Morgunblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980 Ásgoir Þórhallsson: Siulinjíar VI Á víkingaskipum frá Noregi til Islands Mér tókst að hafa upp á Islendingi, sem tók þátt í sigl- ingu víkingaskipa frá Noregi til íslands þjóðhátíðarárið 1974. Þessi íslendingur reyndist vera 33 ára gamall garðyrkju- maður, Kjartan Mogensen að nafni. Við settumst inn á kaffi- hús og fengum okkur kókó og kleinur. Ég skráði frásögn hans: „Ég var að vinna í Noregi og kynntist Norðmanni, Jon Godal, sem hafði áhuga á gömlum norskum seglskipum og átti eitt slíkt. Þessir bátar höfðu þróast með gömlum hefðum, mann af manni, frá víkingaskipunum og verið notaðir sem fiskibátar í aldaraðir. Grjót var haft í bal- lest en því fleygt út þegar fiskur kom í staðinn og gátu bátarnir borið alit að 5 tonn. Okkur langaði að sigla svona bát til Islands og pöntuðum tvo, nokkuð stærri. Þeir voru smíðaðir á bátasmíðastöð í Þrándheimi og tók smíðin eitt og hálft ár. Ætluðum við að fjármagna þetta með auglýsingum því við áttum enga peninga, ég fátækur skóla- strákur. Til greina kom að Bandaríkjamaður kvikmyndaði ferðina og vorum við að spá í að háfa Coca Cola auglýsingu á seglinu. En skipasmiðurinn þurfti peninga og bráðum vorum við komnir í vandræði. Ég kom heim ’73 og gekk á milli manna og sagði frá áform- unum en ráðamenn trúðu þessu hreinlega ekki. Ég flæktist á milli stofnana og fékk enga fyrirgreiðslu, var samt ekki að biðja um neitt ókeypis. Páfarnir vildu ekkert af þessu vita. Síðan hef ég ekki verið hrifinn af fyrirmönnum. Það eina sem mér tókst var að fá 700 dagskammta frá hernum, nokkurskonar neyð- arpakka, í þeim var allt frá klósettpappír upp í sígarettur og buff. Þetta kom sér vel síðustu dagana, því þá vorum við mat- arlaus. Hér gekk erfiðlega að fá menn, aðeins unglingar og ævintýragemlingar buðu sig fram, en við þurftum að fá hrausta og fullvaxna menn. Norðmenn voru í vandræðum með þjóðhátíðargjöf svo úr varð að Osló, Þrándheimur og Bergen keyptu annan bátinn og gáfu Reykjavík. Norska ungmennafé- lagið gaf landsbyggðinni hinn. Skipin voru skírð Örn og Hrafn. Meiningin var að bátarnir yrðu notaðir til að sigla með aldna sem unga og kynna þessa sigl- ingaíþrótt. Síðan var skipunum siglt frá Þrándheimi, niður með Nor- egsströnd og til Fjaler, sem er rétt sunnan við Bergen og er heimabyggð Ingólfs Arnarsonar. Gaman var að sigla með Nor- egsströnd, veður var hlýtt og fallegt landslag. Auðvelt var að lenda og við skoðuðum hellarist- ur, gengum á fjöll og sumir sváfu í landi undir berum himni með ábreiður yfir sér. Jon var fróður og sagði skemmtilega frá. Við rérum mikið fyrir innan skerjagarðinn, þessir bátar kom- ast 3—4 hnúta með samtaka mönnum. Svo fórum við á dans- leik. Tók þessi ferð tíu daga. Lagt var af stað til Islands frá Fjaler. Við vorum átta í hvorum bát, fimm sem höfðum siglt, hitt áhugamenn; og voru fjórir Is- lendingar. Við gerðum þetta gratís og ótilneyddir. Með var 18 ára norsk stelpa, sem reyndist hörku kerling. Bátarnir voru opnir og vissara að vera vel klæddur, við lá að þyrfti að skera föðurlandið utan