Morgunblaðið - 17.08.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
27
skapi sínu. Kæmi fyrir, að eitt-
hvað brigði þar út af, var hann
manna sáttfúsastur, enda fjarri
skapi hans að eiga í útistöðum við
menn.
Þakkir ættingja og vina fylgja
honum héðan af heimi og óskir um
Guðsblessun í hinum nýja.
Eftirlifandi eiginkonu og börn-
um hans öllum, svo og öllum
vandamönnum, sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
Björg ívarsdóttir,
Valgarður Kristjánsson.
Kveðja frá Danmörku
Þorleifur Þórðarson er látinn
sjötíu og tveggja ára að aldri.
Þorleifur Þórðarson var um
margt óvenjulegur maður, fram-
koma hans öll og persónuleiki
voru ekki þess eðlis að ókunnum
útlendingi kæmi í hug við fyrstu
kynni að þar færi maður sem
fengist við jafn jarðbundin verk-
efni og markaðsmál á sviði ferða-
mála, enda virtist skaphöfn hans
fjarri gróðahyggju og fjármála-
vafstri, en þrátt fyrir það tókst
Þorleifi Þórðarsyni á löngum og
farsælum starfsdegi að kynna
ísland erlendis með þeim hætti, að
það varð forvitnilegur áfangi tug-
þúsunda útlendinga.
Það var fjarri Þorleifi Þórðar-
syni að taka sér stöðu í sviðsljós-
inu, en eðlislæg framkoma hans
varð til þess að hann eignaðist
kunningja víða um lönd og á
meðal flestra þeirra er hann hafði
samskipti við tókust kynni, sem
þróuðust í trygga vináttu sem
opnaði dyr í margar áttir til
mikils gagns fyrir íslenska ferða-
mannaþjónustu.
Norrænir stéttarbræður Þor-
leifs Þórðarsonar áttu þess oftar
en einu sinni kost að koma til
íslands. Þá var hann hinn ógleym-
anlegi gestgjafi sem opnaði augu
manna fyrir hinni stórfenglegu
náttúru Islands, en þá myndaðist
einnig vinátta milli mín og fjöl-
skyldna okkar, sem ekki gleymist.
Þorleifur Þórðarson var sér-
stakur persónuleiki, sem margir
sakna.
Kærar kveðjur,
Jörgen Helweg, ferðamálastjóri.
Danmörku.
Við fráfall Þorleifs Þórðarsonar
fyrrv. forstjóra vil ég, persónulega
og fyrir hönd samstarfsmanna
sem með honum störfuðu í hinu
fyrsta Ferðamálaráði, flytja nú að
leiðarlokum þakkir fyrir gengna
tíð — tryggð hans og vináttu, fyrir
fórnfúst starf að uppbyggingu ísl.
ferðamála og brautryðjendastarf
að ferðamannaþjónustu á íslandi.
Þorleifur Þórðarson starfaði
meginhluta ævi sinnar að ferða-
málum. Hann kom til starfa við
Ferðaskrifstofu ríkisins fyrir til-
stuðlan Eggerts P. Briem skömmu
eftir að fyrstu lög um íslensk
ferðamál tóku gildi árið 1936.
Síðan varð Þorleifur forstjóri
Ferðaskrifstofunnar árið 1946, en
hann lét af störfum vegna heilsu-
brests árið 1973.
Það væri of langt mál að segja
söguna alla um farsæl afskipti
Þorleifs Þórðarsonar af ísl. ferða-
+ Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall og útför konu
minnar, moöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
Bólataöarhlíö 30.
Aöali toinn Halldórsson,
Erla Aöalstsinsdóttir, Snorri Bjarnason,
Áslaug Aöalsteinsdóttir, Steinar Friðjónsson,
Brynhildur Aöalsteinsdóttir, Ólafur Sigurjónsson,
Aöalsteinn Emilsson, Edith Vivian Hansen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför bróöur míns,
BALDURS SIGURLÁSSONAR.
Fyrir hönd vandamanna.
Hulda Sigurlásdóttir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og útför
mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
BERNHARDS B. ARNAR,
kaupmanns,
Stórholti 17.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Hátúni 10 b, 4. hæð.
Rannveig Arnar,
Erna Arnar, Péll Vfgkonarson,
örn Arnar, Margrót Arnar,
Bförn Arnar, Anna Karen Kristjánsdóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÞORGERÐAR MAGNÚSDÓTTUR,
Meðalholti 2.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliös deildar 3B Landspítal-
ans- Magnús Karlsson, Erna Bjarnadóttir,
Erla Karlsdóttir, Jón Sveinsson,
og barnabörn.
málum og þátttöku hans í upp-
byggingu þeirra. Á hitt má gjarn-
an minna að oft sárnaði Þorleifi
afskiptaleysi og skilningsleysi
stjórnvalda á störfum hans, þó
hann hefði ekki um það mörg orð,
enda var Þorleifur enginn hávaða-
maður og þó ekki færi hátt kom
hann ótrúlega miklu í verk við
allar aðstæður.
Þorleifur Þórðarson stjórnaði
fyrirtæki sínu vel og aflaði því
mikilla tekna sem hann notaði til
að framkvæma hugmynd sína um
gistihús- og veitingarekstur í
heimavistarskólum landsins á
sumrin. Þá notaði hann tekjuaf-
gang stofnunarinnar til útgáfu
kynningarbæklinga ýmiskonar og
gerð landkynningarkvikmynda,
auk þess sem hann varði miklu fé
á þeirra tíma mælikvarða í aðra
þætti landkynningar.
