Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980
31
Fyrirlestrar
um kennslumál
1. gr. stjórnarskrár. En möguleik-
inn er fyrir hendi, og það hafa
verið sett bráðabirgðalög á Is-
landi, jafnvel þótt vafi léki á, að
þörfin fyrir þau væri brýn.
6. Þingrof
Þingrofsréttur er leifar af hinu
fyrra valdi konungs, en þingrof
táknar það, að þingmenn eru
sviptir umboði til að fara með völd
fyrir hönd þjóðarinnar, en þau
völd fá þeir frá henni í almennum
kosningum. Með þingrofi er Al-
þingi afnumið. Um þetta fjallar
24. gr. lýðveldisstjórnarskrár.
Samkvæmt henni getur forseti
rofið Alþingi, og skal hann þá
stofna til kosninga, en Alþingi
skal koma saman eigi síðar en 8
mánuðum eftir þingrof. Þetta
ákvæði samrýmist illa þingræðis-
reglunni, því að í skjóli þess gæti
forseti stjórnað í allt að 8 mánuði
þinglaust.
Rökrétt væri, að þingrofsréttur
væri tekinn af forseta, og í stað
þess kæmi ákvæði er segði að
Alþingi haldi umboði sínu ti) að
stjórna milli kosninga, þ.e. um-
boðið stendur frá kjördegi og til
næsta kjördags. Valdið til að
svipta þingmenn umboði á að vera
með þjóðinni.
Nokkur dæmi eru um þingrof í
íslenzkri þingsögu. Þing var rofið
1931 frá og með þeim degi er
tilkynning um þingrofið var upp
lesin í þinginu, og er umdeilanlegt
hvort Kristján X. hafði rétt til að
undirrita það. Alþingi var og rofið
1974, og gefur það þingrof tilefni
til umræðu, sem ekki verður farið
út í hér.
7. Þjóðkjör forseta
Meirihluti stjórnarskrárnefnd-
ar 1944 lagði til að forseti yrði
þingkjörinn. í greinargerð nefnd-
arinnar segir um 3. gr. að minni
truflun yrði af kosningu nýs
forseta ef hann yrði þingkjörinn.
Þá segir þar:
„Fer einnig vel á því að Alþingi
kjósi forseta, þar sem ætlunin er
sú, að það haldi sama valdi á
málefnum ríkisins og það hefir
haft, og forseti verður því háður
þinginu með svipuðum hætti og
konungur nú er í framkvæmd."
Einstakir nefndarmenn bentu
og á það í umræðum (m.a. Ey-
steinn Jónsson og Brynjólfur
Bjarnason) að forseta væri ætlað
það eitt hlutverk að vera þjóðhöfð;
ingi en ekki stjórnmálaleiðtogi. í
umræðum var og bent á það, að
yrði forseti þjóðkjörinn, væri kos-
ið um persónuleika þeirra manna
sem byðu sig fram, og ekkert
annað.
Þjóðkjör forseta, sem hefur lítil
sem engin völd, snýst ekki um
stjórnmál eða stefnur, heldur um
persónulega eiginleika þeirra er
eftir embættinu sækjast. Fram-
bjóðendur til forsetakjörs hljóta
að gera sér grein fyrir því, að
kosningabarátta i forsetakosn-
ingum snýst um það, að kjósend-
ur reyni að meta persónulega
hæfileika frambjóðenda tii að
gegna því starfi sem þeir sækjast
eftir. Kosningabarátta sem er
fólgin í því, að fylgismenn hvers
frambjóðanda keppast um að
hlaða lofi (eða oflofi) á sinn mann
og útilokar raunsætt mat á per-
sónum frambjóðenda, gæti vakið
alþingismenn til umhugsunar um,
hvort ekki eigi að endurvekja
tillögu stjórnarskrárnefndar 1944
um þingkjör forseta. Ef forseta-
kosningar verða innihaldslítið og
kostnaðarsamt mærðarkapp (sem
gæti endurtekist á 4 ára fresti) og
tryggir ekki kosningu hæfasta
mannsins, — til hvers er þá
þjóðkjör? Þá væri umsvifaminna
að Alþingi kysi á 4 ára fresti
einhvern virtan borgara (t.d.
fyrrverandi alþingismann) til for-
seta.
8. Ályktanir
1. Lýðveldisstjórnarskráin frá
1944 var hugsuð sem bráða-
birgðastjórnarskrá. í henni eru
mörg úrelt ákvæði, sem eiga
rætur sínar að rekja til dönsku
stjórnarskrárinnar frá 5. júní
1849.
2. Lýðveldisstjórnarskráin gerir
þingræðisregluna að grundvall-
arreglu stjórnarfarsins. Al-
þingi er æðsta valdastofnun
þjóðarinnar.
3. Forseti hefur engin pólitísk
völd og er aðeins æðsti embætt-
ismaður þjóðarinnar.
4. Það er hugsanlegt og mögulegt
að forseti fari að túlka hin
úreltu ákvæði stjórnarskrár-
innar bókstaflega, en þá bryti
bann gegn þingræðisreglunni.
