Morgunblaðið - 17.08.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
25
Botswana
Seretse Khama forseti Bots-
wana lést nýlega. Eggert Ás-
Keirsson framkvamdastjóri
Rauða kross íslands heimsótti
landið ok hitti þá m.a. Khama að
máli. Sejíir hann í eftirfarandi
Krein litillega frá landi og þjóð.
Undanfarið ár hef ég komið
tvívegis til Botswana. í fyrra
haust var ástandið heldur hallær-
islegt í sunnanverðu landinu
þurrkar miklir og ég fékk þá
tilfinningu að landið hefði upp á
harla lítið að bjóða. Þegar ég svo
kom þangað aftur í vor hafði allt
breyst til batnaðar, enda hafði
regn verið með skásta móti og
mjög miklu betra hljóð í öllum
sem ég hitti að máli.
Þannig stóð á ferðum mínum að
ég var sendur til nokkurra ríkja í
sunnanverðri Afríku af Alþjóða-
sambandi Rauða kross félaga til
að fylgjast með framvindu þróun-
aráætlunar sem stefnt hefur að
því að efla sjálfsbjargarviðleitni
þeirra þjóða sem í hlut eiga. Er
Ieitast við að ná því marki innan
verkefnasviðs Rauða krossins á
fimm ára bili.
Botswana ber mjög merki ná-
vistar Suður Afríku með kostum
þess og göllum. Margt manna þar
í landi er landflótta frá S-Afríku,
t.d. vegna verkalýðsbaráttu eða
hjónabanda þar sem annar maki
er litaður. Áð sjálfsögðu get ég
engar almennar ályktanir dregið
af veru minni í landinu eftir tvær
vikur. Þó fór ég víða og hitti
marga í starfi mínu.
Af þeim löndum í sunnanverðri
Afríku, sem ég hef heimsótt til
þessa dags var langmest ró yfir
Botswana á efnahags- og stjórn-
málasviðinu. Seretse Khama for-
seti landsins virtist með eindæm-
um vinsæll og stjórna landi sínu
með spekt. Hinsvegar hafði flokk-
ur hans svo mjög yfirgnæfandi
meirihluta að það eitt, sér gæti
talist hættulegt eðlilegri lýðræðis-
þróun.
Mikil áform eru uppi í landinu
um framfarir. Það sem ég kynnt-
ist mest eru áætlanir um frum-
heilbrigðisþjónustu, en stefnu Al-
þjóðaheilbrigðisþjónustunnar er
Eggert
Asgeirsson
segir frá
heimsókn
til landsins
nú mjög farið að gæta víða um
Afríku og er Rauði krossinn í
Botswana undir forystu forseta-
frúarinnar Ruth Khama þar mik-
ilvægur liður, en valddreifing og
þátttaka af hálfu flokksins eru
undirstöðuþættir.
Vegna þessa hlutverks hennar
hitti ég hana nokkrum sinnum.
Það gladdi hana auðsæilega, þegar
ég sagði henni frá því að Islend-
ingar hefðu fylgst vel með og haft
samúð með fjölskyldunni á útlegð-
arárum þeirra á Bretlandseyjum.
Lady Khama er af bresku bergi
brotin sem fyrir 30 árum var miki
hneysa talin af sumum að þau
blönduðu blóði. Þegar ég svo síðar
hitti forsetann Seretse Khama
sjálfan rifjaði hann þetta upp.
Þótt Seretse Khama væri orðinn
58 ára þegar ég sá hann og væri
haldinn alvarlegum sjúkdómi var
hann unglegur, grannur og spengi-
legur, einstaklega glaður og léttur
í viðmóti, hló dátt að spaugsyrðum
og lét óspart uppi skoðanir sínar á
málefnum álfunnar, en hann var á
leið á S-Afríkuráðstefnuna í Lus:
aka í Zambíu tveim dögum síðar. í
vor var líka léttara yfir mönnum,
en áður í þessum heimshluta, þá
hafði komist friður á í Zimbabwe,
flóttamennirnir horfnir heim
flestir og Mozambík hafði opnast
mjög og endurskipulag stóð yfir í
frelsisátt undir stjórn Machel.
