Morgunblaðið - 13.09.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
Brotnaði í
fjörunni
við Surtsey
Mannbjörg en tugmilljóna tjón
Finninn hlaut nokkuð öðruvisi ferð en til stóð ok reyndu menn
eftir beztu getu að halda á sér hita ok hella vatni úr stÍKvélunum.
BÁTURINN Bravó frá Vest-
mannaeyjum, sem er fimm og
hálfs tonna plasthátur, brotn-
aði í fjörunni í Surtsey í gær, en
þangað var háturinn fenninn til
að sækja vísindamenn er dvalið
höfðu í Surtsey við rannsókn-
arstörf. Reið skyndileKt ólas
yfir bátinn oj; tókst ekki að ná
honum úr fjörunni og braut
brimið hann niður þar. IJrír
menn voru á bátnum ok komust
þeir allir í land, en báturinn er
ónýtur svo og tækjabúnaður
visindamanna ok er hér um
tuKmilljóna tjón að ra*ða.
— Þetta gerðist allt svo fljótt
og erfitt er að gera sér grein
fyrir því hvernig þetta bar að,
svo virðist sem slæmt ólag hafi
skyndilega fleygt bátnum til og
við köstuðumst tveir í sjóinn og
vissi ég ekki fyrr til en ég lá
skorðaður undir bátnum milli
steina, líklega á eina staðnum
þar sem holrúm var undir, sagði
Sigurgeir Jónasson í Vest-
mannaeyjum, en hann var ásamt
tveimur öðrum mönnum á bátn-
um, finnskum ferðamanni, sem
fengið hafði að fara með og
Ágústi Halldórssyni, sem sigldi
bátnum, en hann er í eigu
Hjálmars Guðnasonar og Ólafs
Granz.
Fimm vísindamenn, m.a. frá
Norrænu eldfjallastöðinni og
Orkustofnun hafa dvalið í Surts-
ey sl. viku við árlegar rannsókn-
ir og mælingar. Um kl. 13:30 í
gær var Bravó kominn að Surts-
ey og mennirnir byrjaðir að hífa
tækjabúnaðinn um borð, en til
þess var notaður lítill gúmbátur.
Var síðan hafist handa um að
hífa mennina út í bátinn og í
fyrstu ferðinni slitnaði festingin
úr gúmbátnum. Síðar færði alda
Bravó til og sló bátnum flötum
og tókst ekki að ná honum út úr
brimgarðinum eftir það. Sigur-
geir og finnski maðurinn hent-
ust úr bátnum og aðstoðuðu
mennirnir í landi þá við að
komast frá bátnum og var síðan
reynt að ná tækjum vísinda-
mannanna úr Bravó á ný. Um
leið reyndi Ágúst stöðugt að fá
bátinn til að láta að stjórn og
freista þess að ná honum úr
briminu, en tókst ekki. Var þá
botninn tekinn að brotna og ljóst
varð að bátnum varð ekki bjarg-
að.
Ljóst or að um tugmilljóna
tjón er að ræða, báturinn er yfir
20 milljón króna virði og rann-
sóknatækin dýrmæt. Þá missti
Sigurgeir Jónasson eina mynda-
vél og eitthvað af linsum og
myndavél finnska ferðamanns-
ins eyðilagðist er sjór komst í
hana. Vélbáturinn Sæfaxi var á
veiðum nokkuð vestur af Surtsey
og náðu vísindamenn sambandi
við Vestmannaeyjaradíó gegnum
„labb—rabb“ tæki, sem siðan
kallaði í Sæfaxa og var hann
kominn á staðinn rúmri klukku-
stund eftir að óhappið varð.
Þórarinn Eiríksson skipstjóri
kvaðst hafa siglt eins grunnt og
mögulegt var og reynt að láta
belgi reka í land með línu, en
þegar það hefði ekki tekist hefði
Ágúst Halldórsson farið við ann-
an mann í gúmbát og náð að
koma línu milli Sæfaxa og lands.
Var björgunarbátur Bravó þá
notaður til að ferja þau tæki sem
tókst að bjarga og mennina um
borð og voru þeir komnir til
Vestmannaeyja um kvöldmat-
arleytið.
