Morgunblaðið - 09.08.1980, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.08.1980, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980 BB— NMMMMMNNMMMMMMMI Á FERÐ UM EYJAFJÖRÐ — Texti: Hjörtur Gíslason Ljósmyndir: Kristinn Ólafsson I Hrísey á Eyjafirði búa 300 manns, sem aðaliega vinna við sjávarútveginn og þar hefur yfir- leitt verið næg vinna og þokkaleg velmegun. Auk fiskvinnslunnar er i Hrísey eitt trésmíðaverk- stæði, útibú Kaupfélags Eyfirð- inga og Sóttvarnastöð rikisins, sem vinnur að ræktun Galloway nautastofns til sæðistöku. Félags- lif stendur með blóma og fólki lýður mjög vel fjarri ys og þys stærri bæjanna og hefur ekki mikið til þeirra að sækja. Blaðamenn Mbl. stöldruðu við þar eina dagstund og ræddu við heimafólk. „Næg atvinna, en anzi einhæf“ Atvinna hefur verið næg hér, en anzi einhæf, aðeins sjósókn og fiskvinnsla", sagði Björgvin Páls- son oddviti í Hrísey er blaðamað- ur ræddi við hann. „Kaupfélag Eyfirðinga er hér með frystihús og fiskvinnslu, sem fær hráefni af skuttogaranum Snæfelli og smærri bátum og þar hefur verið nokkuð um aðkomufólk, bæði ástr- alskar stúlkur og innlent fólk. KEA er einnig með verzlun hér, en eina hliðaratvinnugreinin hefur verið trésmiðaverkstæði þar sem sex til tíu manns hafa unnið. Sóttvarnastöð ríkisins, sem hér er, er algjörlega á vegum landbúnað- arráðuneytisins, þó að þar vinni tveir heimamenn. Húsnæðisskortur hamlar fólksfjölgun Það er talsvert viðamikið starf að vera oddviti hér í Hrísey, ég þarf að sjá um öll fjármál hrepps- ins, hitaveituna, rekstur ferju- bátsins, hafnarinnar og grunn- skólans, auk þess sem að á döfinni er bygging íþróttahúss og félags- heimilis og mjög brýnt er að ljúka hafnargerðinni á næsta ári, en hafnargarðinum er enn ólokið, einnig er fyrirhugað að koma upp sorpbrennsluofni. Við vorum einn- ig í töluverðum hitaveitufram- kvæmdum á síðasta ári og fram á þetta og þá var borað eftir viðbót- arvatni og mun kosta sextíu til sjötíu milljónir, sem er mjög mikið fyrir lítið sveitarfélag. Við erum svona nokkuð vel settir, það gerbreytti samgöngun- um hjá okkur, er við fengum nýju ferjuna seint í fyrra. Hér eru 296 á íbúaskrá og hefur fólksfjöldinn staðið nokkuð í stað undanfarin ár, þó nokkur hreyfing hafi verið á fólki. Húsnæðisskorturinn hefur tvímælalaust hamlað fólksfjölg- uninni verulega. Félagslífið er nokkuð gott Þegar Sóttvarnastöð ríkisins var sett upp þurftu fjáreigendur hér í Hrísey að losa sig við féð og það gekk nokkuð áfallalaust fyrir sig. Það voru aðeins fimm til sjö eldri einstaklingar, sem áttu fé, sem gekk alveg laust á eyjunni mörgum þorpsbúum til ama. Nú hafa húseigendur tekið til við meiri garðrækt og fegrun um- hverfisins, sem varla var hægt áður vegna ágangs kindanna. Félagslíf hér er nokkuð gott, hér er leikfélagið Krafla, sem bæði gengst fyrir leiksýningum og fleiru og ungmennafélagið Narfi, sem er með ýmiss konar íþrótta- starfsemi. Auk þess er hér bæði Lionsklúbbur og kvenfélag, sem starfa talsvert að skemmtunum og félagsmálum. Mér þykir gott að búa í Hrísey, við erum laus við ys og þys stærri bæjanna og allir hafa það gott“. „Fyrstu gripirnir komu hér í sóttvarnastöðina 1975 og byrjað var að sæða um haustið árið eftir. Þetta voru tuttugu kýr, helmingur þeirra alíslenzkur og hinn helm- wmmmmmmmmmmmmmm Hriseyjarhöfn ingurinn skozk blanda frá Gunn- arsholti. Þær voru svo sæddar með innfluttu, djúpfrystu Gallo- way sæði frá Skotlandi", sagði Guðjón Björnsson bústjóri Sótt- varnastöðvar ríkisins í Hrísey, er blaðamaður ræddi við hann. Nú er kominn þriðji ættliðurinn „Nú er kominn þriðji ættliður og blöndunin gæti verið orðin allt 6/8 Galloway. Þetta er skozkt holdanautakyn og ætlunin með þessu, er að bæta nautakjöts- framleiðslu landsmanna og auka fjölbreytnina. Nú eru í stöðinni 41 gripur, 11 naut, 20 kýr og 10 kálfar. Við höfum þegar slátrað nokkrum gripum, betri nautin hafa verið valin úr til sæðistöku, en hana annast Þorsteinn Ólafs- son. Hinum nautunum hefur svo verið slátrað og njóta Hríseyingar góðs af því vegna þess að ekki má flytja kjötið í