Morgunblaðið - 19.06.1980, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
t
Maöurinn minn og faðir okkar,
GUNNARGUDMUNDSSON
Sunnuvegi 11, Hafnarfirði,
andaðist laugardaginn 14. júní í Landspítalanum. Jaröarförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, laugardaginn 28. júní, kl. 14.00.
Inga Guömundsdóttir
og börn.
t
Maöurinn minn, faðir okkar og tengdafaöir,
BALDUR ÞORSTEINSSON,
Sólheimum 10,
lést á Landspítalanum, mánudaginn 16. júní.
Fjóla Jónsdóttir,
börn og tengdabörn.
Móöir oKkar, + INGIBJORG JÓNASDÓTTIR,
Hringbraut 47, Reykjavík, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 20. júní, kl. 13.30.
Sigríöur Guömundsdóttir McLean, Pétur Guömundsson, Jónas Guömundsson, Atlí Guömundsson, Gústav Guömundsson, Steindór Guömundsson.
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdaföður og bróöur,
BALDVINS K. SVEINBJÖRNSSONAR
apótekara,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 20. júní kl. 13.30.
Anna Vigdís Ólafsdóttir
Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir,
Kristinn Reynir Gunnarsson,
Guórún Sveinbjarnardóttir,
Sigríöur Sveinbjarnardóttir.
t
Útför fööur míns,
FRIDRIKS GUDMUNDSSONAR
frá Vestmannaeyjum,
veröur gerö frá Fossvogskirkju, föstudaginn 20. júní kl. 10.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Sölvi Friöriksson.
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
HELGA BJARNADÖTTIR,
Stórageröi 34,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 20. júní, kl.
15.00.
Bjarni Gíslason, Erla Þorvaldsdóttir,
María Gísladóttir, Ólafur A. Ólafsson,
Trausti Gíslason, Svava Gestsdóttir,
Emil Gíslason, Ásdis Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Útför mannsins míns og fööur okkar, -
HiLMARS A. FRÍMANNSSONAR,
Fremstagili, Langadal,
fer fram frá Holtastaöakirkju, laugardaginn 21. júní, kl. 2 e.h.
Birna Helgadóttir,
Halldóra Hilmarsdóttir, Olafur H. Jónsson,
Frímann Hilmarsson, Guörún Blöndal,
Valgaröur Hilmarsson, Vilborg Pótursdóttir,
Anna Hilmarsdóttir, Hallur Hilmarsson.
Holtsapótek, Langholtsvegi 84,
verður lokað
á morgun, föstudag 20. júní, frá kl. 12—5 vegna
jaröarfarar
BALDVINS K. SVEINBJÖRNSSONAR
apótekara.
Steinþór Pálsson
Árdal — Minning
AA hryKKjast <>k «l<‘öjast
hér um fáa daga.
aö heilsast ok kveöjast.
þaú er líísins sajfa.
Páll J. Árdal
Steinþór fæddist og ólst upp á
Akureyri, gömlu Akureyri. Þar
lágu ræturnar, þangað leitaði hug-
urinn, hvar sem lífið haslaði
honum völl. Að eigin ósk er hann
lagður í þá mold sem hann er
sprottinn úr. Við heilsuðumst og
kvöddumst hér á Akureyri í síð-
asta sinn ekki alls fyrir löngu, er
leið hans lá til Reykjavíkur, og
þaðan átti hann ekki afturkvæmt
þessa lífs.
Steinþór var kominn hátt á 84.
aldursár, fæddur 16 júlí 1896.
Fyrir fjórum árum gladdist hann
með vinum sínum, afkomendum
og venslamönnum norður á Akur-
eyri. Hann kunni að gleðjast og
ennþá betur að gleðja aðra.
Foreldrar hans voru Álfheiður
Eyjólfsdóttir frá Hamborg í
Fljótsdal og Páll Jónsson Árdal,
kennari, skáld og vegaverkstjóri
frá Helgastöðum í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafjarðarsýslu. Hann
var yngstur þriggja barna þeirra
hjóna, er upp komust. Hann ólst
upp á heimili foreldra sinna í
Fjörunni og minntist oft yndis-
stunda æskunnar í fögru umhverfi
og við gott atlæti. Hajjn var frá
upphafi glaðlyndur og góður.
Hann vildi barnungur hjálpa
Búum í stríðinu við Englendinga,
en þegar sr. Matthías spurði hann
að því, hvað hann ætlaði að gera,
ef hann sæi alvopnaðan Breta
koma á móti sér, sagði sveinninn
ungi: Hlaupa inn til mömmu.
Hann hafði hvort eð er svo oft
hlaupið inn til hennar, ekki bara
til að leita skjóls, heldur fyrst og
fremst til að færa henni blóm eða
eitthvað annað fallegt sem hann
fann. Steinjiór Árdal þurfti alltaf
að láta aðra njóta þess, sem gott
var og fagurt. Hann lumaði ekki
einn á sínu..
Fullorðinn gerðist hann versl-
unarmaður á Akureyri. Fyrst var
hann búðarmaður hjá Jóhannesi
mági sínum Þorsteinssyni í Ham-
borg. Hann var annálaður fyrir
lipurð og vinnusemi og sparaði sig
hvergi í þeirri þjónustu. En hon-
um var tamara að vinna öðrum en
sjálfum sér. Þann tíma, sem hann
rak verslun fyrir eigin reikning,
hagnaðist hann lítt. Honum var
lífsins ómögulegt að græða á
viðskiptum sínum við aðra.