Sigurgeir Jónasson sagði í
samtali við Mbl. að Ágúst Hall-
dórsson hefði sýnt mikið þrek er
hann fyrst reyndi til þrautar að
ná stjórn Bravó og síðar við að
bjarga verðmætum. Væri mildi
að ekki hefðu orðið önnur en
smávægileg slys á neinum.
Vísindamennirnir og skipverjar á Bravó reyndu að ná verðmætum úr bátnum milli þess sem ólögin réðu yfir þegar séð varð að ekki var
hægt að ná bátnum úr fjörunni. Ljósmyndir Sigurxcir Jónasson.
Reikningsstaða bankanna nei-
kvæð um 24 milljarða 29. ágúst
STAÐA viðskiptahankanna á
viðskiptareikningum þeirra i
Seðlabanka var í ágústlok neikvæð
um 24 milljarða króna. Um áramót
var lausafjárstaða bankanna hag-
stæð um 4,8 milljarða. Þá var
seðlaeign bankanna i sjóði um 1,1
milljarður. í júlílok hafði lausa-
fjárstaða bankanna versnað um
18,fi milljarða króna. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins var
reikningsleg staða Landshanka ís-
lands og Útvegsbanka íslands
mun óhagstæðari í ágústlok en
annarra hanka, Landsbankans um
13,8 milljarða. rn Útvegsbankans
um 8,9 milljara í þessum tölum
eru ekki upplýsi.igar um seðlaeign
hankanna eða eignir þeirra í
erlendum bönkum.
Aðrir bankar höfðu neikvæða
stöðu á viðskiptareikningi Seðla-
bankans, þótt hún hafi verið nálægt
núllinu. Aðeins einn banki hafði
jákvæða stöðu, Búnaðarbanki ís-
lands, sem átti inni á reikningi 2,5
milljarða króna. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins endurspegl-
ar þessi staða bankanna erfiðleika í
sjávarútvegi og meðal frystihúsa og
ef til vill annarra atvinnuvega.
Síðast er Landsbanki og Útvegs-
banki komust í svo laka stöðu
gagnvart Seðlabanka, á árinu 1974,
var það vegna erfiðleika í sjávar-
útvegi. Ennfremur getur þetta nú
orsakast af breytingum á lánakerf-
inu og því vaxtakerfi, sem stjórn-
völd hafa komið á fót, lengri lánum
en áður og að ýmsu leyti betri fyrir
viðskiptavini bankanna.
Morgunblaðinu er kunnugt, að á
„ÉG ÁTTI í morgun fund með
Sigurði Helgasyni, forstjóra Flug-
leiða, þar sem hann sýndi mér afrit
af því, sem Werner forsætisráð-
herra sagði á þessum blaðamanna-
fundi og í því var hvergi að finna
þau ummæli, sem honum voru
eignuð í fréttatíma útvarpsins á
föstudagskvöld. Ég hafði svo sam-
band við mína heimildarmenn í
Luxemborg og þá sögðu þeir, að á
þessum blaðamannafundi hefði
einnig verið Josy Barthel, sam-
þeim tíma, sem reikningsstaða
Landsbankans um síðastliðin mán-
aðamót var neikvæð um 13,8 millj-
arða var lausafjárstaða bankans
neikvæð um 10,8 milljarða, en þá
hefur verið tekið tillit til erlendra
eigna bankans, sjóða bankans í
seðlum og mynt og er talan því
lægri. Þetta sveiflast talsvert frá
göngumálaráðherra, og hann hefði
viðhaft þessi ummæli og forsætis-
ráðherrann ekki mótmælt. Þess
vegna hefðu þeir dregið þá ályktun
að þetta væri hin opinbera skýring
ríkisstjórnarinnar og sagt mér, að
forsætisráðherrann hefði látið um-
mælin falla," sagði Helgi Pétursson,
fféttamaður á útvarpinu í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, en í kvöld-
fréttatímanum var það leiðrétt, að
þau ummæli, sem forsætisráðherra
degi til dags, því að hinn 20. ágúst
var reikningsstaða bankans nei-
kvæð um 7,6 milljarða en lausafjár-
staðan um 4 milljarða og hinn 19.
