Morgunblaðið - 19.06.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
13
er að ræða venjulegt málverk eða
til að mynda verk unnið í jarðveg
eða þel. Það mætti einnig minna á
í þessu sambandi, að það er erfitt
að vera víðsýnn án þess að hafa
afar gott yfirlit, ekki hvað síst í
listum. Ég er hræddur um, að
þessir hlutir eigi sinn þátt í, hve
misjöfn og sundurlaus þessi sýn-
ing að Korpúlfsstöðum er.En það
eru þátttakendur í þessari sýn-
ingu, sem gefa góð loforð, og það
ætti að vera auðvelt fyrir mynd-
höggvarafélagið að koma þessu í
lag, næst er þeir efna til sýningar
á höfuðbólinu.
Ég nefni hér einstaka af þeim,
er mestan áhuga vöktu hjá mér,
og fyrstan skal telja Bjarna H.
Þórðarson, sem á þarna SKÁLD,
ágæta vel heppnað verk, og hefur
hann ekki áður komið fram með
jafn sannfærandi hlut. Sverrir
Ólafsson svíkur ekki. Hann á
þarna þrjú verk, sem öll eru
áhugaverð. Sigrún Guðmunds-
dóttir sýnir eitt verk, en það er
mín sannfæring, að þessi lista-
kona hafi ekki vakið þá eftirtekt,
er henni ber. Steinunn Þórarins-
dóttir er ný af nálinni og stendur
sig með prýði. Jón Gunnar á þarna
utan dyra verk, gert í járn og
skemmtilegt að mínu mati. Ragn-
ar Kjartansson sýnir þrjú verk, og
finnst mér Foli hans hafa mesta
fyllingu.
Það eru margir ónefndir á
þessari sýningu, og það eru einnig
margir nokkuð óráðnir. Ég veit
ekki, hvort það borgar sig fyrir
marga nýliða, að sýna verk sín,
meðan á námi stendur. Það sagði
mér lítið, sem nemendur Ragnars
Kjartanssonar hafa þarna til
mála að leggja. Það má vel vera,
að þeir hafi sitt að segja, en varla
enn sem komið er. Hér er fljótt
yfir sögu farið og varla ástæða til
að orðlengja um þessa sýningu.
Eitt er þó nokkurn veginn vitað:
Hún hefði getað verið miklu betri
og hún verður að verða miklu belri
næst, þegar ýtt verður úr vör.
framan í stað þess að gefa fjárann
í áhorfandann og stríða okkur
körlum og kerlingum.
Sérlega vönduð sýningarskrá er
með þessari hátiðasýningu, og er
hún til hins mesta sóma. Formáli
er á ensku, og allt með eins
hreinum svip og hægt er. Enginn
skal trúa öðru en að mínar bestu
óskir fylgi þessu fullorðinslega
afmælisbarni á ótroðnar götur.
Megi það dafna og eflast og verða
mun óvenjulegra á komandi tíð og
koma okkur hinum í hinn rétta
skilning um óravíddir lands, lofts
og mannlegrar visku.
og lífi, er orðið eyðingunni að
bráð.
Við gefum okkur tíma til að
lítast um í dalnum, en síðan
göngum við upp í Ólafsskarðið,
sem er milli Ólafsskarðshnúka og
Sauðadalahnúka. Skarðið heitir
eftir Ólafi, bryta í Skálholti, sem
átti hér leið um trylltur af töfrum
ráðskonunnar á staðnum, eins og
frá er greint í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar. Brekkan upp í skarðið
er allbrött og hefur trúlega reynst
mörgum klyfjahestinum erfiður
áfangi, en fyrrum latalfaraleið um
dalinn og þetta skarð., þegar menn
úr Grafningi eða Reykjavík fóru
austur í Ölfus eða Selvog. Þá var
haldið meðfram Ólafsskarðshnúk-
um, um Leiti og þaðan að Geita-
felli og síðan í byggð. Við förum
ekki þessa leið að sinni, heldur
stefnum í aðra átt.
Frá skarðsbrúninni blasa
hraunin við. Þau eru að minnsta
kosti tvö. Það eldra er komið frá
Leitum, sem er suður með fjallinu.
Þar mun hafa gosið fyrir um það
bil 4600 árum og hraunið runnið
austur og norður fyrir Blákoll og
Á rölti í kringum
Sauðadalahnúka
í dag skulum við bregða okkur
inn í Jósefsdal og ganga í kring
um Sauðadalahnúka, sem eru
gegnt Vífilsfellinu að austanverðu.
Er við höfum Lækjarbotna,
Fóelluvötn og Sandskeið að baki,
hækkar landið skyndilega og
nokkrar brekkur eru framundan.
