Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
15
„Hann er falleKur þessi“ sagði Oddný og Jóhann Weihe tók undir orð
hennar. L]ÚNm. Mbl. SÍKurKfir JónaNNon.
Útborgunardagur. „Nýja“ frá Gíslholti afhendir launaumslögin.
Pétur fylgist með. LjóNm. SJ.
Hér heilsar Oddný einum sjúklinganna á spitalanum. „Þura er ég
kölluð,“ sagði hún. LjóNm. Mbi. sj.
Pétur i hópi Eyjapeyja, sem unnu við að mála skip i höfninni — og fötin sin svolitið i leiðinni.
Ljósm. S.J.
Skipaviðgerðamenn höfðu áhuga á að vita túlkun Péturs á niðurstöðum skoðanakannananna. Ljó»m. sj.
um svör við því, hvort harðorð
ummæli um aðra frambjóðendur í
einu blaði stuðningsmanna hans
væru hans skoðanir. Pétur svaraði
því til, að hann hefði ekki vitað
um þessi skrif fyrr en einum
sólarhring eftir að þau birtust.
Hann sagðist einnig harma skrif-
in, en taldi skýringuna þá, að
þegar baráttuhugur væri kominn í
menn, ættu þeir erfitt með að
stilla sig.
— Munt þú þá leiðrétta það, að
þetta sé þín skoðun? „Sá sem
skrifaði þetta hefur nú þegar látið
birta það í blöðum, að hann er
höfundurinn,“ svaraði Pétur.
Framundn önnur
ferð — fleiri
kaffibollar
Ekki komu fram fleiri spurn-
ingar og Magnús H. Magnússon
sleit fundi. Fólk sat þó áfram og
rabbaði yfir kaffibollum fram
undir miðnætti. Pétur og Oddný
héldu síðan út á flugvöll þar sem
Helgi beið þeirra. Heim var komið
upp úr miðnætti og aðspurð sögð-
ust þau ekki vera tiltakanlega
þreytt — það kæmi eflaust síðar.
„Nú er enginn tími til að hugsa um
slíkt" sagði Oddný. Framundan
hjá þeim var önnur ferð, nýir
fundir, fleiri kaffibollar. „Loka-
baráttan verður eflaust erfið,„
sagði Pétur, „en það er von mín, að
hún geti orðið drengileg hér eftir
sem hingað til,“ sagði hann aö
skilnaði.
F.P.
Ljósm. Mbl. SJ.
Eins og sjá má var hvert sæti skipað
á
fundinum um kvöldið.