Morgunblaðið - 17.08.1980, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
okkur meiri tíma til að staldra við
og minnast förunauta á skilnað-
arstund. Nokkur kveðjuorð eru því
sérgæði sem við leyfum okkur í
fámenni þessara eyja og ekki að
ástæðulausu.
Þorleifur tók á móti mörgum
íerðamanninum frá fjarlægu
iandi á starfsæfi sinni. Aðkomu-
mönnum sem voru langt að komn-
ir til að dásama og teiga í sig
fegurð þessa lands. Óáþreifanleg
gæði er dag frá degi vilja oft
hverfa í önn hversdagsleikans.
Hann valdi sér starfsvettvang í
samræmi við innri köllun sína að
efla og gæða trú samlandans á
umhverfi sínu. Með elju og ósér-
hlífni stýrði Þorleifur og jók við
fyrirtæki sem hann trúði á og rak
eins og best gerist í fyrirtækja-
rekstri. Hann fetaði ósjaldan
troðnar slóðir. Eins og þegar hin
vannýttu en velbyggðu skólahús
úti á landsbyggðinni voru gædd
lífi í fegurð íslensk sumars með
heimsóknum ferðamanna, Eddu-
hótelin.
Minjagripaverslunin Baðstofan
á horni Hafnarstrætis og Kalk-
ofnsvegar var einnig skemmtileg-
ur afrakstur starfs Þorleifs við
Ferðaskrifstofu Ríkisins. Baðstof-
an var innréttuð í íslenskum
torfbæjarstíl og vakti athygli út-
lendinga á þeirri menningu er
hafði þrifist í torfhúsum. Auk
þess sem Baðstofan gaf islensku
ullar og minjagripavörunni hlý-
lega umgjörð. Starfsemi Baðstof-
unnar átti og eftir að verða vísir
að enn stærri þróun í sölu íslensks
handiðnaðar.
Þorleifur fór í fararbroddi.
Einnig á Lækjartorgi í júlímánuði
síðastliðnum er ég og kona mín
heilsuðum honum í síðasta sinn.
Þá hafði sjúkdómurinn er færði
hann yfir þröskuldinn mikla náð
þeim tökum að séð var hvert
stefndi. Samt sem áður lét hann
ekki aftra sér frá að styðja
hvalverndunarmenn með göngu
sinni af Miklatúni. Þannig var
lífsganga Þorleifs til hinstu stund-
ar. Nú þegar hann er allur af
lífsins torgi, skilur hann eftir spor
sem gott er að fylgja. Geymd sé
minning hans. Samúðarkveðjur til
eiginkonu hans og barna.
Sigurður Antonsson.
Fyrir röskum 35 árum kom
undirritaður, fávís sveitapiltur,
norðan úr Þingeyjarsýsiu, suður
til Reykjavíkur, í þeim tilgangi að
þreyta inntökupróf í Samvinnu-
skólann. Heimsstyrjöldinni síðari
var þá að ljúka, en hernám Islands
hafði sett sérstakan blæ á borgina
og borgarlífið.
Samvinnuskólinn var þá til
húsa á efstu hæð í gamla Sam-
bandshúsinu við Sölvhólsgötu.
Okkur væntanlegum nemendum
var gert að þreyta hæfnispróf í
nokkrum almennum námsgrein-
um, þar á meðal stærðfræði.
Prófið var munnlegt og fólst í
því að leysa uppi á skólatöflunni
dæmi úr reikningsbók Ólafs Daní-
elssonar. Reikningsþrautina man
ég nú ekki lengur, en prófdómar-
inn stendur mér enn ljóslega fyrir
hugarsjónum. Hann var meðal-
maður á hæð, fremur þéttvaxinn
með mikið dökkt liðað hár sem
skipt var í vinstri vanga. Ekki
varð á látbragði hans séð hvort
honum líkaði sú lausn er ég fékk á
viðfangsefninu, en hann þakkaði
kurteislega fyrir og leyfði að ég
mætti fara. Þannig kom Þorleifur
Þórðarson, kennari við Samvinnu-
skólann og síðar forstjóri Ferða-
skrifstofu ríkisins, mér fyrir sjón-
ir í fyrsta sinn. Seinna átti ég eftir
að kynnast honum meira og betur:
sem kennara mínum í tvo vetur,
sem húsbónda á Ferðaskrifstofu
ríkisins og leiðandi manns í ferða-
málum íslendinga eftir stríðið, og
mörg síðustu árin sem góðum
heimilisvini. Fyrir alla þá kynn-
ingu og vináttu ber ég fram
einlægar þakkir.
