Morgunblaðið - 17.08.1980, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
+
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
JÓHANNA JONSDÓTTIR,
frá ísafirói,
Vesturgötu 113, Akraneai,
lézt í Sjúkrahúsi Akraness, föstudaginn 15. ágúst.
Halldóra Ingimundardóttir, Péll Einarsson,
Magdalena Ingimundardóttir, Hermann Jónsson,
Auðbjörg Ingimundardóttir, Guömundur Þorbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Yndislegi litli drengurinn okkar,
ANDRÉS,
Marfubakka 8,
er látinn. Jaröarförin hefur fariö fram.
Þökkum auösýnda samúö.
Þórunn Andrésdóttir,
Stafán Andrésson.
Útför, + GUDBJARGAR EINARSDOTTUR,
Meöalholti 11,
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 19. ágúst kl. 15.00.
Magnús Einarsson.
+
Móöursystir mín,
JORUNN ANNA STEINDÓRSDÓTTIR,
frá Dalhúsum,
sem andaöist 3. ágúst veröur jarösett frá Fossvogskirkju,
þriöjudaginn 19. ágúst kl. 13.30.
Anna Friöríksdóttir,
Orri Gunnlaugsson.
+
Maöurinn minn, faöir, tengdafaöir, og afi okkar,
ÞORLEIFUR ÞÓRÐARSON,
Laugarásvegi 29,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 18. ágúst kl. 3.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en bent á líknarstofnanir í minningu
hans.
Kristjana Kristjánsdóttir,
örn Þorleífsson, Elsa Árnadóttir,
Rosemarie Þorleífsdóttir, Sigfús Guömundsson,
Einar Kristján Þorleifsson,
María Þorleifsdóttir,
Björg Þorleífsdóttir,
Olga Bergljót Þorleifsdóttir,
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför,
HARALDAR ALFREOS HÓLMS EYÞÓRSSONAR,
húsvaröar Langholtsskóla.
Guö blessi ykkur öll. Kristín Guönadóttir,
Þórunn Haraldsdóttir,
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Haraldur Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum inniiega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
HJALTA GUÐNASONAR,
Hallveigarstíg 8.
Hulda Guömundsdóttir,
Margrát Hjaltadóttir, Peter Medek,
Vigdfs Hjaltadóttir, Steingrfmur Gunnarsson,
Björk Hjaltadóttir, Guðmundur Brynjólfsson,
og barnabörn.
Minning:
Þorleifur Þórðarson
fyrrv. forstjóri
Fæddur 27. apríl 1908.
Dáinn 7. ágúst 1980.
Kennari minn í 36 ár, Þorleifur
Þórðarson, verður borinn til mold-
ar mánudaginn 18. þ.m. Þetta er
raunar óvenjulega langur lær-
dómstími, enda ekki um venju-
legan skólalærdóm að ræða nema
fyrstu árin, en síðan hófst tímabil
náms í störfum á sviði ferðamála.
Þorleifur var einn fárra frum-
herja þessarar atvinnugreinar á
íslandi. Margir eru þeir þættir
íslenskra ferðamála, sem í dag
þykja sjálfsagðir og eðlilegir, en
Þorleifur þurfti að hafa mikið
fyrir að hrinda í framkvæmd,
sökum skorts á trú annara á því
þjóðþrifaverki, sem hann var að
vinna. En þetta hefur ávallt verið
hlutskipti frumherjanna. Hans
gæfa og gieði var þó að sjá þann
árangur verka sinna á sviði ís-
lenskra ferðamála, að þau eru nú
sjálfstæð og áríðandi atvinnu-
grein í íslenskum þjóðarbúskap. Á
sama hátt var það gæfa íslenskra
ferðamála, og okkar, sem síðar
störfuðum með Þorleifi, að njóta
forystu hans og leiðsagnar í upp-
hafi.
En Þorleifur var mér meira en
leiðbeinandi og kennari í þessari
ungu atvinnugrein. Hann var mér
kær vinur. Þeirri vináttu fylgdi
virðing og traust, sem einnig
tengdi fjölskyldur okkar vináttu-
böndum.
