Morgunblaðið - 09.08.1980, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 09.08.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980 5 bessa dagana gengst Verksmiðjan Vífilfell sem er framleiðandi Coca Cola hér á landi. fyrir uppákomum i hinum ýmsu verslunum. Fólki er gefinn kostur á að bragða af framleiðsluvörum fyrirtœkisins, auk þess sem það fær afhentan happdrættismiða. Dregið verður alls fjórum sinnum og fær vinningshafi síðan að velja það styrktarfélag eða þá góðgerðastarfsemi sem hann vill að vinningsupphæðin kr. 50.000 renni til. Að sðgn Kristbjargar Ólafsdóttur hjá Vífilfelli, er ætlunin að koma við í nokkrum verslunum á næstunni. en alveg óákveðið hvar og hvenær komið er hverju sinni. Myndina tók ljósmyndari Mbl. í Glæsibæ i gær þegar starfsfólk Vífilfells bauð vegfarendum að drekka Coke. Ljósm. Mbl. Kristján. Fjórðungsmót hestamanna að IÖavöllum: Neisti frá Vopna- !»•?*• • V • íirði sigraði i hestasvigi Egil88töðum 8. ágúst. í MORGUN skartaði Fljótsdals- hérað sinu fegursta með sólskini. stillum og hita. Dagskrá mótsins byrjaði einni klukkustund á eftir áætlun. sem verður að teljast óliðandi á stórmóti eins og f jórð- ungsmóti. Stafaði töfin að nokkru vegna rangrar járnunar á þátttökuhestum og var knöpum gefið færi á að bæta þar úr áður en hrossin voru tekin til dóms. Dagskráin byrjaði með spjalda- dómum á gæðingum í B-flokki, eða klárhestum með tölti, en eftir hádegið voru A-flokkur gæðinga, eða alhliða gæðinga, dæmdir. Efstir í spjaldadómum gæðinga í B-flokki voru Máni frá Egils- stöðum eigandi Gauti Vilbergsson Egilsstöðum, en knapi var Hrafn Vilbergsson. Annar var Náttfari frá Fornustekkum, knapi og eig- andi Guðmundur Jónsson, Horna- firði. í spjaldadómum á A-flokki gæðinga varð fyrstur Skúmur frá Stóru-Lág, knapi og eigandi var Sigfinnur Pálsson Nesjahreppi. Næstir og jafnir voru Austri, eigandi og knapi var Hrafn Vil- bergsson, Egilsstöðum, og Sprett- ur, knapi og eigandi Ingimar Sveinsson, Egilsstöðum. I hesta- svigi sem er ný hestaíþrótt, sigr- aði Neisti, knapi og eigandi var Gunnar Ingólfsson, Vopnafirði. —Bjarni Artúrsson. Messur umsækjenda um Seljasókn „Steingrímur er að harma eigin mistök“ — segir Kjartan Jóhannsson fyrrum sjávarútvegsráðherra „MÉR FINNST það gleðilegt, að Steingrímur Hermannsson skuli nú þessa stundina vera þeirrar skoðunar, að rétt sé að miða við 350 þúsund lesta ársafla af þorski, þvi stundum hefur mátt skilja ráðherrann á allt annan veg,“ sagði Kjartan Jóhannsson alþing- ismaður og fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra í samtali við Morg- unblaðið i gær. „Á hinn bóginn sýnist mér, að ráðherrann geti ekki verið að harma annað en eigin frammistöðu þegar hann kveðst harma að því marki verði ekki náð,“ sagði Kjart- an ennfremur. „Málið er nefnilega það, að við upphaf þessa árs, var í minni ráðherratíð, tekið upp það nýmæli að kynna rammaða þorsk- veiðistefnu fyrir árið í heild, sem miðaðist við að þorskveiðin yrði svipuð og að undanförnu. í því sambandi var að sjálfsögðu fyrst og fremst höfð hliðsjón af afla- brögðum á síðasta ári. Um þennan ramma náðist góð samstaða, en í Frjálshyggju- menn hefja út- gáfu tímarits Á næstunni hyggst Félag