Morgunblaðið - 17.08.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
29
Kristinn Snæland:
Gjöldin hennar Jóhönnu
eða m.ö.o. fógeti mun skyldug-
ur að kveða upp úrskurð um þá
upphæð sem viðkomandi er
talinn þurfa til lágmarksfram-
færis.
Þetta er vitanlega leiðinleg
aðferð til varnar og mun auk
þess svo torsótt að eins líklegt
er að minnsta kosti kötturinn
verði dauður úr sulti áður en
úrskurður fæst.
Hin einfalda lausn
Það hefur verið ákaflega
fróðlegt að fylgjast með skrif-
um um mál Jóhönnu. Hver
spekingurinn á fætur öðrum
lætur ljós sitt skína (og nú ég),
en allir með tölu velta vöngum
en benda þó ekki á hina
einföldu lausn, sem allir
stjórnmálaflokkar landsins
hafa þó lofað ár eftir ár og
allar ríkisstjórnir hin síðari ár
hafa lofað að koma á. Haraldur
Ólafsson í Tímanum krefst
lagabreytinga svo óheimilt
verði að taka meir af föstu
kaupi en svo að dugi til fram-
færis, en um það er hægt að fá
fógetaúrskurð og þarf ekki
lagabreytingu. Kjartan Jó-
hannsson krataráðherrann
fyrrverandi kjökrar utaní Jó-
hönnu í Morgunblaðinu 14.
ágúst sl. og segir efnislega á þá
leið að ef Jóhanna og margir,
margir fleiri hefðu hlýtt kalli
lýðskrumaranna í Alþýðu-
flokknum um síðustu kosn-
ingar, þá væri nú allt í lagi og
engin láglaunamanneskja væri
í vandræðum að greiða gjöldin
sín.
í fyrsta lagi vil ég benda
Kjartani á að hvergi kemur
fram hjá Jóhönnu að hún sé
láglaunamanneskja og jafnvel
ef við tökum dæmi af launun-
um sem hún áætlar sér í ágúst
(ef hún vinnur eins og vitlaus
manneskja) eða 842 þús. kr. og
drögum af þeim hæstu skatt-
prósentu sem hún nefnir í
grein sinni eða 42,31% þá mun
hún samt eiga eftir nettó 486
þús. kr. eftir mánuðinn, sem er
nokkuð hærri upphæð en há
iðnaðarmannalaun eru á mán-
uði brúttó. Þannig virðist það
ekki vera skattaupphæðin sem
Jóhanna ber sig upp undan
heldur innheimtuaðferðin.
Mér sýnist að öllum sem
hafa fjallað um vanda Jóhönnu
og þeirra sem eins er ástatt
hjá, hafi skotist yfir lausnina
sem er einfaldlega staðgreiðsla
skatta.
Eins og áður sagði hafa allir
stjórnmálaflokkar og allar rík-
isstjórnir hin síðari ár lofað
okkur því að tekin verði upp
staðgreiðsla skatta.
Þetta hefur enn verið svikið,
aðeins orðin tóm.
Fyrirstaðan
Þegar þess er gætt að ráð-
andi öfl í þjóðfélaginu lofa ár
eftir ár staðgreiðslukerfi
skatta er stórkostlegt undrun-
arefni að slíku skuli samt enn
ekki komið á.
Skýringin kann að vera sú að
þeir embættismenn sem á sín-
um tíma skiluðu vandlega unnu
áliti um málið til ríkisstjórnar-
innar, þeir lögðust gegn stað-
greiðslu skatta, „því slíkt kerfi
er ekki heppilegt í þjóðfélagi
þar sem tekjusveiflur eru mikl-
ar“.
Eru það kannski þessir emb-
ættismenn sem þumbast við
þrátt fyrir allt.
Óhjákvæmilegt er að rifja
upp að á sama tíma og ofan-
greint álit embættismanna sá
dagsins ljós, eftir ferðalög til
Norðurlanda, Bretlands og
kannski víðar, þá kom út álits-
gerð um sama mál hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Sérfræðingar sameinuðu
þjóðanna sögðu í sínu áliti:
Ákaflega þýðingarmikið er að
taka upp staðgreiðslu skatta í
þeim löndum þar sem tekju-
sveiflur eru miklar.
Væri farið að ráðleggingum
sérfræðinga Sameinuðu þjóð-
anna og loforð íslenskra
stjórnmálamanna efnd, þá
yrðu fá eða engin vandamál
með þjóðinni slík sem dæmi
Jóhönnu.
Það er því kominn tími til að
taka upp staðgreiðslu skatta.
Kristinn Snæland.
Fínlux
Toppurinn í litasjónvarpstækjum
SJONVARPSBÚDIN
BORGARTUNI 10 REYKJAVIK S(MI 27099
Nýr ævintýraheimur i fyrir böm á aldrinum 3-7 ára
«ar.w
n
II
«1«
328
LEGO er nýtt leikfang
á hverjum degi
Jóhanna Kristjónsdóttir
skrifaði nær heilsíðugrein í
Morgunbiaðinu þann 2. ágúst
sl. um greiðslur sinna opinberu
gjalda. Grein hennar var þörf
og skelegg ábending um vél-
rænt og ómannlegt innheimtu-
kerfi.
Hinn almenni launþegi á
ekki margra kosta völ þegar
hann stendur frammi fyrir því
að laun hans öll eða nær öll eru
tekin til greiðslu opinberra
gjalda.
Fastráðið fólk eða fólk í góðu
starfi á góðum vinnustað verð-
ur bara að þrauka, slá lán í
banka eða hjá kunningjum en
öllu þessu fylgir jafnvel niður-
læging og vanmáttarkennd og
ekki aðeins það, í alvarlegri
tilfellum setur svona harkaleg
innheimta einstkalinginn í
varnarstöðu gagnvart þjóðfé-
laginu og „þörfum" þess.
Skammtaðar
greiðslur
Einstaklingar sem lenda í
sömu aðstöðu og Jóhanna, en
eru hinsvegar ekki bundnir
neinum atvinnurekanda, þeir
grípa gjarnan til þess að skipta
um vinnustað með hæfilegu
millibili og komast þannig und-
an klóm kerfisins.
Sumir slíkir einstaklingar
greiða svo inn á gjöld sín eftir
efnum og ástæðum en aðrir
fyllast slíkri gremju í garð hins
vélræna kerfis að þeir bók-
staflega hætta að greiða gjöld
sín. Þessi aðferð gefst vitan-
lega ekki ef viðkomandi ein-
staklingur á einhverjar eignir.
Því væri ráðlegt fyrir Jó-
hönnu að skrá gamla húsið sitt
á nöfn barna sinna ef hún vildi
beita ofangreindum aðferðum
til að stjórna sjálf greiðslum
sínum þannig að hún hefði líka
í matinn. Loks má geta þess að
sú leið mun fær að fá fógeta-
úrskurð um hvert hámark má
draga af launum hverju sinni,
Vitni vant-
ar í Haf n-
arfirði
LÖGREGLAN í Haínar-
firði hefur lýst eftir tjón-
völdum og vitnum að
ákeyrslum, sem urðu þar í
bæ sl. miðvikudag.
Um morguninn var ekið
á bifreiðina G-359, sem er
blá Oldsmobile, tveggja
dyra í Birkihvammi.
Vinstri hlið var dælduð.
Á tímabilinu 13—15.30
var ekið á appelsínugula
Volkswagenbifreið fyrir
utan Suðurgötu 36. Vinstra
bretti var skemmt.
®AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 simi 25810