Á árinu 1964 verða mikil þátta-
skil í ísl. ferðamálum, en þá voru
sett lög um Ferðamálaráð og varð
það ráðgefandi stofnun fyrir Al-
þingi og ríkisstjórn um allt sem
ísl. ferðamál varða. Þorleifur
Þórðarson fór ekki dult með að
hann var á móti þessari skipan, en
hann tók sæti í Ferðamálaráði
sem fulltrúi Ferðaskrifstofu ríkis-
ins og sat þar þangað til hann lét
af störfum sem forstjóri.
Þrátt fyrir að ágreiningur væri
á milli okkar Þorleifs um ýmis
framkvæmdaatriði í upphafi sam-
vinnu ræddum við þau ævinlega í
bróðerni og aldrei lét hann mig
gjalda þess þótt við værum ekki
sammála. Eftir því sem tímar liðu
og reynsla mín fór vaxandi skildi
ég betur sjónarmið hans — hann
benti mér á ýmsa hluti sem hafa
komið að notum og þá ekki síst að
vera umburðarlyndur og þolin-
móður við störf sem ekki njóta
nægilegs skilnings hjá almanna-
valdinu, þar gilti það eitt til
árangurs að hafa óbilandi trú á
málstaðnum, vinna hægt og síg-
andi að settu marki, en varast að
reisa sér hurðarás um öxl.
Þó veraldavafstur Þorleifs
Þórðarsonar, eins og flestra ann-
arra, væri háð brauðstritinu, var
hann alvarlega hugsandi um hin
duldu rök lífsins og tilverunnar.
Lestur góðra bóka og hugleiðingar
um efni þeirra milduðu hann og
tömdu skap hans og skapgerð alla,
því að eðli var Þorleifur mikill
skapmaður, en hann var hlýr
maður og viðræðugóður, tryggur
og vinafastur.
Þegar Þorleifur Þórðarson lét af
störfum sem forstjóri Ferða-
skrifstofu ríkisins sýndu starfs-
bræður hans í fjölþjóðlegri sam-
vinnu um ferðamál virðingarvott
og þakklæti fyrir góða og heilla-
ríka samvinnu, m.a. hlaut hann
heiðursviðurkenningu frá ferða-
málaráðum allra frændþjóða
okkar á Norðurlöndum. Þá var
þess óskað að einstaklingar og
fyrirtæki íslensk, sem að ferða-
málum starfa, að hann sæti fyrir
hjá listmálara, sem gerði af hon-
um mynd, sem um ókomin ár verði
höfð uppi í höfuðstöðvum ísl.
ferðamála, til að minna komandi
kynslóðir á hinn hógværa braut-
ryðjanda, sem á löngum starfsdegi
en við takmarkaðan skilning varð
til þess að gera varanlegt átak til
að undirbyggja unga atvinnugrein
í landinu, sem á eftir að eflast til
hags og menningarauka fyrir land
og þjóð.
Strax eftir að lát Þorleifs Þórð-
arsonar fréttist til útlanda hafa
mér borist óskir frá stofnunum og
einstaklingum erlendis um að
koma á framfæri við eiginkonu
Þorleifs og aðra aðstandendur
samúðarkveðjum og geri ég það
hér með. Eg og kona mín sendum
Kristjönu, eiginkonu Þorleifs,
börnum og öðrum nánum ættingj-
um innilegar samúðarkveðjur
Ludvig Hjálmtýsson.
Enn er komið að kveðjustund.
Nú við brottför Þorleifs Þórðar-
sonar. Margir hafa kvatt, lagt upp
í ferðina handan þetta fagra
sumar. Þorleifur fæddist í Ólafs-
vík 1908. Þegar hann er þriggja
ára deyr móðir hans Björg Þor-
steinsdóttir og Þorleifur flytst úr
föðurhúsi til hjónanna Þórunnar
og Magnúsar að Sjónarhóli. Ekki
vegna sárrar fátæktar, er þá var
viðloðandi sjávarplássin á Snæ-
fellsnesi. Faðir Þorleifs, var allvel
stæður á þeirra tíma mælikvarða
og fékkst við útgerð. Hinsvegar
var tiðarandinn og samhjálpin
þannig að sjálfsagt þótti að koma
börnum í fóstur við andlát for-
eldris. Úr þessum farvegi hefst
saga Þorleifs, saga um ræktun-
armann er sáði hlýju og nærgætni
þar sem hann fór. Ekki síðst átti
sú umhyggja hans við þegar um
lítilmagna var að ræða. Varfærni
Þorleifs gagnvart gróðri og mál-
leysingjum vakti og samferða-
menn hans til umhugsunar.
Hver aðdáandi er öllu lífi mikil-
vægur ekki síðst hrjóstrugu landi
þar sem samspil gróðurs, dýra og
manna er viðkvæmara fyrir en í
suðlægari löndum.
Eftil vill vegna þess gefum við
SJÁ NÆSTU SÍÐU
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
IVý liártiÁika
Dömur og herrar.
Klippum háriö eftir nýjustu tísku. Einnig litanir perman-
ent, næringarkúrar o.fl.
Hjá okkur er úrvals þjónusta. Reyniö viöskiptin.
HÁRSKERINN
Skúlagötu 54, sími 28141.
RAKARASTOFAN
Dalbraut 1, sími 86312.
HÁRSNYRTISTOFAN
PAPILLA
Laugavegi 24, sími 17144.