Morgunblaðið - 19.06.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980
Þjóðhátíðarávarp Gunnars Thoroddsens, forsætisráðherra:
Rækt við menningu okk-
ar, forna og nýja, — má
aldrei fölna né sölna
Hér fer á eftir í heild ávarp
Gunnars Thoroddsens, forsætis-
ráðherra á 17. júní.
Á fæðingardegi Jóns Sigurðs-
sonar fögnum við endurreisn
lýðveldis á íslandi. Við minn-
umst hinna þjóðhollu stjórn-
málamanna, er lyftu á loft fána
frelsis og framfara við lýsandi
leiðsögn Jóns Sigurðssonar,
meðan hans naut við, en fetuðu
síðan í fótspor hans í fullum
trúnaði við baráttu hans og
boðskap.
Og við heiðrum minningu
þeirra ótalmörgu íslendinga í
öllum byggðum þessa lands, sem
gegndu kalli leiðtogans, og með
djörfung og dug, í orði og verki,
færðu björgin í grunn undir
framtíðarhöll.
Til allra stétta, til allra ald-
urshópa, til allra byggðarlaga,
beindi Jón Sigurðsson máli sínu.
í muna hans og munni var
hvorki manngreinarálit né
kynslóðabil. Þegar hann mælti
fyrir verslunarfrelsi landsmönn-
um til handa, þá komst hann svo
að orði, að málið þyrfti að vinna
„með fjöri æskunnar. með
krafti manndómsins og með
ráðdeild ellinnar“.
Og þannig þyrfti það ávallt að
vera, þegar þjóðin er í vanda
stödd.
Eftir margra alda erlenda
stjórn höfum við tekið öll okkar
mál í eigin hendur. En samt
erum við í vanda.
Eftir langvarandi ofveiði og
rányrkju útlendra fiskiskipa eig-
um við nú einir yfirráð yfir
öllum okkar fiskimiðum.
En samt erum við í vanda.
Hinn mikli vandi, sem nú
steðjar að, er annars vegar af
erlendum orsökum, hins vegar af
innlendum toga.
Alvarleg sölutregða er nú á
frystum fiski á meginmarkaði
okkar í langa tíð.
íslenskir fiskframleiðendur
hafa um áratugi haslað sér völl á
háþróuðum neytendamarkaði
með söluskrifstofum og eigin
verksmiðjum erlendis og unnið
afrek á því sviði. Gæði íslenska
fisksins og vöruvöndun hafa
setið í öndvegi og verið forsenda
velgengninnar. Nú hefur orðið
brestur í báðum þáttum. Erfið-
leikar eru slíkir á að selja
vöruna, að fiskbirgðir hafa hlað-
ist upp bæði hér heima og vestan
hafs. Og vöruvöndun er Iakari en
áður.
Á sama tíma reynum við
íslendingar að byggja upp fisk-
stofnana til þess að afli megi
aukast ár frá ári.
Hvernig á að finna hér sam-
ræmingu og úrlausn.
Það er ljóst, að eitt mikilvæg-
asta viðfangsefni þjóðarinnar nú
og á næstunni er markaðsleit,
markaðsöflun. Reynslan sannar,
að varasamt er að byggja sölu
sjávarafurða að mestu á mark-
aði í einu landi, þótt lengstum
hafi vel gengið og tekist að selja
allt fiskifang við góðu verði. Það
verður að eiga athvarf víða, hafa
margar stoðir að standa á. Nú
þarf að beina kröftum að út-
flutningsverslun, ekki síður en
að útflutningsframleiðslu. Hér
er stórt og samstillt átak þjóðar-
nauðsyn.
Hvergi má slaka á um vöru-
vöndun og aldrei taka til vinnslu
meiri afla hverju sinni en svo, að
unnt sé að tryggja vörugæðin.
Það er mikið í húfi, að hin
nýju viðhorf í framleiðslu- og
markaðsmálum séu metin af
raunsæi og rétt tök fundin í
glímunni við þann vanda, sem
þau bera með sér.
Annar meginvandi okkar ís-
lendinga er verðþenslan innan-
lands. Uppruni hennar og atferli
er eitt undarlegt samspil af
sundurleitum orsakastefjum.
Þar leikast á verðlag á vörum og
þjónustu, fjármál ríkisins, útlán
peningastofnana, sparifjársöfn-
un, gengi krónunnar, og launa-
kjörin í landinu. Það þarf sam-
hljóm allra þessara þátta.
Það er dómur þeirra, sem
gerst þekkja, að afkoma at-
vinnuveganna og efnahagshorf-
ur í heild, leyfi ekki almennar
kauphækkanir.
Hins vegar verður að bæta
kjör þeirra, sem lægstar hafa
tekjur.
Áð undanförnu hefur fram-
kvæmd þessarar launastefnu
verið undirbúin með því meðal
annars að flytja á Alþingi og fá
samþykkt ýmis umbótamál, sem
samtök launamanna hafa lengi
barist fyrir, leggja áherslu á og
munu meta.
