Morgunblaðið - 13.09.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
7
Niðurrifsmenn
að verki
í forystugrein Tímans {
gær kemur fram hörð
gagnrýni é vinnubrögð
Alþýðubandalagsmanna í
Flugleiöamálinu. Þessi
gagnrýni er athyglisverö,
ekki sízt fyrir þá sök, að
hún birtist sem skoðun
málgagns Steingríms
Hermannssonar, sam-
gönguráöherra, og Fram-
sóknarflokksins. í for-
ystugrein Tímans segir:
„Það er jafnan siður
öngþveitis- og niðurrifs-
manna að nýta sér alla
erfiðieika i atvinnu- og
efnahagslífinu til þess aö
herða á áróðri sínum
gegn undirstöðum lífs-
kjara og velmegunar i
landinu.
Þessir aðilar halda
stöðugt uppi óhróöri um
atvinnurekstur lands-
manna og virðast ekki
gera sér minnstu grein
fyrir því að gervallt þjóð-
lifið hefur atvinnulífið að
forsendu, — án þess
verður engu lífi lifaö hér
eða annars staðar.
Það er merki þess
hversu þjóðfélagið er að
verða æ flóknara og
Hóknara að áróðurinn
gegn atvinnulífinu virðist
hafa fest rastur ótrúlega
viða og ótrúlega djúpt.
Astæðurnar eru væntan-
lega þaar að vaxandi
fjöldi kemst ekki í beina
snertingu við fram-
leiðslu- eða þjónustu-
starfsemina, heldur lifir í
filabeinsturnum fjarri
störfum alþýðunnar og
þeim rekstrar- og af-
komuáhyggjum sem ein-
kenna atvinnulífið.
Með þessum orðum er
alls ekki gert lítið úr
hlutverki menntafólks,
skrifstofufólks eða ann-
arra, heldur aðeins bent á
þá staöreynd að sam-
bandsleysi sem orðið er
milli starfshópa og stétta
hlýtur að vera vatnið sem
öngþveitis- og niðurrifs-
mennirnir synda í.
Nú verða mistök í at-
vinnulífinu, og forystu-
mönnum atvinnufyrir-
tækja geta orðið á skyss-
ur. Það er aöeins rétt-
mætt að deila á slíkt. Nú
fer og mikið fyrir þvi i
atvinnulífi aö menn vilji
brjótast um á hæl og
hnakka að auka einka-
gróða sinn á kostnað
annarra, og slíku verður
að halda í skefjum. Og
löngum hafa fyrirtæki
sýnt m.a. umhverfismál-
um, umgengni við náttúr-
una og starfsumhverfi
fólksins tillitsleysi, og eru
þjóðþrif að knýja þau til
sinnaskipta í þeim efnum
og reyndar fleirum."
„Óhugguleg
óhóöurs-
herferö"
í forystugrein Tímans
er vinnubrögð Alþýðu-
bandalagsmanna nefnd
„óhugguleg óhróðursher-
ferð“ og eru það orð að
sönnu. Timinn segir:
„En áróöurinn gegn at-
vinnulífinu snýst ekki um
atriði af þessu tagi. Hann
snýst um það að auka á
viðsjár í þjóðfélaginu, ala
á tortryggni og úlfúð.
Dugandi menn skulu
heita skattsvikarar hvaö
sem það kostar. Vel rekin
fyrirtæki og í vexti skulu
aö óathuguöu máli heita
svikamyllur. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga á
að vera einokunarhring-
ur, Eimskipafélag íslands
auðhringur, og Guð sjálf-
ur má vita hvaöa einkunn
verður gefin Flugleiöum
áður en lýkur ...
Aöförin að Flugleiðum
og forystumönnum þeirra
um þessar mundir er (
raun og veru aöeins liður
i þessari langstæðu og
óhuggulegu óhróðurs-
herferð. Það hefur ekki
verið bent á sérstök mis-
tök forráðamanna á þeim
bæ, umfram þaö sem
kann að vera innbyrðis
deilumál eigenda fyrir-
tækisins og telst innri
ágreiningur sem alltaf
getur orðið. Það hefur
ekki, fremur en vonlegt
var, tekist að benda á að
erfiðleikar Flugleiða séu
einangrað fyrirbæri i
flugmálum á Norður-
Atlantshafi, nema síöur
væri og hefur þó ýmislegt
verið reynt í dylgjum í þá
átt.
Aðferðirnar sem beitt
hefur verið að undan-
förnu eru líka dæmigerð-
ar. Menn skirrast ekki við
að vaða með allt í fjöl-
miðla þótt trúnaöarmál
séu, svo að dæmi sé
nefnt.
En mál er að linni.“
I
I
. DSsl
Treval HF. ~=gfA
Aralöng reynsla í framleiöslu
baðinnréttinga
Látið fagmanninn annast innréttingarnar.
Nýjar innréttingar í sýningarsal okkar aö Nýbýlavegi 4, Kóp.
Komum heim, teiknum og gefum ráöleggingar
yöur aö kostnaöarlausu. Hagstæöir greiösluskilmálar.
Opið laugardag 13—17, sunnudag 13—18.
—Hvíld=
• Tauga og vöðvaslökun (aðferö J.H. Schultz).
• Isometric (spenna-slökun).
• Liökandi líkamsæfingar.
• Öndunaræfingar.
• Hvíldarþjálfun losar um streitu og vöðvabólgu,
auðveldar svefn.
• Upplýsingar og innritun í síma 82-9-82.
Æfingastöðin
=Hvíld=
Laugavegi 178
Þórunn Karveltdóttir,
íþróttakennari.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu mér
vináttu meö heimsóknum, gjöfum, skeytum
og hlýjum kveðjum á 90 ára afmæli mínu 5.
sept. 8.1
GuÖ blessi ykkur öll.
Þorbjörn Þorbjörnsson.
Skagabraut 31, Akranesi.
Happdrætti
Vinningsnúmer í happdrætti Vífilfells h.f. eru 511
— 1043 — 1797 — 2851 — 4091.
Vinningshafar vinsamlegast hafið samband viö
skrifstofu Vífilfells h.f. sem fyrst í síma 18700.
Verksmidjan Vífilfell h.f.
Hef opnað
lækningastofu
í Domus Medica.
Tímapantanir daglega í síma 19120.
Sérgrein: Almennar skurölækningar og
brjóstholsskurölæknir.
Kristinn B. Jóhannsson læknir.
> ................Sækið
Norrænan lýöháskóla
í Danmörku
Hægt er að velja um mörg fög; sund, stjórnunarþekkingu, leiösögn,
mótun, hljómlist.
6 mánaöa námskeiö 1/11-30/4 og 4 mánaöa 3/1-30/4. Skrifiö og
biöjið um skólaskýrslu og nánari upplýsingar. Myrna og Cari viibæk
UGE FOLKEHOJSKOLE
V.
DK-6360 Tinglev, sími 04 - 64 30 00
J
SINFONIUHLJOMSVEIT ÍSLANDS
Sala áskriftarskírteina
hefst mánudaginn 15.
september á skrifstofu
Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, Lindargötu 9 A.
Skrifstofan er opin frá kl.
9—12 og 13—17. Askrifend-
ur eiga forkaupsrétt á
skírteinum til 1. október
1980.