Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 19 SveinbjörK Friðbjörnsdóttir ásamt 8 mánaða Kömlu barni sinu og önnu Guðrúnu, þrÍKKja ára dóttur. SveinbjörK kvaðst hafa verið mikið Klöð þe^ar vélin var lent ok „ók þurfti ckki lenKur að velta þvi fyrir 'mér, hvort éK flyKÍ yfir móðuna miklu i nauðlendinKunni,'* eins ok hún orðaði það. Elísabet Hákonardóttir ÍIuk freyja. úelsdóttir, einn farþeganna í flugvélinni. „Áhöfnin undirbjó okkur mjög vel fyrir lendinguna, lét okkur strax vita þegar ljóst varð að annað hjólið komst ekki niður. Það var reynt að ná því niður, en þegar það tókst ekki þá vorum við búin undir nauðlendingu," sagði Guð- rún. „Við vorum færð framar í vélina til öryggis, því það er minni hætta þar. Rétt fyrir lendingu vorum við látin fara í þá stellingu sem öruggust er talin undir slíkum kringumstæðum. Þegar við lentum þá bjóst ég við mun meira höggi en raunin varð á, ég varð bara vör við skruðninga og högg,“ sagði Guðrún Samúelsdóttir. Hópslysakerfið á Suðvesturlandi í viðbragðsstöðu SAMKVÆMT upplýsingum Ólafs Haraldssonar flugumferð- arstjóra á Keflavíkurflugvelli fengu þeir tilkvnningu rétt fyrir kl. 7 þess efnis að Fokker- inn myndi hugsanlega lenda i Keflavík og var það ákveðið skömmu síðar. Þar sem líkur voru á slysi var brautin kvoðuð og hópslysakerfi var sett í viðbragðsstöðu að ákvörðun flugstjórnarmanna. Þar með voru öll sjúkralið sett í gang á suðvesturhorninu, allt til Selfoss, slökkvilið og björgunarsveitir, en fyrir skömmu fór einmitt fram æfing á hópslysi á Keflavíkur- flugvelli. Gekk því mjög vel að setja allt í viðbragðsstöðu nú. Stjórnun við nauðlendinguna gekk mjög vel og störf að henni lokinni og kl. 23 í gærkvöldi var búið að draga vélina inn í flugskýli og koma bilaða hjólinu niður, en slökkviliðsmenn lyftu vélinni upp á slysstað með loftbelgjum og náðu hjólinu niður þar. Ólafur sagði í samtali við Mbl. að þeir hefðu verið mjög ánægðir með öll viðbrögð og framkvæmd björgunarliðs, en auk hans voru á vakt í flugturni þeir Hermann Þórðarson varðstjóri og Gunn- steinn Magnússon flugumferðar- stjóri. Þota í stað Fokk- ers norður ÞAR sem TF-FLO Fokkerinn sem nauðlenti i Keflavik er úr leik i bili hefur verið ákveðin breytinK á innanlandsfluKáætlun. í dag átti að fljúga fjórar ferðir til Akureyrar, en í staðinn verða farnar tvær ferðir á Boeing þotu. Þá átti Fokker að fljúga til Sauðárkróks en í staðinn fer vél frá Arnarflugi. Þessi myndaröð var tekin af nauðlendingunni í gærkvöldi og sýnir vel hvernig flugstjórinn hefur stjórn á vélinni meðan hraðinn er mestur þótt aðeins annað hliðarhjólið sé niöri, en síðan fer vélin aó hallast unz hún leggst á hliðina utan brautar. Ljósmyndir: Steinn Logi Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.