Þetta eru Bolaöldurnar, sem eru
norð-vestan við Svínahraunið
Vegurinn skásker brekkurnar og
brátt erum við komin að Kaffi-
stofunni, sem stendur við gamia
veginn að Kolviðarhóli, en hann
liggur um Svínahraunið norðan-
vert. Bolaöldurnar bera nafn af
því, að fyrr á tímum gengu hér
laus geldneyti, naut og kálfar.
Voru mörg þeirra mannýg og
hrelldu þá gjarnan vegfarendur,
er áttu leið um þessar slóðir, eins
og margar sagnir greina frá.
Frá Kaffistofunni höldum við
til vinstri, eftir afleggjaranum í
áttina að Jósefsdal austan undir
Vífilsfellinu. Við ökum eftir hon-
um, allt að bröttustu brekkunni
fyrir neðan skarðið, sem gengur
norður úr dalnum. Þar við brekku-
fótinn skulum við skilja bílinn
eftir og ganga veginn upp í
skarðið. Þetta gerum við vegna
þess, að bíllinn liggur betur við,
þegar við komum til baka.
Af efstu brún skarðsins sjáum
við inn í Jósefsdal. Hann er luktur
fjöllum á alla vegu, liggja snar-
brattar, gróðurlausar skriður allt
upp til efstu brúna, en grænar
grundir hylja dalbotninn. Hér bjó
Jósef, sem dalurinn er kenndur
við, og nefndur er í þjóðsögum.
Hann var smiður góður og lék allt
í höndum hans, en sá ljóður var á
ráði hans, að hann var hverjum
manni orðljótari. Einhverju sinni
tvinnaði hann svo heiftarlega
saman blóti og formælingum og
bær hans sökk í jörð niður. Síðan
hefur enginn maður búið í þessum
dal. Við höldum niður í dalinn
fram hjá stórum steini, sem
stendur við Vegarbrúnina. Fyrir
ævalöngu hefur hann oltið ofan úr
brúnum Sauðadalshnúks og hafn-
að hér. Er hann kallaður Grettis-
tak. Sú hugsun leitar ósjálfrátt
fram hvort þetta hafi skeð, er bær
Jósefs bónda sökk í jörð niður?
Til hægri er Vífilsfellið, Blá-
fjöllin þar suður af og síðan
Ólafsskarðshnúkar og Sauðadala-
hnúkar. Þá er hringnum lokað.
Á hól nálægt miðju dalsins
stendur bygging. Þetta er skiða-
skáli Ármanns, sem var vel þekkt-
ur meðal skíðafólks hér fyrr á
árum og margir eiga þaðan
hugljúfar minningar. En nú
grotnar skálinn niður, því aðstæð-
ur hafa breyst hin síðari ár, og
húsið, sem fyrrum ómaði af gleði
ólafur Mixa:
SPÖLKORN ÚT
í BUSKANN
alla leið niður í Elliðaárvog. "Hitt
hraunið er miklu yngra og sam-
kvæmt síðustu rannsóknum er
talið líklegast að það sé um það bil
1000 ára gamalt. Það hefur runnið
frá tveimur eldborgum, sem við
sjáum úr skarðinu og standa úti í
hrauninu. Sjálfsagt er að skreppa
að syðri eldborginni og skoða
hana. Það er ekki langur spölur.
Brekkan upp að gignum er brött,
en stutt og öllum fær. Gaman er
að virða fyrir sér þennan gíg, sem
er í borginni og gott er að hvíla sig
í mosanum, sem hvergi er mýkri
eða þykkari en hér. Fyrst við erum
komin upp á þessa eldborg, er
sjálfsagt að heimsækja hina líka.
Það er ekki stór krókur að krækja
þangað. Frá henni liggur ein
stærsta hrauntröð á þessu svæði
og nær hún næstum norður að
vegi. Eftir að hafa skoðað gíginn
göngum við spölkorn eftir tröð-
inni, en síðan höldum við aftur að
Sauðadalahnúknum og göngum
um skarðið fyrir norðan hann. Þar
eru götuslóðar, sem vísa okkur
leiðina niður á veg, þar sem bíllinn
bfður.
í þessari ferð höfum við nær
eingöngu haldið okkur á jafn-
sléttu. En ekkert er auðveldara en
skreppa i leiðinni upp á Sauða-
dalahnúkinn þann hærri, sem er
583 m á hæð, eða Blákoll sem er
nokkru lægri. Víðsýnt er af þeim
báðum svo sá krókur borgar sig
vel.
Þeir sem fyrstir notuðu
HRAUN-utanhús-
málninguna fyrir um 15
árum síðan geta best dæmt
um endingu þessarar ágætu
málningar.
Auk þess að vera
endingargóð þá spararhún
tíma, því að ein umferð
jafngildirþrem umferðum af
venjulegri plastmálningu.
ekki
Litavalið er í HRAUN
litakortinu í næstu
málningarvöruverslun.
Þegar kemur að
endurmálun er valið að
sjálfsögðu HRAUN • • • •
annað
kemur
til mála
f
málningbf