Morgunblaðið - 17.08.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
21
Girða af hættulegt
byggingasvæði
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
munu senn hefjast á Eiðisgranda
í Reykjavík, skammt frá bæjar-
mörkum borgarinnar ok Sel-
tjarnarness, en þar hefur verið
úthlutað lóðum fyrir um 50 ibúð-
ir í raðhúsum og einbýlishúsum.
Hefur að undanförnu verið unnið
að því að reisa xirðinxu umhverf-
is svæðið, ok hefur hún vakið
forvitni fjölmarjfra vegfarenda.
Kristinn Magnússon verkfræð-
ingur hjá skrifstofu Borgarverk-
fræðings, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þetta væri
gert af öryggisástæðum. Landið
þarna væri botnlaus mýri, og yrðu
skurðir á byggingasvæðinu því
djúpir, frá þremur metrum upp í
sjö til átta metrar á dýpt. „Við
töldum því ekki annað forsvaran-
legt, en að girða svæðið af“ sagði
Kristinn, „vegna þess að nú fer
vetur senn í hönd með myrkri ,og
umhleypingasömu veðri. Ógirt
hefði svæðið getað orðið börnum,
sem raunar öðrum, hættulegt."
Um 5 milljóna kr. rekstrarhagnaður RARIK 1979:
Unnið að nýbygging-
um fyrir rúmlega 7,6
milljarða króna
UNNIÐ var að nýbyggingum
á vegum Rafmagnsveitna
ríkisins á sl. ári fyrir rúm-
lega 7,6 milljarða króna og er
þar um að ræða 42% aukn-
ingu frá árinu áður. Hliðstæð
hækkun árið 1978 var 14,3%,
að því er segir í nýbirtri
ársskýrslu Rafmagnsveitna
ríkisins fyrir árið 1979.
Þar segir, að fjárfestingar
til nýbygginga skiptist á eft-
irfarandi hátt:
— Til vatnsaflsvirkjana 18
milljónir króna, en það er
vegna Gönguskarðsárvirkjun-
ar og Lagarfossvirkjunar. Auk
þess var varið 279 milljónum
króna til rannsókna vegna
virkjunar á vatnasvæði Jök-
ulsár í Fljótsdal.
— Til dísilstöðva 11 milljónir
króna, en það er aðallega
vegna aukins vélakosts á Þórs-
höfn og nýrra stöðvarhúsa í
Grímsey, á Þórshöfn og Stöðv-
arfirði. Uppsett afl í árslok
var 30.516 kílówött.
— Til fjarvarmaveitu á Höfn
47 milljónir króna.
— Til stofnlína 1229 milljónir
króna, en það er aðallega
vegna lína, Vegamót—Ólafs-
vík, Þverárfjall—Skagaströnd,
Dalvík—Ólafsfjörður og
Vopnafjarðarlínu.
— Til aðveitustöðva 528 millj-
ónir króna, en það er aðallega
vegna aðveitustöðva í Ólafs-
vík, á Skagaströnd, Akureyri,
Dalvík, Kópaskeri, Stuðlum í
Reyðarfirði og Hvolsvelli.
— Til innanbæjarkerfa 738
milljónir króna.
— Til sveitaveitna 981 milljón
króna.
— Til fasteigna, áhalda og
bifreiða 557 milljónir króna.
— Til byggðalína 3.148 millj-
ónir króna, þ.e. aðallega til
Vesturlínu og aðveitustöðva
að Brennimel, Hrútatungu,
Glerárskógum, Mjólká og
Varmahlíð.
í ársskýrslunni segir að
rekstrarhagnaður hafi verið
um 5 milljónir króna á sl. ári.
Rekstrargjöld voru 10.265
milljónir króna, þar með tald-
ar 1.394 milljónir króna í
afskriftum, en tekjur 10.270
milljónir króna, án stofnfjár-
framlaga, sem námu um 1.282
milljónum króna.
Heildaraukning orkuöflun-
ar, eigin orkuvinnslu og að-
keyptrar, var 10,5%, en árið
áður var 10,7% minnkun. Eig-
in orkuvinnsla 114 GWh skipt-
ist þannig, að 90 GWh eða
78,9%, voru frá vatnsaflsvirkj-
unum, en 24 GWh eða 21,1%
frá varmaaflsstöðvum.
Giröinxin mikla á EiöisKrand í Reykjavik. sem (firt hefur verið umhverfis byKKÍnKasvæöi ve^na slysahættu. Eins
<»K sjá má nær KÍrðinKÍn lanKt í sjó fram. svo ekki verður heÍKlum hent að komast inn á svæðið.
Ljóxni: Ólafur K. Max.
Electronic Chef
fer sigurför um allt land
KENWOOD ElectronicChef fæst á eftirtöldum stöóum:
Rafha, Austurveri
Dómus, Laugavegi 91
JL hÚSÍÓ, Hringbraut 121
Orin, Akranesi
JL hÚSÍÓ, Borgarnesi
Einar Stefánsson, Raftækjaverslun, Búðardal
Kaupfélag Saurbæinga, Skriðuiandi, Dai
Póllinn hf„ ísafirði
Verslun Einars Guófinnssonar Boiungarvík
Rafbær sf.. SigiufirOi
Kaupfélag Skagfiróinga, Sauðárkróki
Kaupfélag Húnvetninga, Biönduosi
Hegri, Sauðárkróki
Kaupfélag Eyfiróinga, Akureyri
Askja hf„ Husavík
Verslunin Mosfell, Heitu
Radío og sjónvarpsstofan, Seifossi
Kaupfélag Árnesinga, Seifossi
Rafbær Hveragerði
Stafnes Sf., Vestmannaeyjum
Kjarni hf„ Vestmannaeyjum
Stapafell hf„ Kefiavik
Hér er ein lítil
systir..
CHEFETTE
....og hér er
önnur
MINI
LHEKLAhf
LAUGAVEG1170-172 -SÍMAR 21240-11687