Þegar kjarasamningar eru nú
lausir og viðræður á viðkvæmu
stigi, mega einstakir hópar ekki
knýja fram eða taka sér launa-
bætur, sem eru í engu samræmi
við það, sem farið er fram á og
ætlast til af almenningi. Sú
kauphækkun, sem nefnd hefur
nýlega ákveðið þingmönnum til
handa, getur því ekki orðið að
veruleika.
Þeirri skoðun hlýtur að vaxa
fylgi, að breyta þurfi því fyrir-
komulagi, sem nú er, varðandi
ákvörðun um kaup og kjör al-
þingismanna. Eðlilegt er að taka
upp þá skipan, að óháður, hlut-
laus aðili taki þær ákvarðanir.
Vegur Alþingis yrði að meiri
og þingmönnum sjálfum væri
greiði ger með því að taka
þennan kaleik frá þeim.
Nú er unnið af kappi að
kjarasamningum, bæði á hinum
almenna vinnumarkaði og við
opinbera starfsmenn. Vonandi
ber sólmánuður, sem senn er að
hefjast, í skauti sér farsæla
lausn þeirra mála.
Island býr yfir miklum vaxt-
armætti, ef þjóðin þekkir sín
takmörk á líðandi stund, en
setur jafnframt markið hátt
fyrir framtíðina.
Um næstu mánaðamót verður
tekið upp merkilegt nýmæli. I
bönkum og sparisjóðum verða í
fyrsta sinn opnaðir sparifjár-
reikningar með fullri verðtrygg-
ingu. Þeir sem eitthvað hafa
aflögu og sem annars myndu
flýta sér að kaupa erlenda vöru
eða festa fé í fasteign, geta nú
lagt þá peninga í staðinn inn á
hinar verðtryggðu sparisjóðs-
bækur í fullri vissu um, að þeir
peningar rýrna ekki í verðbólg-
unni heldur halda sínu fulla
gildi.
Þótt mörgum þyki efnahags-
vandinn yfirþyrmandi, og þótt
landsmenn mæðist í mörgu, eins
og Marta forðum daga, þá
gleymum því ekki, að eitt er
nauðsynlegt: Að hefja hugann
einnig til annarra og æðri mark-
miða. Það á eigi síst við á
afmælisdegi Jóns forseta að
nefna menntun og menningu.
Rækt við menningu okkar, forna
og nýja, og þjóðlegar menning-
arstofnanir má aldrei fölna né
sölna í amstri daganna.
Svo notuð séu orð Jóns Sig-
urðssonar í þingræðu um þjóð-
skóla, má með sanni segja, að
íslensk menning sé „ypparlegust
allra mála“.
Ég óska öllum landsmönnum
gleðilegrar þjóðhátíðar.
_____________________23_
Els Comediants
á Húsavík á
þjóðhátíðardag
Húsavík 18. júní.
HÁTÍÐAHÖLDIN 17. júní fóru
fram að hefðbundnum hætti,
nema hvað spænski leikhópur-
inn Els Comediants var mönn-
um hér til skemmtunar.
Hátíarræðuna flutti Guðrún
Sigurjónsdóttir, nemi og ávarp
fjallkonunnar flutti Guðrún
Þóra Magnúsdóttir sýslu-
mannsfrú. Kirkjukór Húsavík-
ur söng undir stjórn Sigríðar
Schiöth.
Ýmsar íþróttir og leikir fóru
fram.
Fróttaritari
Völlurinn við
Krossmúla aft-
ur í notkun
Rjork. Mývatnssveit. 18. júní.
Knattspyrnumalarvöllur við
Krossmúla var tekinn í notkun
sl. föstudagskvöld eftir gagn-
gerðar endurbætur. Sett var
nýtt slitlag á völlinn. blandað
saman leir og finni gjallmöl.
Vænta menn þess, að völlur-
inn reynist mjög vel. Fyrsti
leikurinn var milli Mývetninga
og „Old boys“-liðs frá Akureyri
og sigruðu gestirnir með 2
mörkum gegn einu. Heimamenn
telja eftir þennan leik, að fall sé
fararheill.
Kristján
Missti stjórn
á bifreiðinni
í lausamöl
LAUST fyrir klukkan sjö á
þriðjudagskvöld fór fólksbif-
reið af Lada-gerð út af Þing-
vallavegi 2 til 3 kílómetra fyrir
ofan Gljúfrastein og valt.
Var þarna á ferðinni bíla-
leigubíll og var hann á leið til
Reykjavíkur. Tvennt var í bíln-
um og slapp ökumaðurinn
ómeiddur en meiðsli farþegans
voru ekki alvarleg.
Okumaðurinn mun hafa misst
stjórn á bifreiðinni í lausamöl,
og er bifreiðin talin ónýt.
REYKJAVÍKURLEIKAR
í frjálsum íþróttum
hefjast á Laugardalsvelli kl. 8 í kvöld.
ÉJM Sjáiö spjótiö fljúga tæpa 90
metra. Hvaö gerir Oddur í fyrstu
P' keppni sumarsins? íþróttakeppni
j á heimsmælikvaröa.
Hr*inn Óakar
Tekst Hreini
og Óskari að
sigra Kanada-
mennina?
Oddur