Khama sagði um þá þróun að
sennilega hefði Machel komist á
snoðir um það eins og fleiri að það
væri erfitt að búa í Útópíu.
Greinilega undi forsetinn sér
vel meðal þegna sinna. Hann hló
að sögum þeirra og var mjög
óformfastur í framgöngu.
Það hefur kallað á mikla stjórn-
visku að stýra landinu til sjálf-
Nokkrir nýir veit-
ingastaðir með ófag-
lært þjónustufólk
„ÞAÐ er rétt, að nokkrir nýjir
staðir, sem fengið hafa vínveit-
ingaleyfi, eru með ófaglært
þjónustufólk. Skv. samningi milli
Félags framreiðslumanna og Sam-
bands veitinga- og gistihúsaeigenda
eru meðlimir sambandsins skuldb-
undnir að hafa aðeins faglært fólk i
þessum störfum. Við höfum ekki
enn kannað. hversu margir af
áðurgreindum aðilum eru meðlimir
í S.V.G. og höfum ekki gert neitt
enn þá, erum að kanna málið."
sagði Sveinbjörn Þorkelsson for-
Útlending-
um fækkar í
landhelginni
SAMKVÆMT upplýsingum Land-
helgisgæzlunnar eru færeysku
skipin, sem verið hafa á veiðum
hér við land í sumar, nú flest
horfin úr landhelginni. Síðdegis í
gær höfðu færeysku skipin öll
nema 2 tilkynnt Gæzlunni að þau
væru lögð af stað heim á leið.
Færeyingarnir fylltu kvóta sinn í
vikunni. Belgar mega hins vegar
veiða nokkurt magn til viðbótar og
voru tvö belgísk skip að veiðum
undan Suðurlandi í gær.
stæðis og sigla milli skers og báru
í ófriðarhættu þessa heimshluta.
Það er erfitt að stjórna landinu
vegna flókinnar ættflokkaskipun-
ar. Landið er geysi stórt eða 600
þús. ferkílómetrar og íbúatalan
800 þúsundir. Dreifbýlið, fátæktin,
menntunarskorturinn og sjúk-
dómar gera það að verkum að
landið á erfitt uppdráttar og háð
S-Afríku í ýmsu tilliti. Fyrirtæki
eru gjarnan í eigu útlendinga.
Gjaldmiðillinn er pula. Pula er
ritað á skjaldarmerki landsins og
pula þýðir vatn sem er helsta
náttúruauðlind landsins. Því mið-
ur hefur tekist svo illa til að
boranir og aukin tækni við að ná
upp þessari auðsuppsprettu hefur
orðið til að fjölga nautgripastofn-
inum og allt of nærri gróðri
landsins hefur gengið. Er gripið til
marrgvíslegra ráða til að snúa
þróuninni við að takmarka bú-
stofn, en lítt hefur miðað.
Norðurhluti landsins hefur orð-
ið fyrir miklum búsifjum vegna
gin- og klaufaveiki og hefur verið
komið upp margvíslegum varnar-
aðgerðum umhverfis. Menn voru
bjartsýnir á að tekist hefði að
hefta sjúkdóminn. Vegakerfið er
mjög stórt enda eru eyðimerkur
og saltsteppur í stórum hluta
landsins. Enn er mikið frumstætt
dýralíf í landinu sem þó stendur
mikil hætta af veiðiþjófum. Rétt
áður en ég kom til Maun í
norðanverðu landinu hafði verið
tekinn þjófur með lVi tonn af
Seretse Khama
fílabeini. Ekki hafði verið hægt að
koma nema óverulegri sekt á hann
fyrir athæfið og ekki tókst að
upplýsa neitt um afbrotahring
þann sem að honum stóð.
