Morgunblaðið - 17.08.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
7
Baldur Steingrímsson
Skeggjagötu 6 í Reykjavík
skrifar mér svo m.a. (28.
júlí):
„I síðasta þætti, sem birt-
ist í blaðinu í gær, er drepið
á orðið parrak og að parraka.
Þar segist þú aðeins kannast
við þessi orð af bókum. Af
því tilefni langar mig til að
segja þér, að þessi orð voru
oft notuð í daglegu máli á
unglingsárum mínum heima
á Tjörnesi. Sagt var: Þetta er
óttalegt parrak á skepnun-
um, að hafa þær í svona
þröngri girðingu til lang-
frama. Eða: Gættu fyrir mig
ánna, en passaðu að parraka
þær ekki of mikið, því það
gerir þær bara rásgjarnari.
Eða: Það er ómögulegt að
parraka strákinn lengur
inni, þó honum sé ekki batn-
að kvefið ...“
Ég þakka Baldri þetta skil-
merkilega bréf og þessi
greinargóðu dæmi.
í fyrrnefndu bréfi Gísla
Guðmundssonar í Reykjavík
var látið að því liggja, að
menn leituðu eftir uppruna-
myndinni rasbaga vegna
þess að þeir væru feimnir við
að nefna orðið rass. í því
sambandi minnti hann á að
menn hefðu búið til ómynd-
ina kviðsvið, af því að þeir
hefðu veigrað sér við að nota
orðið hrútspungur.
Vangaveltur okkar Bald-
urs á Tjörnum um rasbaga
— rassbaga voru þessu alveg
óskyldar. En hér er skemmti-
legt viðfangsefni að spreyta
sig á. Fyrirbærið er heims-
þekkt og kallast euphemismi.
I bili ætla ég að reyna að
nota orðið veigrun, sbr. það
sem áður sagði, að menn
veigruðu sér við að segja eða
rita eitthvað sem gróft eða
dónalegt mætti kallast.
Einkum á þetta við um bölv,
saur og klám.
Athugum þá fyrst bölvið.
Andskotinn og djöfullinn
hafa þótt gróf blótsyrði á
vissum tímum. Því eru búin
til veigrunarorð sem seint
yrðu öll upp talin. Dæmi:
ansvítinn, anskollinn, ankoll-
inn, ansinn, défustinn, délinn
og djanginn.
Einnig forðast menn orð
um saur og hland. Menn
ganga örna sinna, tefla við
páfann, hafa hægðir til baks-
ins o.s.frv., og menn kasta af
sér vatni, pissa og pía, af því
að sögnin að míga þykir of
gróf. Mér leiðist klám og
kynlífstal, svo að ég sleppi
veigrunarorðum af því tæi,
þó að af nógu sé að taka,
algengast líklega að gera
hitt.
Mál er að hefja á ný tínslu
„gullkorna" úr bréfi Páls (til
mín).
Níunda korn: „... í öllum
nýjum hitaveitusvæðum
Hitaveitu Reykjavíkur." Það
má segja þessum staglstíl til
lofs, að ekki fer milli mála
hvað við er átt frekar en í
vísunni góðu:
Missti bátinn maAur sá
mjög í Htóru veÓri.
t>aó gekk svo mikil Kola á
hann gekk sundur af veðri.
Tíunda korn (stórbrotið á
allan hátt): „Fjallkonan
flutti ræðu og var lagt út á,
að nú upplifðum við sól á 17.
júní.“
Þetta er nú ekki dónalegt
þjóðhátíðarmál. í fyrsta lagi
leggur Fjallkonan út á eitt-
hvað, í stað þess að leggja út
af einhverju, síðan gerast
þau undur að við „upplifum
sól“ að vori til og það á 17.
júní. Þarna væri forsetning-
in betur horfin og notað
venjulegt tímaþolfall eins og
okkur er tamt: Þetta gerðist
daginn áður, ekki á daginn
áður.
Ellefta korn: „Ég er því
mjög fegin að það sé búið að
loka læknum á kvöldin".
Þarna á vitanlega að standa
er í staðinn fyrir auðkennda
orðið sé, og auk þess mætti
spyrja: Hverjum hefur verið
lokað? Læknum er tvírætt.
Hverju er konan að fagna?
Tólfta korn (og ekki af
lakara taginu): „Hnitbjörg
verður ekki lýst í einni
blaðagrein." Nema hvað. Lík-
lega á að standa þarna Hnit-
björgum, og væri þá átt við
hús það í Reykjavík sem
geymir listaverk Einars
Jónssonar. Nema einhver
kona hafi nú verið skírð
Hnitbjörg, og má nærri geta,
hvort heldur sem er, að
slíkum stórmerkjum verði
ekki lýst í skömmu máli eða
fáum orðum.
Að þessu gamni slepptu, er
þess að geta, að nafnið Hnit-
björg er komið úr gömlum
goðsögum og merkti björgin,
þar sem Suttungur (Fjalar)
jötunn bjó, en hann náði
skáldamiðinum fræga, þeim
sem bruggaður var úr blóði
Kvasis hins vitra og hunangi.
Óðinn komst að miðinum
með brögðum og flaug með
hann í sér heim til Ásgarðs,
en honum var veitt eftirför
og missti sumt af miðinum
aftur úr sér (sendi aftur
suman mjöðinn). Það köllum
vér skáldfíflahlut, segir
Snorri, og hefur það hver
sem vill. Er stundum ekki
langt milli fíflskapar og
snilldar, sbr. Æra-Tobba,
eða hvað segja menn um
þessa vísu? Maður gengur
ofan á bryggju og spyr:
Hvtum, hvtum. hvað er að,
hvenær kemur Pétur að?
Er hann með eða ekki með,
annað eða harði skrúfubhtðin á eða ekki á?
[Varanleg álklœðning
á allt húsið
Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknastofnun byggingariönaðarins hefur gert á
steypuskemmdum og sprungumyndunum á husum, hefur komið i Ijós að eina varanlega lausnin,
til að koma í veg fyrir leka og aframhaldandi skemmdir, er að klæða þau alveg til dæmis
með álklæðningu.
A/klæðning er seltuvarin, hrindir frá sér óhreinindum, og þolir vel íslenska veðráttu.
A/klæðning er fáanleg i mörgum litum sem eru innbrenndir og þarf aldrei að mála.
Leitið nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæðningar.
Sendið teikningar og viö munum reikna út efnisþörf og gera verðtilboð
yður að kostnaðarlausu.
FULLKOMIÐ KERFI TIL SÍÐASTA NAGLA~
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
anœstunm
Úrvalsferöir 1980
22. ágúst Mallorca Biölisti
5. sept. Ibisa 1 og 3 vikur. Laus sæti.
12. sept. Mallorca 2 og 3 vikur. Örfá sæti laus.
3. okt. Mallorca 3 vikur. Laus sæti.
Allir farseölar; flugfarseðlar, járnbrautafarseðlar,
skipafarseðlar.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
VID AUSTURVÖLL SÍMI 26900