Morgunblaðið - 17.08.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
5
Sjónvarp á moníun klukkan 21.15
Sjónvarp í kvold klukkan 20.50
Dýrin mín stór og smá
Sauðburður nálgast
óðum og þá er auðvitað
alltaf annatími hjá dýra-
læknum. James hefur
orðið fyrir því óhappi að
brákast á ökkla og held-
ur sig því að mestu
heima við. Það finnast
nokkrar ær dauðar hjá
bónda einum í sveitinni
og í ljós kemur að hund-
ur hefur bitið þær. Það
fer þó svo að James
finnur sökudólginn og
aflífar hann.
Sigfried hefur Helen
með sér þegar hann fer
að vitja um lambær og
hann er bæði undrandi,
glaður og ánægður yfir
dugnaði hennar.
„Blessuð skepnan“
Á MORGUN er á dagskrá
sjónvarpsins ný frönsk
sjónvarpskvikmynd sem
ber nafnið „Blessuð
skepnan". Myndin fjallar
um gamlan mann sem býr
einn síns liðs með afar
gömlum hesti. Fyrirhugað
er að skipuleggja og reisa
borgarhverfi í landi
gamla mannsins, sem
neitar að færa sig af
landinu. Myndin fjallar
svo um þrefið milli
mannsins og yfirvald-
anna.
Ný frönsk sjónvarpsmynd
Útvarp klukkan 23.00 í kvóld
Spjallað við Ragga Bjarna
í kvöld klukkan 23:00 er
að venju „Syrpa" á dagskrá
útvarpsins, í umsjá Óla H.
Þórðarsonar. — í þættinum
mun verða sitt lítið af
hverju, sagði Óli, — talað
verður við mann sem hefur
verið búsettur í Kenýa í tvö
ár og er að kenna innfædd-
um að fiska. Tónlist verður
leikin frá Kenýa, nokkrar
aðferðir taldar upp til að
hjálpa fólki að hætta að
reykja, en það er Þorvarður
Örnólfsson sem ég mun
ræða við í því sambandi.
Systir hans, A'dda, kemur,
syngur og spjallar örlítið
en að lokum mun ég ræða
dálítið við Ragga Bjarna og
Skúla Halldórsson skáld.
En meginuppistaða þáttar-
ins verður eins og venju-
lega tónlist.
Ellefu ódýrir íriandsdagar
verð frá kr. 304.600
Samvinnuferðir-Landsýn efnir til enn einnar írlandsferðar í gagnkvæmu leigu-
flugi, sem tryggir lægsta mögulega verð. Einstaklega ódýr skemmtiferð og
verslunarferð í sérflokki (írska pundið 10% hagstæðara en það enska).
22. ágúst - 1. september
Þrír ferðamöguleikan
FerðA
FerðC
Fjögurra daga dvöl i Dublin og sjö daga
rútuferð norðvestur til Sligo og þaðan
niður með austurströndinni til Galway,
I imerick, Tralee og síðan til Dublin.
Innifalið í verði:
Flug, gisting m/höfðinglegum írskum
morgunverði, flutningur til og frá flug-
velli, allar rútuferðir í ferðum B og C og
fararstjórn.
Dvöl í Dublin með stuttum skoðunar-
ferðum um borgina að vild hvers ogeins.
Gisting á Royal Marine.
Ferð B
Fimm dagar í Dublin og sex daga rútu-
ferð yfir á austurströndina til Galway og
þaðan til Limerick, Tralee, Waterfrod
og síðan upp til Dublin.