Morgunblaðið - 17.08.1980, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
184. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
22 brunnu
inni í nætur-
klúbbum
London, 16. áffÚKt. AP.
ÓTTAST er að 22 hafi farist í
eldsvoða i tveimur næturklúbhum i
Lundúnum árla i dax að sögn
lögregluyfirvalda, sem ekki útiloka
þann möguleika að um íkveikju
hafi verið að ræða. Einn þeirra er
komst lífs af úr brunanum álitur að
bensinsprengju hafi verið varpað
inn í næturklúbbinn.
Eldur kom samtimis upp í tveimur
samliggjandi næturklúbbum í Dan-
merkurstræti, sem er útgata úr
Charing Cross Road í miðborg Lund-
úna, og breiddist hann mjög ört út.
Slökkvistarf gekk erfiðlega og
breiddist eldurinn út í nærliggjandi
hús og olli miklu tjóni á mannvirkj-
um. Tiu manns eru í haldi á Holborn
lögreglustöðinni til yfirheyrslu
vegna eldsvoðans.
Næturklúbbarnir, sem nú eru
rjúkandi brunarúst, hétu „Rodos“ og
„Victor Gonzales" og voru mikið
sóttir af Spánverjum og Suður-
Ameríkumönnum. Vitað er, að hópur
Suður-Ameríkumanna var í klúbb-
num í gærkvöldi, og herma heimildir
að meðal hinna látnu og slösuðu séu
Kólumbíumenn. Pjöldi klúbbgesta
slasaðist, sumir alvarlega, er þeir
stukku út um glugga til að sleppa frá
eldsvoðanum.
Maður, sem starfar í skyndibita-
stað í næsta nágrenni næturklúbb-
anna, sagðist hafa heyrt hróp og köll
innan úr eldhafinu, og að svo hafi
virst sem klúbbgestir hafi reynt að
brjóta sér leið út en án árangurs,
eldurinn hafi yfirbugað þá.
Forsetaafsögn
í Suður-Kóreu
Seoul, 16. áffÚHt, AP.
FORSETI Suður-Kóreu, Choi
Kyu-Hah, sagði af sér i dag og
er búist við að Chun Doo-Hwan
hershöfðingi, sem nú fer með
öll völd i landinu. verði út-
nefndur forseti á kjörmanna-
samkundu, sem kemur saman
fyrir mánaðarlok.
í sjónvarpsávarpi til þjóðar-
innar sagði Choi, að með afsögn
sinni gæfi hann fordæmi og
fyrirheit um friðsamleg valda-
skipti og sagðist að sínu leyti
bera nokkra ábyrgð á
„áhyggjum og erfiðleikum þjóð-
arinnar" vegna uppþotanna í
borginni Kwangju í mái sl. Á
sama tíma og Choi flutti ávarp-
ið var s-kóreski herinn við öllu
búinn vegna „hugsanlegra ögr-
ana Norður-Kóreumanna".
Choi varð forseti í desember
sl. eftir að yfirmaður leyniþjón-
ustunnar hafði myrt Park
Chung-Hee, fyrrverandi forseta.
Níu fórust í
sprengingu
Tókýó, 16. iKúst. AP.
AÐ MINNSTA kosti niu manns
dóu í dag og yfir 150 slösuðust,
sumir lifshættulega, er tvær
sprengingar urðu með stuttu
millibili i verzlunarmiðstöð í
borginni Shizoka, sem er skammt
suðvestur af Tókýó.
Talið er að gasleki hafi valdið
sprengingunum í verzlunarmið-
stöðinni, sem er neðanjarðar.
Miklar skemmdir urðu í verzlun-
armiðstöðinni í sprengingunum og
af völdum elds.
sagði í dag, að fréttir um, að
fyrirhugað væri að ráðast inn í
íran og frelsa bandarisku gísl-
ana áður en gengið yrði til
forsetakosninga i haust, væru
„með öllu tilhafulausar" og
„fáránlegar“. Það er dálkahöf-
undurinn Jack Anderson, sem
heldur þessu fram i grein, sem
birt verður nk. mánudag.
