Morgunblaðið - 13.09.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
5
Námskeið í Alexanders-tækni i Tónlistarskólanum:
„Aðferðin auðveldar fólki að beita hæfi-
leikum sínum og skapar betri líðan44
segir Nelly Ben-Or
PlANÓLEIKARINN Nelly
Ben-Or dvelur þessa dagana hér
á landi <>n mun hún halda tón-
leika á vegum Tónlistarskólans
í Reykjavik i Austurbæjarbiói
kl. 14.30 í das- Aðalerindi Nelly
Ben-Or hingaó til lands er hins-
v.eKar að halda námskeið i
svonefndri Alexander-tækni.
sem hún mun halda á ve«um
FélaKs tónlistarkennara, en nám-
skeið þessi munu fara fram i
næstu viku. Alexander-tækni
sú, sem hér er talað um, hefur
vakið mikla athyKli sem haKnýt
aðferð til að auka skynhreyfi-
leikni ok hentar þvi vel hljóð-
færaleikurum, ok öðrum sem
þurfa að beita samhæfðum lík-
amshreyfinKum við störf sin.
Nelly Ben-Or er þrautreyndur
kennari í Alexander-tækni og hef-
ur kennt hana um sautján ára
skeið. Hún er prófessor í píanóleik
við Guildhall-tónlistarskólann í
Lundúnum þar sem hún kennir
einnig þessa tækni. Þá hefur hún
haldið fjölmörg námskeið í þess-
um fræðum við ýmsar tónlistar-
stofnanir í Evrópu, Israel og
Bandarikjunum. — Nelly Ben-Or
fæddist í Varsjá og vakti mikla
athygli þegar á unga aldri fyrir
píanóleik en fyrstu hljómleika
sína hélt hún þrettán ára gömul.
Hún hefur haldið tónleika víða um
heim við góðan orðstír en undan-
f irin ár hefur hún verið búsett í
£ íglandi.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Nelly Ben-Or um Alex-
ander-tæknina, sem hún kennir,
og byrjaði hún á því að rekja í
stuttu máli hvernig þessi aðferð
hefði orðið til.
„Höfundur þessarar aðferðar
var Ástraliumaðurinn Fredrik M.
Alexander, og var hann uppi frá
1869—1954,“ sagði Nelly Ben-Or.
„Hann fékk ungur mikinn áhuga á
Paradísar-
heimt frum-
sýnd í Þýska-
landi 30. sept.
KVIKMYNDIN Paradisarheimt.
sem gcrð er eftir söku Halldórs
Laxness er nú senn tilbúin til
sýningar ok verður hún frum-
sýnd i Þýskalandi 30. september
nk. Ilalldóri Laxness hefur verið
boðið til Þýskalands til að vera
viðstaddur frumsýninguna. en i
samtali við Mbl. kvaðst hann þvi
miður ekki cÍKa heimangengt um
þessar mundir þar sem hann væri
upptekinn við að koma út bók.
Paradísarheimt á að frumsýna í
Hamborg þar sem eru aðalstöðvar
þýsku sjónvarpstöðvarinnar er
stendur að gerð myndarinnar,
Norddeutscher Rundfunk. Þýski
leikstjórinn Rolf Hádrich hefur
haft veg og vanda að gerð Paradís-
arheimtar og margir íslenskir
atvinnu- og áhugaleikarar koma
þar við sögu. Þá hefur Jón Þórar-
insson tónskáld samið tónlist við
myndina og er hann nýlega kom-
inn heim frá Þýskalandi eftir að
hafa unnið þar að tónlistinni.
MYNDAMÓT HF.
ID<
ADALSTR4ETI • SlMAR: 17152- 17355
Nelly Ben-Or
Ijóðlist og varð þegar á unga aldri
kunnur fyrir upplestur. En þegar
hann var átján ára að aldri
byrjaði hann að eiga í erfiðleikum
með rödd sína og gátu læknavís-
indin ekkert hjálpað honum í
þessum vandræðum hans. Alex-
ander tók hins vegar eftir því að ef
hann hvíldist komst röddin í samt
lag aftur. Hann dró af þessu þá
ályktun að eitthvað það hlyti að
vera í hátterni sínu sem truflaði
samhæfingu líkamans og það
orsakaði þessa truflun. Næstu tíu
árin gaumgæfði hann sjálfan sig
til að finna út hvað þetta „eitt-
hvað“ var og þróaði þá þessa
aðferð, sem nefnd er Alexander-
tækni.“
Hvernig er þessi aðferð kennd
og hvaða gagn er af henni?