land, ætlunin er, að aðeins verði flutt sæði í land til verðandi kjötframleiðenda, en ekkert kjöt. Megin áherzlan í framtíðinni verður lögð á að hreinrækta stofn- inn og síðan að kynbæta hann, hvað þá verður veit ég ekki, það verður bara að koma í ljós, þegar þar að kemur. Hrísey er mjög heppilegur staður fyrir sóttvarna- stöð Ég er Skaftfellingur, en kann mjög vel við mig hér og finn ekki fyrir einangrun, hér er veðursæld og aldrei nein illviðri, þó hafáttin geti verið köld og næðingssöm. Kýrnar eru eitthvað úti alla daga ársins, en nautin eru alltaf inni, vegna þess að beitiland er of lítið. Þegar byrjað var á þessu var sauðfjárrækt hér í eynni bönnuð og fé þá selt eða lógað. Þá fóru tún í órækt, en nú höfum við nytjað þau og ræktað upp. Þetta verður að teljast mjög heppilegur staður fyrir sóttvarnastöð, því smithætta er nær engin, öruggt er að gripirn- ir komast ekki burt, þeir geta ekki einu sinni „talað saman" yfir girðinguna. Þá er mun minni hætta á átroðningi hér, en ef stöðin væri einhvers staðar uppi á landi. Alltaf nóg að gera Þó að ekki sé mjólkað er ýmis- legt, sem kemur þar uppá móti, við vigtum og mælum mánaðarlega, sjáum um slátrunina og viðhald og viðgerðir falla að mestu leyti í okkar umsjá, svo fremi sem við erum færir um. Hreinlæti er einnig eins mikið og mögulegt er, þó þetta sé ekki til sýnis og er við það talsverð vinna. Við heyjum líka allt sjálfir auk annarrar venjulegrar hirðingar. Svæðið, sem skepnurnar eru á, er um 16 hektarar og var upphaflega lyng- móar, en hefur nú verið ræktað upp. Kýrnar hugsa vel um kálfana sína og geta átt það til að ráðast á menn, en tarfarnir eru mestu gæðablóð, enda líka eins gott, því þeir geta orðið um 800 kíló. Við erum nú farnir að selja sæði, en ég veit ekki til þess að kálfur, ættaður frá okkur, hafi enn fæðst.” „Mikil vinna og gengur vel“ „Þetta hefur gengið þokkalega í sumar, við höfum aðallega hengt fiskinn upp eða verkað í salt, en lítið fryst fyrr en rétt nú upp á síðkastið,“ sagði Valdimar Gunn- arsson, sem nú leysir af sem frystihússtjóri í frystihúsi KEA í Hrísey. „Það eru Snæfellið, skut- togari Kaupfélags Eyfirðinga, 30 tonna dragnótarbátur, Örn og fjöldinn allur af triílum, sem leggja upp hjá okkur. Hér eru 70 til 80 manns í vinnu og það hefur verið misjafnt að gera hjá okkur, en í síðustu viku unnum við frá hálf sex á morgnana til sjö á kvöldin, það var ekki um annað að ræða, fiskurinn lá undir skemmd- um. í haust var byrjað á að salta þorskflök, sem seld hafa verið til Italíu og hefur það gefið góða raun. Þetta hús var rekið með miklum gróða í fyrra og útkoman hefur verið sæmileg í sumar, vegna þess hve mikið hefur verið unnið í skreið og salt.“ í fyrra haust fengu Hríseyingar langþráða og glæsilega ferju til að annast samgöngur milli lands og eyjar, en áður notuðust þeir við rúmlega sjö tonna trillu og fylgdu því ýmis vandkvæði. Við Morgun- blaðsmenn gripum tækifærið er við fórum milli lands og eyjar og röbbuðum við þá Gunnar Jó- hannsson og Alfreð Konráðsson, sem stjórna ferjunni: „Höfum mest flutt 480 manns hér á milli á einum degi“ Hríseyjarhreppur er eigandi þessarar ferju, sem við fengum í nóvember í fyrra, og kostaði um 200 milljónir. í ferjunni er 365 hestafla vél og er með hliðar- skrúfu, sem er mikill munur. Neðan þilja eru sæti fyrir 32 farþega og vörurými er allt að 12 tonnum eftir vörutegundum. Einnig er hægt að flytja einn lítinn bíl í hverri ferð. Það eru þrjár til fjórar ferðir fastar á milli' Árskógssands og Hríseyjar á dag, en einnig önnumst við vöruflutninga og annað tilheyrandi til Dalvíkur. Mest höfum við flutt 480 manns hér á milli á einum degi svo oft er mikið að gera, sérstaklega um helgar og það kemur fyrir að sólarhringurinn nær saman hjá okkur. í miðri viku er venjulega minna og rólegra. Okkur líkar vel við bátinn, þó ýmislegt hafi komið í ljós, sem betur mætti fara. Það er tilbreyt- ing í þessu til að byrja með, en hún fer af og þá verður þetta leiðigjarnara," sögðu þeir félagar að lokum. <________________

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.