum. sem sett
voru í rekstrar- og fram-
kvæmdaáætlun félagsins fyrir
það ár. verið náð. Framleidd
voru tæplega 4000 tonn af
þangmjöli og um 140 tonn af
þaramjöli. Einnig voru fram-
leidd um 80 tonn af þurrkaðri
loðnuskreið og spærlingi. sem
lagði grunn að nýrri fram-
leiðslu fyrir Þörungavinnsluna
og verulega getur hjálpað til og
skapað aukið öryggi fyrir fyrir-
tækið á komandi árum.
Það má nú telja fullsannað að
tekist hafi að ná tökum á
þangvinnslunni og verksmiðjan
geti skilað þeim afköstum og
arði sem upphaflega var vænst
segir í frétt frá Þörungavinnsl-
unni. Væri framtíðin nú björt ef
ekki hefðu komið til þau óvæntu
atvik að Alginate Industries Ltd.
taldi sig ekki geta staðið ,við
samning sinn við Þörungavinnsl-
una á yfirstandandi ári.
í skýrslu stjórnar kom fram
að heildarframleiðsluverðmæti á
fyrsta
Þörungavinnslan
fær 240 milljónir í
skaðabætur vegna
vanefnda erlendra
viðsemjenda
síðastliðnu ári varð um 750
milljónir og þar af var flutt út og
selt á árinu fyrir 630 milljónir,
en 121 milljón króna verðmæti
er í birgðum. Rekstur skilaði
hagnaði í fyrsta sinn sem nemur
50 milljónum króna umfram
fullar afskriftir og var framlegð
af rekstri 233 milljónir króna
umfram beinan framleiðslu-
kostnað.
Mánudaginn 9. júní síðastlið-
inn var gengið frá samkomulagi
milli Þörungavinnslunnar og
Alginate Industries og Merck &
Co. Inc. hér i Reykjavík vegna
vanefndanna. Samþykkti AIL að
greiða Þörungavinnslunni 240
þúsund pund í skaðabætur auk
skuldbindinga til kaupa á 2000
tonnum af þangmjöli. í sam-
komulaginu er einnig gert ráð
fyrir að Merck & Co. Inc. muni
skipti
gera áætlun um framleiðslu á
kalsínumalginat og yrði slík
verksmiðja, ef til kæmi, staðsett
á Reykhólum.
I skýrslu stjórnar kom einnig
fram að þurrkun á fiskafurðum
hefði gengið vel og öll fram-
leiðsla til þessa væri seld og
farin úr landi. Hugmyndir hafa
komið fram um að Þörunga-
vinnslan taki þátt í þurrkun á
kolmunna þeim sem ætlunin er
að veiða í tilraunaveiðum á
komandi sumri og hausth
Hjá Þörungavinnslunni unnu
á síðasta ári a meðaltali 24
starfsmenn auk þeirra sem
stunduðu hráefnisöflun. Launa-
greiðslur námu 155 milljónum
króna og greiðslur fyrir keypt
þang námu 92 milljónum króna
og þangtökugjöld til landeiganda
tæplega 7 milljónum.
Á aðalfundinum voru eftir-
taldir menn kjörninr í aðal-
stjórn: Ingi Garðar Sigurðsson,
tilraunastjóri, Kjartan Ólafsson,
ritstjóri, Ólafur E. Ólafsson,
fyrrverandi kaupfélgsstjóri,
Steingrímur Hermannsson, ráð-
herra, Vilhjálmur Lúðvíksson,
framkvæmdastjóri, stjórnarfor-
maður.
PTOFRA-
Ryksugan sem svifur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rumar 12 litra. já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún liöur um
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún.
Verö kr.
110.400.-
Eg er lettust...
búin 800Wmótor
og12litra rykpoka
(Made in USA)
HOOVER er heimilishjálp
ALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670