Morgunblaðið - 17.08.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
31
The Obsorvor
Afturbati of seint á
ferð fyrir Carter
stjórnarinnar. Alvarleg hita-
bylgja og þurrkar, er riðu yfir
landið á sumrinu, hafa orsakað
verðhækkanir á matvöru.
Framkvæmi þingið skatta-
lækkun á yfirstandandi kosn-
ingaári, er líklegt að það verði
verðbólguhvetjandi. Harðvítug-
ar deilur hafa geisað milli
stjórnmálaflokkanna á undan-
förnum vikum um hagkvæmni
slíkra skattalækkana til að örva
efnahagsbatann.
Mótframbjóðandi Carters,
Ronald Reagan, hefur hvatt til
þess að dregið verði úr sköttum
um tólf af hundraði árlega á
næstu þremur árum, en þessa
tillögu hefur forsetinn kallað
„óábyrga og verðbólguaukandi“.
Stuðningsmenn Carters á
þingi hafa hrundið tilraunum
repúblikana til að gera áform
Reagans að lögum, en margir
demókratar í fulltrúadeild hafa
mælzt til þess að dregið verði úr
sköttum hóflega fyrir kosn-
ingarnar.
En Carter hefur stungið fótum
við uppástungu demókratanna
einnig. G. William Miller sagði
þingmönnum nýlega að jafnvel
tillaga um „hófsama, ábyrga
skattalækkun fyrir kosningar"
hljóðaði líkt og „að kasta hráu
kjöti fyrir hunda og segja þeim
svo að sitja kyrrum". Skatta-
lækkun, varaði hann við, sem
framkvæmd yrði í því rafmagn-
aða andrúmslofti, er ríkir um
þessar mundir, yrði óhjá-
kvæmilega allt of stór.
Hagfræðingar forsetans virð-
ast hafa látið sér lynda þá
staðreynd að það er fátt, sem
þeir geta til leiðar komið með
skattalækkunum og Keynesísk-
um aðferðum til að draga úr
atvinnuleysi eða auka framleiðni
fyrir kosningar.
Síðan Carter var kjörinn fyrir
fjórum árum — á loforðum um
að stöðva verðbólgu og atvinnu-
leysi, laga halla á fjárlögum og
auka framleiðni — hefur efna-
hagsárangur stjórnarinnar verið
hverfull.
Carter Bandaríkjaforseti —
Efnahagssérfræðingar forset-
ans hafa sent frá sér einhverja
ógæfulegustu eínahagsspá
eftirstríðsáranna.
í byrjun ákvað stjórnin að
takast á við atvinnuleysi með
aðgerðum til að hleypa lífi í
efnahagskerfið. Er verðbólga
náði hápunkti síðan í heims-
styrjöldinni síðari með átján af
hundraði, brá stjórnin eigi að
síður á það ráð í marz að
takmarka útlánastarfsemi og
kaupgetu með hömlum á pen-
ingamagn í umferð og lánafyr-
irgreiðslu.
Þegar lán og eyðsla tóku
viðbúna dýfu, varð samdráttur í
efnahagslífi mun snarpari en
stjórnin hafði gert sér í hugar-
lund. Þess vegna var ákveðið að
aflétta lánshömlum aðeins
þremur mánuðum eftir að þær
höfðu verið settar.
Sú stefna, er nú virðist hafa
náð yfirhöndinni, kveður á um
stöðugt aðhald í því skyni að
sporna við verstu afleiðingum
kreppunnar um sinn og reyna
síðan að takast alvarlega á við
hana 1982 án þess þó að verð-
bólga og vextir taki fjörkipp á
ný-
Einu tormerkin eru þau að
efnahagsvandi ársins 1980 gæti
orðið til þess að stjórn Carters
verður ekki lengur við völd til að
framfylgja stefnunni árið 1981.
Richard Thaxton.
Texti Hjörtur Gíslason Ijósmyndir Kristinn Ólafsson
búnaðarsvæðin. Þeir sem
utan þeirra eru verða því
að kaupa dýrara fóður.
Með kvótanum, er einung-
is verið að færa til fjár-
magn, frá velreknum
búum til hinna, sem verr
eru rekin.
Það væri að mínu mati
mun skynsamlegri lausn
að lækka bara mjólk um
30% og lækka þannig vís-
itöluna um leið. Ég get
ekki betur séð en þessi
hrikalega tekjurýrnun
geri okkur nær launa-
lausa, ég veit ekki betur
en að við eigum lögbundin
laun miðað við ákveðna
viðmiðunarstétt og ég er
anzi hræddur um að eftir
þessar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar séu þau orð-
in anzi lítill hluti af því
sem okkur ber. Það væri
gaman ef landbúnaðar-
ráðherra reiknaði út tekj-
ur mjólkurbænda 1979
miðað við að skatturinn
hefði verið á þá. Mér þætti
vænt um að vita hjá hon-
um hve tekjur mjólkur-
bóndans eru miklar eftir
þetta.
Það sem bjargar okkur
hér er að við erum með
umfangsmikla kartöflu-
rækt, sem hefur gengið vel
og skiiað hagnaði, þó
mörgu mætti breyta í sölu
og dreifingu þeirra. Mér
finnst eðlilegt að sala
garðávaxta sé undir sam-
eiginlegri stjórn neytenda
og seljenda, sem sjái um
að jafna dreifingu þeirra
yfir landið, svo hagsmunir
allra komi fram. Þá finnst
mér nauðsynlegt að neyt-
mdur fái að velja vöruna
eftir framleiðslusvæði, á
meðan svo er ekki verður
varla um vöruvöndun að
ræða, því þá skiptir það
framleiðandann nær engu
hvort hann setur góða
vöru eða ekki á markað-
inn. Það væri eðlilegt að
varan væri þá merkt eftir
framleiðsluhéraði og neyt-
endur gætu þá valið kart-
öflurnar eftir héruðum ef
um mismunandi gæði
væri að ræða. Þegar allt
er selt undir sama merki
veit neytandinn alls ekki
hvort hann er að kaupa
kartöflur frá Suður- eða
Norðurlandi og getur því
ekki veitt það aðhald, sem
seljendum er nauðsynlegt
til að sjá fram á nauðsyn
og þörf vöruvöndunar,
sem auðvitað kemur öllum
til góða.
HALLARMÚLA
Ber er hver ad bakí
nema sér bródur eigi....
Viö köllum þá bræöur, nýju norsku skólapokana,
arftaka „gömlu“ skólatasknanna.
Pokar þessir eru fisléttir en sterkir mjög.
Endurskinsmerki fylgir hverjum poka og eru þeir því
góöir fyrir barniö í umferöinni.