Morgunblaðið - 19.06.1980, Síða 24

Morgunblaðið - 19.06.1980, Síða 24
24 _____________________;_L....... MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Jttttp® Útgefandi nflrlnfrift hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Bafdvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakið. Segja ósatt um þingfararkaupið Frétt Morgunblaðsins sl. laugardag um 20% hækkun á launum þingmanna hefur vakið þjóðarathygli og sumir segja, að um þjóðarheyksli sé að ræða. Einstaka þingmenn og ráðherrar gáfu strax um helgina yfirlýsingar um, að þeim hefði ekki verið kunnugt um þessa hækkun. Lengst hafa þeir gengið í slíkum yfirlýsingum, þeir Olafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþýðubandalags og Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, og kom engum á óvart. í viðtali við Morgunblaðið sl. sunnudag, sagði Ólafur Ragnar Grímsson: „Ég er furðu lostinn yfir þessu. Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins neitaði algjörlega að þetta yrði framkvæmt og hafnaði þessum hugmyndum, sem komu frá þingfararkaupsnefndarmönnum annarra flokka." I viðtali við Morgunblaðið þennan sama sunnudag sagði Ragnar Arnalds: „Ég heyrði minnzt á þessi áform á þingflokksfundi í vor og lýsti mig strax andvígan því, að nokkur breyting yrði gerð á launakjörum þingmanna umfram það, sem aðrir fá. Þingflokkur Alþýðubandalagsins tók einnig afstöðu gegn þessum áformum ...“ Ékki eru allir þingmenn Alþýðubandalagsins sammála þessari skýringu Ólafs Ragnars Grímssonar og Ragnars Arnalds. Garðar Sigurðsson, formaður þingfararkaupsnefndar, er einn af þingmönnum Alþýðubandalagsins. Hann segir í samtali við Morgunblaðið sl. þriðjudag um fuliyrðingar flokksbræðra hans, fjármálaráðherrans og formanns þingflokksins: „Það er óþarfi fyrir þessa menn að koma af fjöllum. Ég hef ekki tekið eftir því, að þingflokkur Alþýðubandalagsins hafnaði þessu. Þetta var rætt á þingflokksfundi, sem ég ekki sat, en síðan kynnti ég málið allítarlega á öðrum þingflokksfundi og þar var engin samþykkt gerð á móti því. Það er auðvitað spurning, hvort og þá hvenær svona á að koma til framkvæmda, en þá hefðu þessir vísu menn átt að tjá sig um málið, þegar það var í undirbúningi, því þeir vissu allt um það þá. En sennilega hafa þeir ekki mátt vera að því að hlusta á aðra en sjálfa sig.“ I þessum ummælum Garðars Sigurðssonar kemur fram, að hækkun launa þingmanna var rædd á fundi þingflokks Alþýðubandalags, sem hann sat ekki en eftir þann fund var annar fundur haldinn í þingflokknum, þar sem Garðar Sigurðsson gerði grein fyrir áformun þingfararkaupsnefndar og segir hann, að þar hafi engin samþykkt verið gerð á móti. Það er auðvitað alveg ljóst, að allir þingmenn og þar með taldir ráðherrar eiga hér hlut að máli. Sumir eru reiðubúnir til að standa við gerðir sínar, aðrir gera tilraun til að koma ábyrgðinni af sér yfir á aðra. Þar eru fremstir í flokki, þeir ólafur Ragnar Grímsson og Ragnar Arnalds. Nú liggja hins vegar fyrir ummæli Garðars Sigurðssonar, þingmanns Alþýðubandalagsins, sem ganga þvert á fyrri yfirlýsingar þeirra Ólafs Ragnars og Ragnars Arnalds. Einhver þessara þriggja þingmanna Alþýðubandalagsins segir ósatt. Eftirtektarvert er, að þeir Ólafur Ragnar og Ragnar Arnalds hafa ekki mótmælt ummælum Garðars Sigurðssonar. