Morgunblaðið - 17.08.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
Þorsteinn Pálsson framkvæmdastj. VSI:
Tilraun til að eyði-
leggja umræður um
kjarasamninginn
Hús rís
Ljósmynd Mbl. Emilía
Fargjaldastríðið yfir Norður-Atlantshafið harðnar:
Flugfélög lækka fargjöld
þrátt fyrir bullandi tap
„Kjarnasamningur kemur ekki
til Krcina hjá okkur nema með
hiutfallslcKum verðbótum. Þetta
er fjármálaráðherra lön«u kunn-
ugt um og ég get þvi ekki skilið
þessa ákvörðun öðru vísi, en sem
tilraun til að eyðilegKja umræður
um kjarnasamninginn,** sagði
Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, þegar Morgunblaðið
bar undir hann þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að bjóða BSRB að
verðbætur á öll laun undir 345
þúsundum verði i krónutölu þær
sömu. Eins og kemur fram í bókun
fjármálaráðherra með samnings-
INNLENT
Bílþjófur vart
viðræðuhæfur
vegna ölvunar
Á sjöunda timanum i gær-
morgun var lögreglunni i
Reykjavik tilkynnt um að bil
hefði verið stolið í Laugarnes-
hverfi. Billinn fannst skömmu
síðar og var honum þá ekið
eftir Miklubraut. Þjófurinn
reyndist vera lfi ára piltur og
var hann allmikið ölvaður.
Er talið sennilegt að hann
hafi stolið bílnum til að komast
heim til sín, en hann býr í
Kópavogi. Ilía gekk að yfir-
heyra piltinn, þar sem hann var
vart viðræðuhæfur vegna ölv-
unar. Billinn, sem hann stal var
af Cortínugerð, árgerð 1970, en
þeir bílar hafa mjög gjarnan
orðið fyrir barðinu á bílaþjóf-
um.
Nokkru síðar var lögreglunni
tilkynnt um þjófnað á öðrum bíl
í Laugarneshverfi en eigend-
urnir höfðu fundið hann
skammt frá heimili sínu.
Hallgrímskirkja
í HALLGRÍMSKIRKJU verður
messa í dag, kl. 11 árd. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson mcssar.
Á Landspitalanum messar sr.
Ragnar Fjalar kl. 10. árd.
drögum BSRB telur hann óhjá-
kvæmilegt að sæmræmdar reglur
gildi um greiðslu verðbóta á laun
hjá opinberum aðilum og á al-
mennum vinnumarkaði. Hug-
myndir um visitölugólf hafa verið
umdeildar innan ASt og VSt hefur
algjörlega hafnað þeim.
„Vísitölugólfið hefur í för með sér
að innan við 20% af félagsmönnum
BSRB fá meiri verðbætur en verð-
bótavisitalan segir til um. Sam-
svarandi tala á almennum vinnu-
markaði er sennilega um 75%.
Hérna er því um að ræða tilraun
ASÍ og fjármálaráðherra til að gera
að engu frádráttarliðina í vísitöl-
unni. Ríkisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar gerði talsverða bragarbót á
verðbótakerfinu með því að taka
inn í það viðskiptakjaraáhrif. Þetta
vísitölugólf er fyrst og fremst
bakdyraleið til að eyða frádráttar-
áhrifum og gera þessar breytingar,
sem fram fóru á vísitöiunni að
engu. Hlutfall félagsmanna ASI er
svona hátt vegna þess að allir
viðmiðunartaxtar í ákvæðis- og
bónusvinnu falla undir gólfið og
viðmiðunartaxtar fyrir álög. Þessi
einhliða ákvörðun fjármálaráð-
herra um breytingu verðbóta-
greiðslna er óþolandi íhlutun í
kjarasamninga á almennum vinnu-
markaði," sagði Þorsteinn Pálsson
að lokum.
Fargjaldastriðið á flugleiðunum
yfir Norður-Atlantshafið fer stöð-
ugt harðnandi með hverjum degin-
um. Flugfélög beggja vegna Atl-
antshafsins hafa á undanförnum
dögum tilkynnt um mikla lækkun
fargjalda i haust og vetur.
Þctta gerist á sama tíma og
taprekstur þessara fyrirtækja er
gifurlegur vegna þessa flugs og
eykst stöðugt, t.d. var tap British
Airways vegna Atlantshafsflugsins
á siðasta ári um fi milljarðar króna
og verður mun mrira á yfirstand-
andi ári. Þá eru alkunn þau mikiu
vandamál sem Flugleiðir eiga við
að glima vegna flugsins yfir hafið.