Um störf Þorleifs að íslenskum
ferðamálum má margt rita og
verður þó seint allt upptalið. Hann
var skrifstofustjóri Ferðaskrif-
stofu ríkisins árin 1936 til 1939 er
starfsemi hennar var lögð niður
vegna stríðsins, en forstjóri henn-
ar frá því hún tók aftur til starfa á
árinu 1946 og til 1. sept. 1973 er
hann lét af störfum að eigin ósk. Á
þessum tíma urðu stórstígar
framfarir og breytingar á ferða-
málum og ferðaþjónustu hér á
landi. Þar var Þorleifur brautryðj-
andinn. í samvinnu við Skipaút-
gerð ríkisins og síðar flugfélögin
íslensku hófust orlofsferðir Is-
lendinga til annarra landa. Mót-
taka erlendra ferðamanna með
stóru erlendu ferðamannaskipun-
um og síðar einnig með íslenskum
flugvélum og skipum var einn af
mörgum þáttum ferðamálanna
sem skipuleggja þurfti og móta án
þess að fyrir lægi innlend reynsla
sem nokkru næmi.
Kynning Islands sem ferða-
mannalands á erlendum vettvangi
var stórátak þar sem byggja varð
allt upp frá grunni. Minjagripa-
verslun Ferðaskrifstofunnar og
frumkvæðið um samkeppni að
gerð þeirra var algjört nýmæli hér
á landi og átti eftir að verða snar
þáttur í ferðaskrifstofurekstrin-
um og afla þjóðinni verulegs
erlends gjaldeyris. Með stofnun og
starfrækslu Edduhótelanna leysti
Þorleifur mikinn vanda: að koma
upp fyrirmyndar sumarhótelum
fyrir erlenda og innlenda ferða-
menn og nýta húsnæði hérðasskól-
anna, sem ella hefði staðið meira
eða minna ónotað sumarlangt.
Fjölmargt fleira mætti tilgreina,
en það verður ekki gert nú og mun
bíða síns tíma. Sem yfirmaður og
húsbóndi á Ferðaskrifstofu ríkis-
ins var Þorleifur elskaður og
Sarnafi!
-einangrað þak
með malaryfirborði.
Margar gildar ástæður eru fyrir því að Sarnafíl er í auknum mæli notað á
flöt þök og lítið hallandi þök.
Hér eru nokkrar þeirra:
• Skammur framkvæmdatími.
• Dúkurinn getur komið í allt að 120m2 rúllum frá
verksmiðjunni.
• Dúkurinn er bræddur saman með heitu lofti.
Ske.vting er því nánast 6háð veðri.
• Rakavörn, einangrun og Sarnafil er lagt laust á
flötinn svo hreyfing á undirlaginu getur ekki
skemmt þekjuna.
• Þakið þarf ekki að hafa halla, þar sem dúkurinn
þolir vatnsþrýsting. Vatn getur því legið á þakinu
án þess að valda skaða.
• Is festist ekki við Sarnafil.
• örugg samskeyti, þar sem Sarnafil er brætt saman
með heitu lofti.
• Sarnafil G rýrnar ekki og heldur mýkt og formi
hvort heldur er í sterkri sól eða í hörku fi-osti.
• Viðgerðir á Sarnafil eru auðveldar ef eitthvað
kemur fyrir þekjuna.
• Rétt gerð þekjunnar hefur í för með sér hagstæð
verðtilboð.
• Þak með malaryfirborði er augnayndi.
• Sarnafil hefur verið lagt á ótal þök um alla Evrópu,
allt frá Italiu til Svalbarða við hin ólíkustu veður-
skiiyrði.
Sarnafil er framleitt af Protan & Fagertun A.S. í Noregi og aðeins lagt af viðurkenndum Sarnafil verktökum.
Ef þér óskið eftir frekari upplýsingum, vinsamlegast hafið samband við tæknimenn okkar.
Einkaumboð, viðurkenndir Sarnafil-verktakar
Sarnafi!
fagfcun
FAGTÚN HF. BORGARTUN 18. 105 REYKJAVlK. SlMI 28230
virtur. Hversdagslega var hann
ekki afskiptamikili en treysti
samstarfsfólki sínu til allra góðra
verka. Við vandasöm úrlausnar-
efni og ákvarðanir tók hann sér
jafnan góðan umhugsunartíma,
kynnti sér málin vel og hlustaði á
skoðanir og ráðleggingar annarra.
En að lokum var það hans að taka
ákvörðunina og það gerði hann og
tók jafnan fulla ábyrgð á. Á
gleðistundum var hann manna
glaðastur og hrókur alls fagnaðar,
líktist þá oft meir tvítugum ungl-
ingi en reyndum og ráðsettum
forstjóra ríkisfyrirtækis.
En Þorleifur átti einnig til
annan þátt í fari sínu. Tilveran,
mannlífið, til hvers við værum hér
á jörð og hvað við tæki eftir
jarðvistina, var honum stöðugt
íhugunarefni. Himingeimurinn
með öllum sínum aragrúa stjarna
var honum hugleikinn og sífellt
undrunar- og aðdáunarefni.
