Morgunblaðið - 13.09.1980, Page 13
Þú
ogég
komin
heim
SÖNGPARIÐ „Þú og ég“ er
nýlega komið heim frá Póllandi,
þar sem þau Jóhann Helgason ok
Helga Möller tóku þátt í söngva-
keppninni „Sopot Intervision
Festival“, undir stjórn Gunnars
Þórðarsonar.
Sopot-söngvakeppninni var
sjónvarpað um alla Austur-
Evrópu og til nokkurra landa í
Vestur-Evrópu. Einnig höfðu íbú-
ar Suður-Ameríku, þar með talin
Kúba og Floridaskagi tækifæri til
að fylgjast með keppninni, og er
talið að um 100 milljónir manns
hafi horft á útsendingu frá keppn-
inni.
Sopot-keppninni er jafnan skipt
í tvo hluta, annars vegar keppni
listamanna á vegum sjónvarps-
stöðva og hins vegar á vegum
hljómplötufyrirtækja og voru
þátttakendur 28 alls.
Keppni þessi er haldin árlega.
Fulltrúum frá 12 sjónvarpsstöðv-
um var að þessu sinni boðin
þátttaka í keppni sjónvarpsstöðva
og var sigurvegarinn í þeirri
keppni finnsk stúlka að nafni
Marion.
Helga og Jóhann tóku aftur á
móti þátt í keppni hljómplötufyr-
irtækja þar sem 16 fulltrúum víðs
vegar að úr heiminum vár boðið.
Fyrsta sætinu var deilt milli
tveggja þátttakenda, annars vegar
breskrar hljómsveitar að nafni
Jigsaw sem flutti lagið „Sky
High“, lag sem var þekkt hér fyrir
nokkrum árum og hins vegar
pólskrar hljómsveitar að nafni
Vox sem flutti lagið „In the Nude“.
I öðru sæti var pólsk söngkona
ísazbella Trojanowska og í þriðja
sæti gríska söngkonan Jessica.
Helga og Jóhann urðu síðan í
fjórða sæti, aðeins einu atkvæði á
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
13
Söngparið Þú og ég, Helga Möll-
er og Jóhann Helgason i keppn-
inni i Póllandi.
eftir þeirri grísku, með lag sitt
„Dance dance".
Minnstu munaði að keppninni
hefði verið aflýst vegna ástands-
ins í Póllandi, en grænt ljós var
gefið á síðustu stundu, af pólskum
yfirvöldum.
Keppnin „Sopot Intervision Fes-
tival" er þekkt í Austur-Evrópu og
hafa margir þekktir listamenn
tekið þátt í henni. Þar má nefna
Boney M, Joan Baez, Gary Brook-
en, Demis Rousso og Ritchic 1
Family frá vesturlöndum auk
skærustu stjarna Austur-Evrópu
svo sem Niemen, sem sigraði í
keppninni í fyrra, 2+1, Walentin
Baglajerko, Muslim Magomajew,
og Alla Pugaczowa.
Meðal áhorfenda voru fulltrúar
söngvakeppna víða um heim og
höfðu nokkrir þeirra samband við
„Þú og ég“ og buðu þeim þátttöku
í keppnum sem haldnar verða í
löndum þeirra á næsta ári. Má þar
nefna keppni í Þýskalandi, Búlg-
aríu, Finnlandi og Japan.
„Þú og ég“ hafa nú ýmis járn í
eldinum og ráðgera þau meðal
annars að koma fram á skemmt-
unum hér heima í framhaldi af
utanlandsför sinni.
HELGARVIÐTALIÐ ■■
Ekkert lát á eftir-
spurn eftir bókum
um frjálshyggjuna
— segir Skafti Harðarson umsjónarmaður Bókaklúbbs Félags frjálshyggjumanna
„VIÐ erum búnir að starfrækja
þennan bókaklúbb á annaö ór
og ég get ekki sagt annað en aö
þetta hefur gengiö mjög vel,“
sagi Skafti Harðarson, umsjón-
armaöur Bókaklúbbs Félags
frjáishyggjumanna er blaöa-
maður Morgunblaösins hitti
hann nú í vikunni. „Viö höfum
nú þegar dreift talsvert á þriöja
þúsund bókum, og ekkert lát
virðist á eftirspurn," sagði
Skafti ennfremur.
„Bækur þær sem viö erum
meö tengjast allar frjálshyggju-
hugsjóninni á einn eöa annan
hátt. Viö erum til dæmis meö rit
eftir hina kunnu hugsuöi Fried-
rich A. Hayek, Milton Friedman
og Karl Popper. Þá höfum viö nú
upp á síðkastið getaö komiö upp
góöum bókalager, vegna þeirrar
velgengni sem Bókaklúbburinn
hefur átt aö mæta. Erum viö því
nú meö fyrirliggjandi ýmsar
kunnar bækur frá virtum útgáf-
um, svo sem Institute of Eco-
nomic Affairs í London, Liberty
Fund í lllinois í Bandaríkjunum og
fleiri aöilum.