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það, hversu alvarlegt mál það er, ef þingmenn og ráðherra eru staðnir að ósannindum. Þess vegna verður að gera þá skýlausu kröfu til Alþýðubandalagsins að þingflokkur þess geri hreint fyrir sínum dyrum. Þrennt liggur fyrir. í fyrsta lagi hafa þingmenn ákveðið að hækka laun sín um 20% á sama tíma og þeir segja öðru fólki að ekki sé grundvöllur til launahækkana. í öðru lagi er ljóst, að launahækkanir verða í opinbera kerfinu fyrir utan almenna kjarasamninga. Stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á þeim launahækk- unum. í þriðja lagi hafa talsmenn eins þingflokksins talað á þann veg, að einhver eða einhverjir þeirra segja ósatt. Ráðherra, sem segir ósatt í máli sem þessu, ef marka. má Garðar Sigurðsson alþingismann, getur ekki setið áfram í embætti í landi þar sem það er tekið alvarlega þegar ráðamenn sækja vald sitt í ósannindi. Og raunar hefur fjármálaráðherra ekki verið einn um að þykjast koma af fjöllum. Um Ólaf konung var sagt að hann væri sannheilagur. Um ráðherra, sem ljúga blákalt í embættisnafni, má segja að þeir séu skinheilagir og eigi að víkja. Það er eðlismunur á því en ekki stigsmunur, hvort þingmenn hafa vitlausar skoðanir eins og fram hefur komið, eða hvort þeir segja ósatt um málavöxtu. Þeir, sem telja launahækkanir þingmanna réttar, verða að sitja uppi með vitlausar skoðanir. En fólkið neitar að sitja uppi með ráðherra, sem segja ósatt — eða nota hvíta lygi í vondum málum. Af þeim sökum þarf að upplýsa alla málavöxtu og ekki ástæða til að kveða upp neinn dóm fyrr en það hefur verið gert. Jóhann Sigurjónsson Aaldarafmæli Jóhanns Sigurjónssonar leiðum við hugann að ljóðrænum skáldskap og mikilvægi hans í íslenzkri arfleifð. Jóhanni tókst það, sem flestum er um megn, að gera ljóðrænt tungutak að fullgildu talmáli í leikritum sínum. Það er e.t.v. mesta framlag hans til íslenzkra bókmennta og leiklistar, enda sækir hann frægð sína í þessa sjaldgæfu gáfu. Hann náði frægð utan landsteinanna, en um hann gildir samt það, sem ræður úrslitum um lífstarf íslenzkra skálda: að hann gaf þjóð sinni og tungu nýja reynslu og jók þannig höfuðstól íslenzkrar menningar. Af þeim sökum verður hans ávallt minnzt, meðan ísland •eggur rækt við arf sinn og uppruna. Kammertónleikar Það mætti taka til athug- unar, er næsta listahátíð verður skipulögð, að ætla íslenskum listflytjendum stærra rými en gert er á þessari listahátíð, í flutningi meiri háttar tónlistar. Það er rétt í þessu tilfelli, að draga undan áhugamennsku til- standið á útiskemmtunum, sem er á margan hátt skemmtilegt, en kemur aldrei í staðinn fyrir meiri háttar listflutning. Það getur varla talist að Sinfóníuhljómsveit íslands hafi tekið þátt í þessari listahátíð, en tónleik- ar hennar með Rafael Fru- beck de Burgos, Schoenberg tónleikarnir í Þjóðleikhúsinu, sem hiklaust má jafna til þess er gott þykir erlendis, mjög góðir tónleikar Ragnars Björnssonar í Kristkirkju og nú síðast kammertónleikar í Bústaðakirkju, eru skýr dæmi um það hversu vel má gera, ef vel er að undirbúningnum staðið. Kammertónleikarnir í Bústaðakirkju hófust á Tríói K. 502, eftir Mozart og var flutningur þess bæði loðinn og óskýr. Að flytj% Mozart er mikill vandi, því bæði þarf til þess sérstaka tækni og sér- lega sterka og tilfinningu fyrir stíl. Vel hefði mátt* Tðnlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON sleppa Mozart, því önnur verkefni tónleikanna voru nægilega stór í sniðum til að fylla tónleikatímann. Annað verkefnið á