Morgunblaðið - 13.09.1980, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
Fréttir í
stuttu
máli
Leikarar í
hjónaband
Feneyjum, 10. sept. — AP.
BANDARÍSKU leikararnir
Farrah Fawcett og Ryan
O’Neal tiikynntu í dag, að þau
hygðust ganga i það heilaga í
Feneyjum, og færi athöfnin
fram „bráðlega". Þau munu
fara með aðalhlutverkin í
kvikmynd sem kvikmynduð
verður í nágrenni Feneyja.
Phantom-
þotur
kyrrsettar
WashinKtnn. 10. sept. — AP.
BANDARÍSKI flugherinn
kyrrsetti til bráðabirgða allar
Phantom-orrustuþotur sínar í
dag, þar sem komið hafa í ljós
biianir á sæti flugmannsins,
en hann getur skotið sér í því
út úr flugvélinni ef bilun
verður í henni. Alls hefur
flugherinn 1.732 orrustuþotur
af þessari gerð í þjónustu
sinni.
Gamalt
herskip
fundið
Stukkhólmi, SIPB.
FUNDIST hefur flak sænska
herskipsins „Kronan" sem vait
og sökk við Eystrasaltsstrend-
ur Svíþjóðar árið 1676.
Skrokkurinn hefur meira og
minna liðast í sundur, en 128
verðmætar falibyssur úr
bronsi hafa varðveist vel.
Kronan, sem byggt var á
árunum 1665 til 1672 og var á
sinum tíma stærsta skip
sænska flotans og stolt. For-
svarsmaður leiðangursins sem
fann Kronan var Anders
Franzén, sá hinn sami og fann
Wasa-skipið í höfninni í
Stokkhólmi fyrir um tuttugu
árum.
Sjónvarp kl. 21.55:
Araman bruggar viskí
og vitnar í Biblíuna
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.55
er bandarísk sjónvarpsmynd frá
árinu 1974, Hún var kölluð
Snemma (A Girl Named Soon-
er). Aðalhlutverk leika Cloris
Leachman, Richard Crenna og
Lee Remick. Þýðandi texta er
Ragna Ragnars.
Átta ára gömul stúlka elst upp
hjá drykkfelldri ömmu sinni,
sem bruggar viskí og vitnar
tíðum í Biblíuna. Litla stúlkan
hefur gott lag á dýrum og góð
kynni takast með henni og dýra-
lækni nokkrum. Hann vill gjarn-
an taka stúlkuna í fóstur, en því
er eiginkona hans gersamlega
mótfallin, a.m.k. í fyrstu.
Það held ég nú, kl. 20.30:
Bernska í
blómskrúði
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.30
er þátturinn Það held ég nú í
umsjá Hjalta Jóns Sveinssonar.
Hjalti sagði: — Það verður
farið úr einu í annað. Ég fæ tvo
ágæta gesti í þáttinn, Pétur
Hafstein Lárusson rithöfund og
Arnþór Helgason, formann KIM,
menningartengsla Kína og ís-
lands. Eg byrja þáttinn á smá-
hugleiðingu um árstímann og
svo spjalla ég við Pétur Hafstein
um bók sem hann er að skrifa, en
það er viðtalsbók við Stefán í
Möðrudal og nefnist Bernska í
blómskrúði. Segir m.a. frá því er
Stefán faðmaði blómin heima í
Möðrudal. Arnþór Helgason seg-
Hjalti Jón Sveinsson
ir ferðasögu frá Kína og auknum
samskiptum Islendinga og Kín-
verja. Ög við fáum að heyra hjá
honum nokkur tóndæmi um kín-
verska tónlist.
Stefán Jónsson i Möðrudal
Séra Bolli Gústavsson
Hjörtur Pálsson
Illjóðvarp kl. 17.50:
„Ýmsar verða ævirnar“
Á dagskrá hljóðvarps kl.
17.50 er þátturinn „Ýmsar
verða ævirnar“. Hjörtur Páls-
son lesa kafla úr handriti
óprentaðrar bókar eftir séra
Bolla Gústavsson í Laufási.
í þessa bók, sem kemur út á
Akureyri í haust, hefur séra
Bolli sett saman bernskuminn-
ingar, ritgerðir, greinar og
þætti, m.a. um ýmsa Þingeyinga.
Lengsti kafli bókarinnar heitir
Á prestssetrinu og verður m.a.
lesið úr honum. Fjallar þessi
kafli um séra Björn Halldórsson
í Laufási, heimilislíf þar, heimil-
isfólk og gesti í hans tíð, en séra
Björn sat Laufás um þriggja
áratuga skeið, frá 1852 og til
dauðadags 1882, fyrsta árið sem
aðstoðarprestur, en prófastur
frá 1863, auk þess að vera bæði
skáld og héraðshöfðingi.