Margt annað en verslunarum-
svif átti líka betur við hann.
Sennilega hefur hirðisstarfið stað-
ið hjarta hans næst. Hann var
einstakur dýravinur alla tíð. Hann
hafði yndi af skepnum, meðferð
þeirra og umönnun. Lengi ævinn-
ar átti hann líka búfé og annaðist
það af þvílíkri alúð að nærri
stappaði listgrein. Var fé hans vel
alið, frjósamt og afurðagott, en
þar sem annarsstaðar var unnið
fremur til ánægju en ávinnings.
Frá Akureyri lá leið Steinþórs
til Siglufjarðar, þar sem hann átti
árum saman heima. Þar kynntist
hann eiginkonu sinni, Hallfríði
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
systur okkar,
INGVELDAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 6A Borgarspítalanum.
Theódóra, Una og Hrefna Siguröardœtur.
+
Þökkum innilega auösýnda vináttu og hlýhug viö andlát og útför
móöur minnar, systur og tengdamóöur,
KRISTJÖNU ÓLAFSDÓTTUR,
Baldursgötu 7.
Vera Pálsdóttir, Ólaffa Ólafsdóttir,
Torfi Ásgeirsson.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, er sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og útför,
INGIBJARGAR BJARNADÓTTUR,
Varmahlfö,
Eyjafjöllum.
Einar Sigurösson
og vandamenn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og viröingu viö andlát og útför,
FRIDFINNS ÓLAFSSONAR.
Halldóra A. Sigurbjörnsdóttir,
Björn Friöfinnsson,
Guöríöur S. Friöfinnsdóttir,
Ólafur Friöfinnsaon,
Stefán Friöfinnsson,
Sigrún B. Friöfinnsdóttir,
Steingrímur Friöfinnsson,
Elín Þóra Friöfinnsdóttir,
löunn Steinsdóttir,
Hermann Árnason,
Unnur Aöalsteinsdóttir,
Ragnheíöur Ebenezerdóttir,
Guómundur H. Hagalín,
Hallgrímur Thorsteinsson.
Hannesdóttur Jónassonar bóksala
frá Ytri-Bakka í Arnarneshreppi
og Kristínar Þorsteinsdóttur frá
Stóru-Hámundarstöðum í Ár-
skógshreppi. Hallfríður er látin
fyrir mörgum árum, en syni áttu
þau þrjá: Elstur er Páll, nú
prófessor í heimspeki við King-
stonháskóla í Ontario, kvæntur
Hörpu Ásgrímsdóttur frá Akur-
eyri. Annar var Hannes bókbind-
ari á Akureyri, nú látinn, átti Úllu
Geirsdóttur Þormar, en yngstur er
Kristinn Björgvin birgðastjóri á
KeflavíkurÚugvelli, búsettur í
Reykjavík, giftur þýskri konu,
Elke að nafni.
Á Siglufirði fékkst Steinþór
einkum við síldarvinnu, verkstjóri
á plönum árum saman, en sein-
ustu starfsár sín var hann verk-
stjóri á Keflavíkurflugvelli og ekki
beðinn að hætta störfum, meðan
kraftar entust, þótt aldur færðist
yfir hann. Seinustu árin bjó hann
löngum einn, en var vegna heilsu-
leysis oft og tíðum í skjóli sona
sinna og tengdadætra. Dvaldist
hann þá stundum langdvölum
fyrir norðan hjá Úllu og hún
komst til þess að sitja hjá honum
síðustu stundirnar.
Tengdir bar til þess að við
Steinþór kynntumst og urðum
vinir. Sannast að segja fannst mér
ekki annað hægt en verða vinur
hans eftir að hafa kynnst honum,
og bágt er að hugsa sér ræktar-
samari og tryggari mann en hann.
Aldrei gleymdi hann vinum sinum
og þeirra nánustu. Jólakveðjur og
afmæliskort komu ævinlega á
nákvæmlega réttum tíma. Heim-
sóknum hans fylgdi gleði. Hann
var afskaplega örlátur, og gæti sjö
barna faðir sett á langar tölur um
það, ef allt væri tínt til. Góðvild
hans og glettni gerði hann hvar-
vetna að aufúsugesti. En við-
kvæmur var hann og auðsærður,
ef einhver var svo slysinn að sýna
honum tómlæti eða styggð.
Steinþór var framúrskarandi
góður heim að sækja og vildi fá til
sín gesti. Hann gerði það ekki
utan við sig að taka á móti þeim,
og var allt jafnfúslega í té látið,
svo andlegar sem efnislegar veit-
ingar. í því var engin hálfvelgja
eða siðdekur, allt af hjartans
einlægni og svo sem sjálfsagt.
Svo er saga Steinsþórs sögð og
skráð, að hann gladdi marga og
oft, en hryggði fáa og sjaldan.
Slíkra manna er gott að minnast.
Og sé til annað lífsins land, mun
Steinþór Árdal stíga á það kvikum
fótum og heilsa glaðlega, glettinn
en yfirlætislaus. Hann mun eng-
um troða um tær og engum ryðja
úr vegi. En ekki kæmi mér á óvart,
þó að biðröð yrði, er stíga skyldi
við hann fyrsta dansinn í himna-
ríki.
Þökk mín og minna fyrir gleð-
ina, sem okkur gafst, fylgir Stein-
þóri Árdal, óháð stað og tíma.
Gísli Jónsson.
Birting
afmælis- og
minningar-
greina.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagsblaði, að berast i
siðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu linuhili.