Ibúarnir voru einstaklega þægi-
legir og gestrisnir. Þrátt fyrir
fátæktina voru þeir ánægðir og
bjartsýnir, einkum varð þess vart
í Francistown en járnbrautin til
Zimbabwe var komin í fullan gang
á nýjan leik. Vonandi auðnast
þeim Botswanamönnum að halda
friðnum og forðast rót í kjölfar
forystuskiptanna í landinu.
Á forsetasetrinu hitti ég ein-
stakiega skemmtilega 92 ára
gamla frænku Lady Khama sem
býr þar hjá þeim. Hún bað mig
endilega að senda sér kort með
mynd frá ísiandi. Við höfum síðan
skipst á bréfum. í bréfi sem ég
fékk frá henni fyrir skemmstu
kom fram þessi djúpstæði órói
fólks yfir ófriðarhættu og tog-
streytu sem veldur svo mikilli
hörmung einmitt þeim sem síst
skyldi.
Þótt nú hafi verið greint frá
Botswana vegna fráfalls Seretse
Khama má geta þess að þróunar-
áætlun Rauða krossins í sunnan-
verðri Afríku er til komin vegna
óróleika og annars ófremdar-
ástands í þeim heimshluta. Hún
nær einnig til Angóla, Zambíu,
Malawi, Swazílands og Lesótó. Þá
eru Tanzanía, Zimbabwe og
Mósambík nýkomin með til starfa
af þrótti. Starfsaðferðir þær sem
teknar hafa verið upp brjóta blað í
sögu Rauða krossins og ekki ólík-
legt að komi að gagni í fleiri
heimshlutum. Starf það, sem ég
hef haft með höndum í þriggja
manna vinnuhópi, er einmitt að
leitast við að meta starfið í hinum
ýmsu löndum og benda á það sem
betur eða miður kann að fara.
Ég tel að íslendingar ættu að
taka aukinn þátt í starfi sem
þessu. Þótt löndin sem í hlut eiga
séu okkur fjarlæg er samt furðu
margt sem við getum lagt fram.
Við erum fyrir stuttu komin af
áþekku þróunarstigi, við geymum
sjálfstæðisbaráttuna í fersku
minni og höfum vonandi ekki enn
misst sjónar af gildi einstaklings-
ins.
Ekki hvað síst getum við kennt
smáþjóðum og ríkjum nýstöðnum
upp úr öskustónni að þau geti ef
þau vilji og reyni verið jafnokar
hvers sem er.
maður Félags framreiðslumanna,
er Mbl. spurði hann hvort fram-
reiðslumenn teldu eigendur nokk-
urra nýrra veitingastaða brjóta
reglur á þeim, með þvi að hafa við
störf ófaglært þjónustufólk.
Sveinbjörn sagðist ekki enn vita,
hversu margir staðir þetta væru, né
hversu margar stöður væri þarna
um að ræða. Þá sagði hann mjög
erfitt að gera sér grein fyrir hvort
atvinnuleysis gætti í stéttinni. Það
útskrifast 6—10 nemar á ári hverju
frá Hótel- og veitingaskóla íslands.
Hluti af þeim fjölda fer að læra til
kokks og margir sækja í aðra
atvinnu, bæði vegna þess að ekki
fæst nógu gott starf eða alls ekkert.
Það er því ljóst, að nokkurt dulbúið
atvinnuleysi ríkir hjá stéttinni."
Aðspurður sagði Sveinbjörn að
þjónum bæri að fá greitt þjónustu-
gjald, sem er 10,56% af söluverð-
mæti, en grunnkaupstrygging væri
aðeins 290—310 þús. kr. á mánuði.
„Ég veit ekki hvað þeir borga
ófaglærðu fólki, en þeir græða áreið-
anlega ekki á þessu, því góð þjónusta
er undirstaða þess að fólk sæki
staðina."
Hann sagði í lokin, að réttarstaða
þeirra í þessu máli væri ekki ljós,
nema hvað varðar samninginn við
S.V.G., en unnið væri að könnun
málsins í stjórn félagsins þessa
daga.