Morgunblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980 39 Banik Ostrava - ÍBV á miðvikudag: 5 gullmenn frá Moskvuleikunum í liði Tékka Pálmi Jónsson FH í baráttu við varnarmann Þróttar. Lj°sm- Kristján. Dýrmætur FH-sigur í LIÐI Tckkóslóvakíumeistar- anna, Banik Ostrava, sem leikur við íþróttabandaiag Vestmanna- eyja á Kópavogsvelli nk. fimmtu- dag i meistarakeppni Evrópuliða, eru martíir kunnustu knattsp- yrnumenn Tékkóslóvakíu ok kalla þarlendir þó ekki allt ömmu sína i þeim efnum. í liðinueru 5 af leikmönnum Tékk- óslóvaku sem vann gullverðlaun- in á ólympiuleikunum í Moskvu i sumar. bað eru leikmennirnir Zdenek Sreiner, Petr Nemec, Rygel Zdenek, Wernwe Licka og Libor Radimec. Þá er einnig i liðinu einn frægasti knattspyrn- umáur Tékkóslóvakíu Rostislav Vojacek sem hefur leikið 24 landleiki fyrir Tékkóslóvakiu. Þegar litið er yfir leikjaskrá liðsmanna Banik sést að þar eru engir nýliðar á ferð. Landsliðs- markvörðurinn Pavol Michalik (1951) hefur leikið 11 landsleiki og 138 deildarleiki. Pavel Macak (1957) hefur leikið 24 deildarleiki. I hópi bakvarða eru: Rostislav Vojacek (1949), hefur leikið 19 landsleiki, 237 deildarleiki og skorað 16 mörk. Libor Rdaimec (1950) hefur leikið 128 deildarleiki og skorað 14 mörk. Zdenek Rygel (1951) hefur leikið 4 landsleiki, 172 deildarleiki og skorað 6 mörk. Václav Pechacek (1959) hefur leik- ið 23 deildarleiki og Lubomir Srámek (1957) hefur leikið 24 deildarleiki. Miðverðir eru Lubomir Knapp (1950) sem hefur leikið 10 lands- leiki, 161 deildarleik og skorað 33 mörk. Augustin Antalik (1953) hefur leikið 73 deildarleiki og skorað 7 mörk. Petr Nemec (1957) hefur leikið 59 deildarleiki og skorað 8 mörk. Zdenek Sreiner (1954) hefur leikið 77 deildarleiki og skorað 14 mörk. Framherjar eru Werner Licka (1954) sem hefur leikið 102 deild- arleiki og skorað 30 mörk, Jozef Marchevský (1952) sem hefur leik- ið 54 deildarleiki og skorað 15 mörk. Milan Albrecht (1950) hefur leikið 54 deildarleiki og skorað 47 mörk, Václav Danek (1960) hefur leikið 15 deildarleiki og skorað 6 mörk, Jan Matustik (1955) hefur leikið 7 deildarleiki og Frantisek Kadlcek (1958) er eini nýliðinn í deildarkeppninni í liði Banik Ostrava. MEÐ SIGRI sínum yfir Þrótti í gærkvöldi á Laugardalsvellinum hefur lið FII sennilega tryggt sér sæti í I. deild næsta keppnistíma- bil. ÍBK sem í dag leikur gegn ÍA verða að sigra i leiknum til að fá aukaleiki um sætið i deildinni. Sigur FlI-inga var sanngjarn þeim tókst að ná tveggja marka forystu í leiknum og börðust allan timan vel. Þó mátti greini- lega merkja að lcikmenn liðins léku undir mikilli pressu og framan af leiknum þrúgaði spennan leikmenn en það lagað- ist eftir því sem á lcikinn leið. Það voru Þróttarar sem voru fyrri til að skora, Halldór Arason fékk góðan stungubolta inn fyrir vörn FH komst einn innfyrir og skoraði glæsilegt mark. Þetta var á 31. mínútu leiksins og fram að þeim tíma höfðu liðin átt fá góð marktækifæri. Magnús Teitsson jafnaði metin fyrir FH á 43. mínútu með skoti af stuttu færi og þannig var staðan í hálfleik. Mikil barátta var í síðari hálfleik og leikmenn Þróttar gáfu ekkert eftir þrátt fyrir að til lítis væri að vinna. Leikmenn FH urðu svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum. A 63. mínútu meiðist Magnús Teitsson illa í hné og var borinn af velli. Meiðsli Magnúsar voru slæm og verður hann sennilega frá íþróttaiðkun í fjórar vikur að sögn íþróttalæknis. I stað hans kom inn á Guðmundur Hilmarsson og skoraði hann strax eftir að hafa fengið boltann inn í vítateig. Guðmundur skaut góðu skoti að markinu og boltinn hrökk af Þróttur—FH 2:3 varnarmanni Þróttar í bláhorn marksins. A 85. mínútu fá FH-ingar auka- spyrnu rétt utan vítateigs og Viðar Halldórsson gaf vel fyrir markið á Asgeir Elíasson sem skallaði snyrtilega yfir Jón markvörð Þróttar. Lokaorðið í leiknum áttu svo Þróttarar er Arnar Friðriksson minkaði munin á 88. mínútu niður í eitt mark. Leikur liðanna var þokkalegur og mikil barátta í leikmönnum beggja liða. í stuttu máli. íslandsmótið 1. deild. Enn sigur hjá KA LIÐ KA bætti tveimur stigum í safn sitt er liðið sigraði Ármann á Akureyri i gærkvöldi 4—2. Staðan í hálfleik var 1—0 Ár- manni i hag. Lið KA var þó sterkari aðilinn í fyrri hálfleikn- um en var þó nokkuð seint í gang og gekk illa að skapa sér hættu- leg marktækifæri. Eyjólfur Ág- ústsson misnotaði vítaspyrnu i fyrri hálfleiknum skaut i stöng- ina og framhjá. Mark Ármanns kom á 11. mín- útu leiksins, það skoraði Bryngeir Torfason með góðu skoti. Ekki voru liðnar nema fimm mínútur af síðari hálfleiknum er KA jafnar metin. Markakóngurinn Óskar Ingimundarson skorar af stuttu færi, og aftur á 62. mínútu og var það 20. mark hans í 2. deild í sumar. Áfram héldu KA-menn að sækja og Gunnar Gíslason skoraði á 63. mínútu og Gunnar Blöndal innsiglaði sigurinn á 79. mínútu. Sigur KA var mjög sanngjarn, þeir voru betra liðið á vellinum og léku oft vel. — þr/sor Þróttur—FH 3—2 (1—1). Mörk Þróttar. Halldór Arason og Arnar Friðriksson Mörk FH. Magnús Teitsson, Guð- mundur Hilmarsson og Ásgeir Elíasson. Gult spjald. Logi Ólafsson og Valþór Sigþórsson. — ÞR. ÍBV sigraði í 2. flokki í gærkvöldi lauk úrslitakeppn- inni í 2. aldursflokki í knatt- spyrnu. Þrjú lið léku til úrslita og fór keppnin fram í Vest- mannaeyjum. Ileimamenn sigr- uðu eftir hörkukeppni við Breiða- blik úr Kópavogi. Sigraði lið ÍBV 2—1. Nánar verður skýrt frá keppninni í þriðjudagsblaðinu. • Tveir bestu leikmenn Banik Ostrava. Némec (t.v.) og Vojacek sem leikið hefur 24 landsleiki. Báðir voru í sigurliði Tékka á ólympíuleik- unum í Moskvu. Leikir helgarinnar LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1. deild Laugardalsvöllur kl. 14.00 Fram 1. deild Akranesvöllur kl. 15.00 1. deild Vestmannaeyjavöllur kl. 16.00 2. deild Eskifjarðarvöllur kl. 16.00 2. deild Kaplakrikavöllur kl. 14.00 2. deild ísafjarðarvöllur kl. 14.00 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1. deild Laugardalsvöllur kl. 14.00 Valur — Víkingur MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2. deild Laugardalsvöllur kl. 18.30 Fylkir — Þór FöSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2. deild Akureyrarvöllur kl. 18.30 bór — ÍBÍ UBK ÍA - ÍBK ÍBV - KR Austri — Selfoss Haukar — Þróttur ÍBÍ — Völsungur Athugasemd Frá iþróttahúsi Kennaraháskóla íslands. Af gefnu tilefni á íþróttasíðu Morgunblaðsins. föstudaginn 12. sept. sl.. þar sem ÍR-ingar lýsa húsnæðisvandræðum fimleikafólks síns. viljum við taka fram eftirfarandi. Eftir venjulegan skóladag hafa eftirtaldir skólar íþróttasal KHÍ til afnota: Háskóli íslands, Menntaskóiinn við Hamrahlíð. Tækniskóli íslands, Stýrimannaskóli íslands, Vélskóli íslands og Kennaraháskól- inn. Eftirmiðdagstímar á laugardögum, sem íþróttabandalag Reykja- víkur hafði áður til ráðstöfunar. eru nú leigðir Menntaskólanum við Hamrahlíð. Kvöldtímum í húsinu hefur ÍBR aldrei ráðstafað. Virðingarfyllst, Karl Guðmundsson. FRAM - BREIDABUK LAUGARDALSVELLI (DAG KL. 14.00. Bikarmeistarar *79 og *8Q MÆTIÐ MEÐ FRAM'HÚFURNAR fyrir góðan mat i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.