Morgunblaðið - 17.08.1980, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
Sólskin
og
sunnan-
vin d ur
í s umar-
búðunum
við
Hóla va tn
Svolítið kalt fyrst.
Sumarbúðir KFUK og KFUM við Ilólavatn í Eyjafirði hafa nú senn
starfað í sextán sumur, voru vígöar til æskulýðsstarfs þessara félaga 20.
júní 1965. Aðsókn hefir verið mikil, og sýnir hún þörfina fyrir þessa starfsemi
í þágu barna og unglinga. Þarna hafa dvalist stúlkna- og drengjahópar
nokkurn veginn til jafns, og dvalartími hvers hóps er yfirleitt tvær vikur.
Foringi drengjahópanna hefir verið Björgvin Jörgensson, en stúlknahóp-
anna Þórey Sigurðardóttir.
SumarKPstir saman komnir.
Þetta var xóður sopi.
Þegar tíðindamann Mbl.
bar að garði um daginn,
dvöldust þarna 24 stúlkur,
flestar 11 og 12 ára gamlar
og eiga heima á Akureyri,
Siglufirði, Dalvík, í Ólafs-
firði og Skagafirði.
— Þetta er nú fámenn-
asti hópurinn í sumar,
sagði Þórey forstöðukona,
en flest getum við tekið 28 í
einu. Húsakynnin eru mið-
uð við þá tölu. Svo erum við
fjórar starfandi hér, auk
mín Ingileif Jóhannesdótt-
ir, sem annast eldhússtörf-
in, og þær Anna Elísa
Hreiðarsdóttir og Hólm-
fríður Þóroddsdóttir, báðar
nýlega fermdar, sem eru
nokkurs konar liðsstjórar,
eru með stulkunum við
leiki þeirra og útistörf.
— Hvernig er dagskráin
eða helstu liðir hennar?
— Dagurinn hefst nú á
því, að telpurnar eru vakt-
ar kl. 8.30, og svo fer fram
fánahylling hér úti á hóln-
um. Eftir það er sest að
Hólavatn og sumarbúðir KFUK og KFUM,
Gaman að busla i vatninu. þegar heitt er i veðri.
morgunverðarborði, og það
er föst regla hér að syngja
borðsálm á undan hverri
máltíð. Að loknu borðhaldi
er Biblíulestur og fræðslu-
stund. Eftir það er
dagskráin býsna frjálsleg
og óbundin, og það fer
mikið eftir veðri, hvað telp-
urnar taka sér fyrir hend-
ur. Mikið er um íþróttaæf-
ingar af ýmsu tagi og
margs konar keppni, en
þess háttar er nú kannski
betur skipulagt hjá drengj-
unum. Við eigum þrjá báta,
og þeir eru mikið notaðir á
vatninu. Það er vitanlega
föst regla, að allir, sem fara
í bátana, séu í björgunar-
vestum og það er algert
skilyrði fyrir notkun bát-
anna. En ég hef ekki orðið
vör við annað en allir fari
varlega á vatninu, og báts-
ferðirnar eru afskaplega
vinsælar. Svo þykir krökk-
unum afskaplega skemmti-
legt að synda og busla í
vatninu, þegar hlýtt er í
veðri eins og núna, og hér
hafa ýmsir staðir við vatn-
ið fengið ákveðin nöfn, svo
sem Spánn og Mallorka,
fjarska vinsælir bað-staðir.
Þar að auki má nefna, að
telpurnar dunda mikið við
búin sín hérna uppi í hól-
unum, jafnvel þær eldri, og
hafa mikla ánægju af því.
Búin eru bæði mörg og
myndarleg og haganlega í
sveit sett.
— En hvað er gert, ef
veður spillist?
— Þá er nóg að fást við
hér inni, ef ekki þykir vært
úti. Það er mikið til af
Lego-kubbum og alls konar
leikföngum öðrum, og hér
eru spil, töfl og ýmsar
gestaþrautir. Svo eigum við
ágætt bókasafn.