Morgunblaðið - 17.08.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
17
Birgir ísl.
Gunnarsson:
Eignaskattamir
í liðinni viku hafa margir
komið á minn fund til að
bera sig upp undan sköttun-
um sínum. Margir hafa feng-
ið mun meiri hækkun en þeir
bjuggust við og ljóst er, að
þröngt verður í búi hjá
mörgum það sem eftir lifir
ársins, þegar meiri hluti
teknanna fer í skatta.
Háir eignaskattar
vekja athygli
Við að skoða skattseðla
allmargra skattborgara hafa
hinir háu eignaskattar sér-
staklega vakið athygli. Tök-
um tvö dæmi. Einstæð móðir
með 3,2 millj. krónur í skatt-
tekjur er að reyna að halda í
íbúð, sem hún keypti fyrir
nokkrum árum til að tryggja
sér og barni sínu öruggt
heimili. Það er hennar eina
eign. Af þessari íbúð þarf
konan að greiða í eignaskatt
til ríkisins tæpar 90 þúsund
krónur.
Öldruð ekkja, sem býr í
tiltölulega litlu húsi sem þau
hjón áttu, og er að reyna að
halda því, greiðir i eigna-
skatt til ríkisins rúmar 300
þúsund krónur. I báðum
þessum tilvikum eru íbúðirn-
ar einu eignirnar og tekjur í
algjöru lágmarki.
Þetta eru eignaskattar
ríkisins og þeir koma til
viðbótar háum fasteigna-
sköttum, sem Reykjavíkur-
borg innheimtir og á voru
lagðir í byrjun ársins.
Fasteignaskattar
borgarinnar
þungbærir
Þessir háu eignaskattar
hafa verið mikið pólitískt
ágreiningsefni. Þegar vinstri
flokkarnir fengu meirihluta í
borgarstjórn fyrir rúmum
tveimur árum, létu þeir það
verða sitt fyrsta verk að
hækka fasteignaskattana.
Við sjálfstæðismenn veittum
ávallt 20% afslátt af fast-
eignasköttum, en sá afslátt-
ur var afnuminn með nýjum
meirihluta í Reykjavík. Fast-
Birgir ísl. Gunnarsson
eignamatið hækkaði og mun
meira á árinu 1980 en al-
mennar launahækkanir og
því urðu fasteignaskattar
borgarsjóðs mörgum mjög
þungbærir fyrri hluta ársins.
Eignaskattarnir
i Reykjavík hækka
um 92,5%
Og nú bætast eignaskatt-
arnir við. Vinstri stjórn
Ólafs Jóhannessonar hækk-
aði eignaskakta á einstakl-
ingum um 50%. Þessum
skattauka hefur núverandi
ríkisstjórn viljað halda og
því hækka eignaskattar jafn-
mikið og raun ber vitni. Þeir
verða að sjálfsögðu þung-
bærari í ár vegna mikillar
hækkunar á fasteignamati.
Þannig hækka eignaskattar í
Reykjavík á einstaklingum
um 92,5%.
Þessi mikla hækkun á
eignaskatti var mikið deilu-
mál á Alþingi í vetur. Sjálf-
stæðismenn lögðu til að aft-
ur yrði horfið til þeirra
álagningarreglna, sem giltu
1978. Þessu harðneitaði
stjórnarliðið og vildi halda
sér við hina háu eignaskatta.
Háir eignaskattar
varhugaverðir
á Islandi
Hér á íslandi eru svo háir
eignaskattar mjög varhuga-
verðir. Þeir lenda á öllum
almenningi, því að ísland
hefur þá sérstöðu að hér eru
flestir eignamenn. Yfir 90%
íbúða eru í eigu þeirra fjöl-
skyldna, sem í þeim búa.
Allur almenningur leggur
hart að sér til að eignast
íbúð. Tekjur þeirra eru
skattlagðar jafnt meðan á
byggingu stendur sem endra-
nær og síðan þegar íbúðin er
fullgerð, þá er hún notuð sem
skattstofn í æ ríkari mæli
bæði hjá borg og ríki.
Það er mjög óeðlilegt og
getur komið út sem hróplegt
ranglæti, þegar tekjulítið
fólk, sem hefur náð að eign-
ast þak yfir höfuðið, er látið
greiða háar upphæðir í
eignaskatta ár eftir ár. Slíkt
ranglæti er ekki að skapi
sjálfstæðismanna. Það er
hinsvegar dæmigert fyrir
vinstri flokka að gráta það
þurrum tárum, þótt fólk
þurfi að skerða eignir sínar
til að geta greitt skattana.
Um leið og vakin er athygli á
þessari hugmynd er á það minnt,
að pólitísk misbeiting á góðu
málefni eyðilagði kvennaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Kaupmannahöfn. Til þessa hefur
tekist að halda jafnréttisbarátt-
unni á íslandi utan við harðpóli-
tískan reipdrátt, þannig á það að
vera áfram, því að þar með er
málefninu best borgið.
Spenna í
Póllandi
í um það bil sex vikur hefur
verið að þróast deila milli verka:
manna og stjórnvalda í Póllandi. I
eðli sínu er þessi deila ekki
markverð á okkar mælikvarða,
sem alist höfum upp með sífelld-
um kjaraátökum. I kommúnista-
ríkjum gilda hins vegar önnur
lögmál en hér í lýðræðinu. Þar eru
verkföll bönnuð og sjálfstæð
verkalýðshreyfing verður að
starfa með leynd. Upphaf spenn-
unar í Póllandi að þessu sinni má
rekja til þess, að ríkisstjórnin
ákvað að hækka kjöt um 80—
100% en „láðist" að geta um
hækkunina fyrr en 48 stundum
eftir að hún kom til framkvæmda,
þá hefur kjöt verið af mjög
skornum skammti í Póllandi.
Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
(Ástandið þar er sem sé þannig, að
þar hækkar ríkisstjórnin illfáan-
legt kjöt en hér greiðir ríkis-
stjórnin samskonar kjöt niður til
að lækka laun manna.)
í grófum dráttum má skipta
hinum ólíku þjóðfélgsöflum í Pól-
landi niður í fjóra hópa: andófs-
menn, verkfallsmenn, katólsku
kirkjuna og ríkisvaldið. Þrír fyrst-
nefndu hóparnir eru hver með
sínum hætti andstæða við ríkis-
valdið, sem veitir kommúnista-
flokknum vernd og öfugt. Andófs-
mennirnir hafa á ýmsan hátt sætt
svipaðri meðferð og skoðanabræð-
ur þeirra í öðrum kommúnista-
löndum, en þó ekki eins harð-
neskjulegri í alla staði. Katólska
kirkjan í Póllandi er afl, sem
ríkisstjórnin hefur viðurkennt og
kommúnistaflokkurinn ræðst ekki
gegn, síst af öllu síðan pólskur
kardínáli varð páfi. Átökin milli
verkamanna og ríkisstjórnarinnar
hafa oft verið afdrifarík í Pól-
landi. Núverandi forystumenn
pólska kommúnistaflokksins kom-
ust til valda, af því að þeir voru
eftirgefanlegri gagnvart verka-
mönnum en fyrirrennarar þeirra.
Þeir voru reiðubúnir að afturkalla
verðhækkanir, þegar þeim var
harðlega mótmælt með verkföll-
um og öðrum aðgerðum. En síðan
eru nokkur ár og enn kemur til
átaka milli ríkis og verkamanna
af sömu ástæðu. Ekki hefur komið
fram, að um samræmda stjórnar-
andstöðu væri að ræða milli and-
ófsmanna, verkfallsmanna og kat-
ólsku kirkjunnar. Heldur bera
mótmælaaðgerðirnar yfirbragð
ákvarðana einstakra atvinnu-
stétta. En á sínum tíma gaf
katólska kirkjan út fyrirmæli þess
efnis, að úr predikunarstólnum
skyldu prestar mótmæla verð-
hækkunum. Til þess hefur ekki
komið nú.
Yfir allri stjórnarandstöðu í
Póllandi hvílir þögult afl, sem
heldur aftur af mönnum. Og þetta
afl hefur einnig í för með sér, að
ríkisstjórnin gerir ekkert, enn að
minnsta kosti, sem hún telur, að
egna muni verkamenn til annarra
aðgerða en verkfalla. Þetta þögla
afl, er vitundin um nálægð hinnar
sovésku hervélar. Menn minnast
þess, þegar henni var beitt í
Austur-Berlín 1953, Ungverja-
landi 1956 og Tékkóslóvakíu 1968.
Nú er þessi ógnarvél vel smurð
vegna hernaðaraðgerðanna í Afg-
anistan og gæti á svipstundu sótt
inn í Pólland og fest pólskt þjóðlíf
í viðjar eins og gert hefur verið í
Austur-Þýskalandi Ungverjalandi
og Tékkóslóvakíu.
í kjarabaráttu sinni verða Pól-
verjar að þræða hinn þrönga veg.
sem leiðir þá vonandi til aukins
frelsis en ekki í fang sovéska
bjarnarins, sem getur nú farið öllu
sínu fram, eftir að hafa verið
kjassað á Olympíuleikunum.
Carter og
Kennedy
Baráttu þeirra Jimmy Carters
og Edward Kennedys um forseta-
framboðið á vegum demókrata
lauk nú í vikunni með sigri
Carters, sem fyrirsjáanlegur hef-
ur verið síðan úrslit forkosn-
inganna voru ljós. Segja má að
Kennedy hafi barist til síðustu
stundar, og á þinginu í New York,
þar sem frá útnefningu Carters
var gengið, flutti Kennedy stefnu-
ræðu, sem í mörgum tilliti var
árás á stefnu Carters. Ágreinings- _
efnin eru flest um ítök hins opin-
bera og ríkisumsvif. Vill Kennedy
auka hlutdeild ríkisins og fylgir að
ýmsu leyti stefnu, sem minnir á
sósíaldemókrata á Norðurlöndun-
um, þótt slíkur samanburður sé
ætíð dálítið hæpinn.
Ymislegt af því, sem Kennedy
lagði mesta áherslu á, náði fram
að ganga og þar með breikkar enn
bilið milli stefnumiða demókrata
annars vegar og repúblikana hins
vegar, en Ronald Reagan fram-
bjóðandi þeirra er hinn hægri
sinnaðisti í mörg ár. Af fréttum
má ráða, að þing demókrata hafi
fallist á sjónarmið Kennedys í því
skyni að kaupa samstöðu um
forsetaframbjóðandann Carter og
var Kennedy óspart klappað lof í
lófa af þingheimi, sem vildi hann
alls ekki í forsetaframboð.
I umfjöllun sinni um ræðu
Edward Kennedys, sagði breska
blaðið The Daily Telegraph, sem
ekki er hrifið af þeim, sem trúa á
almætti ríkishítarinnar, að orð
hans minntu á hina „sorglegu,
eyðslusömu vitleysu," sem leitt
hefði til þess að verðbólgan hefði í
Bretlandi náð yfirhöndinni yfir
velreknum fyrirtækjum, sem
veittu fólki atvinnu.