af mér er ég kom heim. Fimm gátu sofið í skýlinu ef við lágum hlið við hlið, þétt saman, þá var gamla Kína-systemið á þessu, maður sagði „snú“ og þá urðu allir að snúa sér. Sumir sváfu úti. Reynt var að borða upp á gamla móðinn. Kex og súrmjólk var mikið etið. Höfðum við pott úr smíðajárni sem eldur var hafður í og kjöt var steikt þar yfir. Norðmenn voru með léttsaltað lambakjöt sem látið var hanga og etið hrátt með kuta, helvíti gott og ekki hægt að stoppa þegar maður var byrjaður, líkt og harðfiskur. Nokkur villi- mannabragur var á þessu. Við ætluðum að koma við í Færeyjum en höfðum ekki tíma því afhenda átti bátana form- lega 4. ágúst, þegar hátíðahöldin stóðu sem hæst í Reykjavík. Þetta eru mjög góð sjóskip, verja sig vel, fara vel í sjó. Siglingarhæfni er geysileg og þarf ekki nema fjóra til að sigla þessu, en víkingarnir sigldu á helmingi stærri skipum. Þau svara soldið seint og reka mikið undan í beitingu en rosa skip á lensi. í verstu rokunum sýndi loggið 12 hnúta hraða, en prikið sem hélt því brotnaði og eftir það jók enn veðrið og þá byrjaði hann að 2 „plana". Það er ólýsanlegt, blóðið streymir upp í haus. Þá verður maður að vera vakandi við stýrið. Eitt sinn kom ég á vakt með stírur í augum og báturinn „planaði“ svona. Vind- urinn kom soldið á ská og skipið vildi leita í aðra áttina er það datt fram af öldunum. Ég varð að hlaupa með stýrissveifina á öxlinni fram og til baka og varð stífur af spenningi. Þarna úti á hafi er sjóndeild- arhringurinn lítill og ekkert að sjá, ekki einu sinni fugl. Menn létu vekja sig til að sjá sólarupp- komuna því hún er alveg sérstök. Lífið um borð var tilbreytingar- laust, tekin löng slög. Hjá okkur voru fjórir á vakt í senn á sex tíma vöktum. Einn stýrði en hinir að gaufa; tálga, splæsa, sumir í fýlu. Skrítið hvað einn gikkur getur eyðilagt. Þegar lifað er svona þröngt úti á hafi verða menn að taka á til að umbera hver annan. Skálað var við 200 mílurnar og sent skeyti; stuðningsyfirlýsing til yfirvalda. Tveim dögum áður en við komum til Grindavíkur kom loftskeytamaðurinn út úr skýl- inu, höfðum lítið senditæki og kallaði til mín: „Kjartan, það er síminn til þín.“ Þá var það kunningi minn sem er radioáhugamaður og vildi vita hvernig ég hefði það og rabbaði við mig um daginn og veginn. Það var dálítið skondið. Eftir tólf daga siglingu kom- um við upp að Hjörleifshöfða. Frá Bergen og til Grindavíkur eru um 700 mílur en við sigldum 1200 vegna óhagstæðra vinda. Höfðum við þá farið sömu leið og Ingi gamli. Það er dáldið sérstök tilfinning að sjá land rísa úr sjó. Við Hjörleifshöfða lentum við í logni í heilan dag. Þá var síðasta rollan steikt og tollurinn drukk- inn. Vélbátur dró okkur áleiðis, við slepptum honum þegar kom byr á ný. Útgerðarmaður í Grindavík bauð okkur gistingu í verbúð og máltíð og var það frábært. Að kvöldi fórum við frá Kefla- vík og að morgni biðum við fyrir Starfsaldurslisti flugmanna Hinn 6. september birtist í Morgunblaðinu grein eftir Kjart- an Norðdahl um stárfsaldurslista flugmanna. Er í grein þessari deilt á Loftleiðaflugmenn og þeir sak- aðir