Morgunblaðið - 17.08.1980, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
í sumardvalarstaðnum Ab-
ano Terme á Ítalíu heyja nú
tveir stórmeistarar harðvítuxa
baráttu um það hvor þeirra
kemst áfram i úrslit áskorenda-
keppninnar í skák. Annar
þeirra er Robert Hubner frá
Vestur-Þýzkalandi, sem auk
þess að vera einn af fremstu
skákmönnum heims hefur náð
mjöK lan«t i sinni fræðigrein,
en það er þýðinK á ævafornum
papýrushandritum. Andstæð-
ingur Hubners i einviginu er
Unjíverjinn Lajos Portisch, en
hann er af mörgum talinn
fremsti byrjanasérfræðingur í
heimi. Þeir eru ófáir meistar-
arnir sem hafa komið með
stórskaddaða stöðu út úr byrj-
uninni gegn honum.
Áður en einvígið hófst var
Portisch talinn öllu sigur-
stranglegri, enda hefur hann
teflt mun meira en HUbner að
undanförnu og margir telja að
nú sé hann á toppnum á ferli
sinum. Portisch er 42ja ára, en
Huhncr tólf árum yngri, en
venjulega er talið að skákmenn
standi á hátindinum um fer-
tugt, sem er auðvitað miklu
hærri aldur en í öðrum keppnis-
greinum.
Lajos Portisch
Bf3 — g5?! (Engin þörf var á að
flækja taflið. Eðlilegast var 30.
... Dg5+, 31. Kfl - Db5+, 32. Be2
— Db6 og svartur hefur einfald-
lega sælu peði meira) 31. H3 —
h5, 32. e5 - g4, 33. Bxc6! (33.
hxg4? — Rxg4 og vinnur) gxh3+,
34. Kxh3 - Rg4, 35. f3 - Re3,
36. Dh2! (36. ... Dxd4 yrði nú
svarað með 37. Dg3+ — Kf8, 38.
Dg5 og staðan er allt annað en
einföld fyrir svart. Portisch af-
ræður því að fara í endatafl, þar
sem hann kemur til með að
vinna peð) Dxh2+, 37. Kxh2 —
Rf5, 38. d5 - Re7, 39. Kg3 -
exd5, 40. Bb5 — Rg6.
Hér fór skákin í bið. Svartur
hefur að vísu peði meira, en peð
hans eru dreifð um borðið og í
slíkum stöðum sanna biskupar
oftast ágæti sitt yfír riddurum,
svo sem verður uppi á teningn-
um hér: 41. f4 — Kg7, 42. Be2
- Kh6, 43. Bdl - Re7, 44. Bc2
- Rc8, 45. Kh4 - Rb6, 46. Bdl
- Rc4, 47. Bxh5 - kg7, 48.
Kg3! - Rxa3, 49. Kf2 - Rc2,
50. Bdl - Rd4, 51. Ke3 - Rf5+,
52. Kd3 - Kg6, 53. Ba4 - Rg7,
Htibner hélt jöfnu
með frábærri vörn
Þær sjö skákir sem nú hafa
verið tefldar í einvíginu gera
hvorki að sanna né afsanna þá
spádóma sem hafðir hafa verið
uppi um úrslitin. Öllum sjö
skákunum hefur lokið með jafn-
tefli, en þó ekki vegna þess að
baráttuvilja hafi skort hjá
keppinautunum, heldur fremur
vegna þess að þeir hafa viljað
forðast í lengstu lög að taka
áhættu og jafnan haft vaðið
fyrir neðan sig.
Guðmundur Sigurjónsson er
sem fyrr aðstoðarmaður Húbn-
ers og hefur áreiðanlega reynst
meira en rétt liðtækur, því þótt
Portisch sé greinilega betur les-
inn í fræðunum hefur Húbner
furðanlega tekist að bæta þann
mun upp með góðum undirbún-
ingi fyrir skákirnar. Þær fréttir
voru reyndar að berast fyrir
skömmu að Viastimil Hort
myndi brátt fylla flokk þeirra
Húbners og Guðmundar og gæti
hann orðið þeim styrk stoð í
lokahríðinni, svo framarlega
sem Húbner lætur ekki hina
alkunnu svartsýni Horts í skák-
rannsóknum draga úr sér kjark-
inn.
Það var aðeins í fimmtu ein-
vígisskákinni sem hurð skall
nærri hælum hjá Húbner. Port-
isch lokkaði hann út afbrigði
sem allar byrjanabækur telja
hartnær unnið fyrir hvít. Ung-
verski refurinn hafði hins vegar
fundið dágóð úrræði fyrir svart
á vinnuborðinu heima í Búda-
pest og stóð um tíma með
pálmann í höndunum:
Ilvítt: Robert Húbner
Svart: Lajos Portisch
Enski ieikurinn
1. c4 - c5, 2. RÍ3 - RÍ6, 3.