Reyndar er fyrirséð gífurlegt
rekstrartap hjá fyrirtækinu á þessu
ári.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði í samtali við Mbl.
fyrir skömmu, að fargjaldastríðið
væri ekki farið að hafa veruleg bein
áhrif á markaðsstöðu Flugleiða þar
sem flest þessi lágu fargjöld eru í
boði á flugleiðinni milli Bandaríkj-
anna og London, en Flugleiðir fljúga
eins og kunnugt er til Luxemborgar
á meginlandinu. Sigurður sagði hins
vegar, að það mætti allt eins búast
við harðnandi samkeppni innan tíð-
ar.
Varðandi verðsamanburð standa
Flugleiðir orðið frekar illa gegn
keppinautum sínum, en fargjaldið
frá New York til Luxemborgar og til
baka með Flugleiðum kostar á
sumarverði 599 dollara, eða rúmlega
297 þúsund krónur. Um miðjan
september lækka þessi fargjöld
Flugleiða niður í 499 dollara, eða
tæplega 248 þúsund krónur.
Á sumarfargjaldi kostar það hja
British Airways að fljúga frá New
York til London og til baka 188 pund,
eða 221 þúsund krónur. Þetta verð
miðast þó við, að viðkomandi getur
ekki látið bóka sig í ferðina. Borgi
menn hins vegar fyrir bókuð far-
gjöld kostar að fljúga þessa sömu
leið 223 pund, eða 262 þúsund
krónur. Eftir 15. september lækka
fargjöld British Airways allnokkuð
og mun þá kosta, séu viðkomandi
ekki bókaðir, 164 pund að fljúga
þessa leið, eða um 193 þúsund
krónur. Sé ferðin hins vegar bókuð
er fargjaldið 189 pund, eða um 222
þúsund krónur.
Það síðasta í þessum málum er, að
Sir Freddie Laker, tilkynnti nýverið,
að frá 15. september biði hann
fargjaldið frá New York til London
og aftur til baka á 184 pund, miðað
við frátekið sæti, en það er um 216
þúsund krónur, sem verður lægsta
verð á þessari flugleið fyrir frátekin
sæti.
Þá má geta þess, að bandaríska
flugfélagið Trans World Airlines,
TWA, bíður sömu fargjöldi og Brit-
ish Airways. Pan American er með
heldur hærra fargjald í sumar eða
212 pund, sem er um 250 þúsund
krónur, séu viðkomandi ekki bókað-
ir, en 223 pund, eða 262 þúsund, séu
menn bókaðir. I haust bíður Pan
American fargjaldið á 184 pund, eða
216 þúsund krónur, sé viðkomandi
ekki bókaður, en sé farið bókað
kostar að fljúga þessa leið 189 pund,
eða 222 þúsund krónur.
Séu viðkomandi ekki bókaðir
bjóða flugfélögin, EL-Al, Air India
og Nortwest Orient sömu fargjöld og
Veiða
má 1000
hrein-
dýr í ár
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur gefið út reglur varðandi
veiðar hreindýra árið 1980, en
í þessum nýbirtu reglum seg-
ir, að heimilt sé að veiða allt
að eitt þúsund hreindýrum í
Norður-Þingeyjarsýslu, Múla-
sýslu og Áustur-Skaftafells-
sýslu. Veiðarnar skulu fara
fram á tímabilinu 1. ágúst til
15. september n.k., þó getur
ráðuneytið leyft veiðar á öðr-
um árstíma. ef sérstakar að-
stæður mæla með, að höfðu
samráði við hreindýraeftir-
litsmenn, sem hlut eiga að
máli.
Veiðunum er skipt niður
milli 31 hrepps og hefur hver
hreppur sinn kvóta, eða allt frá
8 dýrum upp í 90. Flest dýrin
má veiða í Fljótsdalshreppi og
Jökuldalshreppi, en fæst í
Fjalla- og Skeggjastaðahreppi
í reglunum mælir svo fyrir,
að einn eftirlitsmaður skuli
vera í hverjum hinna 31
hreppa, og skal hann ráðinn af
menntamálaráðuneytinu og
skal það greiða viðkomandi
þóknun fyrir starfið.
