Morgunblaðið - 09.08.1980, Side 3

Morgunblaðið - 09.08.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980 3 „Til bandaríska konsúlsins“ sagði flóttamaðurinn, þegar honum hafði tekizt að smeygja sér óséðum inn í leigubílinn „.TIL bandariska konsúlsins," segist rússneski flóttamaðurinn Viktor Kovalenko hafa sagt við bilstjórann. er honum hafði tekizt að smeyjíja sér inn í leÍKubil i miðborg Reykjavikur um hádejíisbilið á fimmtudag- inn án þess að skipsfélagar hans, sem með honum voru, tækju eftir því. Rússnesku sjó- mennirnir hofðu verið í hóp saman á gangi og hafði Koval- enko látið sem hann drægist aftur úr félögunum sinum vegna áhuga sins á gluggaút- stillingum verzlana, en i raun beið hann færis á að flyja. Það tækifæri kom svo, þegar hann sá bil nálgast, sem á stóð „taxi“. Bandarísk sendiráð hafa ekki vald til að veita mönnum hæli í bandaríska sendiráðinu dvaldi Kovalenko í um sex klukkustundir. Hann er lítt mæltur á enska tungu og urðu sendiráðsstarfsmennirnir að senda eftir rússneskumælandi manni á Keflavíkurflugvöll. Kovalenko bað um hæli í Banda- ríkjunum sem pólitískur flótta- maður. „Það er hin almenna regla, að bandarísk sendiráð í lýðfrjálsum löndum hafi ekki vald til að veita mönnum póli- tískt hæli, nema í algjörum undantekningartilfellum, þegar viðkomandi er í mikilli hættu og um líf og dauða er að tefla," sagði Thomas Martin forstöðu- maður Menningarstofnunar Bandaríkjanna, sem bandaríska sendiráðið visaði á til svara um málið, þegar Mbl. spurði hann í gær, hvers vegna Kovalenko hefði farið bónleiður til búða Bandaríkjamanna. Sagði Mart- in, að í tilviki Kovalenkos hefði ekki verið um líf eða dauða að tefla og því hefði honum verið vísað til íslenzkra stjórnvalda. Sagðist Martin ekkert frekar hafa um málið að segja, þar sem það væri nú í höndum íslend- inga. Höfnuðu boði um samtal í banda- ríska sendiráðinu Starfsmenn útlendingaeftir- litsins fóru í bíl að bandaríska sendiráðinu, þegar þeim hafði verið tilkynnt um afstöðu Bandaríkjamanna. Höfnuðu þeir boði um að ræða við Rússann í sendiráðinu, en biðu fyrir utan og kom Kovalenko svo í bílinn til þeirra og tilkynnti að hann óskaði eftir hæli á ísiandi sem pólitískur flóttamaður. Starfs- menn útlendingaeftirlitsins tóku hann þá í sína umsjá. I gærmorgun gaf Kovalenko skýrslu í útlendingaeftirlitinu og lýsti hann sig þá fúsan til fundar við skipstjóra sinn og menn frá sovézka sendiráðinu að því til- skyldu að Islendingar sætu þann fund einnig. „Þessi fundur virð- ist af skýrslu túlks útlendinga- eftirlitsins hafa farið fram í mestu kurteisi á báða bóga, en Kovalenko hélt fast við þá ákvörðun sína að leita hælis á íslandi," sagði Baldur Möller, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu- neytinu í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Baldur sagði, að rétt þætti að gefa ekki upplýsingar úr skýrslu Kovalenkos meðan beiðni hans væri í athugun. Fyrsta mál sinnar tegundar Baldur sagði, að mál af þessari tegund hefði ekki komið upp hér á landi áður, svo menn ræki minni til. í dómsmálaráðuneyt- inu er til athugunar beiðni Prakkans Gervasoni um pólit- ískt hæli á ísiandi, en Baldur sagði það mál ólíkt þessu að því leyti, að Gervasoni væri ekki í landinu og annað væri það, að Kovalenko segðist hafa lokið . . ' Þegar Mbl. kom að Kharovsk i gær var landgöngubrúin uppi og fékkst ekki sett niður né heldur náðist samband við einhvern, sem mætti mæla við blaðamenn. LidMn. Mhl. KrMJáa. Kharov.sk í Reykjavikurhöfn i gær. LjóHm. mu. KHstján. sinni herþjónustu eir.s og honum væri ætlað í Sovétríkjunum. Þá sagði Baldur, að bandarískur hermaður, sem hefði verið að komast hjá herþjónustu og kom- inn til Kanada hefði orðað beiðni um landvistarleyfi á íslandi sem hann væri pólitískur