um „offors" og „óbilgjarna framkomu“ og verður ekki hjá því komist að gera nokkrar athuga- semdir við málflutning Kjartans Norðdahl enda þótt stjórn Félags Ix)ftleiðaflugmanna telji deilumál af þessu tagi verða hetur leyst á öðrum vettvangi en síðum dag- blaðanna. Kjartani verður tíðrætt um hugtakið sanngirni í grein sinni. Eitt af því sem hann telur vera sanngjarnt er að sá samdráttur sem nú er að verða á flugi Flugleiða hf. komi alfarið niður á þeim flugmönnum sem áður störf- uðu hjá I-ioftleiðum hf. Virðist þessi skoðun greinarhöfundar reist á þeim misskilningi að flugið milli Luxemborgar og Bandaríkj- anna sé eini þáttur starfsemi Flugleiða hf. sem Loftleiðahluti félagsins „eigi“. Kjartan kýs að gleyma hlutdeild Loftleiða hf. í Evrópuflugi íslensku flugfélag- anna áður en sameining þeirra kom til framkvæmda og lætur sem Flugfélag Islands hafi „átt“ þessar flugleiðir með öllu. Hið rétta í þessu máli er auðvitað að þáttur Loftleiða var fyrir sameininguna mikill í flugi til Norðurlanda og Bretlands. Samkvæmt athugun sem nýlega var gerð hjá Flugleið- um hf. á farþegaflutningum Loft- leiða og Flugfélags Islands á þessum flugleiðum árin 1968—73, var hluttjeild Loftleiða 35,9% af áætlunarflugi, 7% af leiguflugi, eða 31,6% af heildarflutningum þessi síðustu 6 ár fyrir sameining- una. Eftir sameiningu flugfélag- anna tveggja var þetta flug Loft- leiða hins vegar úr sögunni og fékk Flugfélag íslands það allt í sínar hendur. Þessi þróun mála hlaut að valda Loftleiðaflugmönnum áhyggjum og rituðu þeir m.a. starfsbræðrum sínum hjá Flugfélagi íslands bréf og fóru fram á að teknar yrðu upp viðræður um hvernig standa mætti að slíkum tilfærslum á verkefnum á milli hinna tveggja flugfélaga sem nú voru í eigu Flugleiða hf., þannig að starfsör- yggi flugmanna væri sem best tryggt. En nú gerðist það, að flugmenn Flugfélags Islands þótt- ust ekki skilja að hér væri vanda- mál á ferðinni og virtu kollega sína ekki svars. Það var sem sé skilningur Flugfélagsmanna að þeir „ættu“ þessar flugleiðir til Norðurlanda og Bretlands og mátti einu gilda hvort starfsör- yggi flugmanna Loftleiða hf. yrði skert með þessu móti. Þetta var talið vera sanngjarnt. Hér er ef til vill að finna upphaf þeirra deilna sem síðar hafa orðið um sameiginlegan starfsaldurslista flugmanna. Öll framvinda mála Greinargerð frá Félagi Loft- leiðaflugmanna eftir sameiningu flugfélaganna hefur verið á einn veg, flug- mönnum Flugfélags Islands hefur fjölgað hlutfallslega en Loftleiða- flugmenn hafa mátt sæta því að fá f hendur uppsagnarbréf hvað eftir annað, og virðist hlutur Loftleiða í samsteypu hinna tveggja flugfé- laga vera orðinn heldur lítill þegar litið er til stærðarhlutfalla félag- anna við sameininguna. Þetta vandamál vegna tilfærslu verkefna á milli flugfélaganna, sem Flugfélagsflugmenn ekki gátu skilið á sínum tíma, hefur nú skotið upp kollinum á ný. Nú er um að ræða hlut Arnarflugs í leiguflugi Flugleiða og kveður nú við annan tón hjá Flugfélags- mönnum, enda snýr hið áður lítt skiljanlega vandamál að þeim sjálfum. Það er einkar athyglis- vert að í blaðagrein (Mbl. 11. sept.) eftir Kjartan Norðdahl sem hann nefnir „Raunir forstjórans", talar hann um að Arnarflug sé að taka að sér leiguflug sem áður „hafi verið drjúgur starfshlutur flug- manna Flugleiða". Og Kjartan segir: „Já, svona er lífið. Það er ekki sama hver á í hlut.