Morgunblaðið - 19.06.1980, Page 48

Morgunblaðið - 19.06.1980, Page 48
Síminn á ritstjórn og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiðslunni er 83033 2HorjjunWnt>it> FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að mjög víða hefðu frystihús óskað eftir því, að starfsfólk tæki samræmd sumarleyfi vegna þeirra erfið- leika, sem væru í rekstri húsanna. Hins vegar hefðu frystihúsin þrjú í Eyjum tilkynnt fulltrúum verka- lýðsfélagsins þar, að þau ætluðu að segja upp starfsfólki sínú og loka húsunum 21. júlí. Guðmundur kvað VMSÍ hafa hvatt félög til þess að líta til tilmæla um sam- ræmd sumarleyfi með ákveðnum velvilja. Guðmundur sagði: „Þessir erfiðleikar frystihús- anna er ekki hráefnisskortur og gefur þar af leiðandi ekki tilefni til þess að uppsagnarfrestur, sem menn hafa áunnið sér og segir að ekki sé unnt að segja mönnum upp með 7 daga fyrirvara, sé styttur. Þeir verða að fylgja í einu og öllu uppsögnum eins og kveður á í samningum, en falli ekki undir kauptryggingu. í öðru lagi teljum við það ekki standast, að þeir, sem eigi mánaðar uppsagnarfrest, séu sendir í sumarfrí í 3 vikur og sagt upp um leið — þannig að orlofið sé uppsagnarfresturinn. í þriðja lagi teljum við ekki óeðlilegt, að menn taki mjúklega á óskum um sam- ræmd sumarfrí, þ.e. að menn taki orlof á sama tíma, en við erum undrandi á því, hvað slíkar óskir koma seint fram.“ Guðmundur kvað meira aðhaldi verða beitt í helgarvinnubönnum, þar sem mikið hefði verið unnið um helgar að undanförnu. Hann kvaðst hafa sagt á fundinum í gær, að nauðsynlegt væri að verkalýðsfélög tilkynntu VMSI þegar, ef greiðslufall yrði og sambandið myndi fylgjast með ástandi mála, sem væri mjög ljótt og raunar skuggalegt. Markaðirn- ir hefðu ekki getað tekið við þessum mikla afla. Undarlegt væri þó, að þetta skuli nú gjósa skyndilega upp og án nokkurs fyrirvara. Víða hefði þessi óvissa leitt til þess að fólk þyrði ekki að fara í orlof. Helgi Seljan, forseti efri deildar Alþingis: Varla hugsanlegt að for- setar hnekki úrskurðinum Frystihúsin í Eyjum áforma uppsagnir 1. júlí Fundur VMSÍ með fulltrúum verkalýðsfélaganna út um land ræddi vandamál frystiiðnaðar FRYSTIHÚSIN í Vestmannaeyjum haía tilkynnt verkalýðs- félaginu þar. að þau hyggist segja upp starfsfólki húsanna og að þau muni loka 21. júlí. Uppsagnirnar verði tilkynntar fyrir 1. júlí <>k óska frystihúsin eftir því, að menn taki ekki orlof fyrir þann tíma. Þetta kom fram á fundi, sem Verkamannasamhand íslands hélt i ga“r. en á fundinum voru fulltrúar verkalýðsfélaga víðs vejíar að af landinu. Fundinn sat Steingrímur Ilermannsson sjávarútvegsráð- herra, sem m.a. fjallaði um erfiðleika frystiiðnaðarins og för sína til Bandaríkjanna. Eldvarnarkvoðu var sprautað á eina flugbrautina á Keflavíkur- flugvelli i gærkvöldi fyrir nauð- lendinguna og lenti vélin á henni, en stöðvaðist utan braut- ar eins og sést á myndinni þar sem slökkviliðsmenn eru búnir að koma loftbelgjum undir vinstri vænginn til þess að lyfta vélinni upp og koma undir hana hjólinu sem ekki vildi niður fyrir lendingu. Sjá bls. 18 og 19. Ljósmynd Mbl. RAX. Bensínlítrinn í 480 krónur? VEGNA gengissigs hefur hækkun- arbeiðni oliufélaganna, sem liggur fyrir verðlagsráði og taka á til umfjöliunar á fundi á mánudag. verið hækkuð úr 470 krónum hver lítri í 480 krónur lítrinn. Verð á hverjum bensínlítra er nú 430 krónur og nemur því beiðnin hækk- un, sem er 11.6%. „SEM dæmi um það, hve menn eru orðnir ruglaðir,“ sagði Helgi Selj- an, forseti efri deildar Alþingis i samtaii við Morgunblaðið í gær, „þá sé ég það i Visi í dag, að blaðið segist hafa heimildir fyrir því að úrskurði þingfararkaupsnefndar verði hnekkt. og ég muni leggjast gegn því, að úrskurður nefndar- innar nái fram að ganga. Þarna er um tvo hluti að ræða. sem forsetar Alþingis verða að átta sig á, það er, hvort framkvæmdin nái ekki fram að gánga nú og málið verði tekið upp nú í haust — eða hvort forsetar Alþingis fari að hnekkja áliti þingnefndar. sem farið hefur og fer samkvæmt lögum með þessi mál. Þar er reginmunur á og varla hægt að hugsa sér, að forsetar geti hnekkt og sem sagt farið í styrjöld við einróma nefnd.