flóttamað- ur. Undir það hefði ekki verið tekið, en manninum hins vegar veitt landvistarleyfi af mannúð- arástæðum. Þessi maður fór til Svíþjóðar eftir skamma dvöi hér á landi. Baldur sagði, að ákvörðunar- rétturinn í máli Kovalenkos væri algjörlega í höndum dómsmála- ráðherra og honum skylt að taka afstöðu til beiðni af þessu tagi. Baldur sagði engar fastmótaðar reglur aðrar um afgreiðsluna, en gat þess að flóttamannasamn- ingur Sameinuðu þjóðanna, sem ísland er aðili að, legði okkur skyldur á herðar í svona málum. Rússarnir ckki til viðtals í gær. Mbl. reyndi ítrekað að ná tali af þeim starfsmanni sovézka sendiráðsins, Schvesnikov, sem sagður var fara með þetta mál af hálfu sendiráðsins, en án árang- urs og lauk þeim tilraunum svo, að Mbl. var tjáð, að vegna helgarinnar yrðu menn ekki til viðtals um mál þetta fyrr en á mánudaginn. Einnig reyndi Mbl. að ná tali af skipstjóranum á Kharovsk en án árangurs. „Skattaálögur hafa aldrei verið meiri“ — segir Matthias Á. Mathiesen „Á því er enginn vafi aö skattaálögur á landsmenn hafa aldrei verið meiri en í ár,“ sagði Matthías Á Mathie- sen, fyrrverandi fjármála- ráðherra, þegar Morgunblað- ið ræddi við hann vegna útkomu skattseðla. „Sá skatt- stigi, sem ríkisstjórn fékk samþykktan á Alþingi i vor mun leiða til þess að íslend- ingar munu greiða 119 millj- arða í beina skatta i ár, en það er 21,1% af tekjum þeirra á siðasta ári, sem numu 564 milljörðum. Þetta er hæsta hlutfall, sem nokkurn tíma hefur verið tek- ið í beina skatta og er 3,5% hærra en meðaltal skattbyrð- INNLENT innar árin 1974—1978. Eigna- skattar sérstaklega hækka um 82% í heild, en í Reykjavík hækka þeir um 92,5%. Þessi viðbótar skattheimta mun nema í ár um 25 milljörð- um. Auk þess hafa verið lagðir á síðan í september 1978 nýir óbeinir skattar, sem munu nema í ár 30 milljörðum. Samtals er hér um að ræða 55 milljarða, sem þýðir 1 milljón á hverja 4 manna fjölskyldu. Ef dæmið er skoðað út frá tekjum manna í ár, þá kemur í ljós, að ráðstöfunartekjur minnka, því að gert er ráð fyrir að skattheimtan af tekj- um greiðsluársins verði 13,9% en var í fyrra 13,2%. Þetta kemur til viðbótar þeirri 6% kjararýrnun, sem Þjóðhags- stofnun reiknar að verði á árinu. Allt þetta má rekja til ákvörðunar skattstigans, sem við Sjálfstæðismenn bentum á þegar hann var til afgreiðslu á Alþingi í vor, að hefði í för með sér þyngjandi skattbyrði. Það er nú komið í ljós,“ sagði Matthías að lokum. Rannsókn á virkjunaraðstöðu Fljótsdalsvirkjunar: Dýpsta borhola á virkjunarstað „RANNSÓKNIN á virkjunar- aðstöðu Fljótsdalsvirkjunar cr i fullum gangi og gengur vel,“ sagði Jakob Björnsson orkumála- stjóri i samtali við Mbl. í gær, en hann kvað niðurstöður liggja fyrir að mestu i september. „Ekkert óvænt hefur komið í ljós,“ sagði Jakob, „en um þessar mundir er verið að bora 600 metra djúpa holu sem er dýpsta hola hér á landi á virkjunarstað, en að auki eru fleiri holur boraðar til þess að ná borkjörnum til mælinga og rannsókna á berglaginu. Með þessu móti á að fást full vitneskja um möguleikana, málið á að liggja klárt fyrir svo engin ágizkun þurfi að vera í spilinu." HM sveina í skák: Elvar kom- inn í 4. sæti ELVAR Guðmundsson hefur sótt verulega í sig veðrið á heimsmeistaramóti sveina i skák, sem nú stendur yfir í Le Havre í Frakklandi. Áð lokn- um 9 umferðum hefur hann hlotið 6 vinninga og er i 4. sæti. í 8. umferð gerði Elvar jafn- tefli við Bandaríkjapiltinn Benj- amin í hörkuskák og í 9. umferð vann hann Coffey frá írlandi í 30 leikjum. Efstur á mótinu er Saloff frá Sovétríkjunum með 7 vinninga og biðskák. Mætir Elv- ar honum næst. Elvar er úr Garðabæ og hafa bæjaryfirvöld þar styrkt hann myndarlega til þátttöku í skák- mótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.