Rc3 — d5,4. cxd5 — Rxd5,5. e4
— Rb4, 6. Bc4 — Rd3+ (Þessi
leikur hefur jafnan verið álitinn
léiegur og menn hafa leikið hér
fyrst 6. ... Be6, 7. Bxe6 og nú
Rd3+). 7. Ke2 - Rf4, 8. Kíl -
Re6, 9. b4 (í alfræðibókinni um
skákbyrjanir telur Taimanov
þennan leik gefa hvítum yfir-
burðastöðu) cxb4,10. Rd5 — g6,
11. Bb2 - Bg7, 12. Bxg7 -
Rxg7. 13. Rxb4 - 0-0, 14. d4
(Eftir 14. h3 er 14. ... e5!
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
mögulegt, því ef 15. Rxe5 þá
Dd4) Bg4, 15. Dd2 - Bxf3, 16.
gxf3 — Rc6, 17. Rxc6 — bxc6,
18. Í4? (Ljótur leikur. Nauðsyn-
legt fyrir hvít var að ljúka
liðskipan sinni og leika 18. Kg2
og 19. Hadl og staðan er u.þ.b. í
jafnvægi) e6,19. De3 — Dí6, 20.
Be2 (Svartur hótaði óþyrmilega
20. ... Rh5. Hvítur er nú lagstur
í vörn) Hfd8, 21. Hdl — Hab8,
22. a3 - Hb2, 23. Kg2 - Hdb8.
24. Hhel - H8b3!
(Hér hafa vafalaust fáið hug-
að Húbner líf) 25. Hd3 - Ilxd3,
26. Dxd3 (Eða 26. Bxd3 - Hb3,
27. a4 — Rh5 o.s.frv.) Dxí4, 27.
Hbl! (Bezta úrræðið) Hxbl, 28.
Dxbl - Re8,29. Dc2 - RÍ6,30.
54. Kd4 - KÍ5, 55. Kxd5 -
Kxí4, 56. Bb3 - Re6, 57. Kd6
- Rg5, 58. Kc6 - Kxe5, 59.
Kb7 - Í5, 60. Kxa7 - Í4, 61.
Bdl. Svartur getur nú ekki
komið peðinu áfram með neinum
ráðum án þess að hvíti biskup-
inn fórni sér á það. Portisch
bauð því jafntefli sem Húbner
þáði.
Sjötta skákin bauð upp á
skemmtilegar sviptingar:
Hvítt: Lajos Portisch.
Svart: Robert Húbner.
Drottningarindversk vörn.
1. d4 — RÍ6. 2. c4 - e6, 3.
Rf3 — b6, 4. a3 (Tízkuafbrigðið
um þessar mundir) Be7, 5. Rc3
— d5, 6. cxd5 — exd5, 7. Bí4 —
0-0, 8. e3 - c5, 9. Re5 - Bb7,
10. Be2 - Rc6, 11.0-0 - Hc8
(Á stórmótinu í Montreal í
fyrra lék Karpov hér 11.... cxd4
gegn Portisch. Leikur Húbners
lítur fyrst illa út, en eftir 14. leik
kemur hugmynd hans í ljós) 12.
dxc5 — bxc5, 13. Bí3 — Bd6,
14. Rd3 - Ba6, 15. Rd3 - d4,
16. Rd5 - Re5, 17. Bxí6 -
gxf6,18. Be4
Bxd3, 19. Bxd3 - Rxd3, 20.
Dxd3 - Bxh2+, 21. Kxh2 -
Dxd5, 22. cxd4 — Dxd4, 23.
Dxd4 — cxd4, 24. Hacl — d3,
25. Hídl - Hxcl, 26. Hxcl -
Hb8, 27. b4 - d2, 28. Hdl -
Hd8, 29. Kgl - Itd.3, 30. Kfl -
Hxa3. Jaíntefli.
bessir krakkar Hulda Bjarnadóttir, Fríða Schmith, Jenny
Hólmsteinsdóttir og Hólmfriður Lára Skarphéðinsdóttir. héldu
fyrir nokkru hlutaveltu að Tunguseli 7 í Breiðholtshverfi til
ágóða fyrir „Sundlaugasjóð" Sjálfsbjargar, landssamb. fatl-
aðra. Þau söfnuðu 3300 krónum.
bessir krakkar Ingibjörg og Steingrímur héldu fyrir nokkru
hlutaveitu að Tunguseli 8 í Breiðholtshverfinu, til ágóða fyrir
fjársöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar til „Hungraðra
harna". bau söfnuðu 21.000 krónum til málefnisins á þessari
hlutaveltu.
bessar stúlkur eiga heima í Garðabæ og efndu þar til hlutaveltu
til ágóða fyrir Styrktarfélag vangefinna og söfnuðu þar 11.200
krónum til félagsins. Þær heita Anna Katrín Kristmundsdóttir
og Ásthildur Guðlaugsdóttir. — Þá þriðju úr framkvæmda-
nefndinni vantar á myndina en hún heitir Margrét Sif
Hákonardóttir.
bessar ungu stúlkur, Vesturbæingar, efndu til hlutaveltu fyrir
nokkru vestur á Tómasarhaga til ágóða fyrir Blindravinafélag-
ið. — Þær söfnuðu rúmlega 17000 krónum. — Þær heita
Jóhanna A. Jónsdóttir, Valdís Arnórsdóttir og Olga Sigurðar-
dóttir.