“ Helgi Seljan kvað menn verða að meta, hvort þeir vilji láta taka málið upp til athugunar eða ekki og óska eftir því við þingfararkaups- nefnd, að hún taki málið upp seinna og þetta komi ekki til framkvæmda nú. Síðan kvað hann það meginmálið, og því ætti raunar Kristján Thorlacius að svara, hve mikið væri um slíkar greiðslur í ríkiskerfinu. Helgi kvaðst vilja að málið yrði skoðað í heild út frá þeim forsendum, sem þingfarar- kaupsnefnd hafi gengið út frá. Hann kvaðst myndu kynna sér forsendurnar og hve víðtækar ómældar yfirvinnugreiðslur væru í ríkiskerfinu. „Sömuleiðis vil ég vita,“ sagði Helgi, „hvernig ákvörð- un þingfararkaupsnefndar hefur verið, hvort verið sé að skoða yfirvinnu þingmanna allt árið, eða hvort þetta er aðeins yfir þingtím- ann. A því er mikill munur. Ég hafði raunar skilið þessar umræð- ur hjá þingfararkaupsnefnd þann- ig, að verið væri að ræða yfirvinnu- álag þann tíma, sem þing sæti. Um þetta veit ég ekki enn, er nýkominn í bæinn og á eftir að hitta þá Jón Helgason og Sverri Hermannsson. „Hins vegar fer það ekki milli mála, að ég trúi ekki öðru en að þingfararkaupsnefnd hafi tekið þessa ákvörðun nema að vel athug- uðu máli sem leiðréttingu. Það vil ég að skýrt komi fram, hver svo sem afstaöa mín verður, þá efast ég ekki um að fyrir einróma samþykki nefndarinnar hafi legið grunduð og vel athuguð afstaða. Eg á hins vegar eftir að sjá þau plögg." „Málið verður að taka upp í heild, hvaða launaskipan eigi að vera hjá þingmönnum almennt og það er þeim fyrir beztu að þetta sé tekið af óháðum aðila. Það þarf lagabreytingu til þess, ef af verður. Ég veit, að það eru mjög skiptar skoðanir milli þingmanna um það,“ sagði Helgi Seljan, forseti efri deildar, en í dag mun hann ásamt hinum tveimur forsetum Alþingis fjalla um málið. Á fundinn hafa verið boðaðir formenn þingflokka. Ráðherrar með lögheimili úti á landi fá húsaleigustyrk RÁÐHERRAR fá eins og kunn- ugt er þingfararkaup ásamt ráð- herralaunum. Alþingi greiðir og heimasima þeirra. Aðrar greiðsl- ur fá ráðherrar ekki, sem al- mennir þingmenn fá, nema húsa- leigustyrk, sé lögheimili þeirr. úti á landi. Þessi húsaleigustyrk- ur er eins og kunnugt er 120 þúsund krónur á mánuði. Laun forsætisráðherra eru nú 1.078.895 krónur á mánuði og laun annarra ráðherra 977.745 krónur á mánuði. Allir ráðherrarnir hafa auk þess þingfararkaup, sem verið hefur 817.541 króna, en hækkar nú samkvæmt ákvörðun þingfarar- kaupsnefndar í 981.049 krónur. Við þá ákvörðun verða laun for- sætisráðherra 2.059.944 krónur, en hefðu ella verið 1.896.436 krónur og laun annarra ráðherra 1.958.794 krónur en hefðu ella verið 1.795.286 krónur. Þeir ráðherrar, sem lögheimili eiga utan Reykjavíkur og njóta þess vegna 120.000 króna húsa- leigustyrks á mánuði eru: Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra, Stykkishólmi; Hjörleifur Gutt- ormsson, iðnaðarráðherra, Nes-: kaupstað; Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra, Akureyri; Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð- herra, Akri, Torfalækjarhreppi og Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, Varmahlíð, Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.