tónleikunum var Origami, eftir Hafliða Hall- grímsson. Hafliði er gott tónskáld og var margt vel gert í þessu verki, sem verkaði eins og röð tilbrigða. Einkum voru þrír síðustu þættirnir skemmtilegir, stef- in og hrinrænar tiltektir skarpari í gerð og víða glæsi- lega útfærð. Síðasti kaflinn var þó of margþættur, eins og röð af mörgum niðurlögum en fallegast í því síðasta. Hafliði er gott tónskáld en að öðru leyti er ofmælt það sem um hann er sagt í efnisskra og væri rétt að listahátíð gerði sérstaka úttekt á lélegri út- færslu á efnisskrám, svona til athugunar fyrir næstu lista- hátíð. Síðasta verkið var „Kvartett um endalok tím- ans“ eftir Messiaen. Verkið er samið í fangabúðum nasista, en hjá þeim naut Messiaen gestrisni og segir að hann hefði ekki lifað af þá grimmd og illmensku, er þar vofði stöðugt yfir, ef hann hefði ekki getað fengist við tón- smíði. Verkið var frumflutt 15. janúnar, 1941 og segir tónskáldið „að aldrei hafi hann fundið eins sterka hrifningu og djúpan skilning hjá hlustendum sínum" og á þessari stundu, með fimm þúsund samföngum og þján- ingabræðrum sínum. Verkið er mögnuð tónsmíð og var á köflum stórkostlega flutt. Klarinettuleikur Einars Jó- hannessonar var stórkostleg- ur í Hyldýpi fuglanna og samleikur Philip Jenkins og Hafliða Hallgrímssonar í fyrri lofsöngnum. Guðný Guðmundsdóttir lék einnig vel, þó henni mistækist að ná til hinna efstu sala í niðurlagi verksins. Flutningur kvart- ettsins og tónverks Hafliða var með þeim formerkjum er hæfa vel listahátíðum, ef til þeirra er stofnað til að efla listina i landinu en ekki aðeins til að skemmta fólki með innihaldslausum sýning- um. GuAný GuAmundsdóttir Einar Jóhannesson Philip Jenkins Haflidi Hallgrimsson Orgeltónleikar verkið Fæðing Frelsarans, eftir Olivier Messiaen. Verkið er samið 1935 og er í 9 köflum. Flestir kaflarnir eru einfaldir að gerð en fallega samdir. Síðasti kaflinn er rismesta tónsmíðin og erfið í flutningi. Ragnar er góður organisti og var flutningur hans mjög skýr og ákveðinn. Olivier Messiaen er sérkennilegt tónskáld og eru nýjungar hans í tónsmíði mjög mótaðar af trúarlegum viðhorfum hans, en til þeirra er mjög sterk skírskotun í formgerð verkanna, auk þess sem tón- skáldið er mótað af dulúð og táknrænum fyrirbærum. Túlkandi markmið tónskálds- ins eru oft að settu, fram í eins konar formála, sem er bæði lykill að formgerð verksins og mótandi fyrir blæ þess. Fyrir þetta verða verk Messiaen vandasöm í túlkun og þykir mörgum tónlist hans óþarflega upphafin. í túlkun Ragnars Björnssonar var skýrleikinn sterkasta ein- kennið og var heiður og fall- egur blær yfir flutningi verksins. RAGNAR Björnsson fyrrver- andi dómorganisti hefur um árabil haldið uppi merki ís- lenskra orgelleikara með konserthaldi bæði heima og erlendis. Framlag hans til Listahátíðar var á margan hátt skemmtilegt og vel framfært af hans hálfu. Að halda orgeltónleika, þegar svo viðrar að enginn tollir inni, er bjartsýni, þegar svo við bætist að viðfangsefnið er aðeins eitt verk og síðast en ekki síst nútímaverk. Eins og sannast hefur á þessari lista- hátíð, þá ráða gæði viðfangs- efnanna miklu þegar kalla á til samfunda það fólk, er á undanförnum árum hefur stundað þá nautn að hlusta á góða tónlist. Það var þéttset- inn bekkurinn hjá Ragnari Björnssyni, er hann lék orgel- Ragnar Björnsson fyrrverandi dómorganisti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.