“ Einmitt. Rett er að undirstrika að Félag Loftleiðaflugmanna hefur engu minni áhyggjur en Kjartan Norð- dahl vegna einmitt þessara mála en þykir jafnframt sjálfsagt að benda á, að hér er um að ræða þróun mála hliðstæða þeirri er varð í Evrópuflugi flugfélaganna eftir sameininguna, og áður er getið. Annað dæmi um sanngirni þá er Loftleiðaflugmönnum hefur verið sýnd er, þegar ráða átti nýja flugmenn til starfa við innan- landsflug Flugfélags ísiands árið 1975. Eins og svo oft áður stóð nú svo á, að nokkrir flugmenn Loft- leiða voru atvinnulausir vegna uppsagna. Hugðust nokkrir þeirra sækja um störf hjá Flugfélaginu. Með tilliti til þess, að hér var um að ræða flugmenn með mikla reynslu, hefði mátt ætla að þeir hefðu góða möguleika á að fá þessi störf. Ennfremur, úr því að segja þurfti upp flugmönnum á öðrum „væng“ Flugleiða hf., hefði ef til vill ekki þótt ósanngjarnt að ráða þá til starfa á hinum „væng“ félagsins. En því var ekki að heilsa. Flugmönnum þessum var tjáð að þeir væru of gamlir til þess að hægt væri að taka þá til greina! Reynsla þeirra var einskis metin og í staðinn voru ráðnir aðrir flugmenn, yngri og reynsluminni. Kjartani Norðdahl er mikið niðri fyrir þegar hann fjallar um DC-10-þotuna og er óspar á gífur- yrðin í garð Loftleiðaflugmanna. Þess ber að geta, að þessi flugvél kom í stað DC-8-flugvélar Loft- leiða og var ætlað að fljúga eingöngu á N-Atlantshafsflugleið- um félagsins. Það var þannig ekki um að ræða aukningu á flugvéla- kosti né heldur fjölgun flug- manna, hvað þá að ráðast ætti inn á þær flugleiðir sem flugmenn Flugfélags íslands töldu sig „eiga“. Þrátt fyrir þetta var þess krafist að tveimur flugmanna Flugfélags íslands yrði komið í sæti flugstjóra á DC-10-flugvél- inni. I sárabætur var boðið upp á það, að einn Loftleiðaflugmaður fengi stöðu flugstjóra í innan- landsflugi. Nú voru Loftleiðaflug- menn ekki of gamlir! En hvaða starfsaldurslista höfðu þeir Flugfélagsmenn í huga þegar deilan stóð um DC-10-þot- una? A þessum tíma var ekki búið að gera samkomulag um sameig- inlegan starfsaldurslista flug- mannafélaganna, flugfélögin voru enn tvö, og flugmenn voru enn starfsmenn Loftleiða hf. annars vegar, og F'lugfélags Islands hins vegar. Og úr því að Flugfélags- menn höfðu á sínum tíma talið sig „eiga“ flugið til Norðurlanda og Bretlands og Loftleiðaflugmenn taldir of gamlir til þess að fljúga í innanlandsflugi, var þá óeðlilegt að flugmenn Loftleiða reyndu að halda í það sem þeim hafði verið úthlutað af verkefnum Flugleiða? Kjartan Norðdahl telur að það hefði leyst allar deilur um sameig- inlegan starfsaldurslista að ráða tvo flugmenn Flugfélags íslands í stöður flugstjóra á DC-10-þotunni. Hann virðist gleyma því að á sínum tíma komu til starfa á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.