Morgunblaðið - 17.08.1980, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
Kristneshæli:
Rabbað við Brynjar
Valdimarsson lækni
Á Kristnesi í Eyjafirði,
landnámsjörð Heljía Magra,
hefur lengi verið starfrækt
berklavarnahæli og hafa
þar ófáir íslendingar dval-
ið. Nú hefur berklum verið
útrýmt og því þótti okkur
tilhlýðilegt að forvitnast um
hlutverk Kristnesshælis i
dag.
„Síðasti berkla-
sjúklingurinn
útskriíaður 1976“
„Kristneshælið var upphaf-
lega berklavarnahæli, byggt
1927 fyrst og fremst fyrir
atbeina nokkurra manna, þar á
meðal má nefna Jónas Þor-
bergs, Ragnar Ólafsson og Jón-
as. Jónsson frá Hriflu," sagði
Brynjar Valdimarsson, yfir-
læknir í afleysingum fyrir nú-
verandi yfirlækni Úlf Rafns-
son.
„Jónas Rafnar var fyrsti
yfirlæknirinn, var hér sam-
fleitt í þrjátíu ár, síðan tók
Snorri Ólafsson við og Úlfur
Ragnarsson hefur svo verið
yfirlæknir frá 1976, eða sama
ári og síðasti berklasjúklingur-
inn útskrifaðist. 1960 var byrj-
að að taka inn annars konar
sjúklinga, aðallega elli og
hjúkrunarsjúklinga og nú er
hér mestmegnis gamalt fólk
auk þeirra, sem af Hkamlegum
og félagslegum ástæðum þurfa
að vera hér.
„Erfitt að fá
starfsfólk“
Hér er nú pláss fyrir 69
sjúklinga og á launaskrá eru
um 50 manns. Það gengur
erfiðlega að fá hjúkrunarfólk
til vinnu hér eins og oft vill
verða á langlegu og hjúkrunar-
deildum. Meiri hluti sjúkl-
inganna kemur frá norðaust-
urlandi. Við höfum einnig tekið
við áfengissjúklingum í afvötn-
un og ætlunin er að reyna að
koma upp slíkri deild hér. Það
má segja að við séum þeir einu,
hér á norðurlandi, sem fáumst
við þetta, þó önnur sjúkrahús
geri það auðvitað í neyðartil-
fellum. Hér er lítið um vinnu
sjúklinga, eins og var á meðan
þetta var berklavarnahæli.
Flestir hér eru óvinnufærir, þó
örfáir séu færir um að vinna
létta handavinnu,
Fyrsta opinbera
stofnunin, sem
hituð var
með jarðvarma
Eiríkur Brynjólfsson, sem
var hér forstöðumaður í hálfa
öld hefur gert mikið til að
prýða umhverfið hér og tekist
sérlega vel. Hann lét af störf-
um hér um áramótin og Bjarni
Arthúrsson, hefur nú tekið við.
Þetta var fyrsta opinbera
stofnunin, sem hituð var upp
með jarðvarma, en nú er svo
komið að rúmlega helmingur
stofnunarinnar er hitaður upp
með olíu.
Lengst af var það þannig að
hér á staðnum var húsnæði
fyrir alla starfsmenn, en á
seinni árum hefur þeim fjölgað
svo að við verðum að keyra
starfsfólkið hingað frá Akur-
eyri. Fjárhagslegur rekstur
held ég að gangi sæmilega nú,
við fáum nú ekki lengur dag-
gjöld, heldur ákveðna upphæð
mánaðarlega og ég held að það
gangi að láta enda ná saman þó
erfitt sé.“
Brynjar Valdimarsson.
IHmgnnMafrib
AFGREIÐSLA:
83033