Þetta erum við að gera, kl. 11.20:
Tómstundastarf
barna og unglinga
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.20
er þátturinn Þetta erum við að
gera í umsjá Valgerðar Jóns-
dóttur. Forvitnast verður um
tómstundastarf barna og ungl-
inga á nokkrum stöðum úti á
landi.
— Eg hef símasamband við
sjö staði úti á landsbyggðinni og
forvitnast um það hvað börnum
og unglingum stendur þar til
boða að starfa í tómstundum
sínum. Elís Þór Sigurðsson svar-
ar fyrir Akranes og segir okkur
frá því sem þar er að gerast.
Haraldur Hansen, fram-
kvæmdastjóri Dynheima, svarar
fyrir Akureyri, Egill Guð-
mundsson skólastjóri fyrir Eg-
ilsstaði, Albert Eymundsson
skólastjóri fyrir Höfn í Horna-
firði, Ólafur Guðmundsson
kennari fyrir ísafjörð, Sævar
Halldórsson fyrir Keflavík og
Guðmundur Þ.B. Ólafsson
tómstundafulltrúi fyrir Vest-
mannaeyjar. Það má segja að
þarna gefist foreldrum og börn-
um tækifæri til að kynnast því
sem í boði er á hverjum stað.
Valgeröur Jónsdóttir
Utvarp Reykjavik
SKJÁNUNI
L4UG4RD4GUR
13. september
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónieikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
8.00 Fréttir. Tónieikar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 óskaiög sjúklinga: Ása
Finnsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.)
11.20 Þetta erum við að gera
Valgerður Jónsdóttir for-
vitnast um tómstundastarf
fyrir börn og unglinga á
nokkrum stöðum úti á landi.
112.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
. ieikar.
114.00 í vikulokin
Umsjónarmenn: Guðmundur
Árni Stefánsson, Guðjón
Friðriksson, óskar Magn-
ússon og Þórunn Gestsdóttir.
SÍDDEGIO______________________
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hringekjan
Blandaður þáttur fyrir börn
á öllum aldri. Stjórnendur:
Edda Björgvinsdóttir og
Helga Thorberg.
16.50 Síðdegistónleikar
Triest-trióið leikur Tríó nr. 4
í E-dúr eftir Joseph Haydn /
Anneliese Rothenberger
syngur lög eftir Schubert og
Meyerbeer. Giinter Eissen-
born, Gerd Starke og Nor-
bert Hauptmann leika með á
píanó, klarinettu og horn.
17.50 „Ýmsar verða ævirnar“
Hjörtur Pálsson les kafla og
kaflaupphaf úr handriti
óprentaðrar bókar eftir séra
Bolla Þ. Gústavsson í Lauf-
ási.
KVÖLDIÐ
18.20 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Babbitt“ saga eftir Sin-
clair Lewis
Sigurður Einarsson þýddi.
Gísli Rúnar Jónsson leikari
les (41).
20.00 Harmonikuþáttur
Sigurður Alfonsson kynnir.
20.30 Það held ég nú
Hjalti Jón Sveinsson sér um
þátt með blönduðu efni.
21.15 Hlöðuball
Jónatan Garðarsson kynnir
ameriska kúreka- og sveita-
söngva.
22.00 Þriðja bréf úr óvissri
byggð
Hrafn Baldursson ræðir um
nokkur atriði byggðar-
þróunar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Sætbeizka
sjöunda árið“ eftir Heinz G.
Konsalik
Bergur Björnsson þýddi.
Halla Guðmundsdóttir ies
(5).
23.00 Danslög (23.45 Fréttir.)
01.00 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
13. september
16.30 íþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Fred Flinstone í nýjum
ævintýrum.
Teiknimynd.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Shelley
Gamanþáttur
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son._
21.00 Á Everest án súrefnis-
tækja.
Tveir kunnir fjallagarpar,
Reinhold Messner og Peter
Habeler, ákváðu að reyna
að skera úr sextíu ára
gömlu ágreiningsmáli: Er
unnt að klífa hæsta fjall
heims án þess að nota
súrefnisgrímu?
Þýðandi Björn Baldursson.
Þulur Guðni Kolbeinsson.
21.55 Hún var kolluð
Snemma
(A Girl Named Sooner)
Bandarisk sjónvarpsmynd
frá árinu 1974. Aðlhlut-
verk Cloris Leachman,
Richard Crenna og Lee
Remick.
Átta ára stúlka elst upp
hjá drykkfelldri ömmu
sinni. Hún hefur gott lag á
dýrum, og góð kynni takast
með henni og dýralækni
nokkrum. Hann vill gjarna
taka stúlkuna í fóstur, en
þvi er kona hans gersam-
lega mótfallin.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.40 Dagskrárlok.