Pan American, hvort sem um er að
ræða sumar eða vetrarfargjald. Séu
viðkomandi bókaðir í ferðina eru
þessi félög hins vegar með mjög
mismunandi verð, eða allt frá 189
upp í 247 pund eftir 15. september,
eða frá 222 þúsundum upp í 290
þúsund krónur. Sumarfargjöld þess-
ara félaga eru hins vegar á bilinu
223 til 301,5 pund, eða um 262
þúsund upp í 355 þúsund krónur.
Eitt er það sem er ljóst við þetta
fargjaldastríð, þessi flugfélög fljúga
öll með farþega sína yfir hafið undir
kostnaðarverði, en hvers vegna er
ekki auðsvarað.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra:
Tilboðið sambæri-
legt við það ^em rætt
var milli ASI og VMS
„ÞAÐ ER enginn vafi á því. að
ýmsir hafa misskilið það sem
felst í þessum samningsdrögum,
ef þeir ímynda sér að allur
fjöldinn fái 7—8% hækkun,“
sagði Ragnar Arnalds, íjár-
málaráðherra, þegar Morgun-
blaðið spurði hann hvort hann
héldi að samningsdrög BSRB
hefðu áhrif til ha'kkunar krafna
ASÍ, eins og komið hefur fram i
fréttum.
„Það er mesti misskilningur og
það er ekki nema lítill hluti sem
fær þá hækkun. Ég vil undirstrika
að það eru hækkanir, sem menn fá
eftir fjögur ár, og ennfremur að
það eru fyrst og fremst þeir, sem
ekki njóta neinna sérstakra hækk-
unarreglna, sem fá tilfærslur milli
launaflokka. Eg er ansi hræddur
um að þeir, sem hafa uppi stór orð
í þessu sambandi, annað hvort að
heildarhækkunin sé of lítil eða að
um mjög miklar hækkanir sé að
ræða, hafi ekki haft aðstöðu til að
kynna sér hvað í þessu tilboði
felst.
Mér sýnist að þetta samnings-
tilboð, sem ríkið hefur nú gert
starfsmönnum sínum, sé mjög
sambærilegt við þær viðræður,
sem voru í gangi milli Alþýðu-
sambandsins og Vinnumálasam-
bandsins, en þar munaði mjög
litlu að tækist að ná samkomulagi.
En þeir samningar strönduðu m.a.
á vísitölugólfinu, sem við höfum
nú boðið BSRB með von um að
ASÍ semji um það sama,“ sagði
Ragnar að lokum.
Guðmundur Oddsson, bæjarfulltrúi:
„Hljótum að skoða
framhald meiri-
hlutasamstarfsins44
„MÉR finnst þessi málalok vera
skelfileg án þess að ég vilji á
þessu stigi vera með neinar
hótanir eða yfirlýsingar um
framtíð meirihlutasamstarfsins i
bæjarstjórninni. í Fifuhvamms-
málinu hefur verið gengið gegn
grundvallarstefnu Alþýðuflokks-
ins og við bæjarfulltrúar flokks-
ins hljótum að skoða framhald
meirihlutasamstarfsins,“ sagði
Guðmundur Oddsson, annar bæj-
arfulltrúa Alþýðuflokksins í bæj-
arstjórn Kópavogs, er hann var
spurður um hvaða áhrif sú
ákvörðun bæjarstjórnar Kópa-
vogs að festa kaup á landi
jarðarinnar Fifuhvamms hefði á
meirihlutastarfið í bæjarstjórn
Kópavogs.
Núverandi meirihluta í bæjar-
stjórninni mynda bæjarfulltrúar
Alþýðuflokksins, Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknarflokksins,
en kaupin á Fífuhvammslandinu
voru samþykkt á bæjarstórnar-
fundi á föstudag með átta atkvæð-
um bæjarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins, Framsóknarflokksins og
sjálfstæðismanna en á móti voru
tveir bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins og fulltrúi Borgaralist-
ans. Guðmundur sagði, að bæjar-
fulltrúar Alþýðuflokksins vildu
skoða þetta mál vel og íhuga hver
framtíð meirihlutasamstarfsins
yrði. Augljóst væri að í þessu
tiltekna máli hefði komið upp nýr
meirihluti í bæjarstjórninni og
það sagðist Guðmundur líta alvar-
legum augum, þegar um væri að
ræða jafn mikla fjárfestingu og
hér væri um að tefla.