ágúst var lausafjárstaðan neikvæð
um 2,6 milljarða króna. Hinn 30.
júlí var skuldin við Seðlabankann
5,9 milljarðar en lausafjárstaðan
neikvæð um 3,4 milljarða króna.
Luxemborgar voru eignuð um
ástæður þess, að viðræður Flugleiða
og flugfélaga i Luxemborg um
stofnun nýs flugfélags, strönduðu,
hefðu ekki verið hans heldur hefði
Barthel samgönguráðherra viðhaft
ummæli í þessa átt. „Ég hlýt að
viðurkenna þau mistök, að það var
ekki forsætisráðherrann, sem sagði
þetta, en hins vegar standa ummæl-
in efnislega óbreytt og það finnst
mér satt að segja meginmálið,"
Bensín
með lægri
oktantölu
nú í sölu
UM þessar mundir er í sölu
bensín mcð minni styrkleika en
það bensin. sem venjulega er selt,
eða 91—91,5 oktan í stað 93ja
oktana bensins.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá olíufélögunum í gær, að
í ágúst hefði orðið mikill dráttur á
því að Sovétmenn afgreiddu bens-
ínfarm. Var gripið til þess ráðs að
kaupa 7 þúsund tonn af bensíni í
Rotterdam til þess að koma í veg
fyrir bensínleysi í landinu. Þetta
bensín er með lægri oktantölu, en
það er einmitt í sölu um þessar
mundir. 7 þúsund tonn samsvara
rúmlega mánaðar bensínsölu í
landinu.
Samkvæmt því sem talsmenn
olíufélaganna tjáðu Mbl. í gær á
það engin áhrif að hafa á vélar
bifreiða þótt oktantala lækki
niður í 91 oktan.
Svara „hug-
mynd“ sátta-
nefndar í dag
klukkan 10
SÁTTANEFND og sáttasemjari
ríkisins lögðu á sáttafundi í gær
fyrir aðila vinnumarkaðarins.
Álþýðusamband íslands og
Vinnuveitendasamband íslands
svokallaða innanhússtillögu, sem
ber yfirskriftina „Hugmynd
sáttanefndar að lausn á deilu um
röðun starfsheita í launaflokka"
miðað við samræmda skipan eða
kjarnasamning með launaflokka
frá 6 og upp í 30.
Þetta plagg var lagt fram sér-
staklega við 6 landssambönd inn-
an ASI, Verkamannasamband ís-
lands, Landssamband iðnverka-
fólks, Landssamband íslenzkra
verzlunarmanna, Málm- og skipa-
smiðasamband Islands, Samband
byggingamanna og Landssam-
band vörubifreiðastjóra. Sam-
kvæmt upplýsingum Guðlaugs
Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara
hafa þessir aðilar „hugmyndina"
til skoðunar og hafa þeir verið
boðaðir til fundar árdegis í dag
klukkan 10. Hefur sáttanefnd
óskað eftir svörum á þeim fundi.
Fundinn hjá sáttasemjara i gær
sátu forseti og framkvæmdastjóri
Alþýðusambandsins, formenn áð-
urnefndra landssambanda og
formaður og framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins.
Framkvæmdastjórn VSÍ kom
saman til fundar í gær klukkan 17
til þess að ræða „hugmyndina".
Málið varð ekki útrætt á þeim
fundi og var nýr fundur boðaður
klukkan 09 í dag. Hin ýmsu
sérsambönd innan ASÍ fjölluðu
um málið í gærkveldi.
sagði Helgi Pétursson. „Eg mun þó,
til þess að ekkert fari á milli mála,
verða mér úti um afrit af öllu því,
sem þeir Werner og Barthel sögðu á
þessum fundi.“
Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða kvaðst í gærkvöldi ekkert
vilja um málið segja annað en það,
að nú væri það komið á hreint, að
þessi tilteknu ummæli hefðu ekki
verið forsætisráðherrans, eins og
hann, þ.e. Sigurður, hefði staðhæft.
Rikisútvarpið:
Ummælin ekki forsætisráðherr-
ans heldur samgönguráðherrans