Þegar staldrað er við á kveðju-
stund skýrast minningarnar og
liðnir atburðir leita á hugann, um
leið og mynd drengskaparmanns-
ins, Þorleifs Þórðarssonar, er mér
efst í huga. Glaður og reifur gekk
hann til starfs og leiks, en hlé-
drægni, alúð og trygglyndi voru
hans aðalsmerki. Að leiðarlokum
skal honum nú þökkuð leiðsögnin
með einlægum hug nemandans.
Megi íslensk ferðamál eignast sem
flesta forystumenn með hæfileika
og drenglyndi Þorleifs Þórðars-
sonar.
Með þakklæti og virðingu send-
um við Ragnheiður og Sigrún, frú
Kristbjörgu og börnum Þorleifs,
hugheilar samúðarkveðjur.
Birgir Þorgilsson.
Góður drengur og gegn er horf-
inn á vit feðra sinna.
Þorleifur Þórðarson, fyrrum
forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins,
andaðist í Borgarspítalanum í
Reykjavík að kvöldi 7. ágúst sl.
Hann var fæddur hinn 27. apríl
1908 í Ólafsvík, sonur hjónanna
Þórðar Matthíassonar, formanns
og smiðs þar, og konu hans,
Bjargar Þorsteinsdóttur. Ólst
hann upp hjá Magnúsi Jóhannes-
syni, verkamanni í Ólafsvík og
konu hans, Þórunni Árnadóttur.
Af engum efnum lagði hann á
unga aldri ótrauður út á mennta-
brautina, sem var miklu meiri
erfiðleikum bundið í þá daga en nú
gerist, þar sem þá voru ekki
námslán eða námsstyrkir til að
létta róðurinn. Hann brautskráð-
ist úr Verzlunarskóla íslands árið
1929 og frá Firecraft College,
Birmingham, Englandi, 1931—
1932, Volkshochschule, Comburg,
Þýskalandi, 1932—1933. Þá stund-
aði hann og nám í Paris 1933. Svo
hart lagði hann að sér við námið
þar, að hann bjó í tjaldi utan
borgarinnar og hjólaði í skólann.
+
Ástkær eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og
langamma,
JÓNA SALVÖR EYJÓLFSDÓTTIR,
Uröarstíg 14,
veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 19. ágúst kl.
1.30.
Þeir sem vildu minnast hennar, vinsamlegast láti líknarstofnanir
njóta þess.
Sigurður Sv. Gíslason,
Garöar R. Sigurösson, Sigrún J. Siguröardóttir,
Rannveig Sigurðardóttir, Ingólfur K. Sigurösson,
Siguröur Sv. Sigurðsson, Steingrímur O. Sigurösson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför tengdamóöur
mlnnar og ömmu okkar,
ÞÓRDÍSAR ANDRÉSDÓTTUR.
Svava Stefánsdóttir, Snæbjörn Aöalsteinsson,
Sveinn Ben Aðalsteinsson, Þórdfa Aðalsteinsdóttír,
Kristborg G. Aðalsteinsdóttir, Stefén Aöalsteinsson,
Sesselja Aöalsteinsdóttir, Anna Aöalsteinsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö viö andlát og útför,
MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR
fré Kolbeinsé.
Vandamenn.
Bróöir okkar,
SIGMUNDUR JÓHANNSSON,
fré Skógum,
sem andaöist 7. ágúst sl., veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju,
miövikudaginn 20. ágúst kl. 13.30.
Afþökkum blóm og kransa, en þeim sem vildu minnast hans, er
bent á líknarstofnanir.
Systkinin.
+
Kveöjuathöfn um manninn minn,
GUOMUND TÓMAS GUÐMUNDSSON
fré Hellisandi,
Miöbraut 10, Seltiarnarnesi,
veröur í Fossvogskirkju þriöjudaginn 19. égúst kl. 10.30 f.h.
Jarösett veröur fré Ingjaldshólskirkju. Hellisandi laugardaginn
23. égúst kl. 14.00. Unnur Pjetursdóttir.
Slíkt gera naumast aðrir en þeir,
sem bera óslökkvandi menntaþrá í
brjósti og búa yfir fádæma vilja-
þreki og dugnaði.