Þorleifur var fæddur 27. apríl
1908 í Ólafsvík. Foreldrar hans
voru Þórður Matthíasson, formað-
ur og smiður þar, og kona hans
Björg Þorsteinsdóttir. Hann
missti móður sína barn að aldri og
ólst upp hjá Magnúsi Jóhannes-
syni, verkamanni í Ólafsvík og
konu hans Þórunni Árnadóttur.
Þorleifur lauk námi við Verslun-
arskóla íslands 1929. Erlendis
stundaði hann nám í Fircraft
College í Birmingham, 1931—32, í
Volkshochschule, Comburg,
Þýskalandi 1932—33, og námsdvöl
átti hann í París 1933. Hann var
kennari við Samvinnuskólann
1935 til 1947 og kenndi auk þess
við ýmsa aðra skóla í Reykjavík,
má þar nefna Sjómannaskólann,
Húsmæðrakennaraskóla íslands
og Bréfaskóla S.Í.S. Forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins 1946 til
1973 eins og fyrr er getið.
Hinn 15. ágúst 1934 gekk hann
að eiga Annie, fædda 27. júlí 1911
dóttur Karls Chaloupek, ritara
steinsmiðasambandsins í Bæ-
heimi. Konu sína missti Þorleifur
28. des. 1948. Þau eignuðust tvö
börn, Örn, búnaðarráðunaut og
bónda í Húsey, Tunguhreppi,
N-Múlasýslu, hann er kvæntur
Elsu Árnadóttur og eiga þau
fjögur börn, og Rosemarie, hús-
freyju Vestra-Geldingaholti í
Gnúpverjahreppi, hún er gift Sig-
fúsi Guðmundssyni og eiga þau
þrjú börn. Þorleifur giftist aftur
21. sept. 1952 eftirlifandi eigin-
konu sinni, Kristjönu Sigríði
Kristjánsdóttur , mikilli ágætis-
konu, sem búið hefur honum og
börnunum gott og friðsælt heimili.
Kristjana er fædd 14. mars 1921,
dóttir Kristjáns Sigurðar Eyj-
ólfssonar, formanns á Kirkjubóli í
Valþjófsdal í Önunarfirði og konu
hans Maríu Bjargeyjar Einars-
dóttur. Börn þeirra eru: Einar
Kristján, félagsráðgjafi, starfar í
Tromsö í Noregi, María, við nám í
félagsráðgjöf í Oslo, Björg, )íf-
fræðingur, kennari við Mennta
skólann í Hamrahlíð og Olga
Bergljót, nemandi við Kennarahá-
skóla Islands.
Eftir að Þorleifur lét af störfum
hjá Ferðaskrifstofu ríkisins tók
hann sér nokkra hvíld og dvaldi
heima í faðmi fjölskyldunnar.
Hann lét sér alla stund mjög annt
um hag hennar, sérstaklega upp-
eldi barnanna og skólagöngu
þeirra og eftir að eldri börnin
stofnuðu sín eigin heimili var
hann boðinn og búinn að rétta
þeim hjálparhönd. Þegar hann gat
því við komið dvaldi hann tíma og
tíma hjá Erni og Rosemarie og
barnabörnunum. Hann hafði mik-
ið yndi af sveitalífi og því að
dvelja úti í náttúrunni og um-
gangast menn og málleysingja.
Fuglar himinsins voru honum
kærir vinir og sérstakan unað
hafði hann af að hlusta á söng
smáfuglanna.
Hin mikla og fjölþætta reynsla
og þekking Þorleifs á ferðamálum
leiddi til þess, að eftir að hann lét
af forstjórastarfi við Ferðaskrif-
stofuna, var hann eftirsóttur til
ráðgjafarstarfa af þeim sem voru
að stofna ný fyrirtæki á sviði
ferðamála. Þannig var hann um
tíma ráðgjafi og aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá Samvinnuferð-
um og einnig stofnaði hann ásamt
nánum vinum sínum Ferðaskrif-
stofuna Land og sögu og starfaði
við hana til dauðadags. Öll störf
sín rækti Þorleifur af mikilli
trúmennsku og góðgirni.
Þorleifur andaðist 7. ágúst sl. í
Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík
eftir stutta en erfiða legu, rúm-
lega 72 ára að aldri. Allmörg
síðustu árin gekk hann ekki heili
til skógar og varð að dvelja í
sjúkrahúsi af og til. Kallið kom
fyrr en við vinir hans áttum von á,
en hann var vel undir vistaskiptin
búinn.
Við hjóninn vottum eiginkonu
hans, börnum, tengdabörnum,
barnabörnum og öðrum ástvinum
hans okkar innilegustu samúð og
biðjum þeim blessunar Guðs.
Þorkell Skúlason.
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
MIÐBÆR
Hringið í síma
35408