„Alexander-tæknin verður ekki
lærð af bókum heldur verður að
vera til staðar kennari sem sjálfur
hefur náð tökum á henni. Þegar
nemendur læra þessa tækni, öðl-
ast þeir dýpri skilning á samband-
inu milli hugar og líkama. Afleið-
ing þessa er sú að stellingar og
hreyfingar líkamans batna, jafn-
vel í einföldum athöfnum daglegs
lífs. Flóknari starfsemi, s.s. að
leika á hljóðfæri, má bæta að mun
með þessari tækni, — hún leysir
óþarfa spennu, gerir hreyfingar
frjálsar og skapar léttleika-
tilfinningu. Þessi aðferð er
mjög hentug til að koma í veg
fyrir þreytu og stífni í æfingum.
Hún opnar nýja möguleika á því
hvernig bregðast skuli við tækni-
vandamálum í hljóðfæraleik og
hjálpar mikið til við undirbúning
hljómleika. Tónlistarmenn um all-
an heim hafa fengið mikinn áhuga
á þessari aðferð, því mörgum
þeirra þykir hún skynsamleg og
hagnýt, og að hún hafi góð áhrif á
leik þeirra. Ýmsir tónlistarskólar
og tónlistardeildir við háskóla
hafa kynnt nemendum sínum
þessa aðferð með góðum árangri.“
Geta allir náð tökum á Alex-
ander-tækni og hversu langan
tíma tekur það?
„Það geta flestir, — og ég held
allir, sem raunverulega vilja það.
Það er mjög misjafnt hversu fólki
gengur vel að ná tökum á þessari
aðferð, — venjulega nægir að
sækja 30—40 tíma sem eru um
hálfrar klukkustundar langir.
Þessari aðferð fylgja engar æf-
ingar og kemur það mörgum
spánskt fyrir sjónir."
Geta allir haft gagn af þessari
aðferð eða er hún fyrst og fremst
fyrir listafólk?
„í fyrstu var Alexander-tæknin
einkanlega hagnýtt af listafólki en
vegna þess hvað hún reyndist
árangursrík gerist nú æ algengara
að fólk úr öllum þjóðféiagshópum
hagnýti sér hana. Hún auðveldar
fólki að beita hæfileikum sínum á
flestum sviðum og veitir betri
líðan. Þessi aðferð á að mínu áliti
erindi til allra, því hún er þess
megnug að létta af fólki þeirri
streitu, sem óneitanlega er eitt af
stæstu vandamálum nútímaþjóð-
félags," sagði Nelly Ben-Or, að
lokum.
b<>.
Talbot Horizon
er stærri og íburöarmeiri bíll en Talbot 1100. Horizon sést
nú víöa á götum Evrópu og vekur mikla athygli enda var
hann valinn bíll ársins 1978—1979 af 53 af fremstu
bílagagnrýnendum 16 landa. Þaö útaf fyrir sig er stórmál og
óhætt aö fullyröa aö árgerö 1980, er sannarlega ekki verri
en þá. Horizon er auövitaö framhjóladrifinn og fimm dyra
bfll, sem kostar aöeins trá kr. 7.500.000.-
Nú sýnum viö þessa
2 frábæru Frakka
TALBOT1100
TALBOT Horizon
Viö höfum gert sérlega hagstæöan samning viö
Talbot verksmiöjurnar í Frakklandi um ótrúlega
gott verö á þessum þrautreyndu bílum. Árgerö
1980 fæst nú fyrir verö sem gilti 1979, sumir
selja litla, þrönga bíla á þokkalegu veröi, — viö
bjóöum stærri bíla og mun
rúmbetri á lægra
veröi.
„Ameríka í alls-
Talbot 1100
herjar orkustríöiáá
Sýnum einnig gæöa vagninn
0MNI frá Chrysler
Sýningin er opin,
laugardag kl. 10—6
sunnudag kl. 10—6.
Komiö og kynnist betri bíl á
Bílasölu Guðfinns,
Ármúla 7.
er 5 dyra bfll með framhjóladrifi, kraftmikill en sparneytinni
vél og virkilega skemmtilegum aksturseiginleikum. Talbot
1100 er bfll sem framleiddur hefur veriö í áraraöir og því
hlotiö mikla reynslu og gert margan ökumanninn ánægöan.
Verö trá aöeins kr. 5.500.000.-