í lokin má minna á það, sem
Magnús Jónsson, prófessor, þm.
Rvk., sagði í þingræðu 1944:
„Fyrir mér vakir ... að þjóð-
kjörinn forseti verði ... samt sem
áður valdamikill aðeins í krafti
þess, að hann er ókrenkjanlegur
þjóðhöfðingi og virðingarmesti
maður þjóðarinnar. Og mér finnst
eiga að láta hann hafa sem minnst
völd fyrir utan þetta ósjálfráða.
... Ég hallast eindregið að því, að
hinir kjörnu fulltrúar þjóðarinnar
á Alþingi ráði málefnum yfir-
leitt."
(Allar tilvitnanir eru í Alþing-
istíðindi 1944.)
DAGANA 23.-26. júní n.k.
munu Jean Rudduck og Lawr-
ence Stenhouse kennarar við
háskólann í East Anglia í Eng-
landi halda fjóra fyrirlestra um
kennslumál í Kennaraháskóla
íslands segir í frétt frá Mennta-
málaráðuneytinu. Verða fyrir-
lestrarnir fluttir á ensku og er
efni þeirra sem hér segir:
Mánudaginn 23. júní:
„Improving the work of a school“
Þriðjudaginn 24. júní:
VÍSINDARIT Menntaskólans í
Reykjavík, DE RERUM NATURA
er komið út. Útgefandi er Vísinda-
félag Framtíðarinnar. Blaðið er
162 blaðsíður, með litkápu.
í blaðinu eru m.a. greinar um
tölfræði, eðlisfræði, stjörnufræði,
„Curriculum development and
new roles for the teacher"
Miðvikudaginn 25. júní:
„Curriculum development as a
basis for classroom research"
Fimmtudaginn 26. júní:
„Introducing innovation to
pupils"
Fyrirlestrarnir hefjast allir
kl. 15.15 í stofu 301 í Kennara-
háskóla íslands og eru allir
áhugamenn um skólamál vél-
komnir.
arkitektúr, barrtré á Islandi, at-
ferli dýra, fuglasöng og ferðir
farfugla. Greinarnar eru allar
eftir nemendur Menntaskólans í
Reykjavík. Ritið mun fást í flest-
um bóksölum, auk fyrri árganga.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
10
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
De Rerum Natura
Vandað
sé val
barnabóka
Rlaðinu hefur borist eftirfarandi
frá kennurum. sem sátu endur-
menntunarnámskeið í Æfinga-
skóla Kennaraháskóla íslands:
Við undirritaðir kennarar höf-
um undanfarinn hálfan mánuð
setið endurmenntunarnámskeið í
Æfingaskóla Kennaraháskóla ís-
lands. Þetta námskeið var ætlað
kennurum yngri barna, en flestir
þeirra kenna eða hafa kennt
öðrum aldursstigum.
Margt hefur borið á góma og
mörg vandamál nemenda og kenn-
ara rædd. Barnabókmenntir og
gildi þeirra var meðal þess efnis
sem tekið var til umfjöllunar. Við
vorum sammála um þá hættu sem
stafar af fjölþjóðlegu samprenti
sem hellst hefur yfir börn okkar
undanfarin ár. Með fjölþjóðlegu
samprenti er meðal annars átt við
myndasögubækur eins og „Tinna“
bækurnar og „Strumpa“þækurnar
og ýmislegt annað.
Við teljum að margvíslegar
hættur geti stafað af þessum
bókum. Til dæmis nefnum við:
Letur bókanna er óaðgengilegt
börnum sem eru að læra að lesa og
orðaforði fátæklegur.
Bækurnar eru flestar uppfullar
af fordómum og samfélagsmynd
margra þessara bóka er ólík því
samfélagi sem börnin alast upp í
og hjálpar þeim því ekki til að
skilja sitt umhverfi.
Áður hefur komið fram opinber-
lega beiðni til bókaútgefenda um
að draga úr þessari framleiðslu
sem sumir kennarar og skólasöfn
hafa neitað að kaupa. Við ítrekum
þá beiðni og vonumst til að
útgefendur efli útgáfu íslenskra
frumsaminna barnabóka og vandi
val og þýðingar erlendra bóka.
Við skorum því á alla barnavini
að vanda val bókanna sem börnum
eru gefnar.
Nýir raðskápar
UMMA&MEDIN
á húsgagnasýningu K.S.
Við höfum stillt upp í
verslun okkar nokkrum
afþeim möguleikum,sem
nýju raðskáparnir gefa.
Hafirþú verið að leita að
lausn á hirsluvandamáli
í stofuna, borðstofuna,
barnaher-
bergið, vinnu-
herbergið eða
sjónvarps-
herbergið þá
finnur þú hana hjá
okkur—jafnvel betri en
þú bjóst við. Líttu inn og
láttu SUMMA og
MEDINA komaþérá
óvart. Verðið gerir
það líka.
KRISTJfln
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVIK, SÍMI 25870
Lausn. scm maryir hafa leitaO aá.
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD