Morgunblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
25
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Lestrar og föndur-
námskeiö
f. 4—5 ára börn byrjar 15. sept.
Sími 21902.
Fimir fætur
Aðalfundur og dansæfing í
Templarahöllinni 13. sept. kl. 20.
Innflytjendur
Get tekiö aö mér aö leysa út
vörur. Tilboö sendist augld Mbl.
merkt: „Trúnaöur — 4085".
Kvennadeild Rauöa-
kross íslands
Konur athugiö
Okkur vantar sjálfboöaliöa til
starfa fyrir deildina. Uppl. í s.
17394, 34703 og 35463.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖfO 3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferöir 14. sept.:
1. kl. 09 Þjórsárdalur — Hái-
foss. Verö kr. 7.000.-. Farar-
stjóri: Hjálmar Guómundsson.
2. kl. 13 Keilir. Ekiö aö Höskuld-
arvöllum, gengiö þaöan og á
fjalllö. Fararstjóri: Guömundur
Jóelsson. Verö kr. 3.500.-.
Fariö frá Umferöarmiðstööinni
aö austanveröu. Farseölar v/bíl-
Inn.
Feröafélag íslands.
Krossinn
Æskulýössamkoma í kvöld kl.
20.30 aö Auöbrekku 34, Kópa-
vogi. Allir hjartanlega velkomnir.
Heimatrúboöiö
Óöinsgötu 6a
Almenn samkoma á morgun kl.
20.30. Allir velkomnir.
Fíladelfía
Almenn guösþjónusta kl. 20.00
Raaöumaöur Rolf Karlsson. Kór
kirkjunnar syngur, söngstjóri
Árni Arinbjarnarson.
UTIVISTARFERÐIR
Skíöadeild Víkings
Aöalfundur Skíöadeildar Víkings
veröur haldinn í félagsheimilinu
viö Hæöargarö mánudaginn 15.
sept. 1980 kl. 20.00. Oagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf
Stjórnin.
Sunnud. 14. 9.
1. kl. 8 Þórsmörk, einsdagsferö,
verö 10.000 kr.
2. kl. 9 Selvogsgata, gengiö úr
Kaldárseli í Selvog, verö 5000
kr.
3. kl. 9 Skjaldbreiöur, létt
ganga, ekiö um Mosaskarö f
Haukadal, fararstj. Ásmundur
Sigurösson Verö 8000 kr„ einn-
ig Þingvellir, berjaferó, senni-
lega síóustu möguleikar aó tfna
bláber, verö 5000 kr.
4. kl. 13 Setvogur, berjaferó og
landskoóun, verö 5000 kr. Brott-
för í allar feróirnar frá B.S.Í.
vestanverðu. Útivist.
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi óskast
Iðnaðarhúsnæði óskast
300—400 ferm. iönaöarhúsnæöi óskast til leigu á Stór-Reykjavfkur-
svæöinu eöa í Hafnarfirði. Lágmarkslofthæö 3 m. Þarf aö vera á
jaröhæð meö innkeyrsludyrum.
Tilboöum sé skilaó á augld. Mbl. fyrlr 20. sept. merkt: .lönaöarhús-
næöi — 4342".
Sumarbústaður óskast
Óskum eftir sumarbústað á svæðinu frá
Borgarfirði að Kirkjubæjarklaustri. Lág-
marksstærð 30 fm.
Skriflegar uppl. um verð, stærö, staðsetn-
ingu, vatn, rafmagn, svo og byggingartíma,
óskast sendar á augl.deild Mbl. fyrir 20. sept.
nk. merktar: „Sumarbústaður — 4278“.
Vestfjarðarkjördæmi
Kjördæmissamtök sjálfstæöiskvenna
á Vestfjöröum
halda almennan fund aö Uppsölum, ísafiröl,
sunnudaginn 14. sept. nk. kl. 3.30 eh.
Fundarefni: Heimillö og neytendamálin.
Framsögu hefir: Þorbjörg Bjarnadóttir skóla-
stjóri.
Almennar umræöur.
Sjálfstæöiskonur fjölmenniö.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna í
Nes- og Melahverfi
býöur eldri borgurum hverfisins í hina árlegu skemmtiferö sunnudag-
inn 14. september. Lagt veröur af staö frá Neskirkju kl. 13:00.
Þátttaka tilkynnist í síma 23625 föstudag milli kl. 18:00—20:00 og
laugardag í síma 34807 kl. 13:00—15:00. Fjölmenniö í feröina.
Stjórnin.
Orðsending frá Hvöt
Föstudaginn 19. september verður markaður
með allskonar muni og fatnað á útimarkaðn-
um á Lækjartorgi. Þeir sem vilja láta eitthvaö
af hendi rakna hafi samband við skrifstofu
félagsins í Valhöll, frá 15. sept. n.k. milli kl.
9—12 f.h. ísíma 82900.
f.h. fjáröflunarnefndar,
Anna Ásgeirsdóttir.
Kvlkmyndlr
cftir ÓLAF M
JÓHANNESSON
ÞÖGNIN BRÝTUR KRISTAL?
Sýninjfarstaður: Háskólabió
(Mánudafrsmynd)
KnipplinKastúlkan (Nafn á
frummáli: La Dentelliere.)
F rönsk-svissnesk.
Ár: 1977.
Handrit: Claude Corette/ Pasc-
al Lainé, eftir skáldsöKu Lainé.
Leikstjóri: Claude Corette.
Þegar haustar og grá laufin
taka að falla af himni er gott að
skreppa í bíó. Hverfa inn í
ókunnar veraldir þar sem lífið er
annað hvort svart eða hvítt.
Vondu mennirnir eru vondir,
Þögnin brýtur kristal?
góðu mennirnir hvítir englar,
sem sagt allt á hreinu. Þá
haustdaga sem nú hafa svifið
inn í líf Reykvíkinga ber að með
óvenju fögrum hætti. Sól og
bjart laufið á trjánum ekki bara
grátt en samt er einhver grá-
mygla í mannlífinu. Allt ein-
hvernveginn umsnúið. Einu
bréfin sem berast inn úr póst-
hólfunum, rafmagnsreikningar,
simreikningar, skattreikningar.
Allt ritað af ókennilegum tölv-
um sem eru svo gáfaðar að menn
kjósa fremur að þegja og borga
en opinbera fávisku sína enda
vita þeir að flotkrónurnar eru
svo léttar að þær svífa upp í
loftið líkastar flugdrekum sem
þú getur aldrei náð í skottið á.
Að vísu berast blöðinn inn í
pósthólfin og þú skoðar myndir
af brosandi verkalýðsleiðtogum
við hlið brosandi ráðherra sem
fá 160.000 krónu sjálfvirka
hækkun meðan þú getur þakkað
fyrir 1600 króna viðbót, og svo á
næstu síðu er mynd af ygldum
jarðskjálftafræðing sem þú hélst
að ætti að brosa líka samkvæmt
lögmálinu. Þú veltir jafnvel fyrir
þér hvort orðið „félagi" hafi
tapað gildi sínu líkt og flotkrón-
urnar, það sé svona til skrauts á
vissum tyllidögum þegar neftób-
akið sáldrast yfir lýðinn og
„félagarnir" vökna á eftir inn í
kokteilhringjunum tæmandi
glösin af svo miklum ákafa að
hanastélin blotna í stólunum. Sú
hnípna mannlífsröð sem stóð
fyrir framan miðasölu Háskóla-
bíós að bregða sér inn á mánu-
dagsmyndina frá hinum gráa,
áttlausa veruleika var ekki blaut
af kampavíni. Varð mér hugsað
til hinna stórkostlegu, tölvu-
hönnuðu „félagsmálapakka" sem
nú er dreift með skattseðlunum
(að vísu hefur einn slíkur ekki
flotið inn um bréflúgu undirrit-
aðs með reikningunum en það
stendur vonandi til bóta, félag-
arnir nýbúnir að semja við
bræður sína, bara eftir að skála).
Væri ekki sniðugt að senda
bíómiða með til dæmis stærsta
pakkanum sem kemur væntan-
lega á jólunum — slíkt sparaði
bæði tímafreka samninga og dýr
kokteilboð að ári. Menn myndu
ábyggilega þiggja að fara frítt á
bíó að sjá góðu mennina berja á
vondu mönnunum, svo mætti
veita popp í hléinu; þá gleymdu
menn alveg allri vísitöluskerð-
ingu eða hvað þetta nú heitir
sem gáfuðu mennirnir eru alltaf
að tala um í sjónvarpinu. Því
miður varð mér ekki að þeirri
ósk að sleppa úr grámyglu
mannlífsins er ég steig inn í
heim Knipplingastúlkunnar
þennan fagra sólríka mánudags-
eftirmiddag. Ég komst reyndar
aldrei inn í heim hennar, þann
lokaða sálarhjúp sem þessi
ofurvenjulega dagsbrúnarstúlka
á hárgreiðslustofunni huldi með
líf sitt. Aðeins eitt augnablik
þegar hún svikin af „vini“ sínum
sest á grámyglulegu taugahæl-
inu niðurbrotin fyrir framan
mynd af hvítri vindmyllu á
Grikklandi opnast manni þessi
heimur. Heimur hreinleika,
heimur heiðarleika, heimur
hárra skatta en lítilla launa.
Heimur sem hinn menntaði sið-
fágaði „vinur“ hennar gat hvorki
né vildi skilja. Fáar myndir hafa
sagt svo sögu milljóna í nokkr-
um hófstilltum orðum sem
Knipplingastúlkan. Með þögn-
inni taka þessar óbrotnu stúlkur
lífinu, fegurð þess og Ijótleika.
Þær beygja bak sitt til að sópa
upp afskornu hári samborgara
sinna eða afskornum þorskhaus
sem hefir fallið af roðflett-
ingarvélinni. Og þegar þær kom-
ast af tilviljun í tæri við hina
gylltu froðu kampavínsins láta
þær sér nægja að dreypa á
meðan aðrir svolgra í botn
dreggjarnar: líf þeirra. Orð eins
og „rík tjáning", „stórkostleg
innlifun", „sannfærandi á allan
hátt“, eiga ekki við um þessa
mynd, þau væru tilgerðarleg,
fölsk. Gegn þögn þessarar mynd-
ar og því hyldýpi sem þar býr að
baki eigum við ekkert svar. Við
getum pakkað þjáningu þessa
fólks inn í umbúðir í snyrtilegan
„félagsmálapakka" en hún sytr-
ar í gegn. Einn góðan veðurdag
mun þetta fólk brjóta kristal
glösin og skafa af þeim gylling-
una. Nú þegar heyrum við óminn
frá Gdansk, Bytom ... Varsjá.
Minning
- Leiðrétting
í MINNINGARGREIN um Ás-
mund Sturlaugsson frá Snartar-
tungu hér í hlaðinu á fimmtudag-
inn, varð misritun, sem réði
merkingu málsgreinarinnar, er
orðið sorg stóð í stað spor. — En
svona hljóðar málsgreinin rétt:
„Árin liðu kom að því að
Snartartunguhjón brugðu búi,
fluttust suður til Reykjavíkur, hef
ég óljósan grun um að það hafi
verið Ásmundi þung spor, en mikil
gleði fyrir hann að vita að Sigur-
karl sonur hans tók við búinu ...“
Gíslarnir
sagðir við
góða heilsu
New York. (lení. 11. september. AP.
WALDHEIM, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna
sagði í dag, að hann ætti ekki
von á því, að deilan um
bandarísku gíslana í íran
mundi leysast á næstunni.
Sendifulltrúi írans í Genf
sagði þar í dag, að gíslarnir
væru við góða heilsu og væri
vel farið með þá. Utanríkis-
málanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings hefur sam-
þykkt að óska eftir því við
Rauða krossinn, að hann sendi
starfsmenn sína til að fylgjast
með líðan gíslanna.
u (.I.VSIM; \SIMINN Klt: ,£ j
22480
Bloröiinblntúh