Verzlunarstjóri var hann í
verzluninni Vísi í Reykjavík
1929—1931, bókhaldari hjá Bóka-
verzlun E.P. Briem í Reykjavík
1933—1936. Skrifstofustjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins 1936—
1939, er starfsemi hennar var lögð
niður, og forstjóri hennar um
árabil frá því hún tók aftur til
starfa 1946. Kennari var hann við
Samvinnuskólann 1935—1946, og
kenndi auk þess við ýmsa aðra
skóla í Reykjavík. Hann hefur
skrifað kennslubók í bókfærslu og
annast bréfanámskeið í reikningi
og bókfærslu á vegurm Bréfaskóla
SIS, enda með afbrigðum tölvís.
Þorleifur kvæntist 15. ágúst
1934 Annie, f. 27. júlí 1911, dóttur
Karls Chaloupec, ritara stein-
smiðafélagsins í Bæheimi, og varð
þeim tveggja barna auðið, þeim
Erni og Rosemarie, sem nú eru
löngu fulltíða atorkufólk. Konu
sína missti Þorleifur hinn 28.
desember árið 1948.
Hinn 21. september 1952 kvænt-
ist Þorleifur öðru sinni, Kristjönu
Sigríði, f. 14. marz 1921, Krist-
jánsdóttur Sigurðar, formanns á
Kirkjubóli í Valþjófsdal, Önund-
arfirði, Eyjólfssonar, og lifir hún
mann sinn. Þau eignuðust saman
fjögur börn, sem nú eru öll
uppkomin, þau Einar, Björgu,
Maríu og Olgu, hið mesta mann-
dóms og myndarfólk. Kristjana
reyndist eiginmanni sinum frá-
bærlega traustur og góður lífsföru-
nautur í blíðu og stríðu, enda mat
hann hana mjög að verðleikum.
Þetta, sem nú hefur verið rakið,
lýsir í stórum dráttum hinni ytri
umgjörð æviferils Þorleifs. Og þó
að þar af megi ráða óvenjulegan
dugnað hans og hæfileika, langt
ofar meðalmennskunni, er þó hitt,
sem enn er ósagt og erfiðara er að
lýsa með orðum, mun merkari
þáttur í æviferli þessa ágæta
drengs.
Hann var frábærlega ættræk-
inn og umhyggjusamur um skyldu-
lið sitt allt. Aldrei átti hann svo
annríkt, að ekki hefði hann tíma
til að líta inn til ættingja sinna og
vina, væri hann staddur á slóðum
þeirra. Og alltaf kom hann með
birtu og yl með sér og var öllum
hinn mesti aufúsugestur. Ættingj-
ar og vinir trega nú óvenju
heilsteyptan og góðan dreng, en að
sjálfsögðu er missirinn sárastur
eiginkonu og börnunum hans öll-
um.
Þegar slíkir hverfa héðan af
heimi, finnst okkur sem opið skarð
og ófyllt standi eftir. Og þó að
sagt sé, að maður komi í manns
stað, hverfur alltaf eitthvað íeð
hverjum einum, sem ekki v< lur
að fullu bætt af öðrum. En þ„ð er
huggun harmi gegn, að menn eins
og Þorleifur Þórðarson eiga góða
heimvon. Hann lifði ekki fyrst og
fremst sjálfum sér, heldur miklu
fremur fjölskyldu sinni, ættingj-
um sínum öllum og vinum. Kær-
leikurinn var honum í blóð borinn,
enda var hann elskaður og virtur,
ekki aðeins af sínum nánustu,
heldur einnig þeim, sem áttu við
hann samskipti, meiri eða minni á
lífsleiðinni.
Þorleifur var óvenjulega hlýr og
aðlaðandi í allri sinni framkomu.
Hann var að eðlisfari ör í lund, en
hafði alla jafnan góða stjórn á
L n egsteinner varanlegt ninnismerki
Framteiðum ótal tegundir legsteina. Allskonar stærðir og gerðir. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjðf um gerð og val legsteina.
B S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA ■ SKEMMUVB3148 SftvS 76677