frjáls- hyggjumanna hefja útgáfu tíma- rits, sem koma á út þrisvar á ári. Ritstjóri timaritsins verður Hannes H. Gissurarson sagnfræð- ingur. en ráðgjafi (advisory edi- tor) Friedrich A. Hayek, nóbels- /erðlaunahafi i hagfræði og kunnasti frjálshyggjuhugsuður lútímans. I viðtali við Morgunblaðið sagði i'riðrik Friðriksson, formaður Fé- ags frjálshyggjumanna, að tíma- •itið myndi fylgja stefnu fulls áhyggjur af því að þær yrðu of harðar, eins og ég gekk frá þeim,“ sagði Kjartan að lokum. PRESTKOSNINGAR fara fram í Seljasókn i Reykjavik þann 31. þessa mánaðar, eins og áður hefur komið fram i fréttum Morgunblaðsins. Næstu tvo sunnudaga munu umsækjendurn- ir, þeir séra Úlfar Guðmundsson og séra Valgeir Ástráðsson, messa i Bústaðakirkju. Báðar guðsþjónusturnar verða klukkan 11 árdegis. Sunnudaginn 10. ágúst messar séra Valgeir Ástráðsson, og séra Úlfar Guðmundsson messar þann 17. ágúst. Báðar messurnar verða í Bústaðakirkju, sem fyrr segir, og verður þeim útvarpað á miðbylgju, 1412 KHZ 210 metrum. Á kjörskrá í Seljasókn eru um 2540 manns, en alls búa um 10 þúsund manns í sókninni. Kjör- skrá liggur frammi í öldusels- skóla, og þar getur fólk fengið upplýsingar um hvort það er á kjörskrá eða ekki. honum voru meðal annars sett ákveðin viðmiðunarmörk fyrir báta annars vegar og togara hins vegar, þannig að hert yrði aðhaldið á seinna tímabilinu, ef farið yrði fram úr áætlun á fyrri hluta tímabils. Þessi aðferð var einnig nýmæli, en hingað til hafa aðgerðir Steingríms fyrst og fremst verið í því fólgnar að slaka á þessum ramma. Hann hefur til dæmis fækkað banndögum hjá togurum, og lengt netavertíð, einkum fyrir norðan og austan. Ef ráðherrann hefði haldið sig við hinn uppruna- lega samkomulagsramma, þá hefði þorskaflinn orðið nálægt því að verða svipaður og í fyrra. Steingrímur er því að harma eigin mistök, en hefðu honum þótt ráðstafanirnar of slakar, þá hefur hann nú haft fimm mánuði til að herða á þeim. Það hefði honum verið í lófa lagið. En það er raunar nýtt fyrir mér, að hann telji ráðstafanirnar ekki nógu strangar, því við upphaf ársins hafði hann Til íbúa Selja- og Skógahverfa (Seljasóknar) atvinnufrelsis, öflugra landvarna, stórvirkjana og stóriðju, lýðræðis- legra verkalýðsfélaga og andófs- manna í áustri. Friðrik sagði að í tímaritinu myndu birtast fyrir- lestrar á málþingum félagsins, einstakar greinar, svipmyndir af samtíðarmönnum, fréttir úr hug- myndabaráttunni og innlendar og útlendar ritfregnir. Aðspurður sagði Friðrik að tímaritið yrði í venjulegu bókar- broti og væri fyrsta heftið vænt- anlegt í september. Prestkosningar fara fram í sókninni sunnudaginn 31. ágúst. Sr. Valgeir Ástráösson er annar umsækjenda. Skrifstofa stuöningsmanna Sr. Valgeirs Ástráössonar er aö Seljabraut 52—54. (Fyrir ofan Kjöt og fisk). Opið kl. 5—10 e.h. alla daga vikunnar. Símar 74311 og 77353. Upplýsingar um kjörskrá og fleira. Sunnudaginn 10. ágúst kl. 11 messar Sr. Valgeir Ástráösson í Bústaöakirkju. (Útvarpað á bylgjulengd 1412 kHz m 212) Ibúðar Selja- og Skógahverfa, fjölmennum í guðsþjón- ustuna. Stuðningsmenn. Muniö Skrifstofan Seljabraut 52- símar: 74311 og 77353 -54

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.