Jack Anderson segir í grein-
inni, að leynileg áætlun um
innrás í íran með miklum liðs-
styrk hafi verið gerð fyrir Jimmy
Carter forseta. Sagt er að Carter
Stal bíl
Chorley, KnRlandi, 16. ágúttt. AP.
JAMES nokkur Bradshaw var í
dag fundinn sekur um að hafa
stolið sinni eigin bifreið. Brad-
shaw játaði sekt sína. en honum
var sleppt við fjársektir.
Málsatvik eru þau, að bíll
Bradshaws bilaði á hraðbrautum
Englands. Lögregla fjarlægði bíl-
inn og er Bradshaw ætlaði að
sækja hann á lögreglustöðina var
sínum
honum gert að greiða jafnvirði 40
þúsund króna fyrir flutning og
geymslu. Hann sagðist ekki hafa
efni á því, þar sem hann væri
atvinnulaus, og fékk vin sinn til að
draga bílinn úr bílageymslu lög-
reglunnar. Samkvæmt brezkum
lögum var Bradshaw þar með
orðinn sekur um þjófnað og
stefndi lögreglan í Chorley honum
fyrir rétt með framangreindum
niðurstöðum.
niðurstöðu að hún yrði vinsæl
með kjósendum".
Formaður utanríkismála-
nefndar bandaríska þingsins
sagði í gær, að hann vissi ekki til
að nein slík áætlun væri á
prjónunum en ekki náðist til
annarra þingleiðtoga eða yfir-
manna leyniþjónustunnar.
Claudia Townsend, talsmaður
Hvíta hússins, sagði, að „villandi
og óábyrgur fréttaflutningur,
eins og fram kæmi hjá Anderson,
stefndi örlögum gíslanna í voða,
kæmi í veg fyrir friðsamlega
lausn í málinu og græfi undan
hagsmunum Bandaríkjamanna í
þessum heimshluta".
Stalín, Marx, Engels og
Lenín f jarlægðir í Kina
KÍNVERSKA utanríkisráð-
uneytið sagði i dag, að
myndir af Stalín, Marx,
Engels og Lenín yrðu tekn-
ar niður á Torgi hins himn-
eska friðar og aðeins settar
þar upp við sérstök tæki-
færi. Er litið á þetta sem lið
í baráttu kínverskra stjórn-
valda gegn persónudýrkun.
Fimm myndir af Maó
formanni hafa verið fjar-
lægðar frá Torgi hins himn-
eska friðar og er þar nú
aðeins ein mynd, í torghlið-
inu. Kínverskir ráðamenn
hafa að undanförnu gagn-
rýnt hinn fyrrum óskeikula
leiðtoga sinn og sagt, að
honum hafi orðið á mikil
mistök og komið af stað
menningarbyltingunni.
Kínverjar stefna að þvi að
koma á sínum eigin sósíal-
isma, ólíkum þeim, sem ger-
ist með erkifjendum þeirra,
Rússum, og þeim, sem þeir
höfðu í huga, frumkvöðlar
kommúnismans, Marx, Eng-
els og Lenín. Rússar hafa
þegar steypt Stalín af stalli
og kínverskir leiðtogar eiga
erfitt með að bera lof á
manninn, sem réðst inn í
Pólland og önnur lönd, á
sama tíma og þeir vara við
útþenslustefnu Rússa nú á
dögum.
Hvíta húsið haf nar
innrásarkenningu
Wa.shington. 16. á?Ú8t. AP
TALSMAÐUR Hvita hússins
hafi „metið pólitískar afleið-
ingar“ innrásar í íran skömmu
fyrir forsetakosningarnar 4.
nóvember og „komist að þeirri