Þá höfum viö einnig getaö
komiö upp safni bóka um hin
ýmsu efni, og eru nú til bækur
sem viö höfum skipt niöur í
margvíslega flokka. Mesta úrval-
iö er aö sjálfsögöu í hagfræöi, en
jafnframt eigum viö mikiö af
bókum um umhverfisvernd, sál-
fræöi, lýöfræöi (félagsfræöi,
samfélagsfræöi o.fl.) og sögu aö
ógleymdri heimspekinni. Af
sögubókum má nefna bæöi rit
um þætti mannkynssögunnar og
einnig erum viö aö byrja meö
ævisögur kunnra stjórnmála-
manna og hugsuða. Þá eru viö
meö mikiö úrval af skáldsögum,
en meirihluti þeirra er vísinda-
skáldsögur. Flestar bækur af
þeirri gerö eru góöar og gegnar
„frjálshyggjubókmenntir" og á sú
hefö sér meðal annars rætur í
bókinni 1984, en einnig í Fagra
nýja veröld og Félagi Napóleon,
en þær bækur eru flestum kunn-
ar.
Bóksölu okkar erum við með í
Hafnarhvoli við Tryggvagötu, og
þar geta menn komið og þegið
kaffi alla laugardaga milfí
klukkan 9 og 13. Þar höfum við
svo einnig barmmerki, boli og
margt fleira með margvíslegum
áletrunum.
Aðalatriðið er auðvitað það, að
ekki er við að búast að fólk hafi
mikinn skilning á kenningum
frjálshyggjumanna eða annarra.
kynni það sér ekki málin af eigin
raun. Með því að gefa fólki kost
á því að fá bækur um þessi mál
erum við að leggja grunninn að
auknum skilningi á þessum mál-
um. Reynslan er þegar orðin
mjög góð eins og ég sagði fyrr,
og við erum fullir bjartsýni.
Fjölmargt annað er svo á
döfinni hjá okkur í Félagi frjáls-
hyggjumanna. Tímarit okkar,
Frelsið, mun til að mynda hefja
göngu sína innan skamms og nú
er Geir H. Haarde hagfræðingur
að þýða bókina Capitalism and
Freedom eftir Friedman, jafnvel
er á döfinni að þýða og gefa út
leikrit og fjölmargt annað er á
prjónunum" sagði Skafti að lok-
um. — AH.
Skafti Harðarson.
Jónas Halldórsson og Sigriður kona hans á verönd sumarbústaðarins, sem þau hafa reist í Skálavík, en þau
voru meðal síðustu ábúendanna í þessari vík fyrir vestan. (Ljósm. Gunnar).
í vík einni fyr-
ir vestan Diúp
Bplungarvik í byrjun september.
SKÁLAVÍK heitir vík nokkur
fyrir vestan djúp sem á sér langa
sögu. Þar var m.a. hlómleg ver-
stöð á 18. öld, enda liggur vikin
vel við sjósókn.
Skálavik iagðist i eyði 1%4.
Meðal þeirra sem siðast bjuggu í
Skálavík var Jónas Ilalldórsson.
en hann bjó á Minni-Bakka frá
1942 til 1%4. Jónas er fróður
mjög um Skálavík og hefur frá
mörgu að segja frá árum sinum í
Skálavik.
Að sögn Jónasar þykir nokkuð
víst að í Skálavík hafi búið um 200
manns um aldamótin 1700—1800 og
mun fólkið aðallega hafa stundað
sjósókn og búskap. Síðustu árin
sem búið var í Skálavík var aðal-
lega búið á þremur bæjum og þá
nánast eingöngu stundaður búskap-
ur.
Nú er Skálavík að taka á sig aðra
mynd því víkin er að verða vinsælt
sumarbústaðaland Bolvíkinga. Þar
eru nú þegar komnir fimm bústaðir
og margir hafa fest kaup á sumar-
bústaðajörðum þar. Skálavík liggur
mjög vel til þess arna því frá
Bolungarvík er aðeins um 15 til 20
mín. akstur yfir Skálavíkurheiði.
Heiðin gerir það að verkum, að
þegar út í Skálavík er komið þá er
maður kominn í sveitakyrrðina og
ekkert minnir lengur á bæjarlíf ef
frá eru skilin ökutækin sem flutt
hafa fólkið yfir heiðina. Skálavík er
nú að verulegu leyti eign Bolung-
arvíkurkaupstaðar, en þó eru all-
margir einstaklingar sem eiga þar
jarðir og á þeim hefur Bolungarvík-
urkaupstaður forkaupsrétt.
Eins og áður sagði hefur Jónas
frá mörgu að segja frá árum sínum
í Skálavík og víst er, að oft var þar
harðbýit í hörðum vetrum. Á þeim
árum sem talstöðin var eina sam-
band Skálvíkinga við umheiminn
undu þeir Jónas á Minni-Bakka og
Óskar Aðalsteinsson, vitavörður og
rithöfundur á Galtavita oft við það
að segja hvor öðrum sögur og ljóð. í
gegnum talstöðina og varð þetta
síðan vinsælt efni hjá sjómönnum á
miðunum úti af Vestfjörðum.
Jónas Halldórsson er ágætur
hagyrðingur og hann gerði síðasta
manntalið í Skálavík árið 1964 og
segir svo í niðurlagi þess:
„Karl og kelling búa í kofa við
veginn
og kotroskinn piparsveinn hinum
megin.
Þetta eru íbúar þessarar víkur
og